Fréttablaðið - 25.03.2009, Qupperneq 38
25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR12 ● fréttablaðið ● formúla 1
Það er ekki oft sem ökumanns-
titli er hampað með aðeins einu
stigi yfir næsta manni. Síðast átti
það sér stað í lok síðasta tímabils.
Eftirminnilegast þykir þó þegar
James Hunt, óreglumaður með yf-
irburða ökuhæfni, varð meistari
árið 1976 á fjallabrautinni Fuji í
Japan.
Niki Lauda, sem fyrr um sum-
arið hafði lent í hræðilegu slysi á
Nürburgring-brautinni gömlu, dró
sig í hlé þegar aðeins tveir hring-
ir höfðu verið eknir. Þetta gerði
hann vegna mikillar rigningar
sem gerði meðan á keppninni stóð.
Hann sagði líf sitt skipta meira
máli en kappakstur. Hunt kláraði
mótið í þriðja sæti og varð heims-
meistari með einu stigi. - bþh
Heimsmeistari
með einu stigi
Niki Lauda við frumsýningu á keppnisbíl
Jagúar-liðsins árið 2002.
Ross Brawn er mjög sigursæll og
þykir afar snjall. Hann fylgdi Mi-
chael Schumacher til Ferrari frá
Benetton árið 1996, eftir að hafa
gert Schumacher að tvöföldum
heimsmeistara. Sigurgöngu tvíeyk-
isins sem naut liðsinnis Jeans Todt
minnast allir sem gullöld Ferr-
ari árin 1999 til 2006 þegar hvert
metið á fætur öðru var slegið.
Brawn yfirgaf Ferrari eftir árs
leyfi árið 2008 og gerðist tækni-
stjóri Honda F1 liðsins sem hefur
nú hætt þátttöku. Ross fékk með
sér fjárfesta og rekur nú Brawn
GP-liðið með þá Jenson Button og
Rubens Barrichello sem ökumenn.
Liðið hefur sýnt framúrskarandi
árangur á æfingum vetrarins.
- bþh
Ross Brawn
Ross Brawn og Schumacher voru
óstöðvandi teymi. Settu hvert metið á
fætur öðru.
Fyrirtækið Allra átta er að vinna hörðum höndum að nýrri vefsíðu sem styður
við útsendingar á Stöð 2 Sport. Það er vefsvæðið www.kappakstur.is sem er að
taka á sig nýja mynd, til að upplýsa áhorfendur betur en áður um Formúlu 1.
Beintenging er á síðunni á tímasvæði rétthafa Formúlunnar. Þá er sérstakt
svæði fyrir grafík-útskýringar í uppbyggingu auk nákvæmra upplýsinga um alla
ökumenn. Frásögn og útskýringarmyndir eru frá öllum mótssvæðum og úrslit
síðustu ár. Þá er nýmæli að útskýringarmyndbönd verða á kappakstur.is í sam-
vinnu við Formúlu 1-liðin og ítarleg tölfræði er birt fyrir hvert mót og eftir þau.
Samfara þessum breytingum tekur grafíkin á sig nýja mynd hjá Stöð 2 Sport
og verður lögð mikil áhersla á tölfræði og útskýringar meðan á keppni stendur
og eftir að henni lýkur. Þá eru lifandi grafísk myndskeið aðall þáttanna Rásmark-
ið á fimmtudagskvöldum.
Meira upplýsingaflæði
tjöld, svefnpokar, gönguskór, sokkar, nærfatnaður, fatnaður og klifurbúnaður.
Tilvalin fermingargjöf