Morgunblaðið - 12.01.2006, Side 55
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliam
byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt
Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
H.J. / MBL
“…mikið og
skemmtilegt
sjónarspil...”
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
JUST FRIENDS
Stranglega bönnuð innan 16 ára
400 KR Í BÍÓ*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Stranglega bönnuð innan 16 ára
JUST FRIENDS
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 10 B.i. 14 ára Sýnd kl. 6 ísl tal Sýnd kl. 5.45 B.i. 14 ára
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
Stranglega bönnuð
innan 16 ára
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
Sími 553 2075
miðasala opnar
kl. 17.30
JUST
FRIENDS
Ó.Ö.H. / DV
D.Ö.J. / Kvikmyndir.comA.G. / BLAÐIÐ
Ó.Ö.H. / DV
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
A.G. / BLAÐIÐ
Ó.Ö.H. / DV
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
A.G. / BLAÐIÐ
Ó.Ö.H. / DV
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
A.G. / BLAÐIÐ
Dóri DNA / DV
HJ / MBL
V.J.V . / TOPP5.IS
K&F / XFM
Sími 551 9000Miða sala opn ar kl. 17.15
Dóri DNA / DV
HJ / MBL
V.J.V . / TOPP5.IS
K&F / XFM
Dóri DNA / DV
HJ / MBL
V.J.V . / TOPP5.IS
K&F / XFM
Dóri DNA / DV
HJ / MBL
V.J.V . / TOPP5.IS
K&F / XFM
H.J. / MBL
H.J. / MBL
H.J. / MBL
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 55
ann og óvænt kynni leitt mann á áð-
ur ókunnar slóðir.
Vipère au poing / Naðran
Frakkland 2004, 100 mín.
DRAMA
Leikstjóri: Philippe de Broca.
Leikarar: Catherine Frot, Jules
Sitruk, Jacques Villeret
Gerð eftir skáldsögu Hervé Bazin
sem byggist á æviminningum hans.
Árið 1922, þegar amma þeirra
deyr, eru Jean litli og bróðir hans
settir í umsjón foreldra sinna sem
eru nýkomnir frá Indókína. En
gleðin yfir því að hitta móður sína
aftur breytist fljótt í martröð.
Myndin var sú síðasta frá hendi
leikstjórans de Broca, sem fór mik-
inn á á sjöunda áratugnum og átti
þá myndir á borð við L’ Homme de
Rio og Cartouche, sem báðar nutu
mikilla vinsælda hér sem annars
staðar.
Saint Ange
Frakkland 2004, 98 mín.
HROLLVEKJA
Leikstjóri: Pascal Laugier. Leik-
arar: Virginie Ledoyen, Lou
Doillon, Catriona MacColl, Dorina
Lazar, Virginie Darmon og Jérôme
Soufflet.
Á sjöunda áratugnum tekur
Anna (Ledoyen), að sér ræstingar á
yfirgefnu munaðarleysingjahæli,
St. Ange, sem staðsett er á afvikn-
um stað í frönsku ölpunum. Fljót-
lega kemur í ljós að einn mun-
aðarleysingi býr á hælinu, Judith
(Doillon). Á meðan Anna vinnur á
hælinu fer hún að upplifa yfirnátt-
úrlega hluti, heyra fótatak og radd-
ir frá börnum á yfirgefnum göng-
um munaðarleysingjahælisins á
meðan vinnufélagi hennar, kokk-
urinn Helenka heyrir ekki. Ledoy-
en er ein leikkvennanna átta sem
hlutu Silfurbjörninn á Berlínarhá-
tíðinni sem bestu leikkonur ársins
2002, fyrir 8 femmes.
saebjorn@heimsnet.is
ka fara á kostum í þessari mynd, sem hefur
OPNUNARMYND Kvikmyndahá-
tíðarinnar í Gautaborg verður
Bjólfskviða í leikstjórn Sturlu Gunn-
arssonar. Kvikmyndahátíðin verður
sett 27. janúar og stendur til 6. febr-
úar en þetta er í 29. skipti sem hún
er haldin. Um er að ræða stærstu
kvikmyndahátíð á Norðurlöndunum
þar sem bíógestir eru um 110 þús-
und og 450 kvikmyndir sýndar,
leiknar myndir, heimildarmyndir og
stuttmyndir.
Bjólfskviða er ein af þremur ís-
lenskum kvikmyndum sem koma við
sögu á hátíðinni. Myndin er íslensk-
kanadísk framleiðsla og ein af átta
norrænum myndum sem keppir um
aðalverðlaun hátíðarinnar, Drekann.
Hinar eru A Little Trip to Heaven
eftir Baltasar Kormák og Voksne
mennesker eftir Dag Kára Pét-
ursson en þær keppa einnig báðar
um Drekann og 150 þúsund sænskar
krónur.
Jannike Åhlund, listrænn stjórn-
andi kvikmyndahátíðarinnar, kynnti
dagskrá hátíðarinnar á blaðamanna-
fundi í gær. Þar sagði hún m.a. að
fyrst Lars von Trier hefði getað
skapað Minnesota í Danmörku, gæti
Baltasar Kormákur alveg eins skap-
að Minnesota á Íslandi. Voksne
Mennesker Dags Kára sagði
Jannike yndislega persónulega frá-
sögn Íslendingsins sem kom sá og
sigraði með Nóa Albínóa á kvik-
myndahátíðinni árið 2003.
Bjólfskviða eða Beowulf & Grend-
el var kynnt sem mynd í vinnslu á
kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í
fyrra en hún var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto í haust.
Sænski leikarinn Stellan Skarsgård
fer með stórt hlutverk í myndinni og
verður viðstaddur opnunarsýn-
inguna í Gautaborg 27. janúar.
Í aðalkeppninni taka þátt auk ís-
lensku myndanna þriggja, kvik-
myndir frá hinum Norðurlöndum,
ein frá hverju landi, auk mynd-
arinnar Wellkåm to Verona sem er
sænsk/dönsk/norsk framleiðsla eftir
leikstjórann Suzanne Osten. Hinar
eru danska myndin Drømmen eftir
Niels Arden Oplev, sænska myndin
Om Gud vill eftir Amir Chamdin,
finnska myndin Matti eftir Aleksi
Mäkelä og norska myndin Izzat eftir
Ulrik Imtiaz Rolfsen.
Engin íslensku myndanna sem
sýndar verða á hátíðinni er á ís-
lensku, heldur á dönsku eða ensku.
Jannike Åhlund sagði að þetta ein-
kenndi um margt nútímakvik-
myndagerð. Kvikmyndir væru oft
samvinnuverkefni margra landa og
tungumálið segði ekki alltaf til um
upprunann. Á tímum alþjóðavæð-
ingar fannst aðstandendum hátíð-
arinnar því við hæfi að hætta að
flokka kvikmyndirnar í dagskránni
eftir upprunalöndum og í staðinn
eru þær flokkaðar eftir efni eða
þemum.
Flokkarnir eru átján, m.a. má
nefna „Gala“ þar sem falla stórar
myndir og stór nöfn. Þar er opn-
unarmyndin Good Night, and Good
Luck í leikstjórn hins þekkta George
Clooney en hún hefur verið tilnefnd
til Golden Globe-verðlaunanna.
Fleiri flokkar eru „Love, Actually“
þar sem ástin og kynhneigð kemur
við sögu. Í þessum flokki er opn-
unarmyndin Transamerica eftir
Duncan Tucker en leikkonan Fel-
icity Hauffman sem þekkt er úr
þáttunum Desperate Hosewives var
tilnefnd til Golden Globe-verð-
launanna fyrir leik sinn. Þriðji
flokkurinn sem vert er að nefna er
„Masters“ þar sem gömlum og
nýjum meisturum er sómi sýndur.
Opnunarmynd í þessum flokki er
Tsotsi, suður-afrísk mynd í leik-
stjórn Gavin Hood sem mun heim-
sækja hátíðina, en myndin er fram-
lag S-Afríku til Óskarsverðlaun-
anna.
Kanadískar myndir eru í sviðs-
ljósinu á hátíðinni. Tíu nýjar myndir
frá Kanada eru á dagskránni, þ.á m.
C.R.A.Z.Y. sem er Óskarsframlag
Kanada og hefur notið mikillar vel-
gengni. Leikstjóri myndarinnar er
Jean-Marc Vallée og mun hann
heimsækja hátíðina. Önnur kanadísk
mynd er The Hamster Cage sem
fær dönsku Festen til að blikna, eins
og segir í dagskrárbæklingi hátíð-
arinnar sem einnig kom út í gær.
Kanadísku myndirnar eiga það sam-
merkt að fjalla um erfið fjöl-
skyldutengsl og að mati Jannike
Åhlund eiga þær meira sameiginlegt
með evrópskum myndum en banda-
rískum.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg er
vettvangur viðskipta en einnig stór
menningarviðburður í þessari næst-
stærstu borg Svíþjóðar. Í tengslum
við hátíðina verða haldin námskeið
af ýmsu tagi, leikstjórar og aðrir að-
standendur kvikmynda heimsækja
hátíðina og halda fyrirlestra og á
dagskrá eru ýmsir menningar-
viðburðir.
Kvikmyndir | Kvikmyndahátíðin í Gautaborg 27. janúar til 6. febrúar
Úr Bjólfskviðu: Engin íslensku myndanna sem sýndar verða á hátíðinni er
á íslensku, heldur á dönsku eða ensku.
David Strathairn í hlutverki sínu sem sjónvarpsmaðurinn Edward R.
Murrow í Good Night, and Good Luck.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur í Gautaborg
steingerdur@mbl.is
Þrjár íslenskar myndir