Morgunblaðið - 12.01.2006, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
Það skiptir miklu máli fyrirhinn aldraða að verastundum í hlutverki gef-andans en ekki þiggjand-
ans eins og oft vill verða með þá sem
dvelja á öldrunarstofnunum,“ segja
þær Sigrún Huld Þorgrímsdóttir
geðhjúkrunarfræðingur og Berglind
Indriðadóttir iðjuþjálfi, þegar þær
tala um svokallaða minningavinnu.
Þær starfa báðar á Landakoti en
sjúklingum þar hefur staðið til boða
að taka þátt í minningavinnu und-
anfarin fjögur ár, en á Landakoti eru
deildir öldrunarsviðs Landspítala. Á
iðjuþjálfunardeildinni er sérstakt
herbergi sem heitir Betri stofan og
þar er allt innréttað samkvæmt
gamla tímanum og fjölmargir hlutir
frá fyrri tíð prýða stofuna. Að koma
þangað inn er eins og að koma inn á
heimili afa og ömmu, þar andar blær
liðins tíma. „Þessum gömlu hlutum
er ætlað að vera minningakveikjur,
þeir vekja upp minningar fólksins
sem kannast við þá frá sínum yngri
árum og þannig er hægt að koma
fólki af stað í því að segja frá end-
urminningum sínum. Minn-
ingakveikjur geta líka verið annað
en hlutir, til dæmis lykt og tónlist.“
Fara úr sjúklingshlutverkinu
Minningavinna iðjuþjálfa fer
þannig fram að einn eða fleiri sjúk-
lingar setjast saman í Betri stofunni
með iðjuþjálfa og spjalla saman um
liðna tíð. Oft er eitthvað ákveðið
þema tekið fyrir og iðjuþjálfinn
stjórnar umræðunum. „Tilgangur
minningavinnu er fyrst og fremst sá
að gera sjúklinginn virkan, draga úr
einangrun, einmanaleika og þung-
lyndi, auka sjálfsvirðingu, bæta fé-
lagslega færni og samskipti. Við er-
um að nýta endurminningar
einstaklinga til að auka vellíðan
þeirra og aðstoða þá við að aðlagast
breytingum. Þetta eru virkilega góð-
ar stundir, ekki síður fyrir okkur
starfsfólkið, því við fáum að kynnast
fólkinu á allt öðrum forsendum. Fyr-
ir mig, sem er svona miklu yngri en
þetta fólk, þá eru þau að færa mér
gjafir í formi fróðleiks úr fortíðinni
og opna mér sýn inn í nýjan heim.
Og það eflir sjálfstraust aldraðra að
geta miðlað af reynslu sinni. Hér er
stundum mikið hlegið, það lifnar yfir
fólki þegar það kemur hingað inn á
Betri stofuna og það fer úr sjúk-
lingshlutverkinu og talar um hvað
þetta sé notalegt og heimilislegt, og
héðan fara allir alltaf ánægðir út,“
segir Berglind.
Ekki aðeins fyrir minnisskerta
Sigrún Huld segist líka nota minn-
ingavinnu á sinni deild, sem er al-
menn öldrunardeild, en hún og
Borghildur Árnadóttir deildarstjóri
fóru nýlega af stað með minninga-
vinnu sem sérstakt þróunarverkefni
í hjúkrun, undir heitinu „minn-
ingavinna á almennri sjúkradeild“.
Á þessari deild er engin sérstök
Betri stofa. „En það er einmitt svo
frábært við þessa nálgun sem minn-
ingavinnan er, að það þarf engan
aukakostnað eða aukastarfsfólk til
að stunda hana. Í raun þarf ekkert
nema svolítið næði og
kveikja neistann hjá
fólki með stikkorði,
þá er allt farið af stað.
Og þetta er alls ekki
aðeins fyrir minn-
isskerta, eins og
margir halda, þetta er
ekki síður fyrir þá sem
hafa enn óskert minni.
En minningavinna
getur vissulega haft
góð áhrif á minn-
isskerðingu, vegna
þess að hún
styrkir fjar-
minnið, sem er
það síðasta sem
fer í minnistapi.
Minningavinna
hjálpar líka
minnisskertum
að halda lengur
í persónu sína.
Þetta eflir virðingu á milli starfs-
fólks og sjúklinga, því við notum líka
minningavinnu í daglegri umönnun.
En við þvingum engan til að taka
þátt, minningavinna stendur öllum
til boða og langflestir eru mjög
ánægðir með hana, bæði starfsfólk
og sjúklingar og ekki síður aðstand-
endur sem stundum taka líka þátt.“
Lífshlaupið skráð í ljósmyndum
Þær segja að til dæmis sé góð leið
til að brúa kynslóðabilið að fá yngra
fólkið í aðstandendahópnum til að
hjálpa afa og ömmu við að koma sér
upp minningasjóði með gömlum ljós-
myndum úr lífi þeirra, skanna inn
myndir fyrir þau, skrifa inn nöfn
þeirra sem eru á myndunum og ann-
að slíkt. Þá fær gamla fólkið líka
tækifæri til að segja unga fólkinu
frá liðnum stundum sem
tengjast myndunum. Þann-
ig er saga þeirra skráð af
þeirra nánustu og það getur
verið gott að búa að því þeg-
ar minnið fer að gefa sig,
bæði fyrir fólkið sjálft og þá
sem annast það.
Sigrún Huld segir mjög
ánægjulegt að víða á hjúkr-
unarheimilum og dagvistum
aldraðra sé minningavinna
komin vel af stað og á dval-
ar- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund og á Hrafn-
istu séu nú þegar komin
sérstök minninga-
herbergi. „Minn-
ingavinna eykur lífs-
gæði aldraðra og það
skiptir máli í sam-
félagi þar sem aldur
fer hækkandi.“
MINNINGAVINNA | Ný nálgun í öldrunarþjónustu sem eykur lífsánægju
Brúnin lyftist og
sögurnar streyma
Ritföng frá horfinni tíð.
Kampakátar í Betri stofunni á Landakoti. Frá hægri: Borghildur Árnadótt-
ir deildarstjóri, Berglind Indriðadóttir iðjuþjálfi og Sigrún Huld Þorgríms-
dóttir geðhjúkrunarfræðingur.
Morgunblaðið/Ásdís
Gamli, góði, svarti og þungi síminn ásamt símaskrá frá 1961.
Gamalt þvottabretti, klemmur og
straubolti á bróderuðum dúk.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Æskuárin
Skólagangan
Heimilislíf
Hátíðir
Gifting, ferming eða aðrir
viðburðir
Skemmtanir
Fyrsta ástin
Dæmi um
persónuleg
umfjöllunarefni
Matseld
Mataruppskriftir
Klæðnaður
Ferðalög
Íþróttir
Heimilisstörf
Leikir/leikföng
Stríðsárin
Dæmi um
almenn
umfjöllunarefni