Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 26
Fjarðarkaup Gildir 23. feb–25. feb verð nú verð áður mælie. verð Saltkjöt blandað frá Fjallalamb ............. 798 998 798 kr. kg Ali bacon ............................................ 1.289 1.719 1.289 kr. kg Ali hunangsskinka soðin....................... 1.348 1.798 1.348 kr. kg FK jurtakryddað lambalæri.................... 998 1.856 998 kr. kg Gæða grís skinka ................................. 898 1.198 898 kr. kg Fersk bláber 125 g............................... 199 369 1590 kr. kg Gulrætur kílópoki ................................. 89 269 89 kr. kg Blaðlaukur .......................................... 159 189 159 kr. kg Kötlu bollumix 200 g............................ 198 219 990 kr. kg Þeyttur jurtarjómi 250 ml...................... 98 179 392 kr. kg Hagkaup Gildir 23. feb–26. feb verð nú verð áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.498 2.298 1.498 kr. kg Svínakótilettur m/beini úr kjötborði ....... 899 1.295 899 kr. kg SS salt framhryggsn, baunap.frítt með ... 1.398 1.398 1.398 kr. kg SS saltkjöt blandað, baunap.frítt með.... 848 0 848 kr. kg Búrfells saltkjöt.................................... 398 0 398 kr. kg Baunasúpa úr kjötborði ........................ 698 0 698 kr. kg Krónan Gildir 23. feb–26. feb verð nú verð áður mælie. verð Borgarnes saltkjöt................................ 275 399 275 kr. kg Saltaðir síðubitar ................................. 76 139 76 kr. kg Goða kjötfars nýtt/saltað...................... 517 646 517 kr. kg Gríms fiskibollur 550 g ......................... 318 398 578 kr. kg Gourmet rauðvíns lambalæri................. 1.312 1.874 1.312 kr. kg Maískorn 1. flokks 300 g...................... 29 45 97 kr. kg Myllu fitty brauð gróft 8 sneiðar ............. 99 129 99 kr. pk. Kexsm. muffins 400 g .......................... 265 295 265 kr. pk. Chocolate Cookies kex 225 g................ 179 229 179 kr. pk. NN eldhúsrúllur 2 stk. .......................... 99 139 99 kr. pk. Kaskó Gildir 23. feb–26. feb verð nú verð áður mælie. verð Vatnsdeigsbollur litlar 9 stk. súkkul........ 299 399 299 kr. stk. Vatnsdeigsbollur stórar 6 stk. súkkul...... 299 399 299 kr. stk. Vatnsdeigsbollumix .............................. 99 199 99 kr. stk. Jarðarberja, sólberja og hindberjasulta .. 99 149 99 kr. stk. Náttúra furuhnetur 100 g...................... 199 259 199 kr. stk. Casa Fiesta taco Shells ........................ 209 279 209 kr. stk. Casa Fiesta tortillakökur ....................... 149 199 149 kr. stk. Frosin blómkálsblanda 1 kg.................. 149 199 149 kr. stk. Frosin brokkólíblanda 1 kg.................... 149 199 149 kr. stk. Nettó Gildir 23. feb–26. feb verð nú verð áður mælie. verð BK saltkjöt ódýrt .................................. 189 344 189 kr. kg BK saltkjöt blandað.............................. 583 833 583 kr. kg Goða saltaðar síður.............................. 99 129 99 kr. kg Fiska reyktur lax................................... 1.399 1.998 1.399 kr. kg Fiska grafinn lax................................... 1.399 1.998 1.399 kr. kg Matarolía 1 ltr...................................... 95 189 95 kr. stk. Vöfflumix og pönnukökumix .................. 139 199 139 kr. stk. Náttúra jurtarjómi ................................ 79 159 79 kr. stk. Gular baunir „sprengidagsveisla“ .......... 7 72 7 kr. stk. Náttúra kartöflumús ............................. 9 87 9 kr. stk. Nóatún Gildir 23. feb–26. feb verð nú verð áður mælie. verð Nóatúns valið lúxus saltkjöt pakkað ....... 1.549 0 1.549 kr. kg Nóatúns 1. flokks blandað saltkjöt ........ 899 0 899 kr. kg Fiskibollur ........................................... 599 779 599 kr. kg Nóatúns kjötfars nýtt/saltað/sælkera .... 499 698 499 kr. kg Nóatúns kjötbollur ............................... 598 899 598 kr. kg Kexsm. vínarbrauð 400 g...................... 299 379 299 kr. stk. Kexsm. vínarbrauð m/súkkul. 350 g...... 329 359 329 kr. stk. Hunts tómatsósa 1.020 g..................... 149 176 146 kr. kg GM Cheerios 425 g.............................. 199 249 199 kr. pk. Bounty Select eldhúsrúllur 3 stk. ........... 349 489 349 kr. pk. Samkaup/Úrval Gildir 23. feb–26. feb verð nú verð áður mælie. verð Goða saltkjöt blandað pakkað .............. 673 897 673 kr. kg Goða saltkjöt pakkað ........................... 1.235 1.544 1.235 kr. kg Bautabúrs bacon ................................. 995 1.422 995 kr. kg Borgarnes saltkjöt blandað ................... 583 833 583 kr. kg Gular baunir Doris 500 g ...................... 19 76 19 kr. stk. Coca Cola Light 4x2 ltr. ........................ 599 852 599 kr. stk. Matf. kjúkl.vængir magnkaup................ 195 299 195 kr. kg Matf. kjúkl.læri magnkaup .................... 390 599 390 kr. kg  HELGARTILBOÐIN | Neytendur@mbl.is Bollu- og sprengidagur á næsta leiti Daglegtlíf febrúar BOLLUDAGUR og sprengidagur eru á næsta leiti og bera helgartilboð matvöruverslananna þess augljós merki, því víða má finna saltkjötið, baunirnar eða bollurnar á tilboðs- verði. Þannig kostar saltkjötið t.d. 189 kr. í Nettó um helgina í stað 344 kr., gul- ar baunir aðeins 7 kr. í stað 72 kr. og saltkjöt sem er hægt að gera góð kaup í þessa vikuna því í Fjarðarkaupum má t.d. finna ferskar gulrætur á 89 kr. í stað 269 kr og jurtakryddað lamba- læri á 998 kr. í stað 1.856 kr. áður. Lambalærið er í huga margra hinn klassíski íslenski sunnudagsmatur og gulrætur henta vel í fjölbreytt úrval matar- og salatgerðar auk þess að geymast vel. kartöflumús 9 kr. eftir að hafa áður verið á 87 kr. Krónan er einnig með saltkjöt á tilboðsverði 275 kr. í stað 399 kr. og saltaða síðubita á 76 kr. í stað 139 kr. Í verslunum Kaskó má síðan læða vatnsdeigsbollum eða -bollumixi með í körfuna, en þar hefur verð á boll- unum verið lækkað úr 399 kr. í 299 kr. og á -bollumixinu úr 199 kr. í 99 kr. Það eru þó ekki eingöngu bollur og Saltkjöt og baunir  BUDDAN Þ að er ekkert alltaf hægt að hafa þetta hollt,“ segir Róbert Wess- man, forstjóri Actavis, um leið og hann seilist eftir rjóma og gráðosti til að stinga í innkaupakörfuna. „Í kvöld ætla ég að elda lambalundir og í þær þarf ég ja, náttúrulega lundir og slatta af rjóma,“ segir hann léttilega og ekki laus við prakk- arasvip. Þegar hann skoðar lund- irnar í kjötborðinu spyr hann af- greiðslumanninn hvort búið sé að skera sinarnar frá. Svarið er nei- kvætt og Róbert segir að mjög mikilvægt sé að skera sinarnar frá. „Annars verður kjötið seigt. Ég geri það bara sjálfur þegar ég kem heim.“ Í sósunni sem borin er fram með lundunum eru meðal annars ristaðar furuhnetur, vínber og sveppir. Næst liggur leiðin í áttina að salatrekkanum og þar velur Ró- bert ruccola-salat í poka, þannig að einhver hollusta fylgi óhollust- unni. „Það er mjög mikilvægt að velja lífrænt ræktað, ég legg mikla áherslu á það. Út á salatið er líka rosalega gott að setja þetta,“ segir hann um leið og hann lyftir upp flösku með balsamic- dressingu, „fyrst við ætlum að hafa þetta óhollt á annað borð.“ Róbert velur líka blandað salat í poka og fetaost til að setja út á það. Allt íslenskt að sjálfsögðu. Hagsýnn í sveppunum „Ég ætla líka að vera ægilega hagsýnn og velja hérna heila sveppi, svo þarf bara að sneiða þá niður.“ Þetta segir hann um leið og hann leggur frá sér sveppi í boxi sem þegar hafa verið sneiddir og tekur í staðinn heila sveppi. Kirsuberjatómatar eru líka settir út í salatið og Róbert tekur eitt box af þeim. „Ég læt mig hafa það að taka þessa þó að þeir séu held- ur gulir,“ segir hann. „Kartöflur þarf ég líka, yfirleitt vel ég lífrænt ræktaðar, en þar sem þær eru ekki til vel ég þessar gulu.“ Það vantar líka salt og ólífuolíu og Róbert röltir í áttina að krydd- ganginum og nær sér í Filippo Berio-ólífuolíu, gula. Sjávarsalt lendir líka í körfunni og „svo vant- ar okkur rósmarín,“ segir hann og leitar vönum augum eftir réttu gerðinni. „Við fínni tækifæri er allt í lagi að drekka glas af góðu rauðvíni með þessu,“ segir Róbert, „en þar sem nú er bara virkur dagur er rétt að vega aðeins upp á móti ka- loríunum í ostinum og þessu öllu með því að drekka diet-kók með,“ segir hann og hlær við. „Nú eða bara hið frábæra íslenska vatn úr krana.“ Nú er jafnt í liðinu Róbert er hagvanur í eldhúsinu og lengi vel sá hann mestmegnis um matseldina fyrir fjölskylduna. „Síðustu 2–3 árin er þó orðið nokkuð jafnt í liðinu, en fram að því eldaði ég oftar en ekki.“ Í lið- inu sem hann vísar til eru hann og eiginkona hans, Sigríður Ýr Jens- dóttir læknir, og þau eiga tvö börn Helenu Ýri og Jens Hilmar. Eldamennskan er honum í blóð borin og hann byrjaði snemma að munda hnífana í eldhúsinu á Hótel Sögu. „Ég var ekki nema 10–11 ára þegar ég byrjaði að skræla kartöflur á Hótel Sögu. Svo þurfti maður að vinna sig aðeins upp, fyrst úr kartöflunum í sósuna og þegar ég varð eldri, svona fimm- tán ára, var ég byrjaður að að- stoða við undirbúning stórra veislna, sem haldnar voru í hót- elinu, t.d. í Súlnasalnum. Þá var ég farinn að elda.“ Það var nú ekki að ástæðulausu að fyrstu skrefin í eldamennskunni voru stigin þar á hótelinu heldur sá pabbi hans, Wilhelm Wessman, um veitingareksturinn þar á þess- um árum. Í starfi forstjóra lyfjarisans Actavis felast mikil ferðalög. Fyr- irtækið er mjög vaxandi á al- þjóðavísu og Róbert er þess vegna á ferðinni meira og minna alla daga og kemur víða við um allan heim. Starfinu fylgir líka sú „kvöð“ að forstjórinn þarf oft að  HVAÐ ER Í MATINN? | Róberti Wessman finnst að stundum megi setja hollustuna til hliðar Byrjaði ungur að elda veislumat Róbert Wessman er önnum kafinn við að stýra hinu ört vaxandi lyfjafyrirtæki Actavis. Hann gaf sér þó tíma til að fara með Sigrúnu Ásmundar í matvöruverslun þar sem hann keypti hráefni í ljúffenga kvöldmáltíð. Morgunblaðið/Ómar Með innkaupalistann í höndunum því auðvitað má engu gleyma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.