Morgunblaðið - 12.01.2006, Page 32

Morgunblaðið - 12.01.2006, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG ER í áhugaverðu ábyrgð- arstarfi á vinnustað sem mér þykir vænt um. Við maðurinn minn eig- um ungan son sem okkur þykir óendanlega vænt um. Í október sl., þegar drengurinn var 10 mánaða, fékk hann inni hjá frábærri dag- móður, að undangeng- inni margra mánaða leit. Hann aðlagaðist vel og ég fór aftur að vinna. Við treystum dagmóðurinni full- komlega fyrir auga- steininum okkar og allt gekk ljómandi vel – þar til dagmóðirin neyddist til að segja öllum börnunum upp vegna veikinda. Þetta var um miðjan desember og síðan höfum við tekið einn dag í einu. Hringt í dagforeldra út um alla borg, talað við daggæsluráð- gjafa á þjónustumiðstöðvum í öll- um hverfum, fylgst með auglýs- ingum og umræðum á Barnalandi og vef Barnavistunar, haldið uppi spurnum hvar sem við komum – í stuttu máli leitað logandi ljósi. Svörin eru öll á sama veg hjá dag- foreldrum: „Því miður, ekkert laust, ég fæ mörg símtöl á dag og tek ekki á biðlista. Þú getur reynt að hringja seinna en gerðu þér ekki miklar vonir …“ Eftir tugi slíkra símtala er ekki laust við að bjartsýnin fari dvínandi. Nú höfum við bjargað okkur með pössun frá degi til dags í bráðum mánuð með dyggri hjálp ættingja og vina. Við höfum notið skilnings og sveigj- anleika á vinnustöðum okkar en það eru takmörk fyrir öllu. Líka því hve lengi hægt er að umbera óvæntar fjarvistir frá vinnu. Segja má að við séum komin á byrjunarreit (og í raun aftar, því nú er fyrirvarinn enginn og mun erfiðara að fá pláss um miðjan vet- ur). Ástandið var slæmt sl. sumar en er sýnu verra nú. Svo nefnt sé nærtækt dæmi voru sjö dagmæður á skrá í vesturbænum í haust, síð- an eru þrjár hættar og því aðeins fjórar eftir. Á þjónustumiðstöðinni í hverfinu er okkur gefin góð von um leik- skólapláss í ágúst. Þangað til eru sjö mánuðir. Það er of langur tími til að hægt sé að brúa bilið með reddingum – bæði gagnvart vinnunni og barninu. Svo nú hef ég sagt starfi mínu lausu til þess að vera heima með barnið. Það var hreint ekki sárs- aukalaus ákvörðun, en barnið er jú númer eitt og við foreldrarnir berum ábyrgð á vel- ferð þess. Nú spyr ég: Hver ber ábyrgðina á þessu ástandi? Þarna er greinilega stór glufa í kerfinu; frá því fæðingarorlofi lýk- ur (oftast við 9 mánaða aldur) þar til börn fá inni á leikskóla (á bilinu 18 mánaða til tveggja ára, jafnvel seinna). Ríkið hefur tryggt að for- eldrar geti tekið samtals 9 mánaða fæðingarorlof og sveitarfélögin sjá til þess að börnum bjóðist leik- skóladvöl. Vissulega eru börn fyrst og fremst á ábyrgð foreldra sinna og við viljum síst skorast undan henni. Við vorum samt svo bláeyg að halda að sveitarfélögin ættu að tryggja öllum börnum vistun hjá dagforeldrum á þessu tímabili. Það er eitthvað stórkostlega gallað við það fyrirkomulag að dagforeldrar séu „sjálfstætt starf- andi verktakar úti í bæ“, eins og það er gjarnan orðað þegar Reykjavíkurborg reynir að firra sig ábyrgð á ástandinu. Því þó að dagforeldrar séu sjálfstætt starf- andi eru þeir háðir starfsleyfum frá borginni og starfa undir eft- irliti og ráðgjöf daggæsluráðgjafa. Eftir því sem ég kemst næst liggja ekki fyrir tölur um hve mörg börn bíða eftir vistun hjá dagforeldrum í Reykjavík, þar sem borgin hefur ekki með höndum sameiginlega skráningu, líkt og þegar sótt er um leikskólavist. Því er í raun eng- inn sem hefur yfirsýn yfir umfang vandans. Haft var eftir Regínu Ás- valdsdóttur, sviðsstjóra þjónustu- og rekstrarsviðs borgarinnar, í Fréttablaðinu 30. des. sl. að skort- ur á dagforeldrum væri „ekki til- finnanlegur“. Ég myndi gjarnan vilja vita á hverju hún byggir þessa staðhæfingu og hversu mörg börn þurfi að vera án vistunar til að vandinn sé tilfinnanlegur. Ein forsenda þess að hægt sé að leysa úr vandanum er að hann sé kort- lagður. Því á meðan enginn hefur yfirsýn yfir hve mörg börn bíða vistunar er auðvelt að líta fram hjá vandanum og segja að hann sé „ekki tilfinnanlegur“. Í Danmörku eru dagforeldrar starfsmenn sveitarfélaganna. Skráning hjá dagforeldrum fer í gegnum sveitarfélögin og afleys- ingaþjónusta sömuleiðis, þannig að foreldrar þurfa ekki að hafa áhyggjur af fjarvistum frá vinnu vegna forfalla dagforeldra. Mér skilst að danska leiðin sé í skoðun hjá Reykjavíkurborg um þessar mundir og ég vonast til að hún verði tekin til fyrirmyndar við gagngera endurskoðun á fyr- irkomulagi daggæslu í Reykjavík. Nú hefur verið ákveðið að hækka niðurgreiðslur til dagfor- eldra og er það vel svo langt sem það nær. Ég er hins vegar hrædd um að mun meira þurfi að koma til svo að fleiri taki til starfa. Við mæðginin fórum á fund Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra á dögunum. Hún tók í meginatriðum undir gagnrýni mína á stöðu mála, kvaðst taka orð mín alvarlega og sagði ljóst að nú yrði að gera eitthvað verulega róttækt. Ég bíð þess að hún sýni þann vilja í verki og grípi til ráðstafana til að úr þessu ófremdarástandi rætist sem allra fyrst. Víst er vandinn tilfinnanlegur Margrét Sveinbjörnsdóttir skrifar um neyðarástand í dagvistarmálum í Reykjavík ’Ein forsenda þess aðhægt sé að leysa úr vandanum er að hann sé kortlagður. ‘ Margrét Sveinbjörnsdóttir Höfundur er yfirmaður markaðssviðs Íslensku óperunnar, en hefur sagt starfi sínu lausu vegna dagvistarvanda. SNEMMA á níunda áratugnum var ákveðið að gera átak í að byggja upp þjónustu fyrir aldraða. Lagður var á alla landsmenn að 70 ára aldri flatur skattur sem fara skyldi til uppbygg- ingar hjúkrunarheim- ila. Árið 1991, þegar við völd var rík- isstjórn Sjálfstæð- isflokks og Alþýðu- flokks, var sett inn í lögin heimild til að nota hluta af skatt- inum í rekstur. Þetta þýddi að fram- kvæmdafé til nýbygg- inga var skorið niður um nærri helming. Undanfarin 10 ár hef- ur Framsóknaflokk- urinn farið með ráðu- neyti heilbrigðismála og ekki séð neina ástæðu til að auka fé til framkvæmda sem hefur haft þær afleiðingar samkvæmt upplýs- ingum ráðuneytisins að hér á suð- vesturhorni landsins sé bráður skortur á hjúkrunarrými fyrir aldraða um 400–450 pláss. Í desember sl. var afgreitt frumvarp um að breyta þessum flata skatti úr kr. 5.738 í kr. 6.075. Var það samþykkt samhljóða. Í fjárlögum 2006 er síðan gerð grein fyrir skiptingu fjárins og þar kem- ur eftirfarandi í ljós hvernig nýta skuli þann rúma milljarð króna sem skatturinn gefur: Almennur rekstur 231,5 Viðhald fasteigna 188,0 Stofnkostnaður 582,5 Það er því ljóst að engin stefnubreyting hefur orðið hjá rík- isstjórn landsins til að auka framlög til byggingar hjúkr- unarheimila. Ljóst er að sú breyting sem gerð var að kröfu Friðriks Sophussonar fjár- málaráðherra og sam- þykkt af Sighvati Björgvinssyni heil- brigðisráðherra hefur haft þær afleiðingar um skort á hjúkr- unarrými sem getið er hér að of- an. Ef við miðum við verðlag í dag hefur sú upphæð sem fór í rekstur en hefði átt að fara til nýbygginga numið 5–6 milljörðum króna á þeim 15 árum sem liðin eru og samkvæmt áliti Ríkisendurskoð- unar, sem áætlaði í nýlegri skýrslu að hvert hjúkrunarrými kosti 12 milljónir króna, hefði ver- ið auðvelt að mæta þörfum fyrir þessa þjónustu. Afleiðingar þessarar ótrúlegu vitleysu eru t.d. þær að á Land- spítala liggja skv. skýrslu Rík- isendurskoðunar um spítalann 102 langlegusjúklingar. Þeir staðfesta tölur sem undirritaður lagði fram í haust að kostnaður á legudag á Landspítala er 30–50 þúsund krónur. Á hjúkrunarheimilum landsins er meðalkostnaður dag- gjalda 14.400 krónur. Það er ljóst að öldruðum hér á landi mun fjölga mjög verulega á næstu 10–20 árum. Það er nátt- úrulögmál að ákveðinn hluti þessa hóps þarf á þessari þjónustu að halda. Í fjárlagafrumvarpi 2006 eru engin merki þess að núverandi ríkisstjórn ætli að koma til móts við þessar þarfir. Framkvæmdasjóður aldraðra – fjárlög 2006 Ólafur Örn Arnarson fjallar um framkvæmdasjóð aldraðra ’Það er ljóst að öldr-uðum hér á landi mun fjölga mjög verulega á næstu 10–20 árum. Það er náttúrulögmál að ákveðinn hluti þessa hóps þarf á þessari þjónustu að halda.‘ Ólafur Örn Arnarson Höfundur er læknir. NÚ ER að nálgast sá tími að taka verði endanlegar ákvarðanir um upp- byggingu sjúkrahús. Þetta er verður geysilega fjölmennur vinnustaður, sem kallar á gríðarlega mikið svæði umfram þann reit sem húsin sjálf taka. Umferð- aræðar vestur í bæ eru nú þegar full- nýttar. Spítali á Keldnalandi er vel staðsettur umferð- arlega séð. Það er auk þess í ríkiseign, rúmgott svæði og er mikið heppilegra en Vatns- mýrin. Miðpunktur umferðarlega séð. Umferðaæðar frá öll- um byggðum á höf- uðborgarsvæðinu og byggðum á vestur- og suðurlandi sam- einast þar. Samfara þessu á að flytja innan- landsflugvöll á svæðið fyrir ofan Geitháls. Þar yrði hann vel stað- settur sem miðpunktur alls innan- lands samgönguæðakerfisins. Innanlandsflugvöllur í Vatns- mýrinni er út úr þar sem hann er nú. Með þessum aðgerðum myndi losna gríðarlega verðmætt bygg- ingarsvæði, sem stæði fyllilega undir kostnaði af þessum flutning. Við eigum einnig að huga að því að flytja alla starfsemi sem er í Borgarspítalanum í nýjan spítala á Keldnalandinu. Öll bráðamóttaka væri mun betur stað- sett á Keldnalandinu, eins ég hef bent á hér framar. Núverandi Borg- arspítala á að breyta í sérbýli fyrir aldraða með miðstöð fyrir hjúkrunaraðstoð. Á þessu svæði á að byggja fleiri blokkir með sérbýlum fyrir aldraða. Um þessa uppbygg- ingu á að stofna sjálfs- eignarfélag, sem nyti stuðnings stéttarfélag- anna. Verkefnið má auðveldlega fjármagna með langtímalánum úr lífeyrissjóðum. Hlut- verk ríkis og sveitar- félaganna á höf- uðborgarsvæðinu væri að tryggja reksturinn. Í þessa mið- stöð öldrunarþjónustu á að flytja þá starfsemi sem nú fer fram í Heilsuverndarstöðinni við Bar- ónsstíg og snýr að heimilisþjón- ustu og á að flytja þar út innan nokkurra mánuða. Sjúkrahús, innan- landsflug og sérbýli aldraðra Guðmundur Gunnarsson fjallar um skipulagsmál Guðmundur Gunnarsson ’Ég get ekkiverið sammála því að byggja eigi upp nýtt sjúkrahús í Vatnsmýrinni. ‘ Höfundur er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. VIÐ Sjálfstæðismenn í Garðabæ göngum til prófkjörs laugardaginn 14. janúar nk. Það hefur ekki ver- ið haldið prófkjör í Garðabæ í 28 ár og ég skynja það og heyri að prófkjörið kemur bara til með að styrkja flokkinn og stöðu hans í bæn- um. Það blæs lífi í glæðurnar og fólk finnur að það hefur val til að hafa áhrif á framtíðarforystusveit flokksins í bænum. Það er bjart fram- undan í Garðabæ. Mannlífið er gott, álögur eru lágar, íþróttastarfið er blómlegt og skólarnir í fremstu röð. Við erum mjög rík af landsvæðum og samkvæmt tillögu að aðalskipulagi 2004- 2016 má búast við að íbúum bæjarins fjölgi úr 9000 í tæplega 16000 á tiltölulega skömmum tíma. Því fylgja að sjálf- sögðu mörg tækifæri en einnig ákveðnar ógnanir. Tryggja verður að flestir þjón- ustuþættir bæjarins vaxi í takt við þessa miklu fjölgun en jafnframt verður að halda vöku sinni gagn- vart þeim hverfum og íbúum sem fyrir eru og þeirri þjónustu sem bærinn veitir. Þrátt fyrir að við búum í góðum bæ má alltaf gera betur á ýmsum sviðum, við meg- um ekki sofna á verðinum. Það skiptir máli hvernig raðast á lista okkar sjálfstæðismanna í prófkjörinu. Nauðsynlegt er að nýja forystusveit skipi fólk með mismunandi bakgrunn og áherslur. Sjálfur starfa ég í stærstu félagsmála- samtökum landsins. Mitt starf gengur út á að vinna fyrir fólk og með fólki. Mitt starf er fyrst og fremst þjónustu- starf. Hið sama á við um starf bæjarfulltrúans. Hinir kjörnu fulltrú- ar eru í þjónustustarfi fyrir fólkið í hverju samfélagi. Ég tel að minn bak- grunnur, reynsla og þátttaka í íþrótta- og æskulýðsstarfi muni styrkja flokkinn í komandi sveitarstjórn- arkosningum. Ég gaf kost á mér í 3. sæti í prófkjörinu til þess að hafa áhrif á samfélag mitt og uppbyggingu þess. Fái ég til þess brautargengi, mun ég leggja áherslu á að vinna fyrir fólkið og með fólkinu í Garðabæ. Það skiptir máli Eftir Stefán Snæ Konráðsson Stefán Snær Konráðsson ’Það er bjartframundan í Garðabæ. Mannlífið er gott, álögur eru lágar, íþróttastarfið er blómlegt og skólarnir í fremstu röð. ‘ Höfundur er framkvæmdastjóri og gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Prófkjör í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.