Fréttablaðið - 25.03.2009, Side 59
MIÐVIKUDAGUR 25. mars 2009
Við unnum!
Við á DILL restaurant segjum frá því með miklu stolti að Food & Fun kokkur
ársins 2009 er góðvinur okkar Claus Henriksen frá Dragholm slot í Danmörku.
Claus, eins og við, er með mikla ástríðu fyrir nýnorrænu eldhúsi og það er
okkur sannur heiður að fá að halda áfram með hans matseðil næstu daga.
Við óskum Claus, nýnorrænu eldhúsi og sjálfum okkur til hamingju með
sigurinn og hlökkum til að sjá ykkur á DILL restaurant í Norræna húsinu.
Kveðja,
Óli og Gunni
Í Norræna húsinu Sturlugötu 5 101 Reykjavík S: 552 1522 dil lrestaurant@dil lrestaurant.is dil lrestaurant.is
FÓTBOLTI Arnar Grétarsson mun
spila með Breiðabliki í efstu deild
karla í sumar og um leið vera
aðstoðarþjálfari liðsins, ef að
líkum lætur. Þetta sagði hann í
samtali við Fréttablaðið í gær. „Það
er ekki búið að ganga frá samning-
um en ég á von á því að það verði
gert á allra næstu dögum. Það er
frekar formsatriði að það verði
gert,“ sagði Arnar.
Samningur Arnars við Breiða-
blik rann út síðastliðið haust og
hafa því samningaviðræður tekið
talsverðan tíma. „Það er búið að
vera mikið að gera hjá félaginu og
það hefur verið að ganga frá sínum
málum. Ég hef því ekki verið að
þrýsta mikið á það með mín mál.“
Arnar segir það markmið sitt
að taka eitt tímabil til viðbótar og
leggja svo skóna á hilluna en hann
er 37 ára gamall og á langan feril
að baki. Hann lék lengi með AEK
Aþenu í Grikklandi og Lokeren í
Belgíu auk þess sem hann var til
skamms tíma með Leiftri.
„Ég hef áhuga á því að snúa
mér að þjálfun að næsta tímabili
loknu. Ég hef verið að sækja þjálf-
aranámskeið og ætti að vera kom-
inn langleiðina með að fá UEFA-
A þjálfaragráðu áður en þarnæsta
tímabil hefst,“ sagði Arnar.
Hann hefur þó verið orðaður við
annars konar starf, en hans gamla
félag í Grikklandi, AEK, sóttist
eftir því um tíma að Arnar yrði
yfirmaður íþróttamála hjá félag-
inu. Síðan þá hefur hins vegar for-
seti félagsins sagt af sér og því er
það mál í bið eins og sakir standa.
„Ég fór út í janúar og hitti þá
forsetann. Hann sagði mér þá að
hann ætlaði að segja af sér ef hann
fengi ekki ákveðnar breytingar í
gegn sem varð svo raunin. En hann
átti alveg eins von á því að hann
myndi aftur koma til félagsins í
lok tímabilsins í Grikklandi. En
ég er ekkert að bíða við símann og
það væri bara plús ef eitthvað yrði
af þessu.“
„Vissulega væri það þó spenn-
andi tilhugsun að komast í svona
starf. Þetta er stór klúbbur og
starfið sjálft er mjög áhugavert.“
Arnar lék samtals tuttugu leiki
með Breiðabliki á síðasta tímabili
og skoraði í þeim þrjú mörk.
eirikur@frettabladid.is
Vil taka eitt
tímabil í viðbót
Arnar Grétarsson ætlar að spila með Breiðabliki í
sumar og verða að auki aðstoðarþjálfari liðsins.
ARNAR GRÉTARSSON Mun líklegast
klæðast grænu áfram í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM