Fréttablaðið - 25.03.2009, Side 8
8 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
1. Hve háar voru samanlagðar
arðgreiðslur viðskiptabankanna
þriggja og SPRON árin 2004-7?
2. Hve háan styrk fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn frá Neyðarlín-
unni fyrir kosningarnar 2007?
3. Hver er staðan í einvígi
Hauka og KR í körfubolta
kvenna eftir tvo leiki?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Norðurlands eystra af
ríkissaksóknara.
Manninum er gefið að sök að
hafa á árinu 2008 framvísað föls-
uðum lyfseðli í lyfjaverslun í Hag-
kaupum á Akureyri eftir að hafa
breytt töflufjöldanum á honum úr
þrjátíu rítalíntöflum í sextíu.
Eftir þetta ók maðurinn, rétt-
indalaus, frá lyfjaversluninni og
að Fjórðungssjúkrahúsinu. Þar
hótaði hann starfsmanni á slysa-
deild með klaufhamri og krafði
hann um símanúmer geðlæknis-
ins sem hann hafði fengið lyfseðil-
inn hjá. Þegar það gekk ekki hótaði
hann öðrum starfsmanni deildar-
innar með klaufhamrinum í sama
tilgangi.
Skömmu síðar áreitti maðurinn
tvo lögreglumenn við störf, ýtti við
öðrum og sparkaði í hinn, sem féll
til jarðar, að því er segir í ákæru.
Þá hótaði hann tveimur mönnum
lífláti í kjölfar umferðaróhapps.
Loks hótaði hann fjórum lög-
reglumönnum sem voru við störf
líkamsmeiðingum og hélt hótunun-
um áfram á leið á lögreglustöð. Á
árinu 2007 hafði maðurinn reynt
að ræna leigubílstjóra í Reykjavík.
Hann sló bílstjórann og skar hann
í andlit og hendur með eggvopni.
- jss
Ríkissaksóknari ákærir rúmlega tvítugan mann fyrir alvarleg brot:
Tvöfaldaði rítalínskammt og
skar leigubílstjóra með vopni
RÍTALÍN Maðurinn falsaði lyfseðil og
breytti fjölda rítalíntaflna úr þrjátíu í
sextíu.
VOR í
ENDURMENNTUN
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444
endurmenntun.is
Verkefnin í garðinum - almenn umhirða og viðhald
hefst 1. apríl
Fuglar og fuglaljósmyndun
hefst 15. apríl
Ræktun matjurta í heimilisgarðinum
hefst 22. apríl
Róm - Borgin eilífa
hefst 28. apríl
Íslenska flóran
hefst 4. maí
Frístundalóðir: Umhirða og skipulag
hefst 5. maí
Fuglar og fuglaskoðun
hefst 5. maí
Franska Rivieran
hefst 11. maí
Eldfjöll
hefst 13. maí
Safnhaugar í heimilisgörðum
hefst 18. maí
SJÁVARÚTVEGUR Tilmæli til norskra
fyrirtækja um að flytja ekki inn
fiskimjöl né lýsi frá Íslandi og
veiðileyfissvipting íslenskra
skipa sem veitt hafa makríl innan
norskrar lögsögu eru meðal til-
lagna sem Helga Pedersen, sjáv-
arútvegsráðherra Noregs, hefur
nefnt í norskum fjölmiðlum til að
stemma stigu við markrílveiðum
Íslendinga.
Undanfarna daga hefur hún átti
fundi með Huw Irranca-Davies,
sjávarútvegsráðherra Breta, sem
var í heimsókn í Noregi.
„Ég vona að niðurstaðan af
fundi þeirra beri það með sér að
Íslendingar verði ekki teknir nein-
um vettlingatökum,“ segir Audun
Maraak, framkvæmdastjóri Sam-
taka norskra útgerðarmanna, sem
vonar að báðar tillögurnar verði
að veruleika. Í vefútgáfu norska
dagblaðsins Stavanger Aftenblad
er haft eftir Kjell Bjordal, fram-
kvæmdastjóra EWOS, sem flyt-
ur einna mest inn af fiskimjöli og
lýsi frá Íslandi, að ef tilmæli ber-
ist frá ráðherra um að sniðganga
íslenskar vörur muni fyrirtækið
verða við því.
„Við erum náttúrlega vanir
ýmsum látum frá Norðmönnum
en það er þó nýlunda að ráðherra
taki þátt í þeim,“ segir Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útgerð-
armanna. Hann segir að ef norsk
yfirvöld hvetji til þess að ekki
verði flutt inn fiskimjöl og lýsi þá
brjóti það bæði í bága við samn-
inga EFTA og Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar. „Þá væri það nátt-
úrlega mjög alvarlegt mál og við
myndum sækja okkar rétt,“ segir
hann. Friðrik óttast þó ekki að
erfitt yrði að finna annan markað
fyrir þessar afurðir. Hann hefur
óskað eftir því að Steingrímur J.
Sigfússon, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, ræði málið við
norska kollega sinn.
En hvað ef Norðmenn gripu til
þess ráðs að svipta íslensk skip
sem veitt hefðu makríl veiðileyf-
um í norskri lögsögu? „Það er í
raun svo fráleitt að ég tel best að
vera ekkert að fabúlera um það,“
segir hann. Ef
til slíks kæmi
m y n d i þ a ð
meðal annars
hafa áhrif á
veiði á norsk-
íslensku síld-
inni.
„Auðvitað
myndi það hafa
slæm áhrif á
okkur ef grip-
ið yrði til þessara aðgerða en ég
trúi ekki að til þess komi; það
væri ekki boðlegt að nútíma sam-
félag stæði þannig að málum,“
segir Gunnþór B. Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
en þeir veiddu um 37 þúsund tonn
af makríl í fyrra.
Ekki náðist í Steingrím J. Sig-
fússon né Helgu Pedersen, kollega
hans frá Noregi.
jse@frettabladid.is
Norðmenn íhuga
hefndaraðgerðir
Sjávarútvegsráðherra Noregs íhugar aðgerðir gegn Íslendingum til að stemma
stigu við makrílveiðum þeirra. Viðskiptahöft og bann við veiðum íslenskra
skipa í norskri lögsögu eru meðal hugmynda sem ræddar eru.
Í ÓLGUSJÓ Íslendingar stíga nú ölduna í samskiptum sínum við Norðmenn.
HELGA
PEDERSEN
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
GUNNÞÓR B.
INGVASON
DÓMSMÁL Tveir piltar innan
við tvítugt hafa verið dæmdir
í skilorðsbundið fangelsi og til
greiðslu skaðabóta fyrir líkams-
árás.
Þeir réðust á pilt, sem er
tveimur árum yngri en þeir,
á hjólabrettasvæði á Selfossi.
Annar þeirra kýldi piltinn
þrisvar í andlitið en hinn sló hann
í bakið með kúbeini.
Árásarmennirnir játuðu báðir
sök fyrir dómi. Árásin var algjör-
lega tilefnislaus. Piltarnir voru
báðir dæmdir í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi og til að
greiða fórnarlambinu 180 þús-
und, auk sakarkostnaðar. - jss
Tveir piltar dæmdir:
Kýldu og börðu
pilt með kúbeini
IÐNAÐUR Félagið The North Pole
Wire vinnur að því að reisa hér á
landi kapalverksmiðju sem skapa
mun um 300 til 500 störf. Ráðgert
er að fyrsti áfangi verði tilbúinn
eftir eitt til tvö ár en að verk-
smiðjan verði fullbúin eftir þrjú
til fjögur ár.
„Þetta eru gríðarlega mikil-
væg tíðindi ofan í fréttaflutning
um atvinnuleysi og aðra óáran,“
segir Friðrik Þór Guðmundsson,
fjölmiðlafulltrúi félagsins. „Þessi
verksmiðja byggir á úrvinnslu úr
álinu framleiddu á Íslandi, á góðri
íslenskri endurnýjanlegri orku og
mengar sama og ekki neitt. Því
ætti þetta að falla öllum í geð.“
Stofnendahópurinn innanlands
er í umsjá Verkfræðistofu FHG,
Friðriks Hansen Guðmundssonar,
en að baki verkefninu eru erlend-
ir aðilar sem hópurinn vill ekki
greina frá enn sem komið er. Ekki
er búið að ákveða staðsetningu
fyrir verksmiðjuna.
Í fréttatilkynningu frá The
North Pole Wire segir að fyrir
liggi að hér á landi þurfi að leggja
mikið af rafmagnsköplum í jörð á
næstu árum og endurnýja strengi
í gömlum háspennulínum. Verk-
smiðjan muni geta boðið upp á
strengi og kapla sem henta mun
vel til þess á samkeppnishæfu
verði. Verksmiðjan muni þó aðal-
lega framleiða strengi og kapla til
útflutnings. - jse
Ráðgera að reisa kapalverksmiðju sem skapa myndi 300 til 500 störf:
Vilja vinna álið og skapa störf
HANGANDI RAFLÍNUR Verksmiðjan
myndi framleiða strengi og kapla sem
hentuðu vel þegar koma á raflínum sem
þessum í jörðu, segir fjölmiðlafulltrúi
The North Pole Wire.
VEISTU SVARIÐ?