Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 43
Skipulag
Vatnsmýrarinnar
MIKIÐ er rætt um skipulag Vatns-
mýrarinnar og allt sem þar mætti
gera, en þó aðeins ef við gætum losað
okkur við flugvöllinn.
Sunnan við Skerjafjörðinn bíður
heilmikið óbyggt, óræktað og óskipu-
lagt land í eigu ríkisins, þ.e. Bessa-
staðanesið. Þetta er langhentugasta
landið í nágrenni borgarinnar undir
flugvöll og það eina sem kemur til
greina, bæði varðandi aðflug og fjar-
lægð frá borginni.
Þarna er langt í næstu íbúð-
arbyggð og engin háhýsabyggð ná-
lægt. Bessastaðir eru í viðunandi fjar-
lægð. Þó væri rétt að leggja þá niður
sem gestamóttöku forsetaembætt-
isins, það mætti flytja hana í Héðins-
höfða í Reykjavík.
Þetta embætti er okkur allt of dýrt.
Við svona fáir skattgreiðendur getum
ekki endalaust staðið undir ótak-
mörkuðum flottheitum.
Eins og er stendur þetta flugvall-
armál fast og þá einnig skipulag
Vatnsmýrarinnar, því mun þetta vera
besta lausnin í þessu margþvælda
máli.
Jóhann.
Nú er stórt tækifæri
ÞAR sem stjórnmálamenn hafa ekki
haft áhuga á að bæta kjör aldraðra og
öryrkja, nema með innihalds lausum
loforðum fyrir hverjar kosningar, þá
eiga aldraðir og öryrkjar, sem er stór
hópur kjósenda, að stilla saman
strengi sína og fara í framboð til Al-
þingis. Jafnvel til sveitarstjórnar - en
fyrst og fremst til alþingis og reyna
þar að ná fram því markmiði að bæta
kjör aldraðra og öryrkja.
Svo og að setja ný lög um Trygg-
ingastofnun ríkisins og færa stofn-
uninar til nútímalegs horfs. Afnema
tekjutryggingu maka, einnig tekju-
tryggingu við lífeyrissjóðina. Lækka
skattleysismörkin. Þá væri stórum
áfanga náð. Allt þetta fær kannski
ekki náð fyrir augum og eyrum
stjórnmálamanna.
Nú er tækifærið sem má ekki
ganga okkur eldri borgurum og ör-
yrkjum úr greipum.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Hátúni 10.
GSM-sími týndist
GSM-sími týndist í eða við Hlíðar-
skóla. Skilvís finnandi hafi samband í
síma 562 9128 eða 862 9128.
Mikki er týndur
MIKKI hvarf
frá Lokastíg
19. febrúar sl.
og er sárt
saknað. Hann
er ein-
staklega gæf-
ur og gæti
verið á leið
vestur yfir læk á gamlar slóðir. Finn-
andi vinsamlegast hafi samband við
Steingrím í síma 822 1300.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 43
DAGBÓK
Sérhæð við Ægisíðu óskast
- staðgreiðsla
Sérhæð við Ægisíðu óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 120-150 fm hæð við Ægisíðu, stað-
greiðsla í boði.
Íbúðin þarf ekki losna fyrr en á seinni hluta ársins.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Samtökin ’78 standa fyrir röð hádegisfyr-irlestra í samstarfi við félagsvísindadeildog Hugvísindastofnun Háskóla Íslands,Rannsóknarstofu í kvenna- og kynja-
fræðum, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Félag
STK-stúdenta.
Haukur F. Hannesson, tónlistarmaður og list-
rekstrarfræðingur, er þriðji fyrirlesarinn í röðinni
og flytur á föstudag erindi sitt: „Óperuhomminn –
List og menningarpólitík frá samkynhneigðu
sjónarhorni.“
„Ég geng út frá goðsögninni um óperuhomm-
ann. Hann er ekki eins mikil goðsögn og Hollend-
ingurinn fljúgandi, en óperuhomminn er ákveðin
stereótýpa homma, goðsögn sem skapast hefur í
heimi samkynhneigðra,“ segir Haukur og gantast.
„Þarna verður til hópur karlmanna, sem nýtur
þess að hlusta á óperur og samsamar sig því list-
formi. Þarna er gagnkvæm ást og jafnræði milli
listformsins óperu og hommans sem nýtur list-
arinnar.“
Haukur segir ekki alltaf ríkja jafnræði í sam-
bandi lista og samkynhneigðra: „Hommar og
lesbíur eru ennþá að miklu leyti ósýnileg í heimi
listarinnar, og þegar þau eru sýnileg er oft gengið
út frá túlkunarþörf gagnkynhneigðarinnar; hið
samkynhneigða sjónarhorn hverfur og eftir
stendur námsefni í samkynhneigð fyrir gagnkyn-
hneigða.
Hommar og lesbíur hafa sótt í listina bæði til að
njóta hennar og stunda hana, en listin hefur
stundum hlaupið á undan þeim, og ekkert viljað
við þau kannast. Ég mun tala um af hverju þetta
stafar, bæði út frá handverki mismunandi list-
greina, svo og þeim takmörkunum sem listinni eru
settar af samtíma sínum.“ segir Haukur.
„Þótt sá veruleiki að vera hommi eða lesbía sé
ekki jafnharður nú og áður er ekki eins sjálfsagt
mál að vera samkynhneigður og það er að vera
gagnkynhneigður. Listin er á mörkum veru-
leikans og ímyndunaraflsins. Í listinni er hægt að
hvílast, skapa og sjá nýja möguleika. Það má
segja að listin geti verið hinn góði flótti frá hörð-
um veruleika. Samkynhneigðir hafa kannski not-
að listina til að komast burt frá sínum harða veru-
leika og öðlast sýnileika, bæði fyrir sjálfum sér og
öðrum.“
Fyrirlestur sinn flytur Haukur í stofu 101 í
Odda, Háskóla Íslands, kl. 12 á föstudag. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill.
Fyrirlestur | Tengsl lista og samkynhneigðar í fyrirlestraröð Samtakanna ’78
Hommar, lesbíur og listir
Haukur F. Hannesson
fæddist í Kópavogi
1960. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum við Hamra-
hlíð 1977, einleikara- og
kennaraprófi í sellóleik
frá Guildhall School of
Music and Drama í
Lundúnum 1982,
meistaraprófi í list-
rekstrarfræði frá City
University í London 1991, og doktorsprófi frá
sama skóla 1998. Haukur hefur starfað sem
sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands,
skólastjóri Suzuki-tónlistarskólans í Reykja-
vík, kennt tónlist bæði á Íslandi og í Svíþjóð og
verið framkvæmdastjóri sinfóníuhljómsveita í
Svíþjóð. Haukur er í dag aðstoðarskólastjóri
við Nacka Musikskola viðStokkhólm. Haukur
er giftur Jörgen Boman bókasafnsfræðingi.
70 ÁRA afmæli. 26. febrúar verðursjötugur Kristinn Sigurjón
Antonsson. Hann tekur á móti gestum
laugardaginn 25. febrúar eftir kl. 16 í
Félagsheimilinu í Innri-Njarðvík.
Bridshátíð.
Norður
♠Á7
♥632 A/Enginn
♦ÁKG
♣ÁK1065
Vestur Austur
♠G9543 ♠K102
♥Á7 ♥DG1095
♦– ♦10953
♣DG9843 ♣2
Suður
♠D86
♥K84
♦D87642
♣7
Austur vekur á tveimur hjörtum (veik-
um eða Tartan), en síðan verður suður
sagnhafi í þremur gröndum. Út kemur
hjartaás og meira hjarta, sem suður tek-
ur og spilar tígli. Hellegan kemur í ljós
og nú er spurningin þessi: Er nokkur
möguleiki á níu slögum?
Spilið kom upp í 7. umferð sveita-
keppni Bridshátíðar og þeir sagnhafar
sem fengu á sig þessa vörn fundu ekki
leiðina að níu slögum. En hún er þó til.
Sagnhafi tekur á ÁKG í tígli og leggur
niður laufás. Sendir svo austur inn á
hjarta.
Austur tekur þrjá slagi á hjarta, en
verður síðan að spila tígli eða spaða frá
kóngnum í þessari stöðu:
Norður
♠Á7
♥–
♦–
♣K10
Vestur Austur
♠G9 ♠K102
♥– ♥–
♦– ♦10
♣DG ♣–
Suður
♠D8
♥–
♦D8
♣–
Hið sérkennilega við spilið er að sagn-
hafi má alls ekki taka TVO efstu í laufi
áður en hann sendir austur inn – þá lend-
ir hann í klemmu heima í lokastöðunni.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6
5. Dc2 dxc4 6. e4 b5 7. a4 b4 8. Rd1
Ba6 9. Bg5 Da5 10. Bd2 c3 11. bxc3
Bxf1 12. cxb4 Bxb4 13. Bxb4 Dxb4+
14. Kxf1 00 15. Re3 Rbd7 16. Ke2
Da5 17. Hhc1 Hac8 18. e5 Rd5 19.
Rc4 Da6 20. Ke1 c5 21. Rd6 Hc6 22.
Dc4 Rb4 23. Kd2 Da5 24. Rb7 Dc7
25. Rxc5 Rxc5 26. dxc5 Hd8+ 27.
Ke2 Rd3 28. Hd1 Hxc5 29. Dh4 Hc4
30. Dg5 Rf4+ 31. Ke1 Hd5 32. Hxd5
exd5 33. Hd1
Staðan kom upp í C-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Franski stórmeistarinn Cyril
Marcelin (2.441) hafði svart gegn
Ekaterinu Atalik (2.399). 33. …
Rxg2+! 34. Kf1 34. Dxg2 hefði verið
svarað með 34. … He4+ 35. Kf1 (35.
Kd2 Da5+) 35. … Dc4+ 36. Kg1
Hg4 og svartur vinnur drottninguna.
Eftir textaleikinn verður svartur
sælu peði yfir. 34. … Rf4 35. He1
Re6 36. Dd2 Dd7 37. Hb1 Hc8 38.
a5 d4 39. Kg2 Dd5 40. Kg3 De4 41.
Hb4 Hc3 42. Hb8+ Rf8 43. Df4
Dg6+ 44. Kh4 h6 45. Kh3 Ha3 46.
e6 Dxe6+ 47. Kg2 Dg6+ 48. Dg3
Dc6 49. Df4 Hxa5 50. Dxd4 Hg5+
51. Kf1 Dxf3 52. Hxf8+ Kh7 og hvít-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
SUOMI-félagið heldur árshá-
tíð sína föstudaginn 24. febr-
úar. Hátíðin verður að þessu
sinni haldin í sal Starfs-
mannafélags Flugleiða, Síðu-
múla 11, og hefst kl. 19.
Gestir félagsins verða Kat-
ariina Liimatainen píanóleik-
ari og Dagmar Prochazka,
sem er tékknesk að uppruna.
Þær koma hingað frá Finn-
landi þar sem þær kenna
báðar tónlist við Fjöl-
listaskólann í Jyväskylä.
Tónlistin setur mikinn svip
á dagskrá kvöldsins, því að
þar koma einnig fram saman
finnskur píanóleikari, Matti
Pirttimäki, og Kristín Lár-
usdóttir, sem leikur á selló.
Að vanda eru ríkulegar
veitingar af hlaðborði Sig-
urbergs, happdrætti og fleiri
dagskráratriði. Öllum sem
áhuga hafa á að sækja hátíð-
ina er heimill aðgangur. Mið-
ar fást keyptir við inngang-
inn.
Suomi-félagið, sem stofnað
var 1949, er félag Finna á Ís-
landi og íslenskra Finnlands-
vina.
Árshátíð
Suomi-félagsins
Í DAG klukkan 15.30 verður opnuð
myndlistasýning í Fella- og Hóla-
kirkju. Listamaðurinn Bragi Þór Guð-
jónsson sýnir verk sín, olíumálverk, í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Bragi er fæddur árið 1928 og ólst
upp í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu.
Hann hefur lengstum numið við
Myndlistaskólann í Reykjavík. Mynd-
listasýningin er hluti af menningar-
og listahátíð í Breiðholti. Allir vel-
komnir.
Málverkasýn-
ing í Fella- og
Hólakirkju