Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Chittagong. AP, AFP. | Að minnsta kosti
54 týndu lífi þegar eldur kom upp í
vefnaðarvöruverksmiðju í borginni
Chittagong í suðurhluta Bangladesh í
gær. Meira en eitt hundrað manns til
viðbótar slasaðist illa í brunanum.
Um eitt þúsund verkamenn, mest
konur, voru að störfum í verksmiðj-
unni. Aðeins einn útgangur er á
byggingunni og breiddist eldurinn
hratt út, læsti sig í vefnaðarvarning
ýmiss konar og magnaðist síðan til
muna þegar rafmagnshitatæki
sprungu.
Þrátt fyrir þetta tókst flestum að
flýja bygginguna í tæka tíð, m.a. með
því að stökkva út um glugga hennar.
Khaleda Zia, forsætisráðherra
Bangladesh, heimsótti vettvang
slyssins í gær en talið er að eldurinn
hafi kviknað af völdum skammhlaups
í rafmagnstöflum. Hefur hún fyrir-
skipað að fram skuli fara nákvæm
rannsókn á tildrögum þessa harm-
leiks. AFP segir að lögregla hafi
þegar í kjölfar eldsvoðans ruðst til
inngöngu á heimili eiganda verk-
smiðjunnar, enda hafði rannsókn á
brunastaðnum leitt í ljós að öryggis-
viðbúnaði var þar ábótavant. Hann
var hins vegar hvergi að finna. Vefn-
aðarvörur eru helsta útflutningsaf-
urð Bangladesh, en talið er að um
80% útflutningstekna landsins megi
rekja til þeirra. Á bilinu 2.500 til 4.000
vefnaðarvöruverksmiðjur eru í
Bangladesh og slys eru þar tíð, enda
algengt að öryggisviðbúnaði sé
ábótavant eða að hús uppfylli ekki
kröfur byggingarfulltrúa.
54 urðu eldi að bráð í Bangladesh
London. AP, AFP. | Ken Livingstone,
borgarstjóra í Lundúnum, var
vikið úr embætti í gær í mánuð
fyrir að líkja
fréttamanni og
gyðingi við
fangavörð í
útrýmingar-
búðum nasista.
Sérstakur
agaréttur fann
Livingstone
sekan um að
hafa óvirt sitt
eigið embætti
en það, sem
reið bagga-
muninn, var þó,
að hann neitaði að biðjast afsök-
unar á ummælum sínum.
Livingstone brást við úr-
skurðinum með því að kalla hann
aðför að lýðræðinu en flestir
furða sig á, að hann skuli ekki
hafa beðist afsökunar á orðum
sínum. Lét hann þau falla fyrir
ári er hann átti í harðri orða-
sennu við Oliver Finegold, blaða-
mann á Evening Standard. Spurði
hann þá Finegold hvort hann
hefði verið „þýskur stríðs-
glæpamaður“. Finegold svaraði,
að hann væri gyðingur og þá
sagði Livingstone:
„Jæja. Þú ert þó alveg eins og
fangavörður í útrýmingarbúðum.“
Ekki var vitað hvort Liv-
ingstone ætlaði að áfrýja úrskurð-
inum en geri hann það ekki, þarf
hann að greiða á tíundu milljón
ísl. kr. í lögfræðikostnað.
Vísað burt
í mánuð
Ken Livingstone
Manila. AP. | Forseti Filippseyja,
Gloria Arroyo, lýsti í gær yfir neyðar-
ástandi í landinu eftir að herinn kom í
veg fyrir stjórnarbyltingu. Arroyo
sagði að engu að síður stafaði þjóðinni
mikil hætta af byltingaröflunum.
Háttsettur yfirmaður í hernum er í
varðhaldi grunaður um að hafa ætlað
að að efna til byltingar í framhaldi af
fjöldasamkomum í tilefni af því að 20
ár eru frá falli Ferdínands Marcosar
forseta.
Þúsundir manna tóku þátt í fjölda-
mótmælum á götum Manila í gær í
trássi við neyðarástandsyfirlýsingu
forsetans, en óeirðalögregla beitti
vatnsbyssum til að hafa hemil á
mannfjöldanum.
Lögreglan bannaði fjöldasamkomu
við minnismerki um byltinguna 1986,
er Marcos var steypt af stóli, og þá
kom til ryskinga. Nokkru áður höfðu
nokkur þúsund manns komið saman
til friðsamlegra mótmælaaðgerða.
Skólum um allt land var lokað í
gær, herinn setti upp varðstöðvar um
gervalla höfuðborgina og herinn
sendi varðmönnum við forsetahöllina
liðsauka sem var girt af með gámum
og gaddavír.
Greinilegt að Arroyo
óttast að missa tökin
Fréttaritari breska ríkisútvarps-
ins, BBC, í Manila sagði í gær að oft
heyrist orðrómur um yfirvofandi bylt-
ingu í landinu, og að á undanförnum
20 árum hafi verið gerður fjöldi bylt-
ingartilrauna.
Tveir fyrrverandi forsetar, Marcos
og Joseph Estrada, hröktust frá völd-
um í almennum uppreisnum gegn
þeim. En umfang mótmælanna í gær
var mun minna en í þessum uppreisn-
um, er hundruð þúsunda manna
flykktust út á götur og kröfðust af-
sagnar Marcosar og Estradas.
Fréttaskýrendur segja þó greini-
legt að Arroyo hafi áhyggjur af því að
missa tökin. Tvisvar áður hafa verið
gerðar tilraunir til að steypa henni af
stóli, og haft var eftir henni að stjórn-
arandstaðan og öfgaöfl til hægri og
vinstri væru staðráðin í að koma rétt-
kjörinni ríkisstjórn frá.
Eftir að hafa lýst yfir neyðar-
ástandi í gær sagði Arroyo: „Þetta er
aðvörun til þeirra sem ógna ríkis-
stjórninni. Armi laganna verður beitt
af öllu afli gegn svikum ykkar.“
Starfsmannastjóri Arroyos sagði
að ekki verði sett á útgöngubann, en
neyðarástandsyfirlýsingin kveður á
um að fjöldasamkomur séu bannaðar,
handtökur án heimildar leyfilegar og
að forsetinn megi kalla herinn til ef
nauðsyn krefur. Þá heimilar yfirlýs-
ingin Arroyo að taka völdin í stofn-
unum og fyrirtækjum – þar á meðal
fjölmiðlum – sem varða þjóðaröryggi.
Neyðarástandi lýst
yfir á Filippseyjum
Reuters
Lögreglan stöðvaði mótmæli stjórnarandstæðinga í Manila í gær.
TALSMAÐUR Bhumibols Adulyadejs, konungs
Taílands, tilkynnti í gær að efnt yrði til nýrra kosn-
inga í landinu 2. apríl nk. Kom tilkynningin í kjölfar
ákvörðunar Thaksins Shinawatras, forsætisráð-
herra Taílands, um að leysa upp þingið eftir hávær-
ar kröfur andstæðinga hans á undanförnum mán-
uðum um að hann segði af sér embætti vegna
áskana um fjármálamisferli.
Sjálfur bað Thaksin almenning afsökunar á því
að þurfa að kalla til nýrra kosninga vegna þrýstings
andstæðinga sinna. „Ég get ekki samþykkt skríl-
ræði,“ sagði Thaksin, sem hefur á liðnum árum ver-
ið gagnrýndur fyrir margvíslega spillingu. „Ég er
reiðubúinn til að hlíta vilja fólksins en ég mun aldrei
samþykkja ákvarðanir einstaklinga, sem enginn
hefur kosið til valda, en sem þykjast hafa umboð al-
mennings,“ sagði forsætisráðherrann.
Staða Thaksins á þinginu er engu að síður mjög
sterk, en alls vann flokkur hans 375 af þeim 500
sætum sem voru í boði í þingkosningunum í febrúar
2005. Þá er hann fyrsti lýðræðislega kjörni for-
sætisráðherra landsins til að sigra í tvennum þing-
kosningum í röð. Það er því ekki búist við að fyr-
irhugaðar kosningar muni leiða til stjórnarskipta.
Snýst óánægja kjósenda fyrst og fremst um sölu
Thaksins og fjölskyldu hans á hlut sínum í símaris-
anum Shin Corp. til fjárfestingafyrirtækis á Singa-
púr fyrir um 126 milljarða íslenskra króna. Saka
andstæðingar forsætisráðherrans hann um að hafa
komið sér undan því að greiða skatt af sölu bréf-
anna, auk þess sem sumir gagnrýnendur hans segja
að salan á bréfunum til erlends fyrirtækis sé hugs-
anleg ógn við þjóðaröryggi landsins.
„Flestar ásakanirnar eru tilraunir til að rugla
saman málefnum með því að tengja saman ólíkar
fréttir,“ sagði Thaksins í samtali við Bangkok Post,
en hann hefur hafnað ásökunum um að salan á bréf-
unum hafi verið ólögleg. Þá hafa bæði dómsmála-
yfirvöld og taílenska fjármálaeftirlitið hreinsað
hann af ásökunum um lögbrot vegna sölunnar.
Öðru máli gegnir um son forsætisráðherrans,
Phantongtae Shinawatra, sem fjármálaeftirlitið
sakar um þrjú „minniháttar“ brot í tengslum við
eign hans á bréfum í Shin Corp. Samkvæmt taí-
lenska viðskiptablaðinu Business Day eru þau brot
hins vegar ekki talin réttlæta ákærur og verður
hann að öllum líkindum beittur fjársektum.
Á undanförnum mánuðum hefur verið róstusamt
í Taílandi og er búist við 50.000 þátttakendum í fyr-
irhuguðum mótmælum í Bangkok á sunnudag.
„Thaksin verður að hætta skilyrðislaust,“ sagði
Suriyasai Katasila, talsmaður Bandalags fólksins
fyrir lýðræði, en hann er einn af helstu andstæð-
ingum forsætisráðherrans sem hyggst taka þátt í
mótmælunum. „Að leysa upp þingið og efna til
nýrra kosninga er ekki lausnin á vandanum því að
forsætisráðherrann er kjarni vandamálsins,“ sagði
Katasila.
Shinawatra leysir upp þingið
AP
Thaksin Shinawatra ávarpar þjóð sína í gær.
Forsætisráðherra Taílands boðar til nýrra kosninga í byrjun apríl
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
REKTOR hins virta Harvard-há-
skóla í Bandaríkjunum, Lawrence
Summers, tilkynnti um afsögn sína í
vikunni en hann
hafði sinnt starf-
inu í fimm ár.
Sagði hann
ástæðuna vera
deilur við kenn-
ara skólans, er
gert hafi sér erf-
itt um vik að
sinna starfinu.
Fyrirhugað var
að í næstu viku
myndu kennarar
við lista- og vís-
indadeild skólans greiða atkvæði um
vantraustsyfirlýsingu á Summers.
Summers, sem var fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna 1999–2001, olli
miklum deilum á síðasta ári þegar
hann sagði á ráðstefnu í Harvard að
eðlislægur munur á kynjunum gæti
ef til vill útskýrt hvers vegna mun
færri konur en karlar sinni vísinda-
störfum í háskólum.
Summers virtist hafa tekist að slá
striki yfir þær deilur er hann baðst
afsökunar á ummælunum en frétta-
skýrendur segja, að undanfarið hafi
óánægja vaxið á ný með stjórnunar-
aðferðir Summers.
Summers sagðist ætla að taka sér
leyfi í eitt ár en að hann myndi síðan
snúa aftur til Harvard og taka þar til
starfa á ný sem prófessor.
Rektor
hrökklast
úr starfi
Lawrence
Summers
Kano. AFP. | Að minnsta kosti þrír
voru drepnir og níu kirkjur brennd-
ar til grunna í Nígeríu í gær en átök
milli kristinna manna og múslíma
hafa blossað upp í landinu sl. viku.
Hafa á annað hundrað manns beðið
bana en átökin tengjast birtingu
skopmynda á Vesturlöndum af Mú-
hameð spámanni.
Fullyrt var á fimmtudag að
kristnir menn í borginni Onitsha í
suðausturhluta Nígeríu hefðu drepið
a.m.k. áttatíu múslíma í vikunni.
Voru morðin hefnd fyrir árásir gegn
kristnum mönnum í norðurhlutan-
um. Tiltölulega rólegt var í landinu í
gær en menn óttast að til frekari
átaka muni koma. Um 120 milljónir
manna búa í Nígeríu, um helmingur
er múslímar og hinn helmingur
kristinnar trúar og andatrúar. Hafa
samskipti trúarhópanna verið
stormasöm hin síðari ár.
!"
# "
$"
$%"
&'"
('"
$'
)*+,-./
!
"
#$ %!&
'
' ' ( )' &$
'
* &
)+ ,
- . /' 0/ $&
%-
$ /
'
!
1!/ $
- & "
#
0 ' $
0 '
Mikil
spenna í
Nígeríu
♦♦♦