Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 23 MINNSTAÐUR SUÐURNES AUSTURLAND Sandgerði | Unnið er að undirbún- ingi nýs markaðsátaks fyrir Sand- gerði. Í þetta sinn er markmiðið að laða fyrirtæki til bæjarins. Á síðasta ári efndi Sandgerðisbær til markaðsátaks undir kjörorðunum Sandgerðisbær innan seilingar. Til- gangurinn var að fjölga íbúum og þykir vel hafa tekist til og útlit fyrir að markmið átaksins náist fyrr en reiknað var með. Sigurður Valur Ásbjarnarson bæj- arstjóri segir að næst verði farið í markaðsátak til að laða fyrirtæki til bæjarins. Sömu aðilar og unnu að markaðsátakinu í fyrra munu vinna að nýja markaðsátakinu, en það voru Geimstofan og Fremri á Ak- ureyri. Hugmyndin er að nýta aðstöðu sem til er í bæjarfélaginu til upp- byggingar atvinnufyrirtækja. Sig- urður Valur nefnir sérstaklega Rockville þar sem ratsjárstöð varn- arliðsins stóð. Verið er að ljúka við niðurrif húsa og hreinsun svæðisins. Segir Sigurður Valur að þar séu fyr- ir hendi malbikaðar götur, grunnar fyrir um tuttugu byggingar og allar lagnir. „Þetta er frábært svæði, mið- svæðis á Reykjanesi, og í nánum tengslum við Keflavíkurflugvöll. Og það er hægt að stækka svæðið um- talsvert,“ segir Sigurður Valur bæj- arstjóri. Rockville er enn á varnarsvæði og tekur Sigurður Valur fram að varn- arliðið þurfi að skila svæðinu til eig- enda sinna áður en hægt sé að nýta það fyrir almenna atvinnustarfsemi. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Nýtt hlutverk Þegar búið er að rífa öll mannvirki gömlu ratsjárstöðv- arinnar í Rockville á Miðnesheiði standa eftir grunnar fjölda húsa ásamt öllum lögnum. Svæðið býður þannig eftir að verða tekið í notkun að nýju. Hafa áhuga á að bjóða Rockville sem iðnaðarsvæði Sandgerði | Samfylkingin í Sand- gerði hefur ákveðið að bjóða fram lista í eigin nafni við sveitarstjórn- arkosningarnar í vor undir listabók- stafnum S en óska jafnframt eftir samvinnu við óháða borgara. K-list- inn hefur í áratugi verið ráðandi afl í bæjarstjórn Sandgerðis. Í síðustu kosningum stóð Samfylkingin að framboðinu ásamt óháðum og áður forverar flokksins. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni í Sandgerði að deildar meiningar hafi verið um það í félaginu hvort áfram ætti að bjóða fram undir listabókstafnum K. Stjórn félagsins lét kanna skoðanir félagsmanna á þessu með óformleg- um hætti. Um 26% þeirra fé- lagsmanna sem náðist í vildu að Samfylkingin stæði að K-lista, 28% vildu frekar S-lista en 45% að- spurðra félagsmanna sögðu það ekki skipta máli. Í framhaldi af þessu var á fé- lagsfundi í Samfylkingunni í fyrra- kvöld ákveðið að bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum undir listabókstaf flokksins, S, og óska jafnframt eftir samvinnu við óháða borgara. Á fundinum var einnig ákveðið að efna til opins próf- kjörs um val á þremur efstu fram- bjóðendum listans. S-listi Samfylking- ar í stað K-listans Egilsstaðir | Nú styttist óðum í keppnina Ístölt Austurland, sem Hestamannafélagið Freyfaxi stend- ur fyrir árlega og fer það fram í Egilsstaðavík nk. laugardag, 25. febrúar og hefst kl. tíu. Að sögn mótshaldara er mótið opið og félögum úr öllum hesta- mannafélögum því heimil þátttaka. Eins og áður er keppt um Orms- bikarinn í opnum flokki og í ár hafa margir af nafntoguðustu knöpum landsins boðað þátttöku sína. Búast mótshaldarar við að Ístölt Austur- land treysti sig þannig í sessi sem stærsta útimót vetrarins í hesta- heiminum. Bergur Hallgrímsson er formað- ur Freyfaxa. „Síðasta ár var það stærsta í sögu mótsins og knapar og aðrir gestir skýjum ofar með vel heppnað mót og glæsilegt um- hverfi, sem og náttúrufegurð við Lagarfljótið,“ segir Bergur. „Í opnum flokki má búast við harðri baráttu um Ormbikarinn eft- irsótta sem Leó Geir Arnarson hreppti á eftirminnilegan hátt á síð- asta ári. Þess er vænst að ókrýndur meistari ístöltsins, Hans Kjerúlf, muni gera harða atlögu að bik- arnum ásamt öðrum sterkum kepp- endum. Eins má búast við að Hin- rik Bragason, Guðmundur Björgvinsson, Hulda Gústafsdóttir og Bergur Jónsson mæti sterk til leiks.“ Bergur segir ísinn á Lag- arfljótinu vel þykkan skv. mæl- ingum sl. sunnudag. Hann býst við á milli 80 og 100 skráningum í keppnina, sem gæti þýtt að um 250 til 300 manns kæmu til mótsins, um 100 hross og heimamenn fjölmenni til að horfa á. „Þekktir knapar sýna mótinu sífellt meiri áhuga og það trekkir,“ segir Bergur. Skeiðdrekinn nýr af nálinni Í ár hafa Freyfaxamenn ákveðið að keppni í skeiði verði meðal há- punkta mótsins og er nú í smíðum nýr farandbikar, Skeiðdrekinn, sem afhentur verður um ókomin ár til sigurvegara í skeiði. Þegar hafa magnaðir skeiðknapar skráð sig til keppni og má þar t.d. nefna þá feðga Valdimar og Hjört Bergstað. Fjölnir Þorgeirsson mun og hafa lýst því yfir að hann muni aka með Skeiðdrekann sér við hlið til Hvera- gerðis eftir mótið. Að kvöldi keppn- isdags verður haldin vegleg uppskeruhátíð hestamanna á Aust- urlandi og viðurkenningar veittar fyrir góðan árangur. Hljómsveitin Papar leika fyrir dansi fram eftir nóttu. Bergur segir Freyfaxamenn sér- staklega vilja bjóða knapa frá öðr- um landshornum velkomna og að götur þeirra verði greiddar. Árlegt ístölt Hestamannafélagsins Freyfaxa fer fram nk. laugardag þar sem keppt verður um Ormsbikarinn Hófaskellir á ísum Lagarfljóts Ljósmynd/Freyfaxi Ísinn traustur Mótshaldarar kanna ísþykkt Lagarfljóts ásamt Jónasi Gunnlaugssyni og Gunnari Jónssyni. Uppsögn trúnaðarmanns | Odd- ur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður við Kárahnjúkavirkjun, hefur afhent lögmanni AFLs, starfsgreinafélags Austurlands, gögn varðandi upp- sögn trúnaðarmanns sem starfaði fyrir Impregilo en var rekinn á dög- unum. Oddur segist ósammála Imp- regilo um réttmæti uppsagnarinnar, en lögmaður AFLs muni meta hvort grundvöllur sé fyrir lögsókn á hend- ur fyrirtækinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.