Morgunblaðið - 12.01.2006, Síða 45

Morgunblaðið - 12.01.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 45 FRÉTTIR Sjálfstæðiskvennafélagið Edda Kynningarfundur Sjálfstæðiskvennafélagið Edda gengst fyrir kynningarfundi með þeim kvenframbjóðend- um sem gefið hafa kost á sér í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi. Fundurinn er í kvöld, 12. janúar, kl. 20-21:30 í sal Sjálfstæðisflokks Kópavogs, Hlíðasmára 19. Alls hafa 15 manns gefið kost á sér í prófkjör- inu, þar af eru sjö konur. Hvetjum sjálfstæðis- menn í Kópavogi til að fjölmenna. Margrét Halldórsdóttir, formaður Eddu. Tilboð/Útboð Félagslíf I.O.O.F. 11  1861128½ HELGAFELL 6006011219 VI Í kvöld kl. 20.00 Lofgjörðarsamkoma. Umsjón Harold Reinholdtsen. Allir velkomnir. Almenn samkoma í Þríbúðum. Hverfisgötu 42 kl. 20:00. Kristinn Birgisson. Mikill söngur og vitnisburður. Allir hjartanlega velkomnir. www.samhjalp.is. Raðauglýsingar 569 1100 F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar: Málningarvinna í fasteignum Reykjavíkurborgar - Hverfi 1, 2 og 3. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000 í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur frá og með 16. janúar 2006. Opnun tilboða: 25. janúar 2006 kl. 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. 10666 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod. Fundir/Mannfagnaðir Raðauglýsingar sími 569 1100 SVALA Norðdahl, varaformaður SFR, afhenti þann 10. jan- úar Amneh Agha, stofnanda Maher Center, styrk að upphæð krónur 700.000 fyrir krabbameinssjúk börn í Palestínu. Af- hendingin fer fram kl. 16.30 á Grettisgötu 89, 4. hæð. Um síðustu páska ferðaðist Svala um herteknu svæðin í Pal- estínu. Í ferðinni gafst henni tækifæri á að heimsækja Al Hussein-spítalann í Betlehem sem sinnir krabbameinssjúkum börnum. Maher Center er nýstofnað athvarf í tengslum við spítalann. Hún tók að sér framkvæmd og ábyrgð á pen- ingasöfnun til kaupa á tölvubúnaði til að auðvelda börnunum erfiða lyfjameðferð og samskipti við sína nánustu. Amneh Agha hefur dvalið á Íslandi yfir hátíðirnar í heim- sókn hjá systur sinni Amal Tamimi, sem er fulltrúi hjá Al- þjóðahúsinu. Amneh hefur unnið sem sjálfboðaliði til margra ára. Aðalverkefni hennar hefur verið að liðsinna veikum börnum í Jerúsalem og á Vesturbakkanum. SFR styrkir krabbameinssjúk börn í Palestínu EKKI hefur mikið borið á hvítri jörð á höfuðborgar- svæðinu í vetur en þó hefur aðeins ræst úr í umhleyp- ingunum síðustu dagana. Þessir drengir nýttu sér þannig snjóinn sem hafði fallið í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík og renndu sér á sleða og skíðum en ekki er að vita hversu lengi hann endist. Á sleða í Ártúnsbrekkunni Morgunblaðið/Golli Rangt nafn EYSTEINN Jónsson, aðstoð- armaður landbúnaðarráð- herra, var ranglega sagður heita Sigurður Eyþórsson í myndatexta með mynd af heimsókn þingmanna Fram- sóknarflokksins á ritstjórn- arskrifstofur Morgunblaðsins í blaðinu í gær. Beðist er vel- virðingar á þessu. Tilraun um kjarasamninga FYRIRSÖGN á viðtali við Ólaf Loftsson, formann FG, snerist við í Morgunblaðinu í gær. Hið rétta er að hann sagði að samkomulag skólans og fræðsluyfirvalda í Reykja- vík væri tilraun um kjara- samning kennara en ekki skólaþróun, eins og reyndar kom fram í textanum. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. Röng undirskrift NAFN Valgerðar Brynjólfs- dóttur slæddist með undir- skrift Jónasar Kristjánssonar á minningargrein hans um Sigurpál Ísfjörð Aðalsteinsson í blaðinu miðvikudaginn 11. janúar. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessu. Svo öllu sé haldið til haga þá er Jónas enn sem fyrr kvænt- ur Sigríði Kristjánsdóttur hús- mæðrakennara. LEIÐRÉTT FORMANNAFUNDUR Samflots bæjarstarfsmannafélaga, haldinn 10. janúar 2006, samþykkti ályktun þar sem skorað er „á fulltrúa á launa- málaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar nk. að tryggja að sambærileg og jafn- verðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir“. Á vefsíðu Samflots kemur fram að „hin alvarlega staða sem uppi er í kjaramálum“ hafi verið rædd ítarlega. Vilja sömu laun fyrir sam- bærileg störf GUÐRÚN Helga Sederholm, fé- lagsráðgjafi MSW með sérfræðirétt- indi frá heilbrigðisráðuneytinu, námsráðgjafi og kennari, hefur opn- að stofu í Lágmúla 9, 3. hæð. Guðrún býður áhugasviðsgreiningar fyrir alla aldurshópa, sjálfsstyrkingar- viðtöl og almenna ráðgjöf auk ráð- gjafar við foreldra barna með náms- erfiðleika og fatlanir. Einnig sinnir hún handleiðslu kennara, náms- ráðgjafa og skólafélagsráðgjafa og býður upp á námskeið. Námsráðgjöf, félagsráðgjöf og fleira NÝVERIÐ var dregið í jólaleik MasterCard, Draumaferðinni, en hann stóð frá 15. október–31. desember 2005. Aðalvinningshafinn, Jóna Björg Jónsdóttir, Kópavogi, spurði skv. upplýsingum frá MasterCard nokkrum sinnum hvort þetta væri grín þegar henni var tilkynnt um vinning- inn, en þegar hún loksins sann- færðist sagði hún að þetta kæmi mjög á óvart: „Ég vinn aldrei neitt!“ Jóna Björg er í fullu starfi sem leiðbeinandi í leikskólanum Fífu- sölum í Kópavogi auk þess að vera í 75% námi á leikskólabraut í Háskólanum á Akureyri og var því í fyrstu ekki viss um hvenær hún gæti nýtt sér vinninginn. Nú mun hún vera farin að gæla við að skella sér í málaskóla strax næsta sumar. Vilhjálmur Ómar Sverrisson, markaðsstjóri MasterCard, lét þess getið að Jóna Björg hefði stoppað stutt við þegar hún náði í ávísunina, enda manneklan á leikskólum Kópa- vogs mikil um þessar mundir. Vann 500.000 króna ferðaávísun ÞARFANAUT Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins, Eldur frá Laugabóli, fagnaði í gær tveggja ára afmæli sínu. Tók Eldur á móti gestum og fögnuðu starfsmenn Húsdýragarðsins honum með virktum að morgni og snæddu köku á meðan Eldur tuggði morg- untöðuna. Eldur er fæddur á bænum Lauga- bóli í Reykjadal í Suður-Þingeyj- arsýslu, en hafði átt lögheimili á Nautastöð Bændasamtaka Íslands á Hvanneyri fyrir komu sína í garðinn. Hann vann frækilegan sigur í keppn- inni um hið íslenska þarfanaut sem sýnd var í Kastljósi Sjónvarpsins fyrr í vetur. Eldur virðist una hag sínum í garðinum vel þar sem hann deilir fjósi með tveim kúm og tveimur nautkálf- um. Foreldrar Elds eru kýrin Glóð og nautið Sproti. Hann er greinilega af góðum ættum, því á vef Nautastöðv- arinnar kemur fram eftirfarandi dóm- ur um þarfanautið: „Fagurrauður, kollóttur. Svipfríður. Sterkleg yf- irlína. Boldýpt ekki mikil, og útlögu- lítill. Fremur breiðar og jafnar malir. Sterkleg fótstaða. Þokkalega hold- þéttur. Langvaxinn og háfættur grip- ur.“ Þar kemur einnig fram að tveggja mánaða gamall var Eldur 73 kg. að þyngd, eða um kjörþyngd full- orðins manns. Eins árs var hann orð- inn 340 kíló og við komuna í garðinn, tæplega tveggja ára, vó hann 492 kg. Unnur Sigurþórsdóttir, deildar- stjóri fræðsludeildar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, segir að venjulega væri nautið komið á sláturaldur, en þar sem Eldur hefur slíka tign- arstöðu fái hann að enda sína ævi- daga í garðinum. Nýtur forréttinda „Eflaust fá fleiri naut á Íslandi að njóta þeirra forréttinda, en þetta er svona almennt,“ segir Unnur. Að- spurð hvernig almennt sé háttað með kynbótanaut segir Unnur að mögu- legt sé að ná um 7.000 sæðis- skömmtum úr nautinu áður en það er fellt við tveggja ára aldur. Því sé yf- irleitt til lítils að tefja eðlilegan fram- gang, nema ef um sérstaka gripi sé að ræða eins og Eld og forvera hans Guttorm sem gladdi fjölda barna á sinni löngu ævi. Þarfanautið Eldur tveggja ára Þarfanaut Eldur frá Laugabóli er hinn myndarlegasti boli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.