Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
oft verið talsvert meira. Mikil hlýindi hafa verið
víða um land upp á síðkastið og var hitinn um og
yfir 10 stig víðast hvar á landinu í gær. Miklir
vatnavextir voru einnig í Fljótum á Norðurlandi
en þar fór hitinn upp í 15 stig í gær, annan daginn
í röð. Mjög hlýtt var einnig á Sauðanesvita, þar
var 13°C hiti og 23 m/s vindur, og í Siglufirði svo
dæmi séu tekin. Hvöss sunnanáttin ásamt hlýind-
VATN flæddi úr Hvítá yfir Auðsholtsveg í Hruna-
mannahreppi í gær sökum mikilla leysinga og úr-
komu. Er þetta eini vegurinn sem liggur að bæn-
um Auðsholti. Því má segja að um skamman tíma
hafi bærinn staðið á eyju en hann var umflotinn
vatni þó svo að fært væri þangað á vel búnum
jeppum. Að sögn kunnugra er þetta algeng sjón
þegar snjóa tekur að leysa og hefur vatnsmagnið
unum hefur valdið miklum leysingum og vatna-
vöxtum. Draga átti úr sunnanáttinni í nótt og spáð
var fremur hægri suðvestlægri eða breytilegri átt
í dag. Einnig var spáð súld eða dálítilli rigningu,
en þurru að kalla um landið norðaustanvert. Smá-
skúrir eiga að vera um landið vestanvert en léttir
til austanlands. Í dag á að kólna smám saman í
veðri og hiti víðast hvar að verða 0–5 stig síðdegis.
Morgunblaðið/RAX
Hiti á landinu orsakar mikla vatnavexti
LITLAR líkur eru á komu hafíss
hingað til lands í vor og sumar,
enda hefur hlýtt loft verið ríkjandi
við strendur landsins og hlýr sjór
líklegur til að berast norðan frá Jan
Mayen.
Þetta er mat Páls Bergþórsson-
ar, fyrrverandi veðurstofustjóra,
en hann hefur spáð um komur haf-
íss til landsins á fjórða áratug.
Páll segir spár sínar um hafís
velta á hitanum við Jan Mayen.
„Kenning mín er sú að hitinn á
Jan Mayen á haustin endurspegli
hvað sjórinn er heitur á þeim slóð-
um, en sá sjór kemur til okkar í vor
norðan að,“ segir Páll.
„Sjórinn er þrjá mánuði á leið-
inni hingað til lands, en þá kemur
fram hvaða skilyrði eru við Jan
Mayen. Ef sjórinn er heitur eru
litlar líkur á hafís hér, en sé hann
kaldur eru mun meiri líkur á hafís í
vor. Sjórinn var vel heitur að jafn-
aði frá því í ágúst. Það var hlýtt við
Jan Mayen og það segir okkur að
hér við land verði hlýr sjór í vor og
lítill ís.“
Páll segir aldrei hafa orðið neinn
verulegan hafís þegar sjórinn hefur
verið svona heitur, nema dálítið í
mars í fyrra, enda séu undantekn-
ingar eðlilegar frá reglum veður-
fræðinnar. Spár Páls rætast nokk-
uð vel, í a.m.k. átta skipti af
hverjum tíu og hafa þær aldrei
brugðist verulega. Páll segir líka
langa hefð fyrir hitamælingum í
hafinu norðan við Ísland, nú séu um
áttatíu og fimm ár síðan Norðmenn
settu upp veðurstöð við Jan Mayen.
„Þegar góður hiti er í sjónum
langar leiðir norður eftir eru líkur
á fleiri en einu hlýju ári framundan,
jafnvel fimm árum,“ segir Páll.
„Veðurfarið í heildina kemur í
stórum sveiflum og breytist tiltölu-
lega hægt. Sveiflurnar eru gjarnan
í kringum tíu til tuttugu ár. Þetta
stafar af því að sjórinn er svo
óskaplega lengi að taka við sér, að
kólna eða hlýna,“ segir hann.
Páll Bergþórsson spáir í veðurfarið
Litlar líkur
á hafís í vor
GUNNAR Þórðarson hefur samið nýtt tónverk, Brynj-
ólfsmessu, í tilefni af 400 ára afmæli Brynjólfs Sveins-
sonar biskups í Skálholti.
„Ég samdi messu á sínum tíma, sem var flutt í Kefla-
vík fyrir tveimur árum,“ segir Gunnar Þórðarson. „Ég
lét þá að því liggja við Hákon Leifsson stjórnanda, að ég
hefði áhuga á að semja aðra messu, með upprunalega
messutextanum á latínu. Hákon gekk bara í málið og
reddaði smá pening til þess að ég gæti tekið mig afsíðis
til að semja. Þannig fór þetta af stað.“
Gunnar segir að þegar á leið hafi Hilmar Örn Agn-
arsson, organisti og kórstjóri í Skálholti, gengið til liðs
við þá Hákon um flutning nýju messunnar, vegna afmæl-
is Brynjólfs biskups sem sérstaklega er minnst í Skál-
holti. „Það æxlaðist þannig að okkur þótti við hæfi að
fella messuflutninginn inn í hátíðahöldin í Skálholti líka,“
segir Gunnar.
Brynjólfsmessan verður frumflutt í Keflavíkurkirkju
25. mars. Flytjendur eru 25 manna hljómsveit, 100
manna kór, skipaður söngfólki úr kórum Keflavík-
urkirkju, Skálholtskirkju og Grafarvogskirkju; 50
manna barnakór og söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir
og Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Gunnar notar hefð-
bundinn latneskan messutexta í tónsmíðinni, og eru kafl-
arnir Kyrie, Gloria, Credo, Sanctus, Benedictus og Agn-
us Dei. Síðasti þáttur messunnar er Virgo Diva, en hann
er eftir Brynjólf sjálfan og er óður til Maríu meyjar.
Gunnar kveðst vonast til þess að Brynjólfsmessan
verði hljóðrituð til útgáfu, útgefendur muni ekki þurfa að
hlaupa á eftir honum með útgáfuna. Messan tekur um 50
mínútur í flutningi. Stjórnandi frumflutnings er Hákon
Leifsson, en verkið verður flutt aftur 26. mars í Skál-
holtskirkju og 29. mars í Grafarvogskirkju.
Gunnar Þórðarson semur messu Brynjólfs Skálholtsbiskups
Notar Maríukvæði
Brynjólfs í lokaþættinum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Gunnar Þórðarson hyggst semja messu í tilefni af 400
ára minningu Brynjólfs biskups Sveinssonar.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÍSLENDINGAR eru ekki duglegir
að kvarta við fyrirtæki ef þeim
finnst þjónustan þar ekki nægj-
anlega góð. Þetta segir Svala Rún
Sigurðardóttir, forstöðumaður ráð-
gjafasviðs FOCALSoftware & Con-
sulting. Í viðtali við Svölu Rún og
Kristínu Björnsdóttur, markaðs-
stjóra FOCAL, í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í dag kemur fram
að rannsóknir hafi leitt í ljós að um
96% viðskiptavina fyrirtækja
kvarta ekki. Þær segja að auk þess
sé talið að um 60% þeirra sem eru
óánægðir kvarti ekki. Formlegar
kvartanir séu því í raun mjög fáar.
Hins vegar sýni rannsóknir einnig,
að ef einn viðskiptavinur verður
óánægður, þá segi hann að jafnaði
ellefu öðrum frá því. | B12
Íslendingar ekki
duglegir að kvarta
UNGUR maður, vopnaður hníf,
rændi lyfjum úr Apótekaranum í
Kópavogi um hádegisbilið í gær og
var hann enn ófundinn í gærkvöldi.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
var atburðarásin á þá leið að maður
gekk inn í apótekið með hnífinn og
heimtaði lyf.
Starfsfólk apóteksins þorði ekki
annað en að afhenda manninum
eitthvað af lyfjum. Maðurinn setti
þá lyfin í Bónuspoka og komst und-
an á hlaupum. Hann er talinn vera
15–20 ára, um 165 cm á hæð og
meðalmaður að vexti. Hann var
klæddur í dökk föt; útivistarúlpu,
steingráa hettupeysu, dökkar bux-
ur og strigaskó.
Huldi andlit sitt með
dökkri húfu
Að sögn lögreglu huldi maðurinn
andlit sitt með svartri eða dökk-
blárri húfu sem var með tveimur
klipptum götum fyrir augu. Starfs-
mönnum apóteksins var mjög
brugðið en sakaði ekki að öðru
leyti.
Þeir sem hafa einhverjar upplýs-
ingar um málið eru beðnir um að
hafa samband við lögregluna í
Kópavogi, í síma 560 3040.
Eins og áður sagði var maðurinn
enn ófundinn í gærkvöldi þegar
Morgunblaðið fór í prentun en unn-
ið var að rannsókn málsins.
Rændi lyfjum úr apóteki
BANKAR og sparisjóðir hafa sumir
auglýst endurgreiðslur til skilvísra
viðskiptavina sem eru með öll
bankaviðskipti á einum stað. Ætla
má að endurgreiðslur vegna banka-
viðskipta einstaklinga á síðasta ári
nemi a.m.k. 100 milljónum króna.
Traustum viðskiptavinum bjóðast
þó í flestum tilfellum ýmis fríðindi
og afslættir. Í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins eru fríðindi og endur-
greiðslur banka og sparisjóða dreg-
in saman og greint er frá ýmsu sem
huga þarf að við samanburð. | B8
Fríðindi fyrir 100
milljónir króna