Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Upplifðu ástina og kærleikann Sýnd kl. 4 Íslenskt tal Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB Banka Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 B.i. 14 ára Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliam byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum EINNIG SÝND Í LÚXUS kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára H.J. / MBL Sími 564 0000Miða sala opn ar kl. 15.15 “…mikið og skemmtilegt sjónarspil...” JUST FRIENDS Stranglega bönnuð innan 16 ára 400 KR Í BÍÓ* Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB Banka Sýnd kl. 8 B.i. 14 ára Sýnd kl. 6 Íslenskt tal Stranglega bönnuð innan 16 ára JUST FRIENDS Stranglega bönnuð innan 16 ára GRÍNSMELLUR ÁRSINS! Sýnd kl. 10 JUST FRIENDS Ó.Ö.H. / DV  D.Ö.J. / Kvikmyndir.comA.G. / BLAÐIÐ Ó.Ö.H. / DV  D.Ö.J. / Kvikmyndir.com A.G. / BLAÐIÐ Ó.Ö.H. / DV D.Ö.J. / Kvikmyndir.com A.G. / BLAÐIÐ Ó.Ö.H. / DV  D.Ö.J. / Kvikmyndir.com A.G. / BLAÐIÐ Dóri DNA / DV V.J.V . / TOPP5.IS K&F / XFM Dóri DNA / DV HJ / MBL  V.J.V . / TOPP5.IS K&F / XFM Dóri DNA / DV HJ / MBL  V.J.V . / TOPP5.IS K&F / XFM Dóri DNA / DV HJ / MBL  V.J.V . / TOPP5.IS K&F / XFM H.J. / MBL H.J. / MBL Sýnd kl. 5.45 B.i. 12 ára H.J. / MBL ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Líkt og undanfarin ár verðurAlliance Français ogfranska sendiráðið, í sam- vinnu við Sambíóin, Græna ljósið, Senu, Myndform ofl., með álitlega kvikmyndaveislu Festival du film français í Háskólabíói dagana 12.– 30. janúar. Hún hefst í kvöld með sýningu á opnunarmyndinni Lemm- ing, þar sem leikstjóri hennar og heiðursgesturinn Dominik Moll, verður viðstaddur. Hefð er orðin fyrir hátíðinni, sem kemur siglandi eins og suður-evrópskur ljósgeisli inn í skammdegið og veturinn. Hún hefur verið að festa sig í sessi og jafnt og þétt að bæta við sig aðsókn- arlega. Að venju gætir ýmissa grasa, bæði dramatískra-, gaman-, spennu- og glæpamynda, frá þess- ari rótgrónu kvikmyndaþjóð. Myndirnar eru flestar gerðar á síð- ustu tveimur árum og finna örugg- lega flestir eitthvað við sitt hæfi. Þessi litríki myndahópur er gerð- ur af nokkrum af fremstu og for- vitnilegustu leikstjórum og hand- ritshöfundum landsins og í honum að finna ófáar af helstu stjörnum Fransmanna í dag, eins og Tautou, Béart, Auteuil og Binoche; hina fá- séðu, ensku, stórleikkonu Charlotte Rampling og spænsku bombuna Victoriu Abril (101 Reykjavík) Lemming / Læmingi Frakkland 2005, 129 mín. GAMANMYND Leikstjóri: Dominik Moll. Leik- arar: Laurent Lucas, Charlotte Gainsbourg, Charlotte Rampling. Þessi umtalaða og athyglisverða mynd segir af ungum verkfræðingi og konu hans, sem bjóða yfirmanni og eiginkonu verkfræðingsins til kvöldverðar. Eiginkona yfirmanns- ins hegðar sér mjög undarlega allt frá upphafi og þegar hræ af tor- kennilegu nagdýri finnst í stífl- uðum eldhúsvaski fara hlutirnir úr böndunum. Þessi kolsvarta grínspennumynd var tilnefnd til Gullpálmans á Cann- es í fyrra og leikstjóri myndarinnar og heiðursgestur hátíðarinnar, Dominik Moll, vakti einnig mikla hrifningu á Cannes fyrir fyrstu mynd sína, Harry, un ami qui vous veut du bien, sem var feikivinsæl á þessari hátíð fyrir nokkrum árum. Lemming er þriðja mynd leikstjór- ans og hefur henni verið líkt við verk meistara Hitchcock. Caché (Hidden)/Falinn Frakkland 2005/117mín DRAMA/SPENNA Leikstjórn & handrit: Michael Haneke (La Pianiste, Das Schloß, LeTemps du loup). Aðalhlutverk: Daniel Auteuil og Juliette Binoche Tveir af vinsælustu leikurum Frakka fara á kostum í þessari mögnuðu og ógleymanlegu mynd, sem hefur farið mikla sigurför und- anfarið og rakað til sín meiriháttar verðlaunum um allan heim. Á Cann- es-hátíðinni í maí var hún tilnefnd til Gullpálmans, fékk verðlaun fyrir bestu leikstjórn, valin besta mynd hátíðarinnar af gagnrýnendum og sérstök verðlaun dómnefndar. Á af- hendingarhátíð Evrópsku kvik- myndaverðlaununum í fyrra, sigr- aði hún margfalt og var kjörin Besta mynd Evrópu ’05. Hjónin George (Auteuil) og Anne (Binoche), lifa góðu lífi meðal milli- stéttarinnar í París. Það fer smám saman úr skorðum þegar þeim fara að berast nafnlauar sendingar; spólur af þeim sjálfum, teknar upp fyrir utan heimili þeirra, ásamt ógnvænlegum teikningum. Upptök- urnar verða persónulegri og ljóst er að sendandinn hefur þekkt George í langan tíma. George finn- ur að váin hangir yfir honum og fjölskyldu hans, en þar sem engin leið er að sanna hana, getur lög- reglan ekkert viðhafast. Álagið á hjónabandið og fjölskyldulífið er óþolandi og George sér enga leið út úr ógöngunum, aðra en að taka sjálfur á málunum. Les poupées russes / Babúska Frakkland 2005, 125 mín. GAMANDRAMA Leikstjóri: Cédric Klapisch. Leik- arar: Romain Duruis, Audrey Tautou, Cécile de France. Hér er komið sjálfstætt framhald Evrópugrautarins, einnar vinsæl- ustu myndar þessarar hátíðar fyrir ári. Xavier er þrítugur og hefur lát- ið draum sinn rætast um að gerast rithöfundur. Hann er þó ekki fylli- lega sáttur og á í erfiðleikum með að festa ráð sitt. Vegna vinnu sinn- ar þarf hann að ferðast til Lundúna og Pétursborgar og hugsanlega gera þessi ferðalög honum kleift að sætta vinnuna, ástina og ritstörfin. Í einkalífinu gengur ekki betur þar sem hann virðist einungis flakka á milli kvenna í röð skyndi- kynna og í þau skipti sem hann hitt- ir einhverja sem er þess virði að halda, tekst honum jafnan að eyði- leggja það. Le rôle de sa vie / Draumahlutverkið Frakkland 2004, 102 mín. DRAMA Leikstjóri: François Favra. Leik- arar: Agnès Jaoui, Karin Viard, Jonathan Zaccaï. Viard hefur hlotið mikið lof og prís fyrir túlkun sína á Claire Rocher, blaðamanni sem kynnist kvikmyndastjörnunni Elisabeth. Þær eru eins ólíkar og hægt er að hugsa sér og líf Claire gerbreytist þegar hún er ráðin sem aðstoðarkona Elisabeth. Smám saman tekst með þeim vinátta, eða það heldur Claire. Les égarés / Villigötur Frakkland 2003, 95 mín. STRÍÐSDRAMA Leikstjóri André Techniné. Leik- arar: Emmanuelle Béart, Gaspard Ullied. Með aðalhlutverkið fer hin heillandi Béart (Un coeur en hiver), Parísarkonuna Odile, sem leggur á flótta ásamt börnum sínum þegar þýski herinn er kominn að borg- armörkunum árið 1940. Þau lenda í slagtogi við undarlegan pilt og í sameiningu reyna þau að bjarga sér sem best þau geta á meðan hild- arleikurinn geisar. Techniné hlaut César fyrir leikstjórnina. Depuis qu’Otar est parti / Síðan Otar fór Frakkland 2003, 102 mín. DRAMA Leikstjóri: Julie Bertucelli. Leik- arar: Esther Gorintin, Dinara Droukarova, Nino Khomasuridze. Saga þriggja kynslóða georgískra kvenna sem lifa mein- lætalífi í gamalli íbúð í Georgíu. Amman fær reglulega bréf frá syni sínum Otar sem býr í París, þar til dag einn. Myndin vann til verðlauna á Cannes ’03, og hlaut jafnframt frönsku César-verðlaunin sem besta byrjendaverk leikstjóra. A tout de suite / Bless á meðan Frakkland 2004, 95 mín. VEGAMYND Leikstjóri: Benoit Jacquot. Leik- arar: Isild Le Bescom, Ouassini Embarek, Nicolas Duvauchelle. Jacquot, sem var tilnefndur til Gullpálmans á Cannes fyrir fáein- um árum fyrir L’École de la chair, er með forvitnilega vegamynd um millistéttarstúlkuna Lili, sem er rif- in úr vernduðu umhverfi í foreldra- húsum þegar hún leggast á flæking með kærastanum á flótta undan réttvísinni. Þau ferðast um Spán, Marokkó og Grikkland og Lili verð- ur að endurmeta líf sitt. Cause toujours! / Talað fyrir daufum eyrum Frakkland 2004, 87 mín. GAMANMYND Leikstjóri: Jeanne Labrune. Leik- arar: Victoria Abril, Jean-Pierre Darroussin, Sylvie Testud. Það er engin önnur en spænska stórleikkonan og „Íslandsvin- urinn“, Abril, sem fer með aðal- hlutverkið í þessari umtöluðu gam- anmynd um traust og efasemdir. Ýmsir atburðir í hversdaglífinu geta orðið til þess að krydda til- veruna. Þannig getur mölfluga í eldhúsinu leitt til njósna um náung- Suður-evrópsk- ur ljósgeisli í skammdeginu ’Myndirnar eru flestargerðar á síðustu tveim- ur árum og finna örugg- lega flestir eitthvað við sitt hæfi.‘ AF LISTUM Sæbjörn Valdimarsson Les poupées russes: Hér er komið sjálfstætt framhald Evrópugrautarins, einnar vinsælustu myndar þessarar hátíðar fyrir ári. Lemming: Þessi grínspenna var tilnefnd til Gullpálmans á Cannes í fyrra. Caché: Tveir af vinsælustu leikurum Frakk farið sigurför um heiminn undanfarið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.