Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2009 7formúla 1 ● fréttablaðið ●
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á öryggi ökumanna og
áhorfenda í Formúlu 1 um árin.
Dauðaslys og alvarleg meiðsli voru
tíð hér á áður fyrr en sem betur
fer er slíkt orðið afar fátítt í kapp-
akstri í dag. Síðasta banaslysið í F1
var dauði Ayrtons Senna á Imola í
San Marino-kappakstrinum 1994.
Á hverjum mótsstað er sjúkra-
skýli, læknar í viðbragðsstöðu og
miklar varúðarráðstafanir gerð-
ar til að forða slysum. Einnig eru
bílarnir byggðir þannig að mikla
krafta þarf til að opna búr öku-
mannsins við árekstur. Flestir
standa því heilir upp úr bílunum
eftir hryllilegustu árekstra. - bþh
Meira öryggi
Jackie Stewart gerði margt til að koma
öryggissjónarmiðum að í Formúlunni.
Hér leiðbeinir hann Niko Rosberg.
Formúlu 1-bíll er flókin smíði og
skartar hvert eintak nýstárlegum
búnaði í hvert sinn. Einn sá fær-
asti þykir Adrian Newey sem vann
fyrir Williams-liðið á tíunda ára-
tugnum. Þá kynnti hann til sög-
unnar ýmsan tæknibúnað til að
auka möguleika liðsins í slagnum
um titilinn, sem það hlaut síðan
árin 1992 og 1993. Meðal þess var
gripstýringin, en sú tækni tak-
markar aflið sem fer út í hjólin
þegar gefið er í svo ekki sé spól-
að. Sá búnaður er bannaður nú á
árinu 2009. Adrian Newey vann
fyrir McLaren fram á nýja öld en
starfar nú hjá Red Bull. - bþh
Nýjasta tækni
Ökumenn Red Bull ásamt yfirmönnum.
Þegar Formúla 1 mótaröðin var
stofnuð árið 1950 hófu nokkur lið
frá nokkrum löndum þátttöku í
mótinu. Ferrari var meðal þeirra
og er því elsta starfandi liðið í
mótinu í dag. Þá tíðkaðist að ein-
kenna bílana eftir því hvaðan þeir
voru. Ítalskir bílar urðu rauðir,
breskir grænir og þýskir gráir
eða silfraðir. Ferrrari voru því
ekki einu rauðu bílarnir á braut-
inni heldur voru þar einnig bílar
frá Alfa Romeo, Lancia og Mas-
erati. Í þessu samhengi má tengja
silfrið við Mercedes Benz sem út-
vega McLaren-vélar í dag og eiga
meðal annars hlut í liðinu. - bþh
Einkennislitur
Ferrari-liðsins
Litir liðanna réðust ekki af helstu
styrktaraðilum heldur einkennislit
heimalandsins.
Red Bull hefur tilkynnt opinberlega í Melbourne að liðið hyggist kæra bíl
Brawn-liðsins ef bíll þess kemst í gegnum skoðun hjá FIA á fimmtudaginn.
„Loftdreifirinn aftan á Brawn-bílnum er ólöglegur að okkar mati. Við
munum kæra notkun á honum ef honum verður ekki breytt fyrir skoðun
bíla hjá FIA. Brawn græðir hálfa sekúndu á hring með þessari útfærslu,“
sagði Dietrich Mateschitz, eigandi Red Bull, um málið.
Forráðamenn Brawn telja ekkert ólöglegt við bílinn og segjast hafa
túlkað reglurnar á annan hátt en önnur keppnislið.
Loftdreifirinn er einn mikilvægasti þáttur yfirbyggingar bílsins. Hann
tekur við loftinu sem fer undir bílinn og losar það undan honum. Um þenn-
an hluta bílsins eru ekki síður stífar reglur enda er loftflæðið undir bílinn
jafn mikilvægt, ef ekki mikilvægara en loftið yfir honum.
Red Bull hótar Brawn
Brawn-liðið hefur gert góða hluti á æfingum í vetur.
BÍLAKJARNINN
Stórmarkaður með notaða bíla