Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 26

Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 26
 25. mars 2009 MIÐVIKU- 4 „Svæðið hér í kringum Djúpavog er eins og skapað til fuglaskoðun- ar,“ segir Andrés Skúlason, einn forsvarsmanna verkefnisins birds. is, sem nýverið hlaut viðurkenn- inguna Frumkvöðullinn. Birds.is var stofnað árið 2003 í kjölfar greiningar á sérkennum svæðisins í kringum Djúpavog sem var gerð með tilliti til þess að efla ferðaþjónustu. „Útflutnings- ráð kom fljótlega að verkefninu og var þá farið í markvissa markaðs- setningu,“ útskýrir Andrés sem er oddviti sveitarfélagsins. Byggð hefur verið upp góð aðstaða með upplýsingaskiltum auk sérútbúinna fuglaskoðunar- húsa sem auðvelda fólki að komast nær fuglunum. Þá hefur verið sett upp vefsíðan www.birds.is. „Þetta hefur gengið mjög vel og hefur fjöldi ferðamanna bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum lagt leið sína hingað,“ segir Andrés og bætir við að Íslendingar séu einn- ig duglegir að nota aðstöðuna enda njóti fuglaskoðun vaxandi vin- sælda hér á landi. „Það er auðvitað erfitt að segja hve margir koma hingað gagngert til að skoða fugla en mjög marg- ir doka við auk þess sem leiðsögu- menn eru farnir að koma hingað með hópa,“ segir Andrés og ítrekar að verkefnið sé nú þegar farið að skila heilmiklu inn í bæjarfélagið þrátt fyrir að afnot af allri aðstöðu sé gjaldfrjáls og öllum heimil. „Þetta er góð viðbót við þá afþreyingu sem þegar er í boði. Svo horfum við líka til þess að hægt verði að lengja ferðamanna- tímabilið,“ segir Andrés en besti tíminn til fuglaskoðunar að hans mati er í apríl og maí. Aðstandendur birds.is fara sér í engu óðslega. „Við vildum fyrst byggja upp aðstöðuna, setja upp skilti og hús. Núna erum við að vinna í því að koma upp leiðsögu- mannateymi til að geta selt í skipu- lagðar ferðir enda er það framtíð- in í þessu,“ upplýsir Andrés en á döfinni er að fá skóla til samstarfs enda hentar svæðið vel til fræðslu í nánum tengslum við náttúruna. Náttúran er aðalsmerki Djúpa- vogs og því er ætlunin að ganga enn lengra í markaðssetningu hennar. „Við ætlum að merkja fjörurnar með skiltum en fugla- skoðunarsvæðið er rétt við fjöru- borðið. Við viljum þannig tengja allt saman svo fólk upplifi sterkt náttúruna og fjölbreytileika henn- ar,“ segir Andrés sem er ánægður með stöðuga fjölgun ferðamanna til Djúpavogs. solveig@frettabladid.is Fuglaparadís á Djúpavogi Verkefnið birds.is á Djúpavogi hlaut nýverið viðurkenninguna Frumkvöðulinn sem Markaðsstofa Austur- lands veitir árlega. Síðustu ár hefur verið byggð upp góð aðstaða til fuglaskoðunar í nálægð við bæinn. Andrés með fuglahús.Flórgoðar við hreiðurgerð á Fýluvogi. Eitthvað merkilegt hefur borið fyrir sjónir þessara fuglaáhugamanna í Eyfreyjunesi. MYND/ÚR EINKASAFNI KÍKIR er nokkuð sem sniðugt er að taka með í hvers konar gönguferðir. Ekki er verra að hann sé lítill og nettur og komist í vasann. MasterCard Mundu ferðaávísunina! – helgarferð Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Platanus *** með morgunmat.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.