Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 25
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
ÞRÖNGAR gallabuxur með mjóum skálmum hafa
verið áberandi í tískunni að undanförnu hjá báðum
kynjum. Þessar buxur þykja fara best á fólki með
leggi eins mjóa og pípuhreinsara og má þá nefna of-
urfyrirsætuna Kate Moss sem oft hefur sést í slík-
um klæðum. En hvernig á að klæðast slíkum bux-
um ef maður er ekki grindhoraður og vöxturinn er
kvenlegur?
Háhæluð stígvél með buxunum
Á vefsíðunni www.telegraph.co.uk segir að konur
með vöxt eigi ekki að herma eftir Kate Moss og
vera í flatbotna skóm við
buxurnar. Þær eiga miklu
heldur að vera í háhæl-
uðum stígvélum utan yfir
buxurnar því stígvélin
setja líkamann í jafnvægi,
stærð þeirra og lengd læt-
ur leggina líta út fyrir að
vera grennri auk þess sem þau bæta við örlítilli
hæð, sem er mikilvægt fyrir þetta útlit. Flatbotna
skór láta stórar mjaðmir líta út fyrir að vera ennþá
stærri.
Ef þú ert komin í þröngar buxur og há stígvél en
vilt samt ennþá fela mjaðmirnar þá segja sérfræð-
ingarnir að málið sé að fara í víðan og síðan bol eða
peysu og forðast að nota belti yfir bolinn eða vera í
peysunni yfir bolnum því það mun aðeins undir-
strika mjaðmirnar.
Gallabuxur eru misþröngar niður þannig að það
er um að gera að velja það snið sem hentar hverj-
um og einum.
Svo er bara að kvíða fyrir sumrinu því þá verða
hvítar niðurþröngar buxur í tísku og það verður
enn erfiðara að klæðast þeim rétt.
TÍSKA
AP
Kate Moss er oft í níðþröngum gallabuxum sem fara henni
vel þar sem hún er ekki með miklar mjaðmir.
Svo er bara að
kvíða fyrir sumr-
inu því þá verða
hvítar niður-
þröngar galla-
buxur í tísku.
Ekki herma
eftir Kate Moss
NEYTENDUR |
Spurt og svarað
Umboðs-
aðili sjálfs
sín?
FYRIRSPURN barst til neyt-
endasíðna blaðsins vegna þókn-
unar sem fjárfestingabankar taka
sér þegar þeir kaupa hlut af fólki í
fyrirtækjum. Fullorðinn maður
hafði selt fjárfestingarfyrirtæki
hlut sinn í Sparisjóði Vélstjóra
(SPV) og eins og stundum er með
fólk þá hafði hann ekki lesið smáa
letur samningsins of vel þegar
hann skrifaði undir og sá því ekki
fyrr en eftir að kaupin voru um
garð gengin, að fjárfestingarfyr-
irtækið hafði skrifað sig sem milli-
gönguaðila að kaupunum og reikn-
að sér fyrir vikið þóknun.
Þótti honum þetta óeðlilegt að
fyrirtækið væri þannig umboðs-
aðilar sjálfs sín, og vildi vita hvort
þetta tíðkaðist og hvort þetta væri
löglegt. Maðurinn tók fram að
fjárfestingarfyrirtækið hefði sóst
eftir því að kaupa stofnfjárbréfin.
Stofnfjárbréf ekki sama
og venjuleg hlutabréf
Hjá Fjármálaeftirlitinu fengust
þau svör að kaup og sala á stofn-
fjárbréfum færi fram með allt öðr-
um hætti en venjuleg kaup og sala
á verðbréfum á markaði. Þegar
keypt eru stofnfjárbréf í Spari-
sjóði Vélstjóra, þá er það háð
ákveðnum skilyrðum og þarf það
að fara fyrir stjórn Sparisjóðsins
og fá samþykki. Eins þarf að gera
ákveðið framsal, ákveðinn papp-
írskostnaður fellur til sem og
vinna.
Ef fjárfestingarfyrirtæki hefur
tekið að sér að sjá um þessa vinnu
og þennan kostnað við tilfærsluna
á hlutnum, þá er ekki óeðlilegt að
hann reikni sér þóknun fyrir það.
Þó ber að skoða hvert mál eitt og
sér þegar svona hlutir eru athug-
aðir.
En vert er að benda á að allt er
bundið í samningum og ef viðkom-
andi seljandi hefur skrifað undir
að kaupandi taki sér þóknun, þá
er erfitt að gera athugasemdir eft-
ir á.
VÍSBENDINGAR hafa fundist um
að tónlist geti hjálpað þeim sem
þjást af óreglulegum hjartslætti og
hjartsláttartruflunum sem geta leitt
til hjartabilunar. Í Bandaríkjunum
hefur hörputónlist verið leikin undir
hjartaaðgerðum á nokkrum slíkum
sjúklingum og ýmislegt bendir til
þess að áhrifin séu góð, þ.e. að hjart-
slátturinn verði reglulegri, að því er
fram kemur á heilsuvef MSNBC.
Róandi áhrif tónlistar eru þekkt en læknirinn og hörpuleikarinn Jenni-
fer MacKinnon og læknirinn Abraham Kocheril reyna nú að sanna lækn-
isfræðileg áhrif hennar. Hörputónlist er talin einna æskilegust þótt önnur
hljóðfæri geti líka haft góð áhrif. Harpan á þannig að hafa best áhrif á
hjartsláttinn og helst tónlist leikin á staðnum, þ.e. ekki af bandi. Hörpu-
leikarar hafa leikið við hjartaaðgerðir, á gjörgæsludeildum, fyrirbura-
deildum og fæðingardeildum með góðum árangri.
Hörputónlist hefur einnig haft góð áhrif á gigtarsjúklinga og þá sem
nokkurs konar tónlistarnudd, þ.e. sjúklingarnir sitja í stól sem þakinn er
hátölurum og hljóðbylgjurnar skella því beint á sjúklingunum.
Hörpuleikur góður við
hjartsláttartruflunum
HEILSA
Morgunblaðið/Sverrir
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska