Fréttablaðið - 25.03.2009, Page 53

Fréttablaðið - 25.03.2009, Page 53
MIÐVIKUDAGUR 25. mars 2009 Það er víst óhætt að nota orðið gjörning um þá uppákomu sem frumsýnd var á föstudagskvöldið á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Er ég eða er ég ekki? Hvaðan kemur allt? Hvernig er allt og af hverju er allt eins og allt er? Er líf eftir dauðann? Er ég örugglega á þeim stað sem ég er núna, eða er ég kannski á á tveimur stöðum í einu? Upp úr þessum spurning- um og fleirum veltir listamaður- inn Þórir Sæmundsson fyrir sér um leið og hann fer í heljarinn- ar mikla ferð á sviðinu þar sem hann tjáir sig í hinum ýmsu list- formum. Myndmálið er skýrt og notkun skjás með ágengum mynd- um um leið og hljóð af ýmsu tagi eru framleidd er mjög áhrifaríkt fyrir svo utan að einleikur hans á gamalt útvarpstæki þar sem hann nýtir á einhvern máta logsuðutæki við hljómflutninginn var ákaflega smart og heillandi. Hann hleypur, eyðir orku, leit- ar að orku og smeygir inn mynd- skeiðum á skjái um leið og hann býr til elektróníska tónlist. Þetta er allt gott og blessað og hann fang- ar athygli áhorfenda. Eter er það heiti sem notað er fyrir ljósvaka í flestum nágrannamálum vorum en mun samkvæmt prógramblaði vera komið úr grísku og vísar til heiðs himins eða dvalarstað guða Forn- Grikkja. Þetta var heljarinnar sjónræn upplifun, kokkteill hugmynda þar sem einn maður þeytist um eins og að hann sé að fara frá einum pósti til annars til þess að sýna hverj- ir möguleikarnir eru. Hitt er svo annað mál að það var nokkur akkil- esarhæll á sýningunni að listamað- urinn skyldi velja dramatíkina til þess að tengja atriði sín saman. Hann dvelur nokkuð við frá- sögn um ömmu sína úr Grímsey og hæfileika hennar til þess að sjá inn í aðra heima svo og sína eigin skyggnihæfileika. Hin leikræna frásögn milli gjörningahlutanna lifnaði aldrei nógu vel við. Ástæðan getur vel legið í því að hér vantaði leikstjóra til þess að brýna þennan metnaðar- fulla listamann og hjálpa til við að framkalla þær minnismyndir sem því miður lifnuðu ekki nógu vel í frásögnunum sem þó voru veru- lega athyglisverðar. Listamaðurinn tekur þó fram í prógramblaði sínu að hann sé ekki að leika, hann sé einfaldlega að segja frá einhverju. En til þess að frásögn lifni og verði áheyrileg verður sá sem heldur um sprotann að njóta frásagnarinnar og nálgast verkefnið með áhorfendur í huga. Þetta er ekki leiksýning né held- ur leikverk, en þó flutt á leiksviði í meira en einn klukkutíma þar sem meginefnið er að skilgreina bæði verkið, heiminn og egóið. Í lok sýningar rammar hann sig inn í neonlitaðan hring þar sem hann er að lokum orðinn einn. Það voru myndrænar og sjónrænar uppáhaldsstundir sem gaman hefði verið að frysta og geyma en slík- ur er töframáttur gjörnings augna- bliksins að hann kemur ekki aftur. Þórir Sæmundsson stendur einn sem höfundur þessa verks þó hann hefði átt að láta getið hvaðan hann fékk myndir þær er varpað var á vegg og skjá til skiptis. Ég er ekki í nokkrum vafa um að áhorfendur, einkum af yngri kynslóðinni, munu hafa af þessu nokkra skemmtun. Elísabet Brekkan Einn maður í leit LEIKLIST Eterinn Höfundur og leikari: Þórir Sæmundsson Mynd ©Tinna Lúðvíksdóttir 2009

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.