Fréttablaðið - 25.03.2009, Side 52
20 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ertu að fara?
Nú farið þið í
bað!
Heyrðu
pabbi, ég vil
frekar fara
einn í bað.
Það eru
vissir hlutir
sem ég
vil ekki að
systir mín
sjái, þú
skilur hvað
ég á við.
Ó,
jæja,
ég...
Erum við að tala um það sem ég
held að við séum að tala um?
Ég er að
tala um nýja
flugmóður-
skipið mitt,
hvað ert þú
að tala um?
Oh, krabbi, fullkom-
inn dagur! Það er
bókstaflega ekkert til
að kvarta yfir.
Það er
rétt!
Er eitthvað
að?
Nei, nei
nei.
Palli og ég sátum bara
hér og svo vorum að
spjalla og bang!
Svo gerðist
það bara!
Hvað
gerðist? Við vorum
sammála.
Svo...
óvenju-
legt...
Ooohhh!
Næstum því
fullkomið!
Kraftmikil lykt af
laugardegi, sunnudegi
og mánudegi! Smá
keimur af þriðjudegi og
miðvikudegi og vottur
af fimmtudegi!
Bætum við
föstudegi og
þetta verður
fullkomið!
Mér finnst hálf óraunverulegt hvað það er stutt í páska því mér finnst eins og ég hafi verið að taka niður
jólaskrautið í gær. Það eru samt nokkrar
vikur síðan páskaegg urðu sjáanleg í versl-
unum, svona eins og jólaskrautið sem sett
var upp í verslunum löngu fyrir jól.
Rétt eins og heimatilbúnar gjafir urðu
vinsælli en oft áður fyrir jólin lítur út fyrir
að heimatilbúin páskaegg verði vin-
sælli en nokkru sinni fyrr í ár. Eins
og greint var frá hér í Fréttablað-
inu á dögunum hafa páskaeggjamót
ekki selst eins vel í áraraðir. Mótin
eru mátulega stór og það má nota
þau oft og mörgum sinnum svo
það er töluverður sparnaður í
þeim fólginn bæði hvað varð-
ar peninga og kaloríur. Svo
má auðvitað nota mótin í kon-
fektgerðina fyrir jólin svo þau
standi ekki ónotuð þar til á næsta ári. Með
því að gera páskaeggið sjálfur er líka hægt
að búa til sína eigi súkkulaðiblöndu, fylla
eggin með því góðgæti sem manni finnst
best og handskrifa málshátt eða frum-
samið ljóð ef maður vill vera einstaklega
frumlegur.
Foreldrar hafa ef til vill áhyggjur af
því að börnin þeirra verði fyrir vonbrigð-
um ef þau fá ekki páskaegg frá ákveðnum
framleiðanda, en ég er viss um að flestum
krökkum finnst ekki ónýtt að fá að dýfa
fingrunum ofan í bráðið súkkulaði á meðan
þau búa til eigið páskaegg og fá að skreyta
það að vild.
Ég sé enga ástæðu til að fara á taugum
yfir páskaeggjakaupum í ár, því ef eggið
sem mann langar í verður uppselt er um
að gera að festa kaup á páskaeggjaformi,
bretta upp ermarnar og hefja tilrauna-
starfsemina í eldhúsinu.
Páskaeggin búin til heima
NOKKUR ORÐ
Alma
Guðmunds-
dóttir
Hart í bak
Þrettándakvöld
Sædýrasafnið
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Sala á Mótormax ehf. og
tengdum félögum
Söluferli
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið falið
að annast söluferli á Mótormax ehf. og tengdum
félögum. Söluferlið er opið öllum fjárfestum
sem geta sýnt fram á nægilegan fjárhagslegan
styrkleika til að standa að kauptilboði í félögin.
Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband
með því að senda tölvupóst á tölvupóstfangið
fyrirtakjaradgjof@landsbankinn.is. Afhending
sölugagna verður háð undirritun trúnaðar-
yfirlýsingar.
Söluferlið hefst þann 25. mars 2009 með
afhendingu fyrstu sölugagna til þeirra aðila sem
uppfylla skilyrði ferlisins. Frestur til að skila inn
óskuldbindandi tilboðum rennur út þann 2. apríl
2009. Í framhaldinu verða tilboðin metin og
einn eða fleiri fjárfestar valdir til áframhaldandi
þátttöku í söluferlinu.
25. mars 2009