Morgunblaðið - 25.02.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 25.02.2006, Síða 11
hafi verið lögð fram umsókn um at- vinnuleyfi. Vinnumálastofnun hefur litið svo á að með þessu sé fólk, með aðstoð ættingja eða vina, að reyna að komast bakdyramegin inn í landið og þessum umsóknum hefur verið hafn- að. Von um nýtt líf og betur launað starf Goran Lazarevic, frá Serbíu, hefur verið búsettur hér á landi í 5 ár, en hann kom hingað í kjölfar þess að konan hans var fengin til að spila handbolta með íslensku liði. Goran segist í eitt og hálft ár hafa reynt að fá atvinnuleyfi fyrir systur sína. Hann segir að hún sé með vinnu í Serbíu og fái um 100 evrur í laun á mánuði, eða innan við 10.000 krónur. Hann segir að hún hafi bundið miklar vonir við að henni tækist að skapa sér nýtt líf á Íslandi í betur launaðri vinnu, en umsókn frá vinnuveitanda, sem hafi verið tilbúinn til að ráða hana í vinnu, hafi verið hafnað. Þetta hafi valdið henni miklum von- brigðum. Goran er óánægður með afgreiðslu Vinnumálastofnunar og segir að ekki sé samræmi í hvernig stofnunin af- greiðir umsóknir. Hann segist hafa upplýsingar um umsóknir frá Serbíu sem nýlega hafi verið afgreiddar já- kvætt, á sama tíma og umsókn frá systur hans sé hafnað. Starfsmenn Vinnumálastofnunar vísa því á bug að ósamræmi sé í því hvernig stofnunin afgreiðir umsókn- ir. Það sé hins vegar rétt að stofn- unin hafi nýlega samþykkt umsókn frá manni frá Serbíu, en ástæðan hafi verið sú að hann var í sambúð með konu sem búið hefur hér á landi. Stofnunin miði við að makar/ sambýlisfólk, foreldrar og börn frá þriðja ríki geti fengið atvinnuleyfi hér á landi. Umsóknum frá systk- inum fólks sem hér býr sé hins vegar hafnað. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 11 FRÉTTIR HÁSKÓLI Íslands kynnir á morg- un, sunnudaginn 26. febrúar, námsframboð næsta vetrar, bæði í grunnnámi og á framhaldsstigi. Allar ellefu deildir skólans kynna sína starfsemi og bæði kennarar deildanna og nemendur verða á staðnum til að svara fyrirspurnum og miðla reynslu sinni. Einnig verða námsráðgjafar Há- skólans og ýmsir þjónustu- og samstarfsaðilar, svo sem Fé- lagsstofnun stúdenta, Stúd- entaráð, Lánasjóður íslenskra námsmanna, Endurmenntun, Al- þjóðaskrifstofa Háskólans og fleiri. Margir þeirra sem koma að kynna sér framhaldsnám eru að koma aftur til náms eftir einhver ár á vinnumarkaði. Þeirra mögu- leikar hafa aukist gríðarlega á stuttum tíma því framboð á meist- ara- og doktorsnámi er einn helsti vaxtabroddurinn í starfsemi Há- skóla Íslands og í dag er fram- haldsnám í boði við allar deildir skólans. Einnig eru fjölmargir möguleikar í viðbótarnámi. Um 300 mismunandi námsleiðir eru við Háskólann. Meðal fjölda nýrra námsleiða næsta skólaár má nefna nám í skurðhjúkrun, um- hverfis- og náttúrusiðfræði, heil- brigðis- og lífsiðfræði, hagnýta menningarmiðlun, hagnýta rit- stjórn og útgáfufræði, fjármál fyr- irtækja, vísindasiðfræði, hagnýtt nám í samfélagstúlkun og fjár- málahagfræði. Námskynning Háskóla Íslands hefst kl. 11 á morgun og stendur til kl. 16. Kynningin fer fram í fimm byggingum á Háskólasvæð- inu, Aðalbyggingu, Íþróttahúsi, Odda, Öskju og Stúdentaheimilinu við Hringbraut (FS). Upplýsinga- og þjónustumiðstöð verður í Að- albyggingu. Umsóknarfrestur í framhalds- nám er til 15. mars í flestum deild- um Háskólans en í grunnnám er umsóknarfrestur til 5. júní. Allar nánari upplýsingar á www.hi.is. HÍ kynnir um 300 námsleiðir ÓLAFUR F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-listans, lagði fram tillögu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag um að borgarstjórn Reykjavíkur lýsti andstöðu við hugmyndir um jarð- varmavirkjanir í Kerlingarfjöllum. Þá sagði í tillögu Ólafs að slík áform væru óviðeigandi í kjölfar samhljóða samþykktar borgarstjórnar frá 17. janúar sl. um að falla frá öllum frekari virkjunarframkvæmdum í Þjórsár- verum. Ennfremur vildi Ólafur að borgar- stjórn lýsti því yfir að það væri með öllu ótímabært að huga að jarðvarma- virkjunum á ósnertu svæði á miðhá- lendi Íslands ásamt lagningu há- spennulína þvert yfir miðhálendið. Tillögunni var vísað frá með fjórtán atkvæðum gegn einu með þeim rök- stuðningi að ekki væri tímabært að taka afstöðu til hennar, þar sem rann- sóknarleyfi hefði enn ekki verið veitt. Engar boranir yrðu leyfðar á svæðinu án undangengis umhverfismats. Ósk- aði Ólafur þá eftir eftirfarandi bókun: „Sú staðreynd að meirihluti borgar- stjórnar Reykjavíkur deilir ekki áhyggjum Landverndar og annarra náttúruverndarsamtaka vegna hug- mynda um jarðvarmavirkjanir í Kerl- ingarfjöllum er áhyggjuefni. Ekki má sofna á verðinum í nauðsynlegum að- gerðum til varnar náttúruperlum á hálendi Íslands.“ Borgarfulltrúar Reykjavíkurlista bókuðu þá að ekkert lægi enn fyrir um rannsóknir eða framkvæmdir við virkjanir í Kerlingarfjöllum. Orku- veita Reykjavíkur hefði sótt um rann- sóknaleyfi á svæðinu en ekkert svar enn borist frá iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu. Málið væri ákaflega stutt á veg komið og því óeðlilegt að álykta um það á þessum tímapunkti. Tillögu um Kerlingar- fjöll var vísað frá KARLMAÐUR á þrítugsaldri slas-aðist alvarlega í vinnuslysi í Garða-bæ um hádegisbil á fimmtudag. Maðurinn var við vinnu uppi á þaki húss sem verið var að rífa en svo virðist sem honum hafi skrikað fótur og við það fallið um fimm metra til jarðar. Hann var lagður inn á gjör- gæsludeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss þar sem hann liggur þungt haldinn og er haldið sofandi í öndunarvél. Vinnueftirlit ríkisins fer með rannsókn málsins. Á gjörgæslu eftir vinnuslys

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.