Morgunblaðið - 12.01.2006, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lært
að beita
vélsleðanum
Bílar á morgun
KARL Georg Sigurbjörnsson, lög-
maður Páls Pálssonar, eins 47
stofnfjáraðila í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar, vakti athygli á því í bréfi
sínu til Fjármálaeftirlitsins 31.
ágúst að alltaf hefði verið til staðar
virkur eignarhluti í sjóðnum í
skilningi FME en einhverra hluta
vegna hefði það verið látið liggja á
milli hluta í valdatíð eldri stjórnar.
Við stjórnarskiptin hefði FME
hins vegar vaknað til lífs og virtist
af fullum þunga vera að færa eldri
stjórn til valda á ný. Yrði það að
teljast áhyggjuefni vegna þess að í
hlut ætti opinber stjórnsýslustofn-
un sem hefði mikið lögbundið vald-
svið.
Eftirlitsskylda
nær ekki til lögmanna
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær fékk FME því fram-
gengt með úrskurði héraðsdóms
28. nóvember sl. að Landsbankinn
léti FME í té upplýsingar og ljós-
rit af öllum gögnum í vörslu bank-
ans varðandi hreyfingar á banka-
reikningum Lögmanna Laugardal
að fjárhæð 5 milljónir kr. eða
meira frá 1. apríl.
Karl Georg vakti einnig athygli
á því í fyrrnefndu bréfi að lögmenn
væru skv. lögum um opinbert eft-
irlit með fjármálastarfsemi ekki
meðal eftirlitsskyldra aðila.
Leitað á náðir FME
en erindi synjað
Varðandi stjórnarkjörið, greindi
Karl Georg frá því að leitað hefði
verið á náðir FME þegar í ljós
hefði komið að reglur settar fram í
samþykktum Sparisjóðsins hvað
varðaði framboð og framboðsfresti
í tengslum við aðalfund í vor,
hefðu verið þverbrotnar. Erindinu
hefði hins vegar verið svarað á þá
leið að ekki hefði þótt ástæða til að
skera fyrirfram úr ágreiningi milli
aðila hvernig standa skyldi að und-
irbúningi eða framkvæmd aðal-
fundar. Vaknað hefðu spurningar
hjá FME um hvort virkur eign-
arhluti væri að myndast, og þótti
Karli Georg það í hæsta máta sér-
stakt, því þá þegar væri til staðar
virkur eignarhluti undir hand-
leiðslu þáverandi stjórnarfor-
manns.
Það að lögmenn kæmu á fund
FME með gögn og upplýsingar um
að aðilar sem hygðust bjóða fram
gegn sitjandi stjórn væru hindr-
aðir við það með því m.a. að neitað
var að taka við framboðslistum
nýrra frambjóðenda, framboðslist-
ar þáverandi stjórnar ekki lagðir
fram innan tilskilins frests o.s.frv.,
hafi verið virt að vettugi af hálfu
FME.
Að mati Karls Georgs var það
því sérstakt að opinber eftirlits-
stofnun hæfi þegar í framhaldi af
svo alvarlegum sökum á þáverandi
stjórn athugun á því hvort nýir
frambjóðendur væru að mynda
virkan eignarhluta og virti að vett-
ugi athugasemdir lögmanna Páls
Pálssonar. Spyr Karl Georg hvort
FME væri þarna að fara í mann-
greinarálit.
Virkur eignar-
hluti eldri stjórnar
látinn afskiptalaus
STJÓRN Lögmannafélags Íslands
fjallaði síðdegis í gær um erindi lög-
mannsstofunnar Lögmenn Laugar-
dal, sem hún sendi félaginu í kjölfar
þess að Fjármálaeftirlitið (FME),
fékk með dómsúrskurði í lok nóvem-
ber upplýsingar og ljósrit af öllum
gögnum í vörslu Landsbankans er
vörðuðu hreyfingar á bankareikning-
um lögmannsstofunnar frá 1. apríl sl. í
tengslum við rannsókn á stofnfjárvið-
skiptum í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Stjórn Lögmannafélagsins sam-
þykkti eftirfarandi bókun:
„Að gefnu tilefni vill stjórn Lög-
mannafélags Íslands ítreka skoðun
félagsins á mikilvægi trúnaðarskyldu
lögmanna við skjólstæðinga sína sem
grundvallarreglu í réttarríki. Þetta
grundvallaratriði endurspeglast m.a.
í ákvæðum 22. gr. lögmannalaga nr.
77/1998 og 17. gr. siðareglna lög-
manna. Stjórn félagsins telur brýnt
að fyrrgreind grundvallarregla sé í
heiðri höfð af hálfu þeirra sem með
opinbert vald fara og að viðkomandi
lögmönnum sé ávallt gefinn kostur á
að gæta hagsmuna skjólstæðinga
sinna, sem og sinna eigin við meðferð
mála. Þá skal þess ávallt gætt að upp-
lýsingaskylda lögmanna í tengslum
við slík mál gangi aldrei lengra en
nauðsynlegt er í þágu viðkomandi
rannsóknar.“
Stjórn Lögmanna-
félagsins fjallaði um
kvörtun vegna úrskurð-
ar Héraðsdóms
Trúnaðar-
skylda lög-
manna sé í
heiðri höfð
LÚKAS hefur ásamt vinnufélögum sínum hjá Reykja-
víkurborg verið að safna saman notuðum jólatrjám í
Fossvogshverfinu.
Starfsmenn Framkvæmdasviðs borgarinnar fjar-
lægja jólatré, sem sett hafa verið út fyrir lóðamörk, og
verður sú þjónusta veitt allt til 13. janúar. Átakið hófst
7. janúar og eftir að því lýkur geta íbúar losað sig við
jólatrén á gámastöðvar Sorpu.
Morgunblaðið/Kristinn
Safna saman jólatrjánum
ALLS gefa 22 kost á sér í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Kópavogi sem
haldið verður laugardaginn 4. febr-
úar en þar verða valdir frambjóð-
endur flokksins fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar í bænum í vor.
Frambjóðendurnir eru:
Guðríður Arnardóttir, framhalds-
skólakennari. Jón Júlíusson,
íþróttafulltrúi. Ingibjörg Hinriks-
dóttir, þjónustufulltrúi. Hafsteinn
Karlsson, bæjarfulltrúi. Guðmundur
Örn Jónsson, verkfræðingur. Ragn-
hildur Helgadóttir, jafnréttisráð-
gjafi ÍTR. Flosi Eiríksson, bæjar-
fulltrúi. Rut Kristinsdóttir,
framhaldsskólakennari. Björk Ótt-
arsdóttir, leikskólastjóri. Þorsteinn
Ingimarsson, viðskiptafræðingur.
Jóhann Guðmundsson. Hreiðar
Oddsson, leiðbeinandi/nemi. Tjörvi
Dýrfjörð, verslunarstjóri. Arnþór
Sigurðsson, forritari. Jens Sigurðs-
son, formaður FUJ Kópavogi. Sig-
urður M. Grétarsson, viðskiptafræð-
ingur. Bjarni Gaukur Þórmundsson,
íþróttakennari. Margrét Júlía
Rafnsdóttir, grunnskólakennari.
Hulda Björg Sigurðardóttir, lyfja-
fræðingur. Kristín Pétursdóttir,
grunnskólakennari. Tryggvi Felix-
son, hagfræðingur. Þór Ásgeirsson,
líffræðingur.
22 verða í prófkjöri Samfylk-
ingar í Kópavogi 4. febrúar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá fjarskiptafyrirtæk-
inu Hive vegna höfnunar Póst og
fjarskiptastofnunar á hækkun
samtengingargjalda Símans:
„Hive furðar sig á málflutningi
Símans sem hefur komið fram í
fjölmiðlum, þar sem því er haldið
fram að Póst og fjarskiptastofnun
hafi brotið á Símanum og ekki virt
stjórnsýslulög. Hive telur það fjar-
stæðu – hið rétta er að einhliða
hækkun verðskrár Símans er brot
á fjarskiptalögum, sem kveða á um
að Símanum beri að leita samn-
inga á viðskiptalegum forsendum,
og alvarleg atlaga að frjálsri sam-
keppni á fjarskiptamarkaðinum.
Þau samtengigjöld sem Síminn
hugðist hækka, auka kostnað ann-
arra fjarskiptafyrirtækja við að
senda símaumferð sín á milli um
kerfi Símans. Hive telur að með
þessum verðhækkunum hyggist
Síminn gera Hive erfiðara að hefja
almenna símaþjónustu, en félagið
er að undirbúa innkomu sína á
þann markað á næstunni.
Hive telur þessa hegðun Símans
ámælisverða og til þess eins að
skaða frjálsa samkeppni með þeim
afleiðingum að verð á símaþjón-
ustu til almennings hækki. Í þessu
samhengi vill Hive vekja athygli á
því að Síminn hækkaði verð á al-
mennri símaþjónustu til almenn-
ings, þ.e. kvöld-, nætur- og helg-
artaxta, þann 1. desember sl. yfir
25%. Síminn hefur því þegar hafið
þá vegferð að hækka símgjöld al-
mennings verulega og hvergi
nærri sér fyrir endann á því eins
og umrætt dæmi um hækkun sam-
tengigjalda sýnir.
Hive telur mjög brýnt að Póst
og fjarskiptastofnun standi vörð
um hagsmuni almennings og
frjálsa samkeppni og styður Hive
framtak stofnunarinnar í þessu
máli.“
Furða sig á mál-
flutningi Símans
Á SÍÐASTA greindust átta
manns með HIV-smit á Íslandi
og hafa því 184 greinst frá upp-
hafi. Segir í Farsóttafréttum
sóttvarnalæknis, að þetta sé í
samræmi við þróun undanfar-
inna ára sem bendi til takmark-
aðrar útbreiðslu HIV-smits hér
á landi.
Fimm þeirra sem greindust á
árinu voru karlar en konur voru
þrjár. Ekki varð nein breyting á
áhættuþáttum fyrir smiti, en
talið er að fimm hinna smituðu
hafi verið gagnkynhneigðir og
þrír samkynhneigðir karlar. Í
lok ársins 2005 greindist alnæmi
hjá einstaklingi sem ekki var vit-
að til að væri smitaður af HIV.
Enginn fíkniefnaneytandi
greindist með HIV-smit á árinu
2005.
Átta greind-
ust með
HIV-smit