Fréttablaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 23. MARS 2009
Vísindamenn við Háskólann í
Iowoa gera því nú skóna að fólk
sæki í saltan mat til að létta lund
sína. Þeir halda því fram að salt
virki eins og náttúrulegt þung-
lyndislyf, að því er fram kemur á
vef fréttastofunnar BBC. Tilraun
þeirra á rottum sem fengu ekk-
ert salt leiddi í ljós að þær hættu
að gera hluti sem þær höfðu áður
ánægju af, sem er merki um þung-
lyndi.
Vísindamennirnir vara þó við
mikilli saltneyslu enda tengist of-
neysla salts háum blóðþrýstingi,
hjarta- og æðasjúkdómum. Menn
ættu ekki að innbyrða meira en
sex grömm af salti á dag en að
jafnaði er neysla þess mun meiri
og innbyrða Bretar að meðaltali
8,6 grömm af salti á dag.
Talsmaður Consensus Action on
Salt and Health (CASH)-samtak-
anna sem ætlað er að vekja fólk til
umhugsunar um skaðsemi of mik-
illar saltneyslu segir: „Fólk þarf
ekki nema lítið brot af því salti
sem það innbyrðir á dag. Þessi
rannsókn hjálpar okkur að skilja
hvers vegna fólk sækir í salt þrátt
fyrir að það viti vel að það geti
haft alvarlegar heilsufarslegar af-
leiðingar.“ - ve
Salt getur virkað eins og náttúrulegt
þunglyndislyf en hefur þó í miklu magni
slæm áhrif á hjarta- og æðakerfi.
NORDICPHOTOS/GETTY
Saltneysla óholl en
talin létta lundina
„Það geta allir lært salsa. Ég hef
ekki enn kynnst neinum sem hefur
ekki getað lært þetta og fólk allt
upp í sjötugt mætir á námskeiðin,“
segir Hanna Harpa Agnarsdótt-
ir, viðskiptafræðingur og sérfræð-
ingur hjá starfsmannadeild LRH.
Hanna dansar salsa hjá Salsa Ice-
land, félagi áhugafólks um salsa á
Íslandi, allt að fimm sinnum í viku
og segir það afar góða hreyfingu og
æfingu. „Það tekur á að dansa allt
upp í fjóra tíma í senn. Maður svitn-
ar stundum heil ósköp og strákarn-
ir eru oft að skipta um boli tvisvar
eða þrisvar á kvöldi,“ segir hún og
skellir upp úr.
Hanna Harpa kynntist salsa
fyrst þegar hún var við nám í Kaup-
mannahöfn. „Þar var alls staðar
verið að auglýsa salsa-námskeið
þannig að ég ákvað
að skella mér. Ég
varð bókstaflega
ástfangin af öllu í
kringum þetta, tón-
listinni, menning-
unni og stemning-
unni, þannig að ég
ákvað að leita uppi
salsa þegar ég flutti
aftur til Íslands. Ég sé
ekki eftir því.“
Salsa Iceland var
stofnað árið 2003 af
Eddu Blöndal, sem kynntist salsa-
dansinum þegar hún var búsett í
Svíþjóð. Frá 2006 hefur félagið átt
í samstarfi við stærsta salsaskóla
Norðurlandanna, SalsaAkademien
í Stokkhólmi, og heimsækja kenn-
arar þaðan Salsa Iceland reglulega
og halda námskeið. Hanna Harpa
segir Eddu vera eins konar guðmóð-
ur salsa á Íslandi. „Þetta er mjög
skemmtilegur félagsskapur. Það
eru haldin námskeið á nokkrum
erfiðleikastigum og líka skemmti-
leg salsakvöld þar sem gólfið iðar.
Eitt af því sem gerir námskeiðin
svona vinsæl er að fólk þarf ekki að
skrá sig í pörum. Það er alltaf rót-
erað á námskeiðunum svo einstakl-
ingar geta skráð sig alveg eins og
pör. Svo bjóða dömur upp í
dans jafnt á við herr-
ana, þannig að það
ríkir jafnrétti í salsa,“
segir Hanna Harpa.
Hún stefnir ekki
á keppni í salsa,
þar sem dans-
inn sé skemmt-
un. „Í keppnis-
dansi er allt-
af fyrirfram
ákveðin rútína,
en „social salsa“
er hundrað prósent
af fingrum fram –
engar reglur, nema
helst takturinn.“
- kg
Jafnrétti ríkir í salsa
Hanna Harpa féll fyrst fyrir salsa í Kaupmannahöfn og leitaði það svo uppi á Íslandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hanna Harpa í suðrænni
sveiflu á salsakvöldi í
Óliver. MYND/ÚR EINKASAFNI
Hvannadalshnjúkur 2110 m
Bárðarbunga 2000 m
Kverkfjöll 1920 m
Snæfell 1833 m Herðubreið 1682 m
Hekla 1488 m
Snæfellsjökull 1446 m
Esja 914 m
Loðmundur 1477 m
Hraundrangi 1075 m
Bláfell 1204 m
Hengill 803 m
Ármannsfell 768 m
Valahnjúkur 458 m
Esja 914 m
Helgafell 338 m
Vífilsfell 677 m
Stóra-Dímon 178 m
Drangaskörð 250m
Kerling 1538 m
Mælifellshnjúkur 1138 m
Bláhnjúkur 940 m
Hornbjarg 534 m
Keilir 379 m
Öskjuhlíð 61 m
SKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!
SAFNAÐU
FJÖLLUM
MEÐ FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS
VAXTALAUSIR LAGERHREINSUNARDAGAR!!
30% afsláttur af fjölþjálfum og hlaupabrautumAllt að 50% afsláttur af handlóðum og lóðaplötum
50%
afsláttu
r
WWW.GAP.IS
30%
afsláttu
r
Allt að 6 mánaða
vaxtalausar raðgreiðslur
í boði á þrektækjum