Morgunblaðið - 25.02.2006, Page 6

Morgunblaðið - 25.02.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nú bjóðum við síðustu sætin til Kanarí 7. mars í 2 vikur á frábærum kjörum. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Að sjálfsögðu nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar á Kanarí allan tímann. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Kanarí 7. mars frá kr. 39.990 Munið Mastercard ferðaávísunina 2 vikur - síðustu sætin kr.54.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó í 2 vikur, stökktu tilboð 7. mars. Innifalið: Flug,skattar, gisting og íslensk fararstjórn. kr.39.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 2 vikur, stökktu tilboð 7. mars. Innifalið: Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. ÞAÐ verður mikill handagangur í öskjunni hjá bökurum landsins síð- ustu stundirnar fyrir bolludaginn á mánudag enda þarf að metta bollu- neytendur í tuga og hundraða þús- unda tali. Hjá bakarameistaranum í Suð- urveri verða bakaðar allt að 50 þús- und bollur af ýmsum gerðum, mest vatnsdeigsbollum sem hafa verið að ýta gerbollunum út af markaðnum hægt og bítandi. Að sögn Óttars B. Sveinssonar framleiðslustjóra hefst undirbúningurinn viku fyrir bollu- dag með því að bakarar sanka að sér hráefni og auknum mannskap. Síðan er hafinn mikill bakstur og gerir Óttar ráð fyrir hörku vinnulotu um helgina. „Vinsælasta bollan er þessi hefðbundna, vatnsdeigsbolla með rjóma og súkkulaði,“ segir hann, en því er við að bæta að hægt er að fá mikið af öðruvísi bollum, allt eftir smekk og áhuga neytenda. Snáðanum á myndinni, Loga Sig- urðarsyni, fannst rétt að gera gæða- könnun á bollunum í tæka tíð, svona til gagns og gamans. Guðný Gests- dóttur afgreiðslukona í Bakara- meistaranum fylgist vel með. Morgunblaðið/Ásdís Bollur í tuga þús- unda tali KJARADEILA Landssambands slökkviliðsmanna og Launanefndar sveitarfélaga (LN) var rædd hjá rík- issáttasemjara í gær í fyrsta sinn eftir að deilunni var formlega vísað til sáttasemjara og verður annar fundur haldinn kl. 10 í dag. Það var að ósk LN sem kjaradeil- unni var vísað til ríkissáttasemjara en ekki Landssambands slökkviliðs- manna eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær og er beðist velvirðingar á mistökunum. Að sögn Braga Mikaelssonar, for- manns samninganefndar sveitarfé- laganna, þótti ljóst að vísa yrði deil- unni til sáttasemjara þegar allt of mikið bar í milli deiluaðila. „Fundurinn hjá sáttasemjara var í sjálfu sér ágætur,“ sagði Bragi. „Við fórum vel yfir hlutina og sáttasemj- ari gerði tilraun til að greina ágrein- inginn sem á milli okkar er. Ég tel að hann hafi gert það mjög vel.“ Boðað hefur verið til annars fund- ar í dag eins og fyrr segir. Kjaradeilan rædd aftur í dag hjá sáttasemjara ÞJÓÐAHÁTÍÐ Alþjóðahússins verður haldin í þriðja sinn á sunnudag, en vinsældir hennar hafa aukist ár frá ári. Að þessu sinni fer hátíðin fram í gamla Blómavalshúsinu við Sigtún en hún er hlut af Vetrarhátíð í Reykjavík. Lóa Auðunsdóttir, verk- efnastjóri hátíðarinnar, segir markmið hátíðarinnar að kynna fjölmenningarlegt samfélag á Ís- landi og vekja athygli á því hvern- ig það auðgar menningu og stuðl- ar að fjölbreyttara mannlífi. Lóa bendir á að í Reykjavík búi um 5.000 erlendir ríkisborgarar af 116 þjóðernum. „Því finnst okkur við hæfi að halda hátíðina hér í borg,“ segir hún. Innflytjendur frá yfir 30 löndum verða með bása á hátíðinni þar sem þeir kynna þjóð sína og menningu og býðst gestum að bragða á þjóðarréttum þeirra, að sögn Lóu. Dansatriði frá Perú Þá verður opnað markaðstorg, þar sem hægt verður að kaupa framandi matvæli og handverk og einnig verður starfrækt kaffihús fyrir gesti hátíðarinnar. Fjölbreytt skemmtiatriði á sviði allan daginn. Meðal annars verður boðið upp á dansatriði frá Taílandi, Perú og Búlgaríu og kynningu á jap- önskum fatnaði. Ekkert kostar inn á hátíðina en hún hefst klukkan 12 með opn- unarathöfn og stendur til klukkan 17. Heiðursgestir hátíðarinnar verða listamennirnir Baltasar Samper og Alexandra Kuregej Argunova, sem bæði eru fædd og uppalin erlendis en hafa búið hér um langt skeið. Hægt verður að skoða sýnishorn af verkum þeirra á hátíðinni. Þjóðahátíð haldin í þriðja sinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Í fyrra var Þjóðahátíðin haldin í Perlunni og var vel sótt. ENGIN banaslys hafa orðið í flugi ís- lenskra loftfara síðustu fimm árin, þ.e. árin 2001 til 2005. Árið 2001 lét- ust tveir erlendir flugmenn þegar flugvél þeirra fórst við Þrídranga skammt frá Vestmannaeyjum. Síð- asta banaslys í íslensku flugi var þeg- ar sex létust af völdum slyss í Skerja- firði 7. ágúst árið 2000. Þorkell Ágústsson, rannsókna- stjóri Rannsóknarnefndar flugslysa, og Bragi Baldursson aðstoðarrann- sóknarstjóri fóru yfir atvik í flugi síð- asta árs á flugöryggisfundi sem haldnir eru reglulega en að þeim standa auk Flugmálafélags Íslands, RNF, öryggisnefnd FÍA, Flugbjörg- unarsveitin og Flugmálastjórn. Einn- ig greindu þeir frá skipulagi RNF sem nánar er fjallað um í reglugerð um RNF sem tekur gildi 1. mars. Fagnaðarefni að slysum fækkar Þorkell Ágústsson sagði í samtali við Morgunblaðið að það hefði ekki áður gerst að engin banaslys í ís- lensku flugi hefðu orðið í fimm ár. Nefndi hann sem dæmi að árin 1942 til 1997, í 55 ár, hefði að meðalali orðið 1,2 banaslys á ári eða 6 slys á hverj- um fimm árum að meðaltali. Hann sagði það fagnaðarefni að slysunum hefði fækkað. Það sýndi að menn vönduðu sig og gerðu hlutina á réttan hátt. Þá upplýstu þeir Þorkell og Bragi að mun færri mál hefðu verið tekin til rannsóknar á síðasta ári miðað við þrjú ár þar á undan. Í fyrra tók nefndin 22 mál til formlegrar rann- sóknar en árin 2002 til 2004 voru þau að meðaltali 40 á ári. Samkvæmt yfirliti yfir banaslys í íslenskum loftförum frá upphafi flugs og fylgir ársskýrslum RNF létust 7 manns í þremur flugslysum á fimm ára tímabilinu á undan, þ.e. 1996 til 2000, 10 manns í sjö slysum árin 1991 til 1995, en eitt slysanna varð þegar maður gekk í skrúfu flugvélar, og 5 manns í jafnmörgum slysum árin 1986 til 1990. Úttekt í undirbúningi Þorkell sagði að ætlunin væri að rannsaka nánar og meta þróun í slys- um og flugatvikum á Íslandi frá upp- hafi. Væri nú í undirbúningi sameig- inleg úttekt sérfræðinga RNF, Háskóla Íslands og Flugmálastjórn- ar Íslands og fyrstu skrefin væru að gera sér grein fyrir því úr hvaða upp- lýsingum yrði lesið og hvaða atriði yrðu tekin til skoðunar. Mun færri flugslys og flugatvik til rannsóknar á síðasta ári en þrjú árin á undan Engin banaslys í íslensku flugi síðustu fimm ár Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.