Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 13 ÚR VERINU Í SIGLUFIRÐI var fyrir skömmu tekinn í notkun nýr björgunarbátur og hlaut hann nafnið Sigurvin eins og eldri báturinn sem þar hefur ver- ið um árabil. Nýi báturinn kemur frá Englandi og er sömu gerðar og aðr- ir bátar sem keyptir hafa verið það- an undanfarið og munu nú alls ellefu bátar sömu gerðar vera komnir hingað til lands. Hann var smíðaður árið 1988, kaupverð var um 11 milljónir króna og þá er eftir að setja öll björgunar- og öryggistæki í hann. Ómar Geirsson er umsjónar- maður bátsins. Hann sagði að Sig- urvin væri þegar búinn að fá sína eldskírn. Honum var siglt frá Reykjavík ásamt öðrum samskonar bát sem fór á Vopnafjörð og þeir fengu suðvestan 27 metra á sekúndu og talsverðan sjó á Faxaflóanum og Breiðafirðinum. Ómar sagðist vera ánægður með hvernig báturinn hefði staðið sig við þessar aðstæður. Einnig í þeim eina björgunarleið- angri sem búið er að fara á bátnum til þessa en þá var 270 tonna skip sem varð vélarvana norður í hafi dregið inn til Siglufjarðar. Ómar segir að nýi báturinn sé rúmbetri en sá eldri . Þá er aðstaða fyrir sjúkrabörur og hægt að hólfa af pláss t.d. ef læknir er að sinna sjúklingi. Báturinn er með tvær skrúfur og í honum eru tvær afl- vélar samtals 815 hestöfl. Það er Björgunarbátasjóður Siglufjarðar sem sér um rekstur bátsins og að manna hann þegar þörf er á. Það er 10–12 manna öfl- ugur kjarni sem er utan um þetta fé- lag, menn með skipstjórnarréttindi sem eru komnir í land og að mestu hættir sjómennsku að sögn Ómars Geirssonar. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Nýr björgunarbátur tekinn í notkun HINN ÁRLEGI Skrúfudagur Fjöl- tækniskóla Íslands verður haldinn hátíðlegur hinn 25. febrúar næst- komandi, og verður það í 44. sinn sem hann er haldinn. Skrúfudagurinn var haldinn í fyrsta sinn árið 1962, og fyrstu árin bar hann upp á 12. febrúar, en það var afmælisdagur Gunnars heitins Bjarnasonar fyrrum skólameistara Vélskóla Íslands. Fyrst um sinn bar þennan dag upp í lok svokallaðrar starfsviku skólans, og að loknum þessum degi tíðkaðist að nemendur Vélskólans, ásamt Vélstjórafélagi Ís- lands og kvenfélaginu Keðjunni (fé- lagi eiginkvenna vélstjóra), héldu sína árshátíð, en nú verður hún 31. mars. Nöfnin Skrúfan, rit útskriftar- nema Vélskólans, og Skrúfudagur- inn tengjast að sjálfsögðu hinu gamla merki skólans, en það var að skipsskrúfa og hringfari, en var það merki fengið „að láni“ frá Vélskól- anum í Kaupmannahöfn, en þar sem það þótti prýðisfallegt var því haldið þar til að nú fyrir skemmstu samein- uðust Stýrimannaskólinn í Reykja- vík og Vélskóli Íslands í Fjöltækni- skóla Íslands. Í starfsvikunni er gert hlé á kennslu í eina viku og nemendum gefinn kostur á að heimsækja fyr- irtæki og stofnanir, einkum þær sem tengjast náminu eða starfi að námi loknu. Starfsvika skólans hefst þessa önnina á Skrúfudeginum, þar sem fólki verður boðið í heimsókn í skól- ann til að kynna sér aðstöðuna og að- setur. Fyrirtæki kynna starfsemi sína. Skrúfu- dagurinn í 44. sinn Mitsubishi Pajero Dakar - 35” breyttur. Mitsubishi Pajero með aflauka bílar á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.