Morgunblaðið - 25.02.2006, Page 24
Húsavík | Meðal dagskráratriða á Dillidögum
Framhaldsskólans á Húsavík var hin geysivinsæla
undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna sem
fór fram að viðstöddu fjölmenni á Fosshóteli
Húsavík.
Mikil stemmning var á Fosshóteli á meðan
keppnin fór fram. Þátt tóku átta nemendur skól-
ans og sigraði Elísabet Anna Helgadóttir með
flutningi sínum á laginu Blame it on the Sun. Í
öðru sæti varð Rafnar Orri Gunnarsson sem söng
lagið um litla tónlistarmanninn og í því þriðja varð
Mikael Þorsteinsson sem skeytti saman tveimur
lögum eftir Foo Fighters og gerði að sínu. El-
ísabet Anna heldur áfram í keppninni.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigraði í söngkeppni á Dillidögum
Söngur
Söngvari Elísabet Anna Helgadóttir mun taka þátt í söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd FSH.
Akureyri | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Mikill og vaxandi stuðningur er við tvö-
földun og lýsingu Suðurlandsvegar milli
Reykjavíkur og Selfoss. Þetta er heitasta
málið á Árborgarsvæðinu varðandi sam-
göngumál. Það kom berlega fram á fundi
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 16.
febrúar þar sem samgönguráðherra
mætti og lýsti sínum áherslum. Hann vill
ekki stíga þetta skref alla leið heldur
leggja þriggja akreina veg með vegriði,
án lýsingar, líkt og gert hefur verið í
Svínahrauni. Selfossbúar og Hvergerð-
ingar fylgjast vel með en viðbrögð sam-
gönguyfirvalda þykja ekki nógu sannfær-
andi.
Umferðin á milli Selfoss og Hveragerðis
hefur frá árinu 1992 aukist um 91% á
Hellisheiði um 83% og á Sandskeiði um
76%. Umferðin á síðasta ári milli Selfoss
og Reykjavíkur jókst um 6–10% á ofan-
greindum vegarköflum. Á sumardögum
náði umferðin 9.188 bílum á Sandskeiði
og 7.796 á Hellisheiði.
Stjórn og stjórnarandstaða hafa stillt
sér upp í málinu. Stjórnarandstaðan er
með þingsályktunartillögu sem stjórn-
arþingmenn vildu ekki flytja með þeim. Í
henni segir að tvöfalda og lýsa eigi veg-
inn á næstu 4 árum. Samgönguráðherra
býður upp á 3 akreina veg en vill ekki
tímasetja framkvæmdir hvað þá nefna
tímasetningu á tvöföldun. Segja má að
staðan sé 1–0 fyrir stjórnarandstöðuna
þar til samgönguráðherra hefur spilað út
samgönguáætlun sinni. Björgvin Sigurðs-
son þingmaður heldur málinu mjög á
lofti og veitir gott aðhald. Ætli ráð-
herrann að trompa Björgvin út verður
hann að vera með tvöföldun og lýsingu í
spilunum á næstu 4–6 árum og byrja
framkvæmdir strax í vor.
Það kostar 7–8 milljarða króna að tvö-
falda og lýsa Suðurlandsveginn milli
Reykjavíkur og Selfoss sem er svipaður
kostnaður og við fyrirhuguð Héðinsfjarð-
argöng.
Úr
bæjarlífinu
SELFOSS
EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA
Raggagarði í dag. Meðal annars kenndi
hann unglingunum hvernig á að nota
„Sport group“-tækið í Orkulundinum. Á
eftir voru svo leiktækin í fjölskyldugarð-
inum prófuð og teknar salíbunur í ap-
arólunni og fleiri leiktækjum sem ætluð
eru unglingum.
Það mætti halda að kominn værimaí eftir veðrinu að dæma. Blíð-skaparveður er á Vestfjörðum
þessa dagana.
Veðrið var svo gott að íþróttakenn-
arinn við Súðavíkurskóla ákvað að hafa
íþróttakennsluna fyrir unglingana í
Ljósmynd/Vilborg Arnardóttir
Íþróttakennslan í Raggagarði
Pétur Stefánssongetur ekki látiðdag líða án þess að
setja saman stöku:
Dagur kveður, bregður birtu,
blikar roði sólarlagsins.
Við eldhúsborð er skáld í
skyrtu
að skrifa fyrstu vísu dagsins.
Friðrik Steingrímsson:
Eflaust frúin þakkar þér
þegar birtan dvínar,
að þú situr ekki ber
við yrkingarnar þínar.
Hjálmar Freysteinsson
yrkir um Íslands mætustu
þegna:
Hún Silvía er sexí og slyng
ég sæll mundi gef’enni hring
– fegustri rósa –
mér finnst ætti að kjósa
Ragnar Reykás á þing.
Að lokum náttúru-
stemmning frá Sigrúnu
Haraldsdóttur:
Öll er vakin eftirtekt,
áin hljóma semur.
Undur vorsins yndislegt
yfir heiminn kemur.
Silvía
er sexí
pebl@mbl.is
Reykjanesbær | Bæjarráð Reykjanesbæjar
hefur samþykkt samhljóða að fela bæjar-
stjóra að kanna möguleika á strætisvagna-
ferðum milli Reykjanesbæjar og höfuðborg-
arsvæðsins í samstarfi við Strætó
Reykjanes/Kynnisferðir og Strætó bs.
Fram kemur í greinargerð að íbúum hef-
ur fjölgað mjög í Reykjanesbæ og margir
sæki vinnu til höfuðborgarinnar. Styttri tími
í akstri vegna tvöföldunar Reykjanesbraut-
ar og aukinn fjöldi háskólanema héðan, sem
sækja nám á höfuðborgarsvæðinu, gefur til-
efni til að kanna hvernig sé unnt að fjölga
ferðum á milli þessara staða.
Strætó Reykjanes býður ókeypis ferðir á
milli bæjarhluta í Reykjanesbæ, en tenging
við höfuðborgarsvæðið hefur verið með
áætlunarferðum SBK/Kynnisferða. Með því
að tengjast strætisvagnakerfinu á höfuð-
borgarsvæðinu, væri unnt að bæta þjónustu
við íbúa Reykjanesbæjar. Einnig væri tæki-
færi til að auka tíðni ferða á milli Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar, Bláa lónsins og
Reykjanesbæjar, segir í bókun bæjarráðs.
Athuga strætó
til Reykjavíkur
Grindavík | Níu bjóða sig fram í prófkjöri
sem fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í
Grindavík efnir til í dag, vegna uppstill-
ingar á framboðslista vegna komandi
sveitarstjórnarkosningar. Tveir bjóða sig
fram í fyrsta sætið, Sigmar J. Eðvarðsson,
oddviti flokksins í bæjarstjórn, sem býður
sig fram í 1. sæti og Gísli Jóhann Sigurðs-
son húsasmiður sem býður sig fram í 1.–3.
sæti.
Kosið verður um sjö efstu sætin. Auk
Sigmars og Gísla Jóhanns hafa eftirtaldir
gefið kost á sér: Guðbjörg Eyjólfsdóttir
skrifstofukona (2.–3. sæti), Guðmundur
Pálsson tannlæknir (2. sæti), Heiðar Hrafn
Eiríksson útibússtjóri (5.–6. sæti), Karen
Matthíasdóttir förðunarfræðingur (5.–6.
sæti), Magnús Már Jakobsson öryggis-
fulltrúi (3.–4. sæti), Pétur R. Guðmunds-
son verkefnastjóri (4. sæti) og Svanþór
Eyþórsson iðnfræðingur (2.–4. sæti).
Sjálfstæðisflokkurinn hefur tvo fulltrúa
í bæjarstjórn og myndar meirihluta með
Samfylkingunni. Margrét Gunnarsdóttir
bæjarfulltrúi gefur ekki kost á sér til end-
urkjörs.
Atkvæði verða greidd í Verkalýðshúsinu
í Grindavík í dag, frá klukkan 10 til 18 og
verða úrslit kunn í kvöld.
Níu gefa kost á
sér í prófkjöri í
Grindavík
♦♦♦