Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 45
sem á við átfíkn að stríða. Nánari uppl. á
www.oa.is
Landakot | Rannsóknastofa í öldr-
unarfræðum RHLÖ stendur fyrir fyrirlestri
kl. 15, í kennslusalnum á 6. hæð á Landakoti.
Kristín Björnsdóttir, B.M og doktorsnemi í
fötlunarfræði fjallar um verkefnið: Tónlist
tengir kynslóðir: söng- og sögustundir með
leikskólabörnum og skjólstæðingum Fríðu-
húss.
Lögberg stofa 101 | Auður Styrkársdóttir
stjórnmálafræðingur heldur opinberan fyr-
irlestur kl. 16.15–17.30, um konur í stjórn-
málum. Í erindi sínu mun Auður leita skýr-
inga á hægum framgangi kvenna í
stjórnmálum og hvort íslenska stjórn-
málakerfið bjóði upp á sérstakar leiðir til að
fjölga konum.
Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Babel, félag
þýðingafræðinema, heldur málþing í stofu
201 í Odda kl. 20–22. Frummælendur eru
Guðrún Helgadóttir rithöfundur, Kristín R.
Thorlacius þýðandi og Þórarinn Eldjárn rit-
höfundur. Fyrirspurnir og umræður verða að
loknum erindum. Málþingsstjóri er Katrín
Jakobsdóttir. Aðgangur er ókeypis. Haukur
F. Hannesson tónlistarmaður og listrekstr-
arfræðingur, flytur fyrirlesturinn: „Óperu-
homminn, List og menningarpólitík frá sam-
kynhneigðu sjónarhorni.“ Fyrirlesturinn fer
fram 24. feb. kl. 12, í stofu 101 í Odda, Há-
skóla Íslands og er í fyrirlestraröð Samtak-
anna ’78, „Kynhneigð, menning, saga“.
Samtök lungnasjúklinga | Samtökin vilja
minna félagsmenn á fræðslufundinn kl. 20, í
SÍBS húsinu, Síðumúla 6 (gengið inn á bak-
við). Hörður Þorgilsson, sálfræðingur, talar
um þunglyndi í kjölfar veikinda.
Öryrkjabandalag Íslands | Lauf – Lands-
samtök áhugafólks um flogaveiki verður
með fræðslufund í dag, kl. 20, í húsnæði
ÖBÍ, Hátúni 10 í kaffistofu á jarðhæð. Þur-
íður Hermannsdóttir, matvælafræðingur og
hómópati verður með erindi um matarráð-
gjöf. Fundurinn er öllum opinn.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðsöfnun við Europris
Skútuvogi kl. 11–15.
Ferðafélag Íslands | Ferðaskrifstofan
Ultima Thule í samstarfi við bresku ferða-
skrifstofuna Exodus býður alla áhugasama
um gönguferðir á framandi slóðum vel-
komna á skyggnumyndasýningu og kynn-
ingu á ferðum Exodus, í sal Ferðafélags Ís-
lands kl. 20. Andrew Appleyard sýnir
myndir úr ferðum Exodus og svarar fyr-
irspurnum en lögð áhersla á gönguferðir.
Frístundir og námskeið
Hótel Loftleiðir | Tveggja daga námskeið
með Guðjóni Bergmann fyrir þá sem vilja
hætta að reykja til frambúðar. Verð 13.300
kr. www.vertureyklaus.is
Mímir – símenntun ehf | Símsvörun á ensku
er námskeið sem ætlað er einstaklingum
með nokkurn grunn í ensku og er sniðið að
þjónustufulltrúum fyrirtækja og stofnana.
Námskeiðið er halið kl. 9–12, í samvinnu við
Mími – símenntun á Grensásvegi 16a. Skrán-
ing fer fram hjá Útflutningsráði, utflutn-
ingsrad@utflutningsrad.is eða í síma
511 4000.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 45
DAGBÓK
saman í Breiðholti“, félagsvist í
samstarfi við Fellaskóla, stjórnandi
Kjartan Sigurjónsson. Kl. 12.30
vinnustofur opnar. Kl. 15.30 „Börn-
in hans Braga“, opnuð myndlist-
arsýning Braga Þórs Guðjónssonar
í Fella- og Hólakirkju. Breið-
holtshátíð stendur yfir 23.
febr.–26. febr.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl.
9 aðstoð við böðun, almenn handa-
vinna, smíðar og útskurður. Kl.
13.30 boccia. Í tengslum við Vetr-
arhátíð í Reykjavík verður Opið
hús, sunnud. 26. feb. kl. 14–16, allir
velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kaffi, spjall, dag-
blöðin, hárgreiðsla. Kl. 10 boccia.
Kl. 11 leikfimi. Kl. 12 hádegismatur.
Kl. 14 félagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl.
9. Pútt kl. 10. Leikfimi kl. 11.20.
Glerbræðsla kl. 13. Bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir kl.
9–16 hjá Halldóru. Boccia kl. 10–11.
Félagsvist kl. 13.30, Sprengidags-
verðlaun. Kaffi og gott meðlæti.
Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir
588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins
og venjulega. Vetrarhátíð föstudag-
inn 24. feb. Kl. 9.30 Gönuhlaup og
kl. 14 opnuð myndlistarsýning
Listasmiðjuhóps. Laugd. 25. feb. kl.
10 Út í bláinn. Sunnud. 26. feb. kl.
14–16: Opið hús. Heitt á könnunni;
tombóla; tölvugúrú; brugðið á leik;
Dísirnar og draumaprinsarnir.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sund-
leikfimi í Grafarvogssundlaug kl.
9.30 á morgun.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hár-
greiðslu- og fótaaðgerðastofur
opnar kl. 10. Sögustund og léttar
æfingar kl. 10.30. Handmennt, al-
menn, kl. 13. Bingó kl. 15.
Laugardalshópurinn Blik, Laug-
ardalshöll | Leikfimi eldri borgara í
Laugardalshöll kl. 11.
Norðurbrún 1, | Í tilefni af Vetr-
arhátíð í Reykjavik verður opið hús
sunnud. 26. feb. kl. 14–16. Kaffi á
könnunni.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátún 12. Skák í kvöld kl. 19. Allir
velkomnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–10 boccia. Kl.
9.15–14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15–
15.30 handavinna. Kl. 10.15–11.45
spænska. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 13–16
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16, handav.
kl. 9–16.30, smíði/útskurður kl. 9–
16.30, boccia kl. 9.30, helgistund
kl. 10.30, í samvinnu við Selja-
kirkju. Leikfimi kl. 11, myndlist kl.
13.30 Skráning fyrir fjölteflið á
morgun er í dag í Árskógum 4.
Ásgarður | Dansleikur og félagsvist
verður í Ásgarði, Stangarhyl 4, 25.
febrúar. Spilamennska hefst kl. 20
og dans að henni lokinni um kl.
22.30. Kiddi Bjarna leikur fyrir
dansi.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins
og venjulega. Frjálsi handa-
vinnuhópinn alla miðvikudaga kl.
13. Í tilefni af Vetrarhátíð er opið
hús sunnudag 26. feb. kl. 14–16.
Heitt á könnunni. Tungubrjótar og
sönghópur Lýðs bregða á leik.
Uppl. í síma 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópur kl.
10–11. Mæting fyrir framan Bessann
og kaffisopi þar eftir göngu. Allir
eldri borgarar velkomnir. Nánari
upplýsingar gefur Guðrún í síma
565 1831. Útskurðarnámskeið í
smíðastofu Grunnskólans fimmtu-
daga kl. 15.30–18.30. Leiðbeinandi
Friðgeir H. Guðmundsson. Upplýs-
ingar gefur Guðrún í síma
565 1831.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Snúður og Snælda
sýna leikritið Glæpir og góðverk í
Iðnó sunnudaginn 26. febrúar kl.
20. Ath. breyttan tíma. Miðapant-
anir í Iðnó í síma 562 9700. Að-
stoð við gerð skattaskýrslu. Aðilar
frá Skattstofu Reykjavíkur verða til
viðtals á skrifstofu FEB 14. mars,
panta þarf tíma í síma 588 2111.
Félag kennara á eftirlaunum |
Bókmenntaklúbbur í Kennarahúsi
kl. 14–16. EKKÓ-kórinn í KHÍ kl. 17–
19.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.05
og kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.15 ramma-
vefnaður, kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 10.50 rólegar æfingar,
kl. 13 bókband, kl. 14 bingó, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21 línudans.
Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 |
Handavinnustofan opin frá kl. 9–16,
leiðbeinandi á staðnum. Jóga kl.
10, laus pláss. Brids kl. 13.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
helgistund. Kl. 13.15 „Kynslóðir
kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 9. Bókband og pennasaumur kl.
9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl.
10, handmennt, almenn, kl. 13. Gler-
skurður kl. 13. Brids, frjálst, kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12. Hádegisverður
á eftir.
Áskirkja | Foreldrum er boðið til
samveru með börn sín milli kl. 10–
12 í dag. Fjallað er um tónlist með
ungbörnum. Opið hús í safn-
aðarheimili II milli kl. 14–17 í dag.
Samsöngur undir stjórn organista,
kaffi og meðlæti. Klúbbur 8–9 ára
barna. Samvera í safnaðarheimili II
milli kl. 17–18 í dag. Söngur og
gleði.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl.
20 í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyj-
ólfssonar. Farið verður í bréf Páls
til Rómverja og Galatamanna.
Bústaðakirkja | Ný dögun – sam-
tök um sorg og sorgarviðbrögð,
halda fræðslufund í Bústaðakirkju,
safnaðarsal, neðri hæð, gengið inn
bókasafnsmegin. Fundarefni: Sorg í
kjölfar sjálfsvígs. Sr. Guðrún Egg-
ertsdóttir flytur erindi.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10. Leikfimi IAK kl. 11. Bæna-
stund kl. 12. Barnastarf 6–9 ára kl.
17–18 á neðri hæð. Unglingastarf kl.
19.30–21.30 á neðri hæð. www.
digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Alla fimmtudaga frá
kl. 14–16 er opið hús í safn-
aðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Allir
velkomnir.
Fella- og Hólakirkja | Opnun sýn-
ingar á verkum eftir Braga Þór
Guðjónsson myndlistarmann kl.
15.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar-
og bænastund í hádeginu á
fimmtudögum, kl. 12.15. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund er hvert fimmtudags-
kvöld í Vídalínskirkju kl. 22. Gott er
að ljúka deginum og undirbúa nótt-
ina í kyrrð kirkjunnar og bera þar
fram áhyggjur sínar og gleði. Tekið
er við bænarefnum af prestum og
djákna. Boðið upp á kaffi í lok
stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgn-
ar kl. 10–12. Fræðandi og skemmti-
legar samverustundir, ýmiss konar
fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni,
djús og brauð fyrir börnin. TTT fyr-
ir börn 10–12 ára á fimmtudögum í
Húsaskóla kl. 17.30–18.30.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa
kl. 19–19.45, Þorvaldur Halldórsson
leiðir söng. Altarisganga. Létt og
skemmtileg samvera. Allir vel-
komnir.
Hafnarfjarðarkirkja | 7–9 ára starf
er alla fimmtudaga milli klukkan
17–18. Margt skemmtilegt er gert
saman, vonum að sjá sem flesta.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í
hádegi alla fimmtudaga kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í
safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja | Taize-messa öll
fimmtudagskvöld í Háteigskirkju.
Kirkjan opnuð klukkan 19 og mess-
an hefst klukkan 20. Hljóð stund í
nærveru Guðs. Allir velkomnir.
Háteigskirkja – starf eldri borgara
| Bridsaðstoð í Setrinu, Háteigs-
kirkju, á föstudögum kl. 13–16. Kaffi
kl. 15.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 7–9
ára starf, er kl. 16.30–17.30.
KFUM og KFUK | Fundur í AD
KFUM, Holtavegi 28, fimmtudaginn
23. feb. kl. 20. „Alþjóðlega heil-
brigðisstofnunin.“ Davíð Á. Gunn-
arsson, ráðuneytisstjóri, sér um
efnið. Guðlaugur Gunnarsson hefur
hugleiðingu. Laufey Geirlaugsdóttir
syngur. Kaffi eftir fund. Allir karl-
menn eru velkomnir.
Kristniboðsfélag kvenna | Aðal-
fundur Kristniboðsfélags kvenna
verður haldinn í dag og hefst með
bænastund kl. 16.30 á Háaleit-
isbraut 58–60. Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Langholtskirkja | Opið hús kl. 10–
12 fyrir foreldra ungra barna.
Spjall, kaffisopi, söngstund fyrir
börnin. Fræðsla annan hvern
fimmtudag. Umsjón hefur Lóa Maja
Stefánsdóttir, móðir og sjúkraliði.
Verið velkomin. Leitið upplýsinga í
síma 520 1300.
Laugarneskirkja | Kl. 12: Kyrrð-
arstund í hádegi. Léttur máls-
verður á eftir. Kl. 14: Samvera eldri
borgara. Helgi Seljan heldur uppi
gleðinni. Kaffiveitingar. Kl. 17: Adr-
enalín gegn rasisma. Kl. 20: Gosp-
elkvöld, Hátúni 10. Þorvaldur Hall-
dórsson syngur, Guðrún K.
Þórsdóttir stjórnar.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin
kl. 10. Beðið fyrir sjúkum og bág-
stöddum. Einnig tekið við bæn-
arefnum. Kaffisopi að lokinni at-
höfninni. Fundur í Æskulýðsfélagi
Selfosskirkju í dag kl. 19.30 í safn-
aðarheimilinu.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Kl. 20 Setning Vetrarhátíðar.
Heitur reitur í miðbæ Reykjavíkur.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri setur Vetrarhátíð í Reykjavík á
Austurvelli. Austurvöllur breytist því
næst í suðupott með leik, brúðum,
dansi, tónlist, hljóðum, risatrommum,
eldi og skuggaverum.
Kl. 20 Fimmtudagsforleikur.
Envy of Nona ásamt leynigestum.
Hitt húsið, Pósthússtræti.
Kl. 20 Akureyri á Vetrarhátíð.
Græna vatnið í Worpswede.
Mynd og texti eftir Hlyn Hallsson.
Ráðhús Reykjavíkur, veggurinn gegnt
Iðnó.
Kl. 20.30 Ljósablóm á Austurvelli.
Kl. 20.30 Hvert förum við nú...
Kyndilganga að Tjörninni þar sem Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri af-
hjúpar Minningarstólpa.
Tjörnin.
20.45 Gömlu trén í Reykjavík.
Kyndilganga frá Tjörninni að Fógetagarð-
inum þar sem borgarstjóri tendrar lýs-
ingu á elsta tré borgarinnar. Fógetagarð-
urinn.
Kl. 20.30 Dansveisla Kramhússins.
Nasa, við Austurvöll.
Kl. 20.30 Vörður og vitar.
Norðrið í borgarrýminu: Myndlistaskólinn
í Reykjavík.
20.30 Hvörf.
Myndbönd af skreið í ljúfri golu og rang-
hölum ganga við Kárahnjúka. Ráðhús
Reykjavíkur.
Kl. 20.30 Orgelið í öllu sínu veldi.
Organistar sýna og sanna hvað orgelið
er stórkostlegt hljóðfæri, með stuttum
tónleikum á hálftíma fresti. Dómkirkjan.
- 20.30 Bach fyrir börnin.
- 21.00 Syngjum saman sálma.
- 21.30 Íslenskt í öndvegi.
- 22.00 Djass fyrir Drottinn.
- 22.30 Trylltar tokkötur.
Kl. 20.30 Við Sama heygarðshornið.
Samísk kvöldvaka, joík, upplestur, tónlist,
myndlist. Norræna félagið Óðinsgötu 7.
Kl. 20.30 Auður Austurlands.
Handverk og listiðnaður frá Austurlandi
í sýningarsal Handverks og hönnunar,
Aðalstræti 12.
Kl. 21 Listflæði í Iðnó.
Gestur..hinsegin óperetta. Klassískur
söngur, glens, grín, upplestur, rokk.
Kl. 21 Norðurljós í Fríkirkjunni.
Bogomil Font, Raggi Bjarna, Anna Sig-
ríður Helgadóttir, Fríkirkjukórinn og
Kvartett Carls Möllers flytja gömul dæg-
urlög.
Kl. 21 Hvað gerist þegar dans og leik-
hús mætast?
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús,
Tryggvagötu 17.
Alla daga Vetrarhátíðar:
Kl. 19.30 til 21 Viltu vita hver bjó í
húsinu þínu?
Á Borgarskjalasafni Reykjavíkur eru
varðveittar margvíslegar heimildir um
hús í Reykjavík og íbúa þeirra. Á Vetr-
arhátíð 2006 býður Borgarskjalasafn
Reykvíkingum að forvitnast um fyrri
íbúa húss síns. Veldu þrjú ár sem þú
hefur áhuga á og sendu ásamt húsheiti,
nafni þínu, símanúmeri og netfangi og
haft verður samband við þig. Netfang
safnsins er borgarskjalasafn@reykjavik-
.is, fax 563-1780 og sími 563-1760.
Nánari upplýsingar um einstaka dag-
skrárliði er að finna í dagskrárblaði Vetr-
arhátíðar og á vef hátíðarinnar.
TENGLAR
..............................................
www.rvk.is/vetrarhatid
Vetrarhátíð fimmtudagur
AKVARELL Ísland er hópur
myndlistarmanna sem hafa sýnt
reglulega saman vatnslitamyndir
og um þessar mundir stendur yfir
10 ára afmælissýning hópsins í
Hafnarborg, Menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar. Akvarell Ís-
land eru ekki hagsmunasamtök í
hefðbundnum skilningi heldur sýn-
ingarhópur sem stendur vörð um
listgrein sem er í útrýmingarhættu
á Íslandi eins og margt annað
handverk sem krefst einhverrar
sértækrar aðferðar og þjálfunar.
Það er nefnilega ekki auðvelt að
gera góðar akvarellur. Efnið er
takmarkað og kallar jafnan eftir
snörpum handtökum og þekkingu á
hegðun efnisins. Alls sýna 12 lista-
menn akvarellur að þessu sinni og
eru landslagsmyndir í miklum
meirihluta, Sverrissalur og Apótek
undirlagt landslagi. Fyrst ber að
nefna áferðafagrar myndir Ástu
Árnadóttur sem er aldursforseti
hópsins á níræðisaldri. Sætleikinn
einkennir myndir Öldu Ármann og
Katrínar Helgu Ágústsdóttur,
Kristín Þorkelsdóttir er fagmaður
fram í fingurgóma og Þórunni Guð-
mundsdóttur tekst með ágætum að
skerpa landslagsformin þrátt fyrir
gegnsætt efnið.
Í aðalsalnum er talsvert meiri
breidd í myndum en á jarðhæðinni.
Eiríkur Smith stendur fyrir sínu
með óhlutbundnar myndir, þó með
landslagsívafi, og virðist Eiríkur
teikna á myndflötinn með fljótandi
efninu á meðan litarefnið í myndum
Helgu Magnúsdóttur rennur saman
þannig að formræna hverfur að
mestu. Formrænan í myndum
Gunnlaugs Stefáns Gíslasonar er
hins vegar skýr og kallast
skemmtilega á við myndir Eiríks
Smith þótt þær séu augljóslega
fígúratífar myndir af þrívíðum hlut-
um. Álíka samtal á sér stað á milli
sjávarmynda Þórðar Hall og óhlut-
bundinna mynda Bjargar Þor-
steinsdóttur sem byggja á fínum
gáróttum línum sem minna á vatn.
Bæði nota þau birtu til að gefa
myndunum dýpt. Í afkima aðalsal-
arins hanga svo myndir eftir Ís-
landsmeistara typografíunnar,
Torfa Jónsson, sem tvinnar saman
„wet-on-wet“ tækni og leturgerð
með góðum árangri og smámyndir
Jóns Reykdal af mat og eldhús-
áhöldum eru kannski ekki ýkja
merkilegar hver fyrir sig, en þétt
upphengið gerir myndröðina að
einu samhangandi verki og sem
slíkt er það eitt athyglisverðasta
framlagið á sýningunni.
Eins og gefur að skilja er ekki
verið að bjóða upp á nýstárlega sýn
eða nálgun við efnið. Hér er fyrst
og fremst verið að viðhalda vissri
fagmennsku sem er svo sannarlega
þarft. Sýningin er í heildina hugljúf
og afslöppuð og hafa sýningarstjór-
arnir, Aðalsteinn Ingólfsson og Jón
Axel Björnsson, staðið í stykkinu
hvað það varðar. Ekki þykir mér
ástæða til annars en að hvetja
Akvarell Ísland til dáða og óska
þeim um leið til hamingju með af-
mælið.
MYNDLIST
Hafnarborg
Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 11–
17. Sýningu lýkur 27. febrúar.
Akvarell Ísland
Jón B.K. Ransu
Morgunblaðið/RAX
Frá sýningu Akvarell Íslands í Hafnarborg.
Varðmenn