Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 48
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra ýtti rækilega
undir væntingar um farsæla
lausn á Icesave-málinu í við-
tali í Zetunni, nýjum viðtals-
þætti mbl.is. Hann sagði glæsi-
lega niðurstöðu í augsýn og kvað
Svavar Gestsson, formann við-
ræðunefndarinnar, njóta fyllsta
trausts. Ráðherrann lét hins
vegar hjá líða að nefna í hverju
lausnin glæsilega kynni að fel-
ast. Kannski hefur hann í huga
hugmyndir um að bresk stjórn-
völd taki að mestu yfir þrotabú
Landsbankans upp á að ná þar út
eins miklum verðmætum og þau
geti, gegn því að einnig verði yf-
irteknar Icesave-skuldbindingar.
Heimildir Markaðarins
herma hins vegar að
enn sé verið að ræða
marga mögulega kosti
við Breta og
lausn tæp-
ast í aug-
sýn.
65 228 35prósenta lækkun hefur orðið á markaðsvirði Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðju Danmerkur, frá því félagið birti ársuppgjör sitt fyrir mánuði. Stoðir
eiga fjórðung í félaginu.
milljarðar króna, eða tveir milljarðar Banda ríkja-
dala, fara í bónus til starfsfólks bandarísku versl-
unarkeðjunnar Wal-Mart á árinu. Starfsmenn
eru um milljón talsins.
starfsmenn Teathers, verðbréfamiðlunar
Straums í Bretlandi, hafa verið ráðnir til
Singer Capital Markets. Singer var áður í
eigu Kaupþings.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Glæsileg lausn
Lítill fótur virðist fyrir fleiri
sögum sem hátt fara í banka-
heiminum þessa dagana og
kannski gott til þess að hugsa
að ekki hafi dregið úr kjafta-
gleði í geiranum þrátt fyrir fall
fjármálakerfisins. Þannig flýg-
ur sú saga fjöllum hærra að búið
sé að ákveða að skipta starf-
semi Nýja-Landsbankans á milli
Íslandsbanka og Kaupþings.
Landsbankanafnið sé ónýtt eftir
að Icesave-ævintýrið fæst ekki
fjarlægt af hryðjuverkalista
Breta.
Engar líkur munu hins vegar
á ákvörðunum í þessa veru fyrr
en að fullu hefur verið gengið
frá efnahagsreikningi bankanna,
til að menn viti þá hverju er upp
að skipta. Þá virðist gleymast að
Landsbankinn nýi gæti sem hæg-
legast falið forsöguna með ein-
földum nafnaskiptum. NBI hljóm-
ar jú vel og afturhvarf Nýja-
Glitnis til Íslandsbankanafnsins
þykir hafa tekist vel. En endanleg
ákvörðun bíður væntanlega nýrr-
ar ríkisstjórnar.
Ónýtt nafn?
Viðskiptaráð auglýsti á mánudag
morgunverðarfund um sjálfstæða
mynt í kreppunni, sem halda átti
í gær samkvæmt auglýsingu.
Þegar grennslast var fyrir um
málið reyndist dagsetningin röng.
Hið rétta er að
fundurinn verður í
dag. Þá er Hörður
Arnarson í aug-
lýsingunni sagður
forstjóri Marel
Food Systems.
Fljótt skipast
veður í lofti því nýr forstjóri var
settur yfir fyrirtækið um helgina
og verður Hörður því milli starfa
á fundinum. Taka má málið lengra
því Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra flytur opnunar-
ávarp. Eins og málin hafa þróast í
tengslum við fundinn má allt eins
gera ráð fyrir því að hann verði á
milli ráðuneyta.
Á röngunni