Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 22
 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR2 Frá því að norskur maður var settur seðlabankastjóri hafa efasemdir verið látnar í ljós um hvort það samrýmist 20. gr. stjórn- arskrárinnar þar sem íslenzkur ríkisborgararéttur er áskilinn til skipunar í embætti. Af því hefur sprottið nokkur umræða, en hún hefur farið út um víðan völl eins og einatt gerist í orðaskaki Íslend- inga. Fjögur dæmi skulu nefnd. Fordæmi – valdaættir – þjóð- remba – úrelt ákvæði Fyrst má hér nefna til sögunn- ar Þórólf Matthíasson prófessor sem bent hefur á það fordæmi að erlendur ríkisborgari hafi verið settur í prestsembætti og síðan skipaður eftir að hafa fengið íslenzkan ríkisborgararétt. Nauð- synlegt sé að fá hingað erlenda afburðamenn til starfa og þá skipti engu máli hvort þeir geti sungið, skrifað eða skammazt á íslenzku. (Fréttablaðið 4. marz 2009). Kristján B. Jónasson rithöfund- ur ræðir um að erlendur blaða- maður sem hann lýsir með hás- temmdum orðum hafi gert úttekt á íslenzku þjóðfélagi, en hún hafi snúizt um annað en „þá ósvinnu að norskur maður skuli hafa fengið hér embætti svo innlendar valda- ættir verkjar í litningana og vitna utanbókar í Áshildarmýrarsam- þykktina frá 1496 um að innbornir einstaklingar skuli einir kallaðir til metorða.“ (Lesbók Morgunblað- isins 8. marz 2009). Víkverja leiðist þjóðremba, en óttast að hún sé að færast í auk- ana. „Eitt dæmi um þjóðrembu eru viðbrögð við ráðningu nýs seðlabankastjóra. ... Eftir banka- hrunið var hrópað að þörf væri á erlendum sérfræðingum, en þegar þeir svo koma er skammazt. Ekki viturleg viðbrögð finnst Víkverja.“ (Morgunblaðið 8. marz 2009). Agnar Freyr Helgason, nemi við London School of Econom- ics, segir þetta: „Að gera þjóðerni hans að einhverju aðalatriði er náttúrlega alveg út í hött og bara gert til þess að draga athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli. Ákvæðinu um ríkisborgara- rétt embættismanna hlýtur ann- ars að vera breytt ef það verður farið í gagngerðar breytingar á stjórnarskránni á næstunni. Það er barn síns tíma.“ (Fréttablaðið 12. marz 2009). Þórólfur Matthíasson kemst næst því að halda sig við efnið og skírskotar til fordæmis án þess að velta því fyrir sér hvort emb- ætti prests og seðlabankastjóra séu sambærileg og er þá eingöngu hafður í huga veraldlegur þáttur prestsembætta. Í skrifi Kristjáns B. Jónassonar kveður við þann tón að innlendar valdaættir séu að verja hagsmuni sína eins og löng- um. Hér endurómar sú söguskoð- un að það sem miður hafi farið á Íslandi sé að kenna innlendu aft- urhaldi sem löngum hafi tekizt á við erlendar (danskar) framfar- ir og frjálslyndi. Víkverji bætir um betur og nú er þjóðremban að verki. Agnari Helgasyni lízt nokk- uð vel á bankastjórann; ákvæði 2. mgr. 20. gr. er úrelt. Stjórnarskrá Noregs og Danmerkur Áður en lengra er haldið er rétt að líta til nálægra landa. Í 92. gr. norsku stjórnarskrárinnar er norskur ríkisborgararéttur skil- yrði fyrir að menn „utnevnes til embetsmenn“ auk þess sem þeir verða að kunna norsku. Undan- tekningar eru gerðar um kenn- ara við háskóla og menntaskóla og ræðismenn erlendis. Í 27. gr. stjórnarskrár Dana er ríkisborg- araréttur einnig áskilinn. Þar segir: „Ingen må ansættes som tjenestemand uden at have ind- fødsret.“ Því má bæta hér við að í 28. gr. 4. tl. samningsins um Efna- hagssvæði Evrópu er frjálst flæði vinnuafls takmarkað þannig, að það nær ekki til starfa í opinberri þjónustu. Af þessu má ráða að erlendar valdaættir tryggi hags- muni sína ekki síður en Íslending- ar og þjóðremban leiki nú ljósum logum um Evrópu rétt eins og vofa kommúnismans 1848. Þeir Kristján og Víkverji eiga sér óvíða griðastað. Að sneiða hjá kjarna málsins Athygli vekur hversu fimlega þeir, sem vitnað er til, sneiða hjá kjarna málsins sem er túlkun á 2. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar í ljósi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Í þess stað er orðræðunni snúið upp í það hversu nauðsynlegt sé að fá erlenda afburðamenn til starfa á Íslandi og að þeim lít- ist nokkuð vel á bankastjórann. Þannig er umræðu drepið á dreif. – Nú snýst málið ekki um persónu seðlabankastjórans sem er áreið- anlega hinn færasti og fengur að ráðum hans. Athugasemdir mínar lúta að því hvernig staðið hefur verið að setningu hans í emb- ætti og þar á hann engan hlut að máli. Grundvallarmunur á setningu og skipun Ásmundur Helgason lögfræð- ingur hefur þá sérstöðu að gera sér ljóst um hvað málið snýst. Í grein í Fréttablaðinu 18. marz sl. rekur hann efni starfsmannalaga nr. 38/1954 og nr. 70/1996 – þau ákvæði sem lúta að réttarstöðu embættismanna, setningu, skip- un og starfslok. Hann viðurkenn- ir að breytingar hafi orðið við gildistöku síðarnefndu laganna en telur mig ýkja þær. Enn sé grund- vallarmunur á skipun og setningu í embætti. Um huglægt mat sem liggur til grundvallar ályktun- um og orðavali er tilgangslítið að þrátta. Eigi að síður vil ég árétta niðurstöðu mína í stuttu máli. Fyrst skal vikið að 24. gr. starfsmannalaganna. Þar er setn- ing heimiluð í tveimur tilfellum. Í fyrsta lagi í forföllum skipaðs embættismanns. Þetta getur ekki átt við þar sem embætti seðla- bankastjóra voru lögð niður og nýtt stofnað í þeirra stað. Ekki hafði verið skipað í það og því engum forföllum til að dreifa. Í öðru lagi má setja embættis- mann til reynslu áður en hann er skipaður. Norski bankastjórinn er þá settur samkvæmt þessu ákvæði og þannig getur hann setið í allt að tvö ár. Ásmundur vekur athygli á því að í greinargerð sé tekið fram að þeir sem settir séu í emb- ætti verði ekki sjálfkrafa emb- ættismenn. Sá sem situr í lög- festu embætti hlýtur þó að vera embættismaður; athugasemdir í greinargerð breyta því ekki. Túlkun í ljósi breyttrar réttarstöðu Um það er ekki ágreiningur að eftir gildistöku starfsmannalag- anna 1996 sé nú ljóst hverjir telj- ist embættismenn skv. 2. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar. Hins vegar telur Ásmundur ekki sjá- anleg nein rök fyrir þeirri efnis- breytingu að nú nái skilyrðið um ríkisborgararétt einnig til setn- ingar í embætti. Breytingar á reglum um réttarstöðu embættis- manna 1996 heimili engan veginn að teygt sé á gildissviði reglunnar í stjórnarskránni gagnvart gern- ingum sem falla ekki undir hana hvort sem litið sé til orðalags og langvarandi túlkunar þess. Engin breyting hafi verið gerð á stjórn- arskránni og engar vísbendingar séu um að ætlunin hafi verið að hrófla við heimild ráðherra til að setja tímabundið í embætti. Lögin frá 1996 breyti í engu réttarstöð- unni að þessu leyti, hvað þá að þau hafi áhrif á túlkun stjórnar- skrárinnar. Hér er annars vegar skírskot- að til orðalags og hins vegar langvarandi túlkunar. Þar sem stjórnfesta ríkir eru stjórnarskrár fremur stuttorðar. Til viðbótar kemur stjórnmála- eða pólitísk menning sem birtist í stjórnskipunarhefðum og venjum sem sumar hafa að geyma grund- vallarreglur – eins og þingræðis- regluna – en aðrar koma til fyll- ingar settum ákvæðum og breyta jafnvel bókstaf þeirra, sbr. t.d. sum ákvæði um hlutverk forseta í II. kafla stjórnarskrárinnar, eins og 15. gr. og V. kafla um dóms- valdið þar sem hvergi segir að dómstólar skeri úr því hvort lög samrýmist stjórnarskránni, en þeir gera samt og hafa lengi gert. Áherzla á að breyta þurfi orða- lagi stjórnarskrárinnar til þess að binda tímabundna setningu í embætti við ríkisborgararétt ber vitni um bókstafstrú sem er ekki í samræmi við íslenzkar stjórn- skipunarhefðir. Um langvarandi túlkun á 2. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar liggur ekkert fyrir, enda ólíklegt að fleiri hafi verið settir í emb- ætti eftir 1996 en einn prestur. Ef fordæmi eru ekki fleiri verður ekki með réttu talað um langvar- andi túlkun. Vissulega hafa lög áhrif á túlkun stjórnarskrárinnar og er skemmst að minnast löggjafar sem setur eignarréttindum og atvinnufrelsi takmörk, sbr. 72. og 75. gr. Þegar dregið er úr þeim mun sem er á setningu og skip- an í embætti, sem gert var 1996, hlýtur það að hafa áhrif á túlk- un 2. mgr. 20. gr. Ef fast er hald- ið við bókstafinn verður smám saman rýmkað fyrir erlendum mönnum í embætti á Íslandi og þá verða menn að gera sér grein fyrir því hvað menn vilja. Af umræðu síðustu vikur verður ekki annað ályktað en margir séu fúsir til að gangast undir erlenda höfðingja. Loks segir í grein Ásmundar að stjórnarskráin gefi ekkert til- efni til að greina milli einstakra embætta, þannig að hæfisskilyrði 2. mgr. 20. gr. útiloki að útlend- ingar séu settir í sum embætti en ekki önnur. Þessu hefur ekki verið haldið fram, heldur hinu að með bókstafstúlkun sé útlendum mönnum opnuð leið til að sitja í embætti æðstu stjórnenda lands- ins – eins og embætti seðlabanka- stjóra – og starfa við löggæzlu og öryggisgæzlu í allt að tvö ár. Hvert verður svo næsta skref? Að horfið verði frá bókstafnum og þeim rökum beitt að enginn munur sé á setningu og skipun og erlendir ríkisborgarar verði skipaðir í embætti? Loks fylgir sú fullyrðing að stjórnarskránni sé engin virðing sýnd með því að leggja sig í líma við að lesa út úr henni reglur sem þar sé ekki að finna. Þetta hafa þó fræðimenn okkur fremri lengi gert. P.s. Grein mín birtist í Frétta- blaðinu 11. marz og grein Ásmundar 18. marz. Um útlenda embættismenn Skipan og setning í embætti SIGURÐUR LÍNDAL lagaprófessor Fullkomin öryggiskerfi með miklum möguleikum og þráðlausum skynjurum. Henta vel fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki og fást í mörgum útfærslum. Uppsetning í boði ef óskað er. TILVERAN getur verið streitulaus... ÖRYGGI ÁN MÁNAÐARGJALDA www.sm.is UMBOÐSMENN UM LAND ALLT MEÐ ÍSLENSKU TALI OG TEXTA MEÐAL MÖGULEIKA: REYKSKYNJARI VATNSSKYNJARI HITASKYNJARI GASSKYNJARI ÖRYGGISHNAPPUR EINKA ÖRYGGISKERFI 466 1016 www.ektafiskur.is frumkvöðlafyrirtæki ársins  - fiskvinnsla frá árinu  Garðyrkjunámskeið Ræktun í sumarhúsalandinu Miðvikudaginn 25/3 kl. 19:00-21:30. Verð kr. 6.500.- Ræktun ávaxtatrjáa Tvö kv. mán. 30/3 og 6/4 kl. 19:00-21:30. Verð kr. 12.500.- Ræktun berjarunna og -trjáa Þriðjudaginn 30/3 kl. 17:00-18:30. Verð kr. 3.750.- Matjurtaræktun Tvö kvöld, þri. 31/3 og 7/4 kl. 19:00-21:30. Verð kr. 12.500.- Kryddjurtaræktun Þriðjudaginn 31/3 kl. 17:00-18:30. Verð kr. 3.750.- Klipping trjáa og runna Miðvikudaginn 1/4 kl. 19:00-21:30. Verð kr. 6.500.- Rósir og blómstrandi runnar Mánudaginn 6/4 kl. 17:00-19:30. Verð kr. 3.750.- Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen, garðyrkjufr. Jón Guðmundsson, garðyrkjufr. Skráning og upplýsingar í síma 578 4800 og á www.rit.is í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.