Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HALLDÓR HITTI BLAIR
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra átti fund með Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, í Down-
ingstræti 10 í gær. Þeir ræddu m.a.
Evrópumálin, Atlantshafs-
bandalagið, öryggi á Norður-
Atlantshafi auk samvinnu og sam-
skipta landanna á alþjóðavettvangi
og í viðskiptum. Þá bauð Halldór
Tony Blair að koma til Íslands og
sagðist Blair hafa áhuga á því en
vera önnum kafinn.
Víðtæk áhrif gengisfallsins
Áhrif af gengisfalli íslensku krón-
unnar í gær eru talin hafa teygt sig
alla leið til Suður-Ameríku, Afríku,
Asíu og Austur-Evrópu. Veiking
gengis nokkurra svonefndra ný-
markaðslanda á mörkuðum í gær
var rakin til gengisfalls krónunnar.
Margir fjölmiðlar víða um heim fjöll-
uðu í gær um veikingu krónunnar og
hættuna á hruni eða brotlendingu í
íslensku efnahagslífi.
Óvissa í Írak
Gullna moskan, einn mesti helgi-
staður sjíta í Írak, var að hluta
sprengd í loft upp í gær og eru liðs-
menn al-Qaeda í landinu grunaðir
um verknaðinn. Brugðust sjítar
ævareiðir við skemmdarverkinu og
réðust á moskur súnníta víða um
landið. Talið er, að tilgangurinn með
árásinni á Gullnu moskuna hafi verið
að ýta undir átök milli trúarhópanna
og spilla fyrir myndun nýrrar rík-
isstjórnar í landinu. Hafa trúar-
leiðtogar og stjórnvöld hvatt fólk til
að stilla sig en mikil ólga er í landinu
og loft lævi blandið.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 33
Fréttaskýring 8 Brids 35
Úr verinu 13 Skák 35
Erlent 14/16 Minningar 36/37
Minn staður 20 Hestar 41
Höfuðborgin 22 Myndasögur 41
Akureyri 22 Dagbók 42/45
Suðurnes 23 Staður og stund 44
Austurland 23 Leikhús 46
Menning 24/25, 46/53 Bíó 50/53
Daglegt líf 26/30 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
Umræðan 32/34 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
VEGFARENDUR sem leið eiga hjá Tjörninni þessa
dagana hafa margir hverjir komið auga á kynlegt
„umferðarskilti“ sem stendur úti í vatninu. En hér er
um að ræða eitt af tuttugu skiltum sem Stella Sigur-
geirsdóttir myndlistarkona hefur búið til og eru
hluti af sýningunni „Hvert förum við nú nema
hvergi?“ sem opnuð verður á upphafskvöldi vetr-
arhátíðar í dag, fimmtudag, og stendur fram yfir
menningarnótt.
Skiltin eru sett upp víðs vegar um bæinn, en Stella
kallar þau „minningarstólpa.“
Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri viðburða hjá
Höfuðborgarstofu, segir sýningu Stellu afar áhuga-
verða og hugvekjandi, en hún verður opnuð með „af-
hjúpun“ skiltisins í Tjörninni. „Það er erfitt að
breiða yfir verkið þarna úti í tjörninni, svo við mun-
um afhjúpa það með því að lýsa það upp,“ segir Sif.
„Sýningin er umfangsmikil og er skiltin að finna allt
frá Suðurgötu og upp á Rauðavatn.“
Öll skiltin eiga það sameiginlegt að þau eru að
stærð og lögun eins og umferðarskilti, en með því
vísar Stella til þess hvernig fólk þekkir skilti án þess
að hafa nokkuð fyrir því. Hins vegar setur listakon-
an á skiltin táknmyndir sem Íslendingar kannast vel
við en setur þær í allt annað samhengi.
Þannig er skilti á miðri Suðurgötunni með mynd
af Keili, en hann blasir einmitt við beint af augum
þegar Suðurgatan er ekin. Á Rauðavatni er skilti
með mynd af húsflugu en á Geirsnefi, þar sem borg-
arbúar viðra hunda sína er skilti með mynd af vaski.
Morgunblaðið/Kristinn
Ísland í miðri tjörninni
GÍSLI Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, segir að rætt hafi verið
nokkrum sinnum um stærðarmörk
bifreiða sem fara um Hvalfjarðar-
göng og greiðslur fyrir þær í stjórn
félagsins eftir að litlum pallbifreið-
um fjölgaði. Hins vegar hafi þessi
lengdarmörk verið sett í upphafi
eins og öllum hafi verið ljóst. Sex
metra bílar og lengri séu auk þess
talsvert þyngri en þessi venjulegi
fólksbíll.
Ellen Ingvadóttir ritar grein í
Morgunblaðið í gær um verðmun á
ferð um Hvalfjarðargöng þar sem
meðal annars kemur fram að verð-
munur eftir því hvort farið er á
fólksbíl eða pallbíll er 2000 kr. mið-
að við eina ferð.
„Við eigum mjög erfitt með að
taka tillit til tískubreytinga í fólks-
bílaeign landsmanna og það er líka
ljóst að þótt við myndum lengja
mörkin myndu eftir sem áður ein-
hverjir lenda á mörkunum,“ sagði
Gylfi.
Hann sagði að þessi verðmunur
milli gjaldflokka hefði verið svona í
átta ár og hefði heldur farið lækk-
andi og ekki valdið vandræðum
hingað til. Hins vegar væri stjórn
félagsins alltaf með þessi mál í
skoðun frá einum tíma til annars.
Hlutfallslega mun meiri munur er
milli 1. og 2. flokks, en 2. og 3.
flokks, en í þann flokk lenda bifreið-
ar sem eru 12 metrar eða lengri.
Ferð um göngin fyrir slíkan bíl
kostar 3.800 krónur, en 3.000 fyrir
bíl lengri en sex metrar og 1.000 kr.
fyrir fólksbíl. Aðspurður hvort þetta
sé eðlilegur munur sagði Gísli það
út af fyrir sig þess virði að skoða
það hvort þetta sé réttur munur, en
á hinn bóginn hafi þetta fengið að
vera svona í átta ár og þeir hafi ekki
fengið mikil viðbrögð við þessari
gjaldskrá frá atvinnubílstjórum.
Gjaldflokkaskipting Hvalfjarðarganga óbreytt í átta ár
Stærðarmörk bifreiða
rædd nokkrum sinnum
ÞORSTEINN I. Sigfússon, prófess-
or við Háskóla Íslands, fékk tvær
viðurkenningar fyrir störf í þágu
vetnismála á ráðstefnu í Moskvu á
dögunum.
Önnur viðurkenningin var fyrir
framlag hans til vetnismála á Ís-
landi en Þorsteinn hefur í gegnum
tíðina skrifað mikið um orku- og
vetnismál. Hin viðurkenningin sem
Þorsteinn veitti viðtöku var fyrir
árangur af starfi IPHE, Inter-
national Partnership for Hydrogen
Economy, sem er samstarf fimmtán
ríkja og hefur það að markmiði að
efla alþjóðlegt samstarf og rann-
sóknir á sviði vetnis. Þorsteinn er
formaður framkvæmdanefndar
IPHE.
Ráðstefnan var haldin í tengslum
við fund fjármálaráðherra G8 í
Moskvu þar sem m.a. voru rædd
orku- og efnahagsmál heimsins.
Mennta- og vísindaráðuneyti Rúss-
lands stóð fyrir ráðstefnunni og
hélt þar fjöldi fræðimanna með er-
indi, meðal annars Þorsteinn.
Í erindi sínu fjallaði hann um
þann vaxandi áhuga sem er í heim-
inum á möguleikum vetnis sem
orkubera framtíðar.
Þorsteinn I. Sigfússon hlaut
viðurkenningu í Moskvu
Þorsteinn I. Sigfússon
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann á fertugs-
aldri í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir skjalafals og
fjársvik. Hann var jafnframt
dæmdur til að greiða málsvarn-
arlaun skipaðs verjanda síns, alls
241 þúsund krónur.
Falsaði víxla og borgaði
ekki leigubíl
Maðurinn var ákærður fyrir að
selja þrjá falsaða víxla, tvo sem
námu 650 þúsund krónum og einn
upp á 300 þúsund krónur, og fyrir
að greiða skuld upp á 700 þúsund
krónur með fölsuðum víxli.
Hann var ennfremur ákærður
fyrir að greiða ekki ökumanni
leigubifreiðar ökugjald upp á 10
þúsund krónur fyrir ferð frá Leifs-
stöð á Keflavíkurflugvelli til
Reykjavíkur. Ákærði játaði að
hafa greitt skuldina með fölsuðum
víxli, sem og að hafa ekki greitt
leigubílstjóranum fyrir umbeðna
ferð en neitaði sök fyrir sölu á
víxlunum þremur.
Í dóminum kemur fram að
ákærði hafi verið reikull í
framburði sínum og m.a. játað
fyrir lögreglu að hafa falsað nafn
sitt á víxilskjölin. Þótti ljóst að
ákærði hefði afhent víxlana og ver-
ið kunnugt um að þeir væru fals-
aðir.
Símon Sigvaldason héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn. Verjandi
mannsins var Hilmar Ingimarsson
hrl. og sækjandi Guðjón Magn-
ússon, fulltrúi lögreglustjórans í
Reykjavík.
Skilorðsbundið fang-
elsi fyrir skjalafals
LÍÐAN fimmtán ára stúlku sem
slasaðist alvarlega þegar ekið var á
hana á Bæjarbraut í Garðabæ á
miðvikudag fyrir viku er óbreytt,
samkvæmt upplýsingum frá Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi. Hún
liggur á gjörgæsludeild þar sem
henni er haldið sofandi í önd-
unarvél.
Stúlkan var fótgangandi á leið
yfir götuna á gangbraut þegar slys-
ið átti sér stað. Talið er að ökumað-
ur bifreiðarinnar hafi blindast af
sólinni.
Óbreytt líðan eftir
umferðarslys
NAUMUR meirihluti Reykvíkinga
myndi frekar vilja sjá Dag B. Egg-
ertsson, frambjóðanda Samfylk-
ingarinnar til borgarstjórnar, sem
borgarstjóra en Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson, frambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins.
Í nýlegri könnun sem Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands
gerði fyrir Samfylkinguna kom
fram að 42,9% aðspurðra sögðust
vilja sjá Dag B. Eggertsson sem
borgarstjóra en 39,9% vildu sjá
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Dagur
nýtur umtalsvert meiri stuðnings
meðal kvenna en karla, en Vil-
hjálmur meiri stuðnings karla al-
mennt. Samfylkingarmenn og
vinstri-grænir vildu frekar sjá
Dag í sæti borgarstjóra en 90%
sjálfstæðismanna vildu frekar sjá
Vilhjálm. Kjósendur Framsókn-
arflokksins voru frekar á báðum
áttum. Þó kusu rúm 57% fram-
sóknarmanna heldur Dag B. Egg-
ertsson.
Lítill munur á
Degi og Vilhjálmi
SAMKVÆMT lauslegri áætlun, sem
byggist á veltutölum lyfjaverslana,
er talið að 24,5% virðisaukaskattur
af lyfjum hafi skilað ríkissjóði um
830 milljónum á árinu 2003, 920
milljónum á árinu 2004 og 940 millj-
ónum á síðasta ári.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari fjármálaráðherra við fyr-
irspurn Jóns Kr. Óskarssonar,
varaþingmanns Samfylking-
arinnar. Þingmaðurinn spyr hvert
tekjutap ríkissjóðs yrði ef virð-
isaukaskattur á lyfjum yrði lækk-
aður í 14% eða 7%. Í svarinu segir
að miðað við áætlaðar tölur fyrir
árið 2005 yrði tekjutap ríkissjóðs
400 milljónir miðað við 14% virð-
isaukaskatt og 670 milljónir miðað
við 7% virðisaukaskatt. Því er bætt
við að engin áform séu uppi um
lækkun virðisaukaskatts á lyfjum á
næsta ári.
940 milljónir
á síðasta ári