Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 60
EKKERT útlit er fyrir að draga muni úr útrás íslenskra fyrirtækja og at- hafnamanna í Danmörku, þvert á móti er þess að vænta að fjárfestingar Íslendinga þar muni aukast. Þetta er mat Stig Madsen, eins af eigendum Deloitte í Danmörku, en hann er einn af þeim sem halda erindi á skattadegi Deloitte, Samtaka atvinnulífsins, Við- skiptaráðs Íslands og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins á Hótel Nordica í dag. „Ég held að þeir [Íslendingar] séu rétt að byrja. Það eru mjög mörg fjár- festingatækifæri fyrir hendi í Dan- mörku þessa dagana og þannig verð- ur það áfram í ár,“ segir Madsen en hann og fyrirtæki hans hefur komið að meira en helmingi uppkaupa Ís- lendinga á fyrirtækjum í Danmörku og m.a. að þeim kaupum sem vakið hafa einna mesta athygli þar. Madsen segir mikinn uppgang vera í dönsku efnahagslífi og nefnir að í fyrra hafi verið stofnuð þar 50 þúsund ný fyrirtæki. „Flest af þeim eru auðvitað lítil,“ segir Madsen, „en að auki munu svo mörg fyrirtæki skipta um eigendur, þ.e. yngri menn munu taka við þeim. Menn reikna með að á næstu fimm ár- um muni nýir eigendur kaupa 30–40 þúsund fyrirtæki í Danmörku. Ég tel að um tvö þúsund af þessum fyrir- tækjum geti verið áhugaverð fyrir ís- lenska fjárfesta.“ Sóknin í Danmörku mun halda áfram  Fjárfestingar | B14 ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga MUNUR á lægsta og hæsta verði heillar og hausaðrar rauðsprettu er 111% í verðkönnun sem verðlagseft- irlit ASÍ gerði í 23 verslunum á höfuðborg- arsvæðinu og á Akur- eyri sl. þriðjudag. Í tólf tilvikum af tuttugu og sjö var yfir 50% munur á hæsta og lægsta verði afurða. 82% verð- munur var á hæsta og lægsta verði karfaflaka með roði og 81% munur á verði stór- lúðu í sneiðum. Verðlagseftirlitið kannaði síðast verð á fiski í lok árs 2003. Þegar sú könnun er borin saman við þessa kemur í ljós að meðalverð allra af- urða að tveimur undanskildum hefur hækkað milli kannana. Mest hækk- uðu bleikjuflök með roði um tæp 23% og stórlúða í sneiðum um 20%. | 26 Mikill verð- munur á fiski LÝSTAR kröfur í þrotabú Slipp- stöðvarinnar hf. nema um 1,4 millj- örðum króna að því er fram kom á fyrsta skiptafundi búsins sem haldinn var í gær. Veðkröfur nema ríflega einum milljarði og á þýska félagið DSD-Noell bróðurpart þeirra, lýsir kröfu upp á rúmlega 625 milljónir króna. Slippstöðin var undirverktaki þýska fyrirtækisins vegna verkefnis við Kárahnjúka. Forgangskröfur, einkum launakröfur og kröfur frá líf- eyrissjóðum, nema 128 milljónum króna og þá er lýst almennum kröfum í búið að upphæð 213 milljónir króna. Sigmundur Guðmundsson, skipta- stjóri þrotabúsins, sagði að á fund- inum hefðu komið fram þónokkur mótmæli vegna afstöðu hans til ein- stakra krafna. Skiptastjóri hefur til að mynda ekki tekið afstöðu til al- mennra krafna né heldur krafna sem urðu til eftir gjaldþrot félagsins í byrjun október síðastliðins, en hann sagði ástæðuna þá að ekkert fengist, að sínu mati, upp í þær. Sigmundur sagði að eignir þrota- búsins væru metnar á um 135 millj- ónir króna, þe. fasteignir á slippsvæð- inu, vélar og tæki. Viðræður um sölu eigna Viðræður hafa staðið yfir um að Slippurinn kaupi þær eignir þrota- búsins að sögn Sigmundar. Hann á von á að af sölunni geti orðið á næst- unni, en þó geta mótmæli sem fram komu á skiptafundi í gær tafið málið. „Ég vona að svo verði ekki,“ sagði Sigmundur. Hann kveðst munu boða til fundar með þeim sem í hlut eiga og reyna að sætta sjónarmið, en takist það ekki er möguleiki á að vísa mál- um til Héraðsdóms Norðurlands eystra, sem myndi þá leysa úr ágrein- ingi. „Næstu skref eru að greiða úr mótmælum, fá einhvern botn í þau mál og afgreiða þau. Sigmundur sagði að á skiptafundi í gær hefði mikið verið rætt um að- draganda gjaldþrots Slippstöðvar- innar, hann sagðist hafa skoðað hvað gerðist fyrir gjaldþrot og þá með það í huga hvort eignir fyrirtækisins hefðu hugsanlega verið rýrðar. „En ég tel ekki svo vera,“ sagði Sigmund- ur. Lýstar kröfur í þrotabú Slippstöðvarinnar nema um 1,4 milljörðum króna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lífið gekk sinn vanagang í gær á athafnasvæði Slippsins Akureyri ehf., sem stofnað var í kjölfar gjaldþrots Slippstöðvarinnar hf. í haust. Eignirnar voru ekki rýrðar að mati skiptastjórans Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Í BÍGERÐ er umfangsmikil end- urbót á stjórn umferðarflæðis á höfuðborgarsvæðinu með því að koma á miðlægri tölvustýringu fyr- ir umferðarljós og reiknað er með að fyrsta áfanga ljúki næsta haust en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, sem stendur að framkvæmdunum með Reykjavík- urborg, er vonast eftir að samn- ingar verði undirritaðir í næstu viku. Breytingarnar munu m.a. fela í sér að hægt verður að breyta ljósa- gangi umferðarljósa frá stjórnstöð og greiða fyrir umferð við sér- stakar aðstæður, s.s. við stærri íþróttaviðburði eða tónleikahald svo dæmi séu tekin. Hægt verður að notast við sjálfvirka teljara til að stjórna ljósaganginum mun betur en gert er í dag og jafnframt verð- ur lögð áhersla á að auka tíma græna ljóssins á þeim leggjum sem mest umferð er á og stytta þannig heildartafir, minnka bensíneyðslu og mengun. Talið er að hægt sé að minnka tafir um fimm til tuttugu prósent í umferðarkerfinu. Kostnaður á milli 100 og 150 milljónir Fyrsta skrefið er að tölvutengja umferðarljós við stjórnstöð og verða um tuttugu ljós tekin í notkun í fyrsta áfranga – á helstu stofnbrautum, s.s. Sæbraut og Kringlumýrarbraut. Tilboð bárust frá Smith & Norland , EJS og Nortek og á fundi framkvæmda- sviðs Reykjavíkurborgar 14. des- ember sl. var ákveðið að tilboði Smith & Norland yrði tekið. Enn á þó eftir að ganga endanlega frá málum og skrifa undir samninga. Reiknað er með að kostnaður við fyrsta áfanga nemi um 60 millj- ónum, en hann felst meðal annars í því að koma upp tölvustýrikerfi sem heldur utan um stöðu umferð- arljósanna. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar gæti hins vegar hlaupið á 100 til 150 milljónum króna. Morgunblaðið/Júlíus Tafir í umferðarkerfinu á höfuðborgarsvæðinu gætu minnkað um 5 til 20% með tilkomu miðlægrar stjórnunar á umferðarljósum. Umferðarljósum tölvustýrt Eftir Andra Karl andri@mbl.is FINNUR Árnason, forstjóri Haga, vildi í samtali við Morgunblaðið ekk- ert tjá sig um það hvort olíufélagið Skeljungur, sem er í eigu Haga, væri til sölu en samkvæmt heimildum blaðsins hefur verið leitað að með- eigendum að félaginu. Finnur segir Skeljung vera vel rekið fyrirtæki í góðum rekstri og Hagar hafi ekki í hyggju að fara frá rekstri þess. Vilja með- eiganda að Skeljungi LÖGREGLAN á Keflavíkurflug- velli stöðvaði ungan ökumann við Grænás klukkan rétt rúmlega níu í gærkvöldi eftir að bifreið hans hafði mælst á 141 kílómetra hraða, en leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er 70 kílómetrar á klukkustund. Að sögn lögreglunn- ar telur hún þetta vera vítaverðan akstur og má ökumaðurinn búast við hárri sekt og sviptingu öku- réttinda. Ökumaður stöðvaður á 141 km hraða ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.