Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 44
31 prósent fasteignaviðskipta í febrúar voru makaskiptasamningar. Greining Glitnis telur að slíkum samningum muni enn fjölga. prósenta lækkun hefur orðið á nafnverði húsnæðis í landinu það sem af er ári samkvæmt mælingu sem Hagstofa Íslands birti fyrir helgi. milljarða hagnaður var á starfsemi fjárfestinga-félagsins Eyris Invest á síðasta ári. Fyrir afskriftir, skatta, gjöld og fjármagnsliði (EBITDA) var hins
vegar 240 milljóna króna tap hjá félaginu.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Vorboðarnir færa þau tíðindi
frá meginlandi Evrópu í Brussel
að vænta megi frétta varðandi
Ísland þegar sól hækkar á lofti.
Smáfuglarnir, sem fara víða,
segja málið liggja á borðum
Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Von er á áliti ESA skömmu
fyrir kosningar og segja smá-
fuglarnir það kunna
að koma sér vel í
kosningabaráttu
sjálfstæðismanna.
Nú er um að gera
og bíða fregna
hver svo sem tíð-
indin verða á end-
anum. Tilviljanir
koma stundum
á heppilegasta
tíma, eða hvað?
Fréttir frá Brussel
Þeir fjárfestar sem ekki eiga
lengur aur til að fljúga á upp-
gjörsfundi færeysku félaganna
geta brugðið sér á uppgjörsfundi
Eimskips og Bakkavarar í dag.
Báðir fundir hefjast klukkan
hálf níu og verða þeir sem áhuga
hafa virkilega að vanda val sitt.
Miðað við gengi fyrirtækjanna
í fyrra er reyndar ólíklegt að
kræsingar leynist í uppgjörun-
um. Öðru máli gegnir um kruð-
eríið sem fyrirtækin bjóða með
morgunkaffinu. Þeir sem sótt
hafa afkomufundi Bakkavarar
geta gengið að því vísu að þar
verði í boði rúnstykki og vínar-
brauð sem skola má niður með
kaffi og djús. Ekki er síðra í
boði hjá Eimskipi, sem bíður
upp á hefðbundinn morgunverð:
kaffi, te og djús og rúnstykki
með osti, papriku og eggjum.
Svo verður eitthvað smá sætt í
bland, samkvæmt upplýsingum
frá fyrirtækinu.
Erfitt val
Flestum er ljóst að Eimskip hefur
gengið í gegnum eld og brenni-
stein síðasta árið. Afar áhuga-
vert er að bera saman uppgjörið
nú og í hittiðfyrra. Fyrir aðeins
tveimur árum var Eimskip á
mikilli siglingu. Á fyrstu síðum
uppgjörs 2007 er farið í gegn-
um kaupin á kælivörugeymsl-
unum Daalimpex og Versacold
auk þeirrar stærstu í Qingdao
í Kína. Þá bættust tvö ný flutn-
ingaskip við flotann auk þess
sem allt hlutafé breska landflutn-
inga fyrirtækisins Innovate var í
höfn á því góðæris ári. Þegar upp
var staðið skildi Innovate eftir
sig brunagat í bókum félagsins
og önnur fyrirtæki ýmist seld
eða í söluferli til að fylla upp í
skuldagatið sem fyrri eigendur
skildu eftir sig.
Einu sinni var …
8 1,5
GLEÐJUM FERMINGARBÖRNIN!
Ekkert hlé á góðum myndum!
Skráning á póstlistann margborgar sig - www.graenaljosid.is
Frumsýnd:
3. apríl
Hvar:
Háskólabíó
SAM ROCKWELL &
ANJELICA HUSTON