Morgunblaðið - 12.01.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 21
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Reykjanesbraut | Framkvæmdir við
annan áfanga tvöföldunar Reykjanes-
brautar eru komnar vel af stað. Jarð-
vélar ehf. í Kópavogi sem vinna verkið
hafa komið upp vinnubúðum við
gatnamót Grindavíkurvegar og á kafl-
anum á milli Grindavíkurvegar og
Vogaafleggjara má sjá fjölda vinnu-
véla að störfum.
Nýi vegurinn liggur frá enda tvö-
falda kaflans á Strandarheiði og endar
í mislægum gatnamótum í Njarðvík.
Hann er liðlega 12 kílómetrar að
lengd með fernum gatnamótum, mis-
læg tveggja brúa gatnamót verða við
Vogaveg, Grindavíkurveg og við
Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík. Gert er
ráð fyrir því að lögð verði ný akbraut
sunnan við núverandi braut, síðan
verði tengt saman beggja vegna og
eftir það byggðar brýr á núverandi
Reykjanesbraut. Framkvæmdum á
að vera lokið í júní 2008 en verktakinn
getur fengið aukagreiðslu ef hann
skilar fyrr af sér. Fram kom við opnun
tilboða þar sem Jarðvélar áttu lægsta
tilboð að fyrirtækið hefur hug á því að
ná sér í flýtiféð.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Grafið fyrir
breiðari braut
Vogar | Fyrsti bæjarstjórnarfundur
Sveitarfélagsins Voga verður hald-
inn í dag, fimmtudag, klukkan 18 í
Tjarnarsalnum í Stóru-Vogaskóla.
Verður þetta hátíðarfundur í tilefni
þess að félagsmálaráðuneytið hefur
staðfest ákvörðun hreppsnefndar
Vatnsleysustrandarhrepps um
breytingu á nafni sveitarfélagsins.
Mun það framvegis heita Sveitarfé-
lagið Vogar.
Jafnframt hefur ráðuneytið stað-
fest nýja samþykkt um stjórn og
fundarsköp fyrir Sveitarfélagið
Voga, en samkvæmt henni mun
hreppsnefnd framvegis nefnast bæj-
arstjórn og sveitarstjóri fá titilinn
bæjarstjóri. Auk þess mun fulltrúum
í sveitarstjórn fjölga úr fimm í sjö frá
og með næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum sem fara fram þann 27. maí
næstkomandi.
Frá gildistöku breytingarinnar
mun einnig verða starfandi bæjarráð
í sveitarfélaginu, sem bæjarstjórn
kýs. Eitt af fáum málum á dag-
skránni á morgun er einmitt kosning
fulltrúa í bæjarráð.
Fyrsti fundur bæjar-
stjórnar Voga
AUÐHUMLA og mjaltastúlkan
listaverk í eigu Norðurmjólkur á
Akureyri verður bráðlega flutt af
svæði félagsins og mun í framtíðinni
blasa við vegfarendum um Kaup-
vangsstræti, Gilið svonefnda. Verk-
inu verður komið fyrir á svæði efst í
Gilinu, sunnan Frímúrarahússins.
Verkið er eftir Ragnar Kjartansson
og hefur staðið í hlaðinu hjá Norð-
urmjólk, áður Mjólkursamlagi KEA,
í 20 ár, var afhjúpað á 100 ára af-
mæli KEA í júní árið 1986.
Helgi Jóhannesson framkvæmda-
stjóri Norðurmjólkur sagði að
vissulega yrði eftirsjá af verkinu.
„En við munum áfram eiga verkið,
því verður nú komið fyrir á góðum
palli efst í Kaupfélagsgilinu sem
einu sinni var kallað en það gerir að
verkum að í framtíðinni munu fleiri
sjá það en gera þegar það er hér á
lóðinni hjá okkur,“ sagði Helgi.
Hann sagði að við hlið þess komið
fyrir skilti þar sem rakin verður
saga mjólkurvinnslu í Gilinu og
jafnvel á félagssvæðinu.
„Við ætlum að draga þessa mynd
upp og gera hana almenningi að-
gengilega, það má búast við að tug-
þúsundir muni leggja leið sína að
verkinu þegar það verður komið á
nýjan og áberandi stað í bænum.“
Norðurmjólk mun ekki láta þar
við standa, félagið hyggst kaupa
fimm plastkýr í fullri stærð og
koma þeim fyrir í miðbæ Akureyr-
ar. „Við ætlum að bjóða listamönn-
um að mála og skreyta kýrnar,
sennilega verða þær málaðar tvisv-
ar þrisvar sinnum yfir sumarið. Við
vonum að þetta lífgi upp á bæj-
arbraginn.“
Auðhumla
og mjalta-
stúlkan koma
í bæinn
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is