Fréttablaðið - 25.03.2009, Page 24
„Ég fermdist á Hólum í Hjalta-
dal á mjög fallegum og sólríkum
degi á hvítasunnunni, 7. júní 1992.
Pabbi minn, Bolli Gústavsson, sem
var vígslubiskup þar, fermdi mig,“
segir Hildur Eir Bolladóttir, prest-
ur í Laugarneskirkju, sem á marg-
ar góðar minningar frá ferming-
ardeginum.
„Ég var búin að hlakka til þessa
dags frá því að ég var átta ára. Ég
hafði fylgt pabba eftir í ferming-
arfræðslu í mörg ár og þegar hann
var að ferma upplifði ég alveg til-
hlökkunina í gegnum krakkana. Ég
var meira að segja búin að ákveða
þegar ég var tíu ára að ég ætlaði
að fá Íslendingasögurnar og Sturl-
ungasögu í fermingargjöf,“ segir
Hildur og bætir við að hún hafi
þótt frekar furðulegur krakki og
unglingur. „Á meðan vinir mínir
tóku upp græjurnar sínar var ég
himinlifandi yfir Íslendingasögun-
um mínum sem mamma og pabbi
gáfu mér og ég á enn uppi í hillu.“
Hildur segist hafa upplifað ferm-
ingardaginn mjög sterkt. „Ég get
enn þá séð hann fyrir mér. Merki-
legast var að mér fannst mér sýnd
svo mikil virðing að allt þetta full-
orðna fólk skyldi leggja það á sig að
ferðast þvert yfir landið til þess að
upplifa þennan dag með mér sem
var bara fjórtán ára. Sú tilfinning
lifir enn þá með mér, ég var svo
þakklát. Það er líka sterkt í minn-
ingunni að pabbi var mjög klökkur
þegar kom að mér í fermingunni
og þurfti aðeins að stoppa. Ég var
ekkert að velta þessu fyrir mér þá
en núna finnst mér þetta ekkert
skrýtið því að hann var þarna að
ferma sjötta og yngsta barnið sitt
kominn á sextugsaldur og ég hugsa
að hann hafi bara verið svo þakk-
látur að fá að lifa það að ferma öll
börnin sín.“
Hildur segist hafa verið sérstak-
lega ánægð með fermingarkjólinn
sinn. „Ég gerði mér sér ferð suður
til Reykjavíkur að kaupa ferming-
arföt. Við foreldrar mínir fórum
í Sautján og pabbi valdi dýrasta
kjólinn í búðinni á mig sem var
sá flottasti og mig langaði mest
í. Honum fannst hann líka falleg-
astur og ég man að hann kostaði
fimmtán þúsund krónur sem þótti
nú bara talsvert mikið þá.“
Ólíkt mörgum var Hildur líka
ánægð með fermingarmyndirn-
ar. „Það var fenginn ljósmyndari,
sem starfaði sem tískuljósmynd-
ari úti Frakklandi, til þess að
koma sérstaklega og taka þessar
myndir. Ég hef aldrei verið þekkt
fyrir að myndast neitt sérstaklega
vel og það er bara hending ef það
næst af mér góð mynd og ég var
svo ánægð með þessar ferming-
armyndir mínar að ég fór hvorki í
myndatöku þegar ég varð stúdent
né þegar ég gifti mig. Þess vegna
er ég líka rosalega glöð að þær
skuli núna koma fyrir almennings-
sjónir,“ segir Hildur og hlær.
emilia@frettabladid.is
Hlakkaði lengi til dagsins
Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Laugarneskirkju, upplifði fermingardaginn sinn sterkt en hún var lengi
búin að hlakka til hans. Pabbi hennar, Bolli Gústavsson þáverandi vígslubiskup á Hólum, fermdi hana.
Franskur tískuljósmyndari myndaði Hildi.
Fermingarkjóllinn var keyptur í Sautján.
Hildur Eir er
núna prestur í
Laugarneskirkju.
LISTMUNIR hvers konar geta
verið eigulegar gjafir sem ferm-
ingarbarnið getur prýtt framtíðar-
heimili sitt með.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Laugavegi 87 • sími: 511-2004
Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími 533 2220 | www.lindesign.is
Dúnsængurnar frá Lín Design
100% andadúnn.
Dúnmjúk gæðasæng.
Ekkert fi ður né önnur fyllingarefni.
Fermingartilboð kr 24.990,-
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...