Fréttablaðið - 25.03.2009, Side 28
25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● formúla 1
Formúla 1 hefur verið fjörug
síðustu ár og úrslitin hafa ráð-
ist í síðasta móti undanfarin ár.
Svo hörð var keppnin í fyrra að úr-
slitin réðust í síðustu beygju í síð-
asta móti ársins í Brasilíu. Bretinn
Lewis Hamilton tryggði sér titil-
inn með því að ná fimmta sæti, en
helsti keppinautur hans, heima-
maðurinn Felipe Massa á Ferrari
vann keppnina á Interlagos-braut-
inni.
Það dugði ekki til og Hamilton
varð meistari með eins stigs mun.
Árið áður vann Kimi Raikkön-
en með eins stigs mun eftir mikla
keppni við Hamilton og Fernando
Alonso.
ÍSLENSKUR DÓMARI Á FYRSTA
MÓTINU
Formúla 1 hefur verið mjög vin-
sæl á Íslandi og í fyrsta móti árs-
ins í Ástralíu um næstu helgi verð-
ur nokkuð um íslenska áhorfend-
ur á staðnum. Þá verður Ólafur
Guðmundsson einn þriggja dóm-
ara, sem er vissulega mikill heiður
þar sem keppt verður eftir nýjum
reglum um búnað bílanna og eftir
nýjum keppnisreglum. Mun trú-
lega mæða mikið á Ólafi, en jafn-
vel er talið að kærumál komi upp
vegna þriggja bíla sem sum keppn-
islið telja ólögleg.
Toyota, Williams og nýtt lið
Brawn fóru aðrar leiðir í hönnun
afturhluta bíla sinn en önnur lið
og hafa staðið sig vel á æfingum.
Hafa verið raddir um það að önnur
keppnislið kunni að kæra búnað
liðanna fyrir eða eftir mót, en
FIA, alþjóðabílasambandið, telur
þó alla bíla sem fram hafa komið
löglega. FIA segir að önnur keppn-
islið verði að kæra liðin þrjú eigi
að skoða málið alvarlega.
RUGL MEÐ VERÐLAUNAKERFIÐ
Þá hafa staðið deilur um það síð-
ustu vikuna hvort nota ætti stiga-
kerfi síðustu ára, eða breyta yfir
í kerfi sem þýðir að sá sem vinn-
ur flest gull verði meistari. FIA
samþykkti þá hugmynd Bernie
Ecclestone að sá sem sigrar oft-
ast verði meistari, en keppnislið-
in brugðust ókvæða við.
Forráðamenn þeirra vildu
breyta stigakerfinu þannig að
sigurvegari fengi þremur stig-
um meira en sá sem lendir í öðru
sæti, þannig að vægi sigurs yrði
meira. FIA vildi ekki heyra á það
minnst. Á þriðjudag gaf FIA út
formlega yfirlýsingu sem stað-
festir að stigakerfið sem hefur
verið í notkun síðustu ár mun
gilda áfram og óbreytt.
Enda ekki seinna vænna. Málið
er enn eitt dæmið um hringlanda-
hátt í Formúlu 1, en keppnislið
hafa samt unnið hörðum hönd-
um að því að vinna saman að því
að efla Formúlu 1. Verður öll um-
gjörð Formúlu 1 opnuð meira
fyrir almenning og upplýsinga-
flæði í sjónvarpsútsendingum
bætt til muna. Þá verður áhorf-
endum á mótsstað veitt meira
aðgengi að ökumönnum en áður
hefur þekkst.
Það skortir aldrei umræðuefni
þegar Formúla 1 er annars vegar
og Stöð 2 Sport mun sýna öll mót
beint. Þá verður fjöldi þátta í
kringum útsendingarnar, sem
hleypa áhorfendum að tjaldabaki
á nýjan hátt. - gr
FORMÚLA 1 2009:
Nýjar reglur og nýir bílar
Fernando Alonso, Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða í eldlínunni í Ástralíu um
næstu helgi. NORDICPHOTOS/GETTY
Renault Alonso er gjörbreyttur frá síðasta ári og smíðaður samkvæmt nýjustu reglum. NORDICPHOTOS/GETTY
Stefano Domenicali, framkvæmd-
arstjóri Ferrari, segir deilurnar
um stigagjöfina í Formúlu 1 hina
vandræðalegustu fyrir íþrótt-
ina.
FIA, alþjóðabílasambandið, gaf
út nýja reglu í síðustu viku sem
forráðamenn keppnisliða voru ekki
sáttir við. Reglan féll um sjálft sig
á nokkrum dögum.
FIA vildi fella út stigagjöfina
sem hefur verið notuð síðustu ár
og auka vægi sigurs. Sá sem ynni
flest gull yrði meistari.
„Þetta er vandræðalegt mál.
Við vildum aukið stigavægi milli
fyrsta og annars sætis, en FIA til-
kynnti gullreglurnar. Eftir stend-
ur að ekkert hefur breyst,“ sagði
Domenicali.
„Þá eru menn að rífast um loft-
dreifinn aftan á nokkrum bílum.
Ég er sannfærður um að sum lið
hafa ekki túlkað reglur um smíði
bíla rétt. FIA þarf að leysa þetta
mál áður en keppni hefst. Það
þurfa allir að taka ábyrgð og ég
vona þetta mál verði leyst fyrir
mótið í Ástralíu,“ sagði Domeni-
cali.
Rifrildi um stigagjöfina
Stefano Domenicali, framkvæmdastjóri
Ferrari-liðsins. NORDICPHOTOS/GETTY
Útgefandi: 365 miðlar ehf. | Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnlaugur Rögnvaldsson
| Netfang: kappakstur@kappakstur.is | Texti: Birgir Þór Harðarson, Halldóra Gyða
Matthíasdóttir og Sean Kelly. | Forsíða: Nordicphotos/Getty Images
| Auglýsingar: Fréttablaðið/Bjarni Þór Sigurðsson | Sími: 512 5471.
Það var óneitanlega fróðlegt að
fylgjast með undrunarsvip manna
á sameiginlegri æfingu allra
keppnisliða í Barcelona á Spáni.
Nýliðar Ross Brawn höfðu stolið
senunni með því að ná besta tíma
tvo síðustu æfingadagana.
Brawn-liðið er nýtt vín á göml-
um belgjum, nefnilega Honda liðið
sem átti að leggja niður. Brawn,
sem er fyrrverandi tæknistjóri
Ferrari, gerði Michael Schum-
acher að margföldum meistara.
Hann hugsaði sér gott til glóðar-
innar þegar hann gekk til liðs við
Honda. En Honda skrúfaði fyrir
fjármagnsstreymi til liðsins og
endirinn varð sá að Brawn keypti
liðið með manni og mús.
Liðið mætti seinast allra á æf-
ingar og hönnun nýja bílsins virð-
ist hafa heppnast það vel að öðrum
liðum stendur ógn af Brawn GP,
eins og liðið kallast. Fréttamenn
eltu Brawn á röndum meðan stjór-
ar annarra liða klóruðu sér í koll-
inum.
Brawn hafði náð allt að sekúndu
betri tíma æfingum. Sekúnda er
mikið í Formúlu 1. Í tímatökum í
fyrra voru allt að 15 bílar á sömu
sekúndu í tímatökum og á æfing-
um fyrir mót. Æfingar á milli móta
eru bannaðar á þessu ári og föstu-
dagsæfingar á mótsstað því mjög
mikilvægar. Fróðlegt verður að
sjá hvort Brawn tekst eins vel til á
fyrstu æfingu í Ástralíu og í Bar-
celona. McLaren gekk ekki vel á
æfingunum, en það er alkunna að
stundum leika lið sér að því fyrir
tímabil að blekkja andstæðing-
inn með því að aka hægar en vant
er. Engu að síður virðist McLaren
hafa verið í vanda, ekki síst í Bar-
celona.
Ferrari slapp heldur ekki við
ólán. KERS-kerfið bilaði í bíl Kimi
Raikkönen, en Ferrari ætlar samt
að nota kerfið í fyrsta móti ásamt
BMW, McLaren og Renault. Önnur
lið virðast ætla að bíða í nokk-
ur mót. Brawn verður ekki með
KERS-kerfið og treystir á afl Mer-
cedes-vélanna, sem liðið notar. Yrði
kostulegt ef Brawn tekst að skáka
meistaraliði McLaren Mercedes,
sem leggur Brawn til vélar í ár.
„Mér finnst ekkert óraunhæft
að stefna á fyrsta sætið í Ástr-
alíu. Brawn-bíllinn hefur reynst
traustur og fljótur og við höfum
ekki lent í bilunum,“ sagði Barri-
chello, en bíllinn sló eins og sviss-
neskt klukkuverk á mikilvægustu
æfingunum í Barcelona.“
Nýtt lið hræðir toppliðin
Ross Brawn svarar spurningum ágengra fjölmiðlamanna eftir æfingu Brawn GP
liðsins í Barcelona á Spáni. MYND/KAPPAKSTUR.IS
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
19. – 22. júní
148.900kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í 3 nætur með
morgunverði, miði á Formúluna, íslensk
fararstjórn og rútuferðir.
Silverstone
Verð á mann í tvíbýli:
Formúla 1
F
í
t
o
n
/
S
Í
A