Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 13
Opnum aftur!!! allt að 70% afsláttur !!! Íþróttavörur - Barnaföt - Sundföt - Skór - Sokkar - Töskur Puma bolir st. 128-176 1.990 kr. Puma skór stök pör 4.000 kr. Puma fótboltasokkar 890 kr. Puma hettupeysa st. 128-176 4.290 kr.Vanzetti leðurbelti 1.500 kr.Ticket barnakuldagallar 9.990 kr. Ticket vetrarúlpur 8.990 kr. Ticket vetrarvesti 4.990 kr. Ticket vetrarbuxur 5.990 kr. Ticket stígvel 2.990 kr.Speedo sundskýlur 1.490 kr. Speedo dömusundföt 2.990 kr. Speedo watershorts 1.990 kr. 50% 30% 30% 70% 70% Opið: virka daga 11-18 laugardaga 11-16 Vínlandsleið 6-8 - 113 Reykjavík 6 8 Grétari Páli finnst nóg til koma um íslenska verðlagið á leikjatölvunni Xbox. Hann skrifar: „Hvernig stend- ur á því að Xbox 360 kost- ar nærri því sjötíu þúsund krónur hjá Elko með tveimur leikjum, á meðan ég get farið á amazon.co.uk og fengið sömu tölvuna (án leikja) á 160 pund og í Noregi á 2.395 norskar krónur með tveimur leikjum þar? Það þarf vænt- anlega að reikna þessi eðli- legu gjöld inn í íslenska verð- ið, en það nær samt aldrei þessum kostnaði. Þessir tveir leikir eru ekki svo dýrir að tölvan kostar nærri 70 þúsund krónur. Mér finnst persónulega verið að fara illa með neytendur hérna á Íslandi og sérstaklega á svona tímum.“ Örn Barkarson innkaupafulltrúi hjá Elko varð fyrir svörum: „Ástæðan fyrir þessu verðlagi hjá okkur á sér mjög eðlilegar skýringar. Við keyptum þess- ar vélar í desember 2008 þá var gengið mjög óhagstætt. Ég setti mig í samband við Hátækni, því ég kaupi þessar vélar frá þeim, til að athuga hvað svona vél kostar í dag. Því miður gátu þeir ekki svarað því varan er ekki til hjá þeim.“ Neytendur: Dýr Xbox á Íslandi Hvernig stendur á þessu verðlagi? DÓMSMÁL Fyrrverandi gjaldkeri ÍA, Íþróttabandalags Akraness, hefur verið ákærður fyrir fjár- drátt, grunaður um að hafa dreg- ið sér og notað í eigin þágu 6,5 milljónir króna. Hann er talinn hafa millifært fé á eigin reikn- inga á árabilinu 2002 til 2007. Einnig hafi hann látið félagið greiða reikninga sína. Á fréttavef Skessuhorns kemur fram að maðurinn sé einnig ákærður fyrir bókhaldsbrot, enda hafi hann ekki varðveitt fylgi- skjöl og önnur gögn. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Vestur- lands á föstudaginn. - kóp Íþróttabandalag Akraness: Fyrrum gjald- keri ákærður SVÍÞJÓÐ Prestur í Stokkhólmi er grunaður um að hafa þvingað unga konu til kynlífs í mörg ár. Í fyrsta skiptið sem þetta gerð- ist var hún bara sextán ára, að sögn Aftonbladet. Hún er nú 22 ára. Presturinn er grunaður um að hafa reynt að misnota aðrar ungar konur í sókninni. Presturinn hitti stúlkuna fyrst þegar hún átti að fermast. Hann viðurkennir að hann hafi síðar haft samfarir við hana en hafnar því að hafa misnotað hana. „Þetta var vináttusamband og tilheyrir því einkalífinu sem í alla staði er byggt á gagnkvæmni og frjálsum vilja fullþroska einstaklinga,“ segir hann. - ghs Sænskur prestur: Grunaður um kynferðisbrot KATAR, AP Múammar Gaddafí, leiðtogi Líbýu, fór í fússi af fundi Arababandalagsins í Katar. Gaddafí truflaði opnunarathöfn ársfundar bandalagsins á mánu- dag með því að taka óbeðinn til máls og ausa skömmum yfir konung Sádi-Arabíu; hann væri „bresk afurð og kjölturakki Bandaríkjamanna“. Þegar emír- inn af Katar reyndi að þagga niður í Gaddafí hækkaði hann róminn og sagði að sem for- seti bandalagsins hefði hann fulla heimild til að tala. „Ég er alþjóðlegur leiðtogi, heiðursfor- seti arabískra höfðingja, kon- ungur Afríkukonunga og imam músl ima,“ sagði hann og struns- aði út. - aa Fundur Arababandalagsins: Gaddafí fór af fundi í fússi KJAFTFOR Í KATAR Gaddafí með orðið. NORDICPHOTOS/AFP/QNA SJÁVARÚTVEGUR Þróunarsamvinnu- stofnun Íslands og stjórnvöld í Úganda hafa skrifað undir samn- ing um verkefni sem ætlað er að breyta viðhorfum og tryggja gæðaeftirlit með fiski til neyslu í Úganda og til útflutnings. Þetta segir í tilkynningu frá stofnun- inni. Í tilkynningunni kemur fram að verkefnið nái til ársins 2013. Stjórnvöld í Úganda hafi leitað eftir stuðningi Þróunarsamvinnu- stofnunar til að taka á gæða- málum í fiski þar sem vandamál blöstu við útflutningsmörkuðum þeirra, einkum innan Evrópu- sambandsins. - kg Fiskútflutningur í Úganda: Samningur um gæðaeftirlit ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is VINNUMARKAÐUR Verkalýðsfélag Akraness skorar á öll fyrirtæki sem hafa fjárhagslega burði og treysta sér til að standa við þær launahækkanir sem áttu að taka gildi 1. mars. Samtök atvinnulífsins og ASÍ höfðu samið um að fresta launa- hækkunum, sem áttu að taka gildi þá, til 1. júlí. En síðan hafa nokkur fyrirtæki tilkynnt, þar af sjö opinberlega, að þau muni standa við 13.500 króna launahækkun á launataxta og 3,5 prósenta hækkun til þeirra sem ekki starfa eftir töxtum. Þekktast þessara fyrirtækja er HB Grandi. - kóþ Verkalýðsfélag Akraness: Fyrirtæki hvött til að greiða út MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 2009 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.