Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 50
26 1. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR Fjölþjóðasamvinna með Frakkland í fararbroddi. Sýning sem er á leið- inni til Frakklands þar sem Ísland verður einnig kynnt með öðrum menningarviðburðum í vor. Ýmsu hefði mátt sleppa eins og til dæmis nafninu. Þetta hefði nefnilega getað verið svo margt annað en sædýrasafn, en með því að njörva heitið svona niður tak- markast hugflæði áhorfenda nokk- uð. Engu að síður var það einmitt það sem áhorfendur þurftu á að halda, sínu eigin hugflæði. Hér flæddi allt í vatni og skírskotunum í umgjörð sem hefði getað verið plastpoki fljótandi úti á hafi eða laxeldisbömmer eða neðanjarðar- byrgi eða raunveruleikasjónvarps- þáttur eða umsnúin túlkun á Dag- bók Önnu Frank. Á föstudagskvöldið var frönsk frumsýning „dans le box“, í kassan- um. Og þetta var líka dans í boxi, dans í hjúp, örlagasaga systra eða metingur um hver kann og getur betur lifað af við óeðlilega aðstæð- ur. Kannski var þetta saga um tvær systur sem alltaf voru að metast á. Önnur var barnlaus en hin eignað- ist tvö. Sú barnlausa bætti sér það upp með því að fóðra og laða til sín sæskrímsli sem hún sagði að væri kvenkyns og fékk því nafnið Bella, hin fagra og fína, meðan börnin tvö sem hin systirin átti voru eins og samvaxinn ósjálfstæður berg- málshnykill sem veltur um í þess- ari einangruðu tilveru án framtíð- ar eða eigin frumkvæðis. Er þetta draumur systranna um ferðina til Moskvu, að vísu er hún Moskva hér París, hin undursamlega Parísar- borg, eða er þetta aðferð til þess að gera áhorfendur að glöðum þátttak- endum með því að smokra inn í text- ann að hin raunverulega paradís sé í dropa af sólarkaffi á Ísafirði? Er þetta leiklistartilraun í smart upplýstu rými þar sem plast og vatn mætist eins og eftirlíking hvert af öðru? Er þetta hugmynd um það hvernig fólk bregst við þegar allt sem það átti er tekið af því? Þetta er löng sýning í heillandi umgjörð þar sem hin ýmsu kynja- hljóð og fjarrænn söngur hleypa hugmyndafluginu af stað þó ekki í algert frelsi heldur niður í hafdjúp- in eða í þau samskipti sem birtast millum manna og hafs. Hjónin Karl og Mæja eru á heimavelli. Þau eru í beinu sambandi við þær skepnur sem þau eru að annast, eða þjóna og hin hjónin Villi og Elísabet flytja til þeirra með viðundrin börnin sín tvö sem virðast helst vera samvaxin inni í einhvers konar hljóðvél. Plast- skreyttur hermaður birtist einnig í þessari einkennilegu tilveru. Villi sem Björn Hlynur Haraldsson ljær líf er algerlega með það á heilanum hvernig hann og hans kynslóð lifði af það stríð sem hann lenti í, hann er eins konar gagnrýnisrödd sem skilur ekki ungviðið. Inni í hinum blauta búningi skrímislisstelpunnar Bellu dans- ar og rykkist Damien Jalet og sem frumskrímslisdansari á íslensku leiksviðið hlýtur frammistaða hans að teljast sigur. Þau Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Ívar Örn Sverrisson flétta saman öngum sínum í hlut- verkum Lilla og Lóló með skrums- kældum röddum eins og úr dollu tala þau í kór og samvaxin ýmist skríða þau eða tölta um í raun eins og fulltrúar mjög margra ungmenna sem eins og mamman segir í textan- um hafa horft of mikið á sjónvarp. Hlutverk þeirra er fremur eins og einhvers konar effekt heldur en eiginleg persónusköpun. Með hlutverk Lísu eða Elísabetar fer Elva Ósk Ólafsdóttir og það má segja að túlkun hennar á þeirri persónu sé þannig að hún verður sú eina sem við virkilega kynn- umst. Elva ljær henni festu og sterkan vilja, það er spennandi að fylgjast með henni og hver athöfn trúverðug. Leikstjórinn hefur aftur á móti valið að láta eiginmann henn- ar leika á allt öðrum nótum sem gerir það að verkum að hann í sam- anburði við hana verður einhvers konar myndskreyting. Systirin Mæja sem Margrét Vil- hjálmsdóttir leikur hefur aftur á móti yfirmáta dramatíska nálg- un eins og samsett af litlum hólf- um. Stefán Hallur Stefánsson leik- ur unga manninn Karl sem hefur ýmsum verkum að sinna eins og til dæmis að sjá um matarforðann og nær hann jafnri túlkun þó svo að áhorfendur kynnist nú vart per- sónunni á nokkurn máta. Kannski er það meiningin með verkinu að aðeins móðirin verður auðskilin persóna, allir aðrir eru bara hópur í tilraun um það hversu margar app- elsínur eða sundurskornir tómatar nægja til þess að lifa af við undar- legar aðstæður. Höfundur verksins Marie Dar- iieusecq er ein af frægustu skáld- konum Frakka í dag. Þetta er fyrsta leikritið hennar og það skrifað fyrir íslenskt leikhús sem hlýtur að telj- ast til merkra listviðburða. Hitt er svo annað mál hversu merkur þessi listviðburður er, því í formi sem þessu verður auðvitað að gæta hófs í sambandi við úthald áhorfenda. Þessi sýning með bæði boðskap sínum og hinu hljóð- og myndræna samspili hefði verið hreint frábær ef skærunum og taktsprotanum hefði verið beitt af einhverri hörku þannig að sýningin hefði orðið helmingi styttri og þar með kannski helmingi betri. Auðvitað þjást þeir sem einhverra hluta vegna eru sett- ir í geymslu úti á hjara veraldar og ef það er meiningin að áhorfendur eigi líka að þjást, finna fyrir bak- inu, teygja úr fótunum og nudda ísköld hné, þá hefur þessi sýning algerlega hitt í mark. Elísabet Brekkan Híbýli hafsins hinsta skjól flóttafólks LEIKLIST Sædýrasafnið eftir Marie Darrieussecq. Þýðing: Sjón. Leikmynd og búningar: Guilio Lichtner. Tónlist og hljóðmynd: Barði Jóhannsson. Lýsing: Scott Zielinski. Sviðshreyfingar: Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet. Leikstjóri: Arthur Nauzyciel. ★★ Listviðburður sem reynir á haus og rass Úrslit í hönnunarsamkeppni sem Listasafn Reykjavíkur, Kraumur og Hönnunarmiðstöð Íslands efndu til um nytjahlut með innblæstri eða tilvísun í listaverk eftir Erró voru tilkynnt á föstudag í tengsl- um við Hönnunardaga. Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hlaut 500.000 króna verðlaun fyrir tillögu sína, Minnistöflu. Keppnin var ætluð fagmenntuð- um hönnuðum og þeim sem heyra undir aðildarfélög Hönnunarmið- stöðvar Íslands. Listasafn Reykja- víkur og Kraumur auk Samtaka iðnaðarins lögðu til verðlaunaféð. Við val á vinningstillögunni var lögð áhersla á hönnunarþáttinn, notagildi og sölumöguleika vör- unnar. Þá var litið til framleiðslu- ferilsins og þess hvort varan væri framleidd innanlands, þó slíkt réði ekki úrslitum. Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir er fædd árið 1977 og hefur sýnt fram- úrskarandi dugnað og atorku sem hönnuður. Hún hefur komið fram með ýmsan varning sem notið hefur vinsælda. Erró veitti góð- fúslegt leyfi fyrir því að verk hans yrðu notuð í samkeppnina í heild sinni eða hluti úr þeim. Stefnt er að því að Minnistaflan verði fáanleg í verslunum í maí. - pbb Minnistafla Errós HÖNNUNARSAMKEPPNI Minnistafla Ingibjargar Hönnu Bjarnadóttur. Hefur þú það sem þarf til þess að sigra? SKRÁNING KL. 11.30 - 13.30 HJÁ: á Íslandi • beautycamp@simnet.is Aðeins í dag! DynamoModels Borgartúni 16, 4. hæð (nýju húsunum) Fyrsta sinn á Islandi! Viltu taka þátt í skemmtilegu helgarævintýri með leibeinanda sem hefur um árabil séð um hár og förðun fyrir færustu hönnuði heims, unnið við tónlistarmyndbönd og kvikmyndir ásamt því að farða og greiða kvikmyndastjörnum víðs vegar um heiminn? Í tilefni þess að við erum að fara af stað með sjónvarpsþáttinn BEAUTY CAMP WEEKEND í samvinnu við DynamoModels, leitum við að 15 kröftugum einstaklingum af báðum kynjum til þess að taka þátt, helgina 24.04 - 28.04. Í þættinum sem er af amerískri fyrirmynd er keppt í snyrtingu, útlitsþrautum og hvers kyns líkamlegri umhirðu. Þátttakendur ganga í gegnum krefjandi en athyglisverða keppni þar sem öllum brögðum er beitt til þess að umbreyta útlitinu og sigra. Þeir 2 sem að lokum sitja eftir sem sigurvegarar fá að launum ferð til LOS ANGELES, heimsækja höfuðstöðvar BEAUTY CAMP, hitta kvikmyndastjörnur, skoða tískuhús o.m.fl. • Speed Paint • Pédicure sucer • Manicure Testiquele • Enema Puta • Detox Extreme • Toothpicking Basics • Brazilian Technique • Libido Acupressure • Nuptial Body Treatment • Colonoscopy • Eybrow Inital blackening • Nail Removal Renisance
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.