Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐAUR
ÚTSALA - ÚTSALA
Nýtt kortatímabil
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Skólavörðuholt | Gamla Heilsu-
verndarstöðin við Barónsstíg mun
áfram þjóna á sviði heilbrigðismála,
en fyrirtækið Mark-Hús ehf. keypti
hana af ríki og borg í nóvember og
fær húsið afhent í ágúst á þessu ári.
„Við erum búnir að fara yfir marg-
ar hugmyndir um nýtinguna,“ segir
Markús Árnason, húsasmíðameist-
ari og eigandi Mark-Húsa ehf. „Það
lá þó alltaf fyrir að halda húsinu í
heilbrigðisgeiranum. Þar eru fleiri
en einn möguleiki, en við erum að-
allega að horfa til læknastofa og
tengdrar starfsemi.“
Mikilvægt að varðveita
svip og útlit hússins
Bygging heilsugæslustöðvarinnar
hófst 1949 og var hún vígð árið 1957.
Þó hafði einhver starfsemi hafist í
henni árið 1953. Dagbjartur Guð-
mundsson, verkfræðingur og verk-
efnisstjóri væntanlegra fram-
kvæmda, segir húsið vera farið að
kalla á endurnýjun. M.a. séu þök á
lægri hlutum hússins orðin ansi illa
farin og þarfnist viðgerða, enda sé
þar farið að leka. „Ástandið í húsinu
er annars nokkuð gott og fátt sem er
aðkallandi að breyta, en þó gæti ver-
ið að við þyrftum að taka niður ein-
hverja milliveggi og reisa að nýju til
að laga rýmið,“ segir Dagbjartur.
Þá verður nýttur byggingarréttur
austan við húsið, en Dagbjartur seg-
ir áformað að reisa þar fjórar hæðir í
viðbyggingu auk bílakjallara. „Við
ætlum samt að breyta húsinu sem
minnst að utan, enda á að bera virð-
ingu fyrir gömlum og fallegum hús-
um,“ segir Dagbjartur um húsið sem
hannað var af Einari Sveinssyni og
Gunnari H. Ólafssyni arkitektum og
flokkast til síðfunkishúsa. „Það er
líka mjög mikilvægt að viðbyggingin
sé í góðu samræmi við húsið, enda
viljum við ekki vekja reiði fólks og fá
yfir okkur skammir úr samfélaginu
fyrir að skemma húsið.“
Þeir félagar segja ljóst að húsið
þjóni áfram heilbrigðisþjónustunni
og nálægð þess við Landspítala – há-
skólasjúkrahús og væntanlegt há-
tæknisjúkrahús geri það að ákjósan-
legum stað fyrir læknaskrifstofur og
aðra þjónustu sem hentugt er að
hafa í nálægð við sjúkrahúsið. „Það
er okkar mat að þetta sé ákjósan-
legur kostur,“ segir Markús. „Við
höfum heyrt ýmsar ólíkar hugmynd-
ir utan úr bæ um hvað myndi verða
um bygginguna, jafnvel hótel, en
áframhaldandi heilbrigðisþjónusta
varð fyrir valinu.“
Framtíð Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg skýrist
Heilbrigðisþjónusta
ákjósanlegasti kosturinn
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Morgunblaðið/ÓmarHeilbrigðisstarfsemi verður áfram til húsa í Heilsuverndarstöðinni.
!0
!
12$
.3
!
4
5
. 60
!
"
!
!
#
$
!
Hafnarfjörður | Bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar samþykkti samhljóða á
fundi sínum sl. þriðjudag að lækka
verulega álagningagrunn fasteigna-
gjalda til að vega upp á móti þeirri
hækkun sem orðið hefur á matsverði
íbúðarhúsnæðis í bænum samkvæmt
úrskurði yfirfasteignamatsnefndar.
Þannig lækkar álagningarpró-
senta fasteignaskatts á íbúðarhús-
næði úr 0,335% í 0,270% af heildar-
fasteignamati eða um 20%. Þá
lækkar álagningarprósenta lóðar-
leigu á íbúðarhúsnæði úr 0,35% af
fasteignamati íbúðalóða í 0,295% eða
um 16%. Jafnframt lækkar vatns-
gjald úr 0,14% í 0,119% af heildar-
fasteignamati og holræsagjald úr
0,16% af heildarfasteignamati í
0,136%.
Samantekið þýða þessar breyting-
ar að raunbreytingar á fasteigna-
gjöldum á íbúðarhúsnæði fyrir árið
2006 verða að meðaltali til samræmis
við verðlagþróun, en taka verður til-
lit til þess að sér- og fjölbýlisstofnar
fasteigna hækkuðu ekki jafn mikið.
Sorphirðugjald hækkar um 490 kr.
og verður 10.490 kr. á hverja íbúð í
Hafnarfirði á árinu 2006. Matsverð
atvinnuhúsnæðis hækkaði um 10%
milli ára samkvæmt úrskurði yfir-
fasteignamatsnefndar, þar sem 20%
hækkun varð í Reykjavík og Kópa-
vogi. Bæjarstjórn samþykkti að
lækka álagningu vatnsgjalds og hol-
ræsagjalds til samræmis á lækkun
fyrir íbúðarhúsnæði til að vega upp á
móti hækkun matsverðsins.
Grunnur
fasteigna-
gjalda
lækkar
BRYNJAR Már Magnússon, 25 ára
Akureyringur, segist stálheppinn að
hafa haldið fullri sjón á hægra auga
eftir að glas var brotið á andliti hans
í miðbæ Akureyrar á nýársnótt.
Nokkrum mínútum áður var maður
sleginn í höfuðið með flösku skammt
frá og leitar lögreglan nú vitna að at-
burðunum.
Brynjar var nýlega kominn út af
skemmtistað um nóttina þegar ráð-
ist var á hann að tilefnislausu, að
hans sögn. „Þegar ég kom út hótaði
mér einhver en ég svaraði engu og
velti því ekkert fyrir mér. Þremur til
fjórum mínútum seinna sé ég svo út-
undan mér að einhver kemur hlaup-
andi og veit ekki fyrr til en glasi er
skellt í andlitið á mér. Því var ekki
kastað í mig heldur var glasinu ýtt
fast framan í mig. Sá sem gerði það
hlýtur að hafa skorið sig illa á
hendi,“ sagði Brynjar í samtali við
Morgunblaðið.
Skurðir á andliti Brynjars voru
22, þar af þrír nokkuð stórir og alls
þurfti að sauma 14 spor í andlit
hans.
Ör eftir stærstu skurðina eru
áberandi í andliti Brynjars, eitt við
innri mörk hægri augabrúnar, annað
á hægri kinn og það þriðja í efri vör.
Sporin voru tekin úr Brynjari fyrir
nokkrum dögum og umbúðirnar tók
hann af andlitinu fyrr í vikunni.
„Það var talsvert af fólki þarna og
mér er sagt að viðkomandi hafi sleg-
ið mig líka í hausinn eftir að ég datt,
en ég man ekkert eftir því.“
Hann segist strax hafa bólgnað
mikið í andlitinu en þrátt fyrir það
hafi hann ekki haft miklar áhyggjur
í fyrstu vegna þess að sjónin var
eðlileg. En vegna bólgu kveðst hann
varla hafa getað rætt við lög-
regluþjóna sem komu á vettvang.
„Eftir á að hyggja prísa ég mig
sælan að hafa ekki misst sjónina.
Það var glerflís í auganu, sem hefði
sigið inn í það hægt og rólega. Uppi
á spítala ætlaði ég að nudda á mér
augað en aðstoðarlæknirinn var bú-
inn að sjá glerbrotið og stoppaði mig
af; greip í höndina á mér. Hann náði
brotinu svo úr með töng.“
Brynjari hefur verið tjáð að ríkið
sé bótaskylt hvort sem árásarmað-
urinn finnst eða ekki. „Ég vona samt
að hann finnist því þegar einhver
kemst upp með að gera þetta hlýtur
að vera hætta á því að hann geri
svona lagað aftur.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Brynjar Már: Ætlaði að nudda augað en læknirinn stoppaði mig af.
„Prísa mig sælan að hafa
ekki misst sjónina“
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Ólafsdóttir, Reykjavík, Lúðvík
Lárusson, Reykjavík, Ormarr Ör-
lygsson, Akureyri, Ólafur Hall-
dórsson, Noregi, Ragnar Bjarna-
son, Laugum, Sigrún Magnús-
dóttir, Akureyri, Sigurjón
Haraldsson, Vestmannaeyjum,
Úlfar Hauksson, Akureyri, Valtýr
Þór Hreiðarsson, Akureyri og Þór-
leifur Stefán Björnsson, Akureyri.
Gert er ráð fyrir að gengið verði
frá ráðningu í starfið í lok janúar.
ALLS bárust 15 umsóknir um
starf framkvæmdastjóra há-
skólaskrifstofu Háskólans á Ak-
ureyri sem auglýst var laust til
umsóknar í desember en umsókn-
arfrestur um starfið rann út 10.
janúar sl. Þeir sem sóttu um eru:
Benedikt Sigurðarson, Akureyri,
Björn Helgason, Selfossi, Eiður
Guðmundsson, Akureyri, Guðrún
Arndís Jónsdóttir, Akureyri, Jón-
as Vigfússon, Akureyri, Kristín
15 vilja stjórna HA
ÍBÚAR Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
kjósa um hvort sameina eigi sveit-
arfélögin í eitt nú í lok mánaðar, 28.
janúar næstkomandi. Verði samein-
ingin samþykkt verður nýju sveitar-
félagi kjörin sameiginleg sveitar-
stjórn við kosningar í maí í vor.
Aðeins íbúar þessara tveggja
sveitarfélaga voru hlynntir samein-
ingu þegar kosið var um sameiningu
allra sveitarfélaga í Eyjafirði í októ-
ber síðastliðnum og í kjölfarið sam-
þykktu bæjarstjórnir þeirra að taka
upp viðræður um sameiningu þeirra.
Rannsóknastofnun Háskólans á
Akureyri hefur nú skilað frá sér
skýrslu um sameiningu bæjarfélag-
anna og lagt mat á hagkvæmni henn-
ar. Í henni kemur m.a. fram að lagt
er til að grunnskólarnir í Ólafsfirði
og Siglufirði sameinist í eina stofnun
með einn skólastjóra og tvo aðstoð-
arskólastjóra, sinn í hvoru núverandi
bæjarfélagi. Þá er einnig lagt til að
tónlistarskólar sem nú eru tveir
verði sameinaðir í eina stofnun með
starfsemi á báðum stöðum. Áhersla
er og lögð á að koma upp almenn-
ingssamgöngum milli staðanna.
Ekki er í skýrslunni gert ráð fyrir
miklum breytingum í rekstri og
stjórnun leikskóla, þeir verða í báð-
um bæjum líkt og nú og að börn
verði að jafnaði í þeim leikskóla þar
sem þau eru búsett. Þeim möguleika
er þó varpað upp að í einhverjum til-
vikum geti það snúist við, t.d. ef for-
eldrar búa á öðrum staðnum en
sækja vinnu á hinn.
Lagt er til að fimm stöðugildi
verði á bæjarskrifstofunni í Ólafs-
firði og tíu á Siglufirði, en stöðugild-
um verður fækkað um þrjú frá því
sem nú er. Bæjarstjóri yrði á Siglu-
firði, sem og framkvæmdastjóri fjár-
mála- og stjórnsýslusviðs, aðalbók-
ari og ritari svo eitthvað sé nefnt, en
í Ólafsfirði yrði framkvæmdastjóri
fjölskyldusviðs og launafulltrúi.
Efnt verður til kynningarfunda í
báðum bæjarfélögum í næstu viku,
þriðjudagskvöldið 17. janúar, og þá
er stefnt að því að dreifa kynning-
arbæklingi um sameininguna í öll
hús í báðum sveitarfélögum 23. jan-
úar næstkomandi.
Ólafsfjörður og Siglufjörður
Skólar hugsan-
lega sameinaðir