Morgunblaðið - 12.01.2006, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 57
SAMBÍÓ KEFLAVÍK SAMBÍÓ AKUREYRISAMBÍÓ KRINGLUNNI
S.V / MBL
m.m.j / KVIKMYNDIR.COM
kvikmyndir.is
V.J.V. / topp5.is
S.V. / Mbl.
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNA
LEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON
DOMINO kl. 8 - 10.50 B.i. 16
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8 - 10.30
KING KONG kl. 9 B.i. 12
JUST LIKE HEAVE kl. 6
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 6 B.i. 10
CHRONICLES OF NARNIA kl. 7.45
THE SAW 2 kl. 10.30 B.i. 12 ára.
JUST LIKE HEAVEN kl. 8 B.i. 14 ára.
GREEN STREET HOOLIGANS kl. 10 B.i. 16 ára.
RUMOR HAS IT kl. 6 - 8 -10,30
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8
King Kong kl.10 B.i. 12 ára
Byggð á sönnum orðrómi.
E.P.Ó. / kvikmyndir.com
A.B. / Blaðið
Eftir á að hyggja er þetta húsnæði
sem ég er að opna í miklu flott-
ara,“ segir Atli, sem sjálfur er úr
Njarðvík en hefur einnig búið í
Keflavík.
Atli segir að Yello verði fyrst og
fremst bar og kaffihús, en búast
megi við því að leikar æsist um
helgar. „Við erum með opið alla
daga vikunnar en um helgar verð-
um við með færustu plötusnúða
landsins að spila hjá okkur. Það
verður því dansað um helgar,“ seg-
ir Atli og bætir því við að hann
sjálfur og Jón Gestur muni þeyta
skífum á Yello um helgina.
Auk þess verður boðið upp á
beinar útsendingar frá fótbolta-
leikjum á risaskjá og þráðlaust
netsamband sem Atli segir að sé
nýjung í bænum. „Ég held að ég sé
að fara með rétt mál þegar ég segi
að við verðum fyrsta og eina kaffi-
húsið sem er opið í miðbæ Kefla-
víkur á kvöldin með þráðlaust net.
Það er eitthvað sem Keflvíkingar
hafa ekki þekkt áður.“
Listunnendur munu einnig geta
fundið eitthvað við sitt hæfi á
Yello. „Við ætlum að fara í sam-
starf við unga og upprennandi
listamenn í Reykjanesbæ og bjóða
þeim upp á að sýna hjá okkur,
þannig að þetta verður svona nett
menningarhús líka. Svo verðum við
líka með tónleika á staðnum,“ segir
Atli að lokum.
Á MIÐNÆTTI annað kvöld verður
opnað í Keflavík kaffihús og bar
sem hlotið hefur nafnið Yello, en
staðurinn er á efri hæð húss númer
28 við Hafnargötu. Atli Rúnar
Hermannsson, framkvæmdastjóri
Yello, segist hafa ákveðið að opna
föstudaginn 13. janúar, þrátt fyrir
að vera hjátrúarfullur maður. „Ég
vildi bara opna um leið og stað-
urinn var tilbúinn. Ég ætlaði upp-
haflega að opna 4. september en
missti húsnæðið sem ég fékk fyrst.
Fólk | Nýr bar opnaður í Keflavík
Kaffihús á daginn,
dansað um helgar
Víkurfréttir/Þorgils Jónsson
Atli Rúnar við eitt borðið á Yello í Keflavík.
HLJÓMSVEITIN Dead Sea
Apple fagnar fjórtán ára afmæli á
þessu ári og er hún því með eldri
rokkhljómsveitum íslenskum sem
enn eru starfandi. Að vísu eru
fjögur ár liðin frá því að sveitin
gaf síðast út plötu en hún hefur þó
komið saman einu sinni á ári, iðu-
lega í kringum jólahátíðina og
spilað fyrir aðdáendur sína sem
margir hverjir eru nú komnir á
fertugsaldurinn.
Dead Sea Apple var um miðjan
tíunda áratuginn sú sveit sem
margir hverjir spáðu hvað mestum
frama í útlöndum og undir lok síð-
ustu aldar virtist sem sveitin væri
loks að komast í feitt vestanhafs
þegar bandaríski umboðsmaðurinn
Don Thomas tók þá pilta undir
verndarvæng sinn. Thomas þessi
gerði garðinn frægan sem gít-
arleikari fyrir Van Morrison og
Monkees og lék meðal annars inn
á lögin „Brown Eyed Girl“ og
„I’m a Believer“ en sneri sér síðan
að umboðsmálum og var með leik-
konur á borð við Miru Sorvinu á
sínum snærum.
Hannes Heimir trommuleikari
Dead Sea Apple segir að Thomas
þessi hafi fyrst heyrt í hljómsveit-
inni eftir að sonur hans sem hér
var staddur á ferðalagi, sneri heim
til Bandaríkjanna með fyrstu
plötu Dead Sea Apple Crush en
hún kom út árið 1996.
„Við kynntumst syni hans þegar
hann var að gera sér dælt við ís-
lenska stúlku sem við þekktum og
hann kom í heimsókn niður í Stúd-
íó Sýrland þar sem við vorum að
taka plötuna upp. Hann varð und-
ireins að miklum aðdáanda og
kom svo pabba sínum upp á lagið.
Við fórum sumarið 1997 út til
Bandaríkjanna til að hitta þennan
strák og ferðast um landið en tók-
um hljóðfærin með og þá var Don
Thomas okkur innan handar mjög
mikið og fyrirtækið hans Fox/
Albert Management.“
Sveitin endurtók leikinn sum-
arið 1998 og spilaði þá vítt og
breitt um Manhattaneyju í New
York og sama ár kom seinni plat-
an Second 1 einnig út. Í kjölfarið
komu hingað til lands útsendarar
erlendra plötufyrirtækja og fylgd-
ust með sveitinni spila á tónleiku á
Akureyri en svo … ekki söguna
meir.
„Við fylgdum seinni plötunni
eftir hérna heima og vorum mjög
iðnir við að spila um allt land en
valið var einfaldlega um það að
flytja út til Bandaríkjanna og
vinna eins og skepnur án þess að
vera öruggir um að nokkuð myndi
gerast, eða þá að vera hérna
heima og lifa hinu ljúfa lífi.“
Hannes segir að í kringum 1999
hafi spilamennskan minnkað tölu-
vert og ári seinna fóru hljómsveit-
armeðlimir að snúa sér að öðrum
óskyldum verkefnum.
Aðspurðu hvort þeir sjái eftir
þessari ákvörðun sinni að freista
ekki gæfunnar segir Hannes svo
ekki vera.
„Við erum frekar sáttir með
okkar framlag til íslenskrar rokk-
tónlistar. Það er alltaf hægt að
efast en við grátum þetta alls
ekki. Þetta var alltaf meiri spurn-
ing um vináttu en heimsfrægð að
vera í Dead Sea Apple. Við erum
allir úr sama hverfinu í Kópavog-
inum og það hefur aldrei orðið
mannabreyting í sveitinni. Við
nærumst á því að hittast og spila
rokk og ról og þess vegna höfum
við alltaf komið saman einu sinni á
ári og spilað en líka til að búa til
nýtt efni. Þá hoppum við yfirleitt í
stúdíó og nú er svo komið að við
erum með heila plötu sem bara
bíður útgáfu, ef eitthvað plötufyr-
irtæki hefur áhuga.“
Hannes segir tónlistina aðeins
þyngri núna, „meiri metall og
gredda“.
„Þetta var nú ekkert flókið
rokk. Við vorum voðalega mikið í
grugginu, hlustuðum á Alice in
Chains og Soundgarden en líka á
Bítlana og annað eldra efni. Við
vorum aldrei að reyna að finna
upp hjólið. Í raun og veru má
segja að áhrifavaldarnir hafi verið
allt frá Villa Vill til Slayer.“
En liggur þá ekki beint við að
önnur atlaga verði gerð á Banda-
ríkin?
„Nei, ég held að aðstæður í dag
mæli ekki með því. Við erum að
þessu fyrir sjálfa okkur og við
fáum nóg út úr því að rokka sam-
an á Íslandi. Þegar menn eru
komnir á gamals aldur verður það
líka svo erfitt að ferðast …“
Hannes Heimir segir að hljóm-
sveitin muni leika gömul lög í
bland við ný á tónleikum í kvöld
og sum laganna hafa aldrei verið
spiluð á tónleikum áður. Aðdá-
endur Dead Sea Apple ættu því
ekki að láta þetta tækifæri fram
hjá sér fara – það gefst bara einu
sinni á ári.
Tónlist | Dead Sea Apple leikur á sínum árlegu tónleikum á Gauknum í kvöld
Of gamlir til að ferðast
Morgunblaðið/Kristinn
Meðlimir Dead Sea Apple eru allir gamlir vinir úr Kópavoginum.
Dead Sea Apple á Gauki á Stöng í
kvöld. Frítt er inn á tónleikana sem
hefjast kl. 22.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is