Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 2009 11 Kynntu þér Ríkisvíxlasjóð á www.kaupthing.is, hafðu samband við Ráðgjöf Kaupþings í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi. Nýr og traustur kostur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og aðra fjárfesta. Ríkisvíxlasjóður er fyrir þá sem kjósa að fjárfesta í eignum sem tryggðar eru af ríkinu, vilja ávaxta fé sitt til þriggja mánaða eða lengur og halda sveiflum í lágmarki. RÍKISVÍXLASJÓÐUR Víxlar og stutt skuldabréf útgefin af eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Sjóðnum er heimilt að fjárfesta allt að 10% í innlánum Hentar þeim sem vilja fjárfesta í þrjá mánuði eða lengur Litlar sveiflur í ávöxtun Enginn binditími ÞÉR BÝÐST EKKI MEIRA ÖRYGGI EN RÍKISÁBYRGÐ 10% innlán 90% ríkisvíxlar og ríkisskuldabréf Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, t.d. getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun verðbréfasjóða gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun þeirra. Nánari upplýsingar um sjóðina, þ.á m. nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum þeirra, má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðanna sem nálgast má á www.kaupthing.is/sjodir Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta tryggir innlán að lágmarki fjárhæð sem samsvarar EUR 20.887. Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6. október 2008 eru „innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi tryggðar að fullu“. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekki kveðið á um gildistíma, en yrði hún felld úr gildi þá tæki við lágmarksvernd samkvæmt lögum nr. 98/1999, sem greinir frá að ofan. Tryggingarsjóðurinn tryggir ekki tjón sem verður vegna taps á undirliggjandi fjárfestingum verðbréfasjóða s.s. skuldabréfum eða víxlum. Sjá nánar lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, og heimasíðu sjóðsins, www.tryggingarsjodur.is ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 52 29 0 3/ 09 „Veita persónulega ráðgjöf.“ Kona, 39 ára. Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar okkar lengur við símann. Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins og Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum Íslandsbanka. Hringdu í okkur á milli kl. 17 og 21 í síma 440 4000. Getum við aðstoðað? Á islandsbanki.is getur þú einnig pantað fjármála- viðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með okkur og fara ítarlega yfir stöðuna. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -0 3 4 0 Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka. UMHVERFISMÁL Þingsályktunartil- laga Sivjar Friðleifsdóttur, um frekari undanþágur fyrir Ísland frá samningum um útstreymi gróðurhúsalofttegunda, er illa unnin og röksemda- færslan fyrir henni hæpin. Hún jafngildir í raun uppsögn á EES- samningnum. Þetta segja Náttúru- verndarsamtök Íslands. Villandi sé að bera Ísland saman við fátækari ríki álfunnar, heldur yrði það flokk- að með þeim ríkari, enda sé þjóðarfram- leiðsla mælikvarði á slíkt í Evrópu. Einnig er minnt á að stjórnvöld hafi ekki lagt fram áætlun um hvernig skuli draga úr losun mengandi efna, líkt og þau séu skuldbundin til. - kóþ NSÍ um tillögu Sivjar Friðleifsdóttur: Sögð jafngilda uppsögn á EES-samningnum SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR PAKISTAN, AP Foringi talibana í Pak- istan lýsti í gær ábyrgð á blóðugri árás á lögregluskóla sem framin var í landinu daginn áður og sagði að sínir menn væru að undirbúa hryðjuverkaárás á Hvíta húsið sem myndi gera heimsbyggðina dolfallna. Baitullah Mehsud, sem er einn þeirra manna sem bandarísk yfir- völd leggja mesta áherslu á að hafa hendur í hári á í nafni stríðs- ins gegn hryðjuverkum, sagði að árásin á lögregluskólann í Lahore á mánudag hefði verið hefnd fyrir loftárásir Bandaríkjahers á skæru- liða við landamæri Afganistans. „Brátt munum við láta verða af árás í Washington sem mun gera heimsbyggðina dolfallna,“ tjáði Mehsud AP-fréttastofunni í sím- tali. Hann útskýrði hótunina ekki frekar. Hingað til hefur ekki sannast á Mehsud að hann tengdist árás- um utan Pakistans. En árásir sem menn á hans snærum eru grunaðir um að hafa framið hafa farið vax- andi að umfangi og alvörustigi. Fyrrverandi ríkisstjórn Pak- istans sagði Mehsud efstan á lista yfir þá sem grunaðir væru um að hafa staðið á bak við morðið á Ben- azir Bhutto, þáverandi forsætis- ráðherra, í desember 2007. - aa HARMUR Ekkja eins hinna myrtu lög- reglumanna sýnir harm sinn við útförina í Lahore í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Gengst við blóðugri árás á lögregluskóla í Pakistan: Talibani hótar árás á Hvíta húsið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.