Morgunblaðið - 25.02.2006, Page 34
34 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
1. Réttarríkið á tímum
hnattvæðingar
Bæði hnattvæðing og aukinalþjóðaviðskipti hafahaft jákvæð áhrif, brotiðniður múra á milli þjóða
og stuðlað að aukinni velferð fjöl-
margra. Norrænu ríkin hafa öðrum
fremur átt sitt undir þróuðum al-
þjóðlegum viðskiptum og byggt
velferð sína á þeim.
Í kjölfar alþjóðavæðingar hafa
komið til neikvæð áhrif. Brota-
starfsemi hvers kon-
ar hefur fengið stöð-
ugt alþjóðlegra
einkenni. Einnig því
hafa Norðurlöndin
fengið að kynnast.
Allir þekkja þau al-
þjóðlegu stórfyr-
irtæki sem lent hafa í
alvarlegum fjármála-
hneykslum á okkar
dögum. Þar má sem
dæmi nefna Enron,
Tyco, Maxwell,
Worldcom, BCCI,
Elf, Parmalat og
fleiri frá síðustu árum en þessi mál
hafa haft bæði bein og óbein áhrif á
líf okkar allra, ekki síst Enron-
málið. Hið alþjóðlega endurskoð-
unarfyrirtæki Arthur Andersen
þurrkaðist út af kortinu á einni
nóttu en var þó með þeim stærstu í
Noregi.
Sjaldgæfara er þó, sem betur fer,
að góðir grannar okkar í vestri – á
Íslandi – veki athygli vegna stórs
fjármálamisferlis en Baugsmálið er
umfangsmikið og vekur þar af leið-
andi athygli víða um heim. Þeir sem
ákærðir eru eiga umtalsverðan
hluta af fjölmiðlum landsins, eru
áhrifamiklir í viðskiptalífinu á Ís-
land og hafa sem slíkir væntanlega
pólitísk áhrif.
Þegar málaferli eru í gangi gegn
sakborningum með mikil áhrif ger-
ist það ekki þegjandi og hljóða-
laust. Margir hafa skoðanir á mál-
inu, hvort sem þeir hafa
áþreifanlega þekkingu á því eða
ekki. Það á jafnt við um blaðamenn,
fólk í atvinnulífinu, stjórn-
málamenn, lögfræðinga og almenn-
ing. Sjálfstæði og hlutleysi fjöl-
miðla má ekki verða fyrir
skakkaföllum þó upp komi grunur
um refsiverða háttsemi eigenda
þeirra en þetta er erfið staða og
jafnvægisþraut sem blaðamönnum
fréttamiðla tekst ekki alltaf jafnvel
að leysa. Í því sambandi má benda
á ægivald Silvios Berlusconis for-
sætisráðherra Ítalíu yfir ítölskum
fjölmiðlum. Og að baki spinna vef
sinn fjölmiðlaráðgjafar sem reyna
að hafa áhrif alls staðar sem þeir ná
til. Þannig er daglegt líf víða um
heim.
Þrátt fyrir þetta má það ekki
hafa nein áhrif á niðurstöður saka-
mála hvort hinir ákærðu hafi áhrif í
stjórnmálum, fjölmiðlum eða at-
vinnulífi. Jafnt háir sem lágir eiga
að njóta sama réttlætis og þar með
talið að því er varðar refsingu.
Ástæðulaust er þó að vera með
einhvern barnaskap. Í öllum sam-
félögum sjáum við að reynt er bæði
að beita og misbeita völdum. Það
fer eftir getu réttarríkisins til þess
að sýna hlutleysi hvort það tekst
eða ekki þegar sakamál eru tekin til
meðferðar fyrir dómstólum.
Hinar ýmsu hliðar Baugsmála
verða örugglega árum saman um-
fjöllunarefni, jafnt í fjölmiðlum sem
á almennum og fag-
legum vettvangi. Það
er styrkur lýðræð-
isins. Umræður, gagn-
rýni og sjálfsgagnrýni
eru nauðsynlegar for-
sendur réttarríkisins
og lýðræði í reynd.
En ferli Baugsmála
stöðvaðist um sinn
með dómi Hæsta-
réttar 10. október
2005, að því er virðist
vegna réttarfarslegra
smáatriða sem tengj-
ast orðalagi í ákær-
unni. Ég ber mikla virðingu fyrir
Hæstarétti Íslands sem hefur af
mikilli samviskusemi metið þau at-
riði sem honum voru fengin til úr-
lausnar.
Það þarf þó engu að síður að
fjalla um niðurstöðu hans. Verði
eftir henni farið í öðrum ríkjum
mun hún hafa umfangsmikil áhrif
hvað meginreglur varðar, langt út
yfir það sem Baugsmál snúast um,
og gengur ótvírætt þvert á almenn-
ar kröfur um gerð ákæra á Norð-
urlöndum. Hvert ríki setur sér lög-
gjöf en á mikilvægustu sviðum
höfum við alltaf átt það margt sam-
eiginlegt að samanburður getur
verið gagnlegur, ekki síst vegna
hinna mörgu alþjóðlegu tenginga.
Baugsmál eru engan veginn út-
kljáð enn og sjónarmið mín hér
byggjast því eingöngu á þeim stað-
reyndum sem ákæran snýst um,
eins og hún kemur fram í dómi
Hæstaréttar í þeirri dönsku þýð-
ingu sem ég hef undir höndum.
2. Baugsmál og frávísun
Hæstaréttar
Ákæra er mikilvægt skjal. Al-
menningur hefur rétt á því að öðl-
ast innsýn í málið og þess vegna er
skjalið opinbert. Að mati prófess-
ors Johs Andenæs, en hann er einn
virtasti fræðimaður Norðurlanda á
sviði refsiréttar, skal ákæra: 1)
greina hver það er sem talinn er
hafa haft hina refsiverðu háttsemi í
frammi, 2) leggja fyrir dómstólinn
til úrlausnar heimfærslu ætlaðra
brota til refsiákvæða, og 3) veita
ákærða nægar upplýsingar til þess
að undirbúa málsvörn sína. Aðeins
skal gerð grein fyrir meginatriðum.
Um önnur atriði verknaðarins er
fjallað við sönnunarfærsluna
mörgum dómum Hæstarétta
egs hefur verið gerð nánari g
fyrir þeim kröfum sem gerða
til einstakra atriða ákæru.
Meðal ákærðra eru fram-
kvæmdastjóri (aðalákærði),
arframkvæmdastjóri og stjó
armaður í Baugi hf. Ákæran
yfirgripsmikil en mínar at-
hugasemdir tengjast nokkru
riðum sem ég álít að séu aða
hennar.
Stjórnendur nýttu sér aðs
sína m.a. til þess að láta félag
standa straum af útgjöldum
ekki vörðuðu rekstur félagsi
formi afborgana lána, rekstr
arkostnaðar og annarra tilfa
útgjalda vegna skemmtibáts
„Thee Viking“ sem einn ákæ
átti hluta í. Samtals var Bau
látinn greiða 40 milljónir ísl.
sem dreift var á 34 reikninga
ákærulið I 1).
Algengasta leiðin til fjárdr
og eða umboðssvika í fyrirtæ
er að láta þau standa straum
gjöldum, sem ekki varða rek
þeirra og þetta gerist um he
an. Lagaákvæði sem þetta v
eru því sem næst hin sömu á
landi, í Noregi og Danmörku
sambærilegar aðstæður í No
hefðum við einnig ákært fyri
skattsvik og brot á bókhalds
vegna þeirra áhrifa á skatta-
bókhaldsmál sem þessar gre
hefðu í för með sér fyrir bæð
staklinga og fyrirtækið.
Hæstiréttur gerði margar
hugasemdir við orðalag í ákæ
Að mati hans kom ekki ótvír
fram hver hinna ákærðu hef
að hagnast á greiðslum fyrir
isins og hvernig hefði verið s
að verki, í hverju auðgunarb
hefði verið falið, hvernig mæ
verið fyrir um greiðslur og h
útgjöldin voru bókfærð.
Mat á því hvort brot hafi v
framið ræðst hlutlægt séð af
hvort réttlætanlegt hafi veri
gjaldfæra útgjöldin á Baug h
er hvort þau hafi skilað Baug
samsvarandi hagnaði. Sé ekk
það að ræða eru þær ólögleg
nema greiðslurnar séu bókfæ
sem laun, lán eða arður forst
anna. Þegar sú leið er valin a
starfsemi innan vébanda hlu
félags þarf að sýna því rekst
arformi fulla virðingu með ti
Um Baugsmál og sta
’Ég geri þær athusemdir við dóm Hæ
réttar að hann kalla
alveg nýja og aukn
fjöllun um lýsingar
vikum þar sem fjall
þarf nánar um hver
staðið var að verki
Morten Eriksen
Eftir Morten Eriksen
HUNGURSNEYÐ
Í AUSTUR-AFRÍKU
ÍAustur-Afríku vofir nú hungursneyðyfir allt að 11 milljónum manna aðtalið er vegna mikilla þurrka. Kjell
Magne Bondevik, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Noregs, sem Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hef-
ur falið að samhæfa hjálparstarfið á
þurrkasvæðunum í löndunum fimm,
Kenýa, Sómalíu, Eþíópíu, Eritreu og
Djibouti, skoraði á fimmtudag á alþjóða-
samfélagið að standa við loforð um aðstoð
með beinhörðum peningum. Í fréttum
kom fram að 574 milljónir dollara þyrfti
til að slá á áhrif þurrkanna í Kenýa, Sóm-
alíu, Eþíópíu, en að auki hafa gefendur
aðeins skuldbundið sig til að láta 186
milljónir dollara af hendi. Hyggst Bonde-
vik nú fara til Vestur-Evrópu og Norður-
Ameríku til að biðja um aukin fjárfram-
lög.
Hann var spurður hvort hneykslismál
vegna spillingar í Kenýa, pólitískur óstöð-
ugleiki í Sómalíu og pólitískt uppnám í
Eþíópíu ættu þátt í því að skortur væri á
framlögum. Bondevik kvaðst eiga bágt
með að trúa því að slíkar forsendur væru
notaðar til að refsa íbúum umræddra
landa. „Spilling er engin afsökun fyrir því
að hjálpa ekki Kenýabúum, sem á þurfa
að halda og svelta,“ sagði hann og bætti
við að þetta væri spurning um að allir
nytu sama réttar og möguleika á að sinna
sínum brýnustu þörfum.
Þetta er rétt hjá Bondevik. Það er erf-
itt að hugsa sér að neyð sveltandi fólks sé
notuð til þess að veita spilltum valdhöfum
ráðningu. Neyðaraðstoð snýst um að
koma fólki til hjálpar, sem er í brýnni
neyð, og á ekki að vera neinum slíkum
skilyrðum háð. Ástandið, sem nú er komið
upp í Austur-Afríku, er með þeim hætti að
enginn tími er fyrir málalengingar. Þetta
ástand er hins vegar umhugsunarefni. Oft
fer saman spilling og einræðisstjórn og
veikir innviðir. Þegar á bjátar skortir
nauðsynlegt bolmagn til að afstýra yfir-
vofandi neyð. Við þekkjum dæmi þess að
breytingar á veðurfari geti haft skelfileg-
ar afleiðingar og til dæmis leitt til þess að
ekkert bólar á árvissum rigningum þann-
ig að uppskerubrestur verður. Það er hins
vegar segin saga að opin lýðræðisríki eru
betur í stakk búin til að takast á við slíkar
aðstæður en lokuð einræðisríki.
Þær 11 milljónir manna, sem hungurs-
neyð blasir nú við, eiga annað og meira
skilið en neyðaraðstoð til að bjarga þeim
úr þessum vanda. Aðeins með breyttu
stjórnarfari aukast líkurnar á því að lífs-
kjör þeirra batni. Þróunaraðstoð fylgja
tvær hættur. Annars vegar getur hún
grafið undan iðnaði og atvinnuvegum,
sem fyrir hendi eru í viðkomandi landi.
Hins vegar getur hún auðveldað spilltum
ráðamönnum að halda völdum. Hvorugt
má gerast. Rétt eins og fólk, sem sult-
urinn blasir við, á ekki skilið að vera refs-
að fyrir rangláta valdhafa með því að fá
ekki neyðaraðstoð, á það ekki heldur skil-
ið að því verði refsað með þróunaraðstoð,
sem jafnvel rýrir lífskjör þess og dregur
úr möguleikum þess næst þegar hungurs-
neyð brestur á. Alþjóðasamfélagið á að
bregðast tafarlaust við neyðinni í Austur-
Afríku, en uppbygginguna á að ráðast í að
vandlega yfirlögðu ráði.
FRUMVARP UM FJÁRMÁLAEFTIRLIT
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð-herra hefur lagt fram á Alþingi
frumvarp, sem miðar að því að styrkja
eftirlitsheimildir Fjármálaeftirlitsins
(FME) og auðvelda því að gegna hlut-
verki sínu. Verði frumvarpið að lögum,
verða lagfærðir ýmsir vankantar á nú-
verandi löggjöf um Fjármálaeftirlitið,
sem margir hverjir hafa orðið hróplega
augljósir í rannsókn þess, sem enn stend-
ur yfir, á viðskiptum með stofnfjárhluti í
Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Samkvæmt frumvarpinu verða í fyrsta
lagi tekin af öll tvímæli um að Fjármála-
eftirlitið hefur heimild til eftirlits ekki
aðeins með fjármálafyrirtækjum sem
slíkum, þ.e. svokölluðum eftirlitsskyld-
um aðilum, heldur einnig einstaklingum
og fyrirtækjum, sem t.d. eiga, hafa átt
eða hyggjast eignast hluti í slíkum fyr-
irtækjum. Um þetta var deilt í SPH-mál-
inu en kemst nú væntanlega á hreint.
Þá er tekinn af allur vafi um að FME
getur beitt þvingunarúrræðum, m.a.
dagsektum, gagnvart einstaklingum eða
fyrirtækjum, sem neita að veita upplýs-
ingar í tengslum við athuganir stofnun-
arinnar eða sinna ekki kröfum hennar
um umbætur. Einnig þetta var umdeilt í
SPH-málinu. Í greinargerð með frum-
varpinu er vitnað til þessa máls og þeirr-
ar niðurstöðu kærunefndar, sem skjóta
hefur mátt ákvörðunum FME til, að
heimild stofnunarinnar til upplýsinga- og
gagnaöflunar væri skýr, en ekki heim-
ildir hennar til að leggja á dagsektir,
vildu menn ekki láta upplýsingarnar af
hendi. Þar segir að niðurstaða kæru-
nefndarinnar hafi skapað skaðlega
óvissu um eftirlit með myndun virkra
eignarhluta í fjármálafyrirtækjum.
„Verður að teljast óviðunandi að eigend-
ur eignarhluta geti virt að vettugi fyr-
irspurnir Fjármálaeftirlitsins án þess að
eftirlitið hafi úrræði til að fylgja fyrir-
spurnunum eftir. Er því nauðsynlegt að
Fjármálaeftirlitið hafi tiltæk úrræði til
að afla þeirra upplýsinga sem lagt er á
eigendur eignarhluta að veita lögum
samkvæmt,“ segir í greinargerðinni.
Í þriðja lagi er lagt til að kærunefndin
um opinbert eftirlit með fjármálastarf-
semi verði lögð niður. Fjármálaeftirlitið
hefur gagnrýnt að ekki sé hægt að skjóta
úrskurðum nefndarinnar til dómstóla.
Það sé óeðlilegt, vegna þess að þeir geti
haft grundvallarþýðingu fyrir starfsemi
stofnunarinnar og þróun fjármálamark-
aðarins. Í frumvarpinu er lagt til að færa
fyrirkomulagið hér á landi til sama horfs
og í Svíþjóð og Finnlandi, þ.e. að hafa
enga kærunefnd en hins vegar heimild til
að skjóta ákvörðunum FME til dómstóla.
Í fjórða lagi er hnykkt á því að þagn-
arskylda á einstökum sviðum komi ekki í
veg fyrir skyldu þeirra, sem FME krefur
um upplýsingar, til að láta þær af hendi.
Um þetta var ennfremur deilt í SPH-
málinu, þar sem lögmenn sem málinu
tengdust, töldu vegið að trúnaðarskyldu
sinni við skjólstæðinga
Auk þessa er lagt til að skilgreint verði
nánar í lögum hvernig óbeinn virkur
eignarhlutur geti orðið til í fjármálafyr-
irtæki og er það áreiðanlega nauðsynlegt
með hliðsjón af þróun hlutabréfamark-
aðarins hér, þar sem eignatengsl eru
flókin og margslungin.
Þá er lagt til að ákvæði um að FME
beri að láta viðskiptaráðherra vita af því,
ef það lætur lögreglu vita af grun um al-
varleg lögbrot, verði afnumið. Það er í
takt við þá upphaflegu ætlun löggjafans,
að Fjármálaeftirlitið sé sjálfstæð stofn-
un, sem ekki er háð hinu pólitíska valdi.
Á heildina litið eru þær breytingar,
sem lagðar eru til í frumvarpi viðskipta-
ráðherra, allar til bóta og augljóslega
brýnt að hrinda þeim í framkvæmd til að
Fjármálaeftirlitið geti rækt hlutverk sitt
sem skyldi og tryggt þannig heilbrigða
starfshætti á fjármálamarkaðnum.
Sigurður Ingvarsson, for-stöðumaður Tilrauna-stöðvar Háskóla Íslands ímeinafræði á Keldum,
segist binda vonir við að stjórnvöld
taki fljótlega ákvörðun um að koma
upp bráðabirgðarannsóknastofu
fyrir krufningar hér á landi, en
auknar líkur séu á því að fugla-
flensa kunni að berast til landsins.
Á slíkri stofu yrði hægt að rannsaka
sýni úr fuglum þar sem leitað er að
inflúensuveirunni H5N1, en eins og
er þarf að senda slík sýni til Bret-
lands til rannsókna.
Sótt er um fé vegna byggingar
rannsóknaaðstöðu til menntamála-
ráðuneytisins og átti Sigurður fund
með ráðuneytisstjóra þess á mið-
vikudag. Hann segir ráðuneytið
hafa verið jákvætt gagnvart því að
bregðast þyrfti við í málinu, en
kostnaður vegna byggingar bráða-
birgðarannsóknastofu nemur um
25 til 30 milljónum króna, að sögn
Sigurðar. Um þrjá mánuði tekur að
koma upp slíkri aðstöðu.
Viðræður í fimm ár
Sigurður segir Keldur hafa átt í
viðræðum við menntamálaráðu-
neytið undanfarin fimm ár vegna
uppbyggingar nýrrar krufningar-
og öryggisrannsóknastofu, þar sem
hægt yrði að rannsaka mishættuleg
Vonast til að fljótl
koma upp bráðab
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Forstöðumaður Keldna um viðræður við stjórnvöld
R