Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 48
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG ÆTLA ÚT AÐ SLÁ BLETTINN EFTIR AÐ ÉG HEF SKRÚFAÐ SLÁTTUVÉLINA AFTUR SAMAN! SKIPTILYKIL? EINMITT ÞAÐ SEM MIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ Í: EINKARITSKOÐARI ÞÚ ÆTTIR EKKI AÐ HORFA Á ÞETTA ÁTTU EIN- HVERN PENING? NEI! HVERNIG VERÐUM VIÐ OKKUR ÚTI UM PENING? ER EKKI EINHVER SEM VIÐ GETUM KÆRT? MÉR HEFUR GENGIÐ SVO ILLA AÐ SOFNA UNDANFARIÐ HEFURÐU PRÓFAÐ AÐ TELJA KINDUR? JÁ, EN ÞAÐ HEFUR EKKI GERT NEITT GAGN... ... ENDA GET ÉG BARA TALIÐ UPP AÐ FIMM HÉRNA STENDUR AÐ KEPPENDUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM ÞURFI AÐ GEFA ÞVAGSÝNI GRÍMUR GEFUR ÞVAGSÝNI Á HVERJUM DEGI, SEX MISMUNANDI AÐILUM. FJÓRUM TRJÁM OG TVEIMUR BRUNAHÖNUM SJÁUMST SEINNA. ÉG ÆTLA AÐ NÆLA MÉR Í GULLIÐ ÉG HEF VERIÐ AÐ VELTA FYRIR MÉR SUMRINU. TÓKST MÉR AÐ GERA ÞAÐ SEM ÉG ÆTLAÐI MÉR? HREYFÐI ÉG MIG NÓG? LAS ÉG NÓGU MARGAR BÆKUR? EYDDI ÉG NÓGU MIKLUM TÍMA MEÐ BÖRNUNUM? TÓKST MÉR AÐ SLAKA NÓGU MIKIÐ Á!?! ÞÚ REYNDIR ALLA VEGA ÞAÐ ER BARA EIN LEIÐ TIL AÐ SANNREYNA SÖGU RÓSU ÞAÐ ER AÐ FINNA TARANTÚLUNA ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ SKYNJARARNIR MÍNIR HAFI FUNDIÐ HANN. ÞARNA ER HANN! Dagbók Í dag er fimmtudagur 12. janúar, 12. dagur ársins 2006 Ég heiti því að byrjaað reykja á nýju ári. Ég heiti því að hætta að tala við heimskt fólk. Ég heiti því að venja dóttur mína af bleiu. Ég heiti því að hætta að tala upp úr svefni. Ég heiti því að borða meira af góðum mat þetta árið. Ég heiti því að syngja hærra og meira á göt- um úti en nokkru sinni áður. Ég heiti því að skerða ekki hár á höfði mínu.“ x x x Þetta eru nokkur dæmi um ára-mótaheit sem fólk lofaði sjálfu sér og öðrum þessi áramótin. Þau flokkast ekki undir hin hefð- bundnu heit um bót og betrun í líkamsrækt eða annað í þeim dúr. Bridget Jones var mjög dugleg að strengja þess heit að drekka minna hvítvín og reykja færri síg- arettur, en tókst aldrei að standa við það, enda er það ein af ástæð- um þess hversu vel okkur líkar við hana, við könnumst svo vel við þennan breyskleika. Áramótaheit erukannski ekkert endilega til þess að standa við þau, heldur til að minna sig á hvað má betur fara. Og það er svo margt sem má betur fara en ekkert endilega það sem aðrir ætlast til. Til dæmis strengdi einhleyp mjúk kona á fimm- tugsaldri þess ekki heit að missa einhver kíló á árinu, heldur strengdi hún þess heit að taka sér að lág- marki tvo elskhuga í hverjum mánuði nú á nýju ári. Henni fannst hún alls ekki hafa sofið nógu mikið hjá á gamla árinu. x x x Og önnur einhleyp kona á fertugs-aldri lýsti því ekki yfir í ára- mótaboði fjölskyldunnar að hún ætl- aði að finna sér mann á nýju ári, heldur ætlaði hún að verða barns- hafandi. Hún lofaði sjálfri sér og öll- um viðstöddum að vera með flotta bumbu næsta gamlárskvöld, því henni finnst einfaldlega kominn tími til þess að hún fjölgi sér. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Leikhús | Á laugardagskvöldið verður fimmtugasta sýning á leikritinu Ég er mín eigin kona í Iðnó. Leikritið er eftir Bandaríkjamanninn Doug Wright og hefur hlotið fjölda verðlauna vestra, m.a. bæði Pulitzer- og Tony-verðlaunin. Það byggist á sannsögulegum atburðum og er aðalpersónan hin þýska Char- lotte von Mahlsdorf, sem fæddist karlmaður en kaus að lifa lífi sínu sem kona. Það er Hilmir Snær Guðnason sem fer með öll 35 hlutverk leiksins og leikstjóri er Stefán Baldursson. Kona í fimmtugasta sinn MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En þeir sögðu: „Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.“ (Post. 16, 31.–33.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.