Morgunblaðið - 25.02.2006, Síða 37

Morgunblaðið - 25.02.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 37 UMRÆÐAN GRAND HÓTEL HÓTEL NORDICA SIGTÚN (gamla Blómaval) Þriðja Þjóðahátíð Alþjóðahússins verður haldin þann 26. febrúar. Fulltrúar þrjátíu þjóða kynna sig og menningu sína! Skemmtiatriði allan daginn á sviðinu. Opnað verður kaffihús – Kaffi Abbababb (bara opið þennan dag) Hátíðin fer fram í Blómavalshúsinu við Sigtún í Reykjavík og er opið frá kl. 12-17. Á VIÐSKIPTAÞINGI fyrr í þess- um mánuði hélt Ágúst Guðmunds- son stjórnarformaður Bakkavarar áhugavert erindi um þá framtíð- arsýn sem við honum blasir í at- vinnumálum Íslendinga. Afdrátt- arlausar yfirlýsingar hans um slaka arðsemi virkjanaframkvæmda og rangar áherslur í atvinnupólitík Ís- lendinga, vöktu fjölmarga til um- hugsunar. Ágúst taldi nauðsynlegt að leggja aukna áherslu á uppbygg- ingu fyrirtækja sem skiluðu Íslend- ingum mestum virðisauka svo sem þjónustu og hátækniiðnað. Arðsemi virkjana Umræða um arðsemi Kára- hnjúkavirkjunar er að vísu ekki ný á nálinni, en því miður hafa þar oft blandast inn náttúruverndarsjón- armið og byggðasjónarmið sem eiga þó fullan rétt á sér en flækja arð- semisumræðuna. Það er einnig slæmt að þeir fjölmörgu aðilar í ís- lensku fjármálaumhverfi sem hafa mikla sérþekkingu á arðsemi fjár- festinga og hafa náð afburðaárangri í fjárfestingum á undanförnum árum skuli ekki tjá sig um jafn þjóðhags- lega mikilvægt mál. Landsvirkjun hefur upplýst að arðsemi eiginfjár sé viðunandi af Kárahnjúkavirkjun eða um 11%. Sú niðurstaða byggist á því að ríkið nið- urgreiðir framkvæmdina með því að veita fyrirtækinu tekjuskattfrelsi og ríkisábyrgðir sem tryggir fram- kvæmdinni óeðlilega lága vexti en virkjunin er að mestu fjármögnuð með lánsfé. Einföld leið til að meta arðsemi fjárfestinga er að meta hvað annað hefði verið hægt að kaupa fyrir sam- bærilega upphæð. Þetta er í raun það arðsemismat sem flestir ein- staklingar gera þegar þeir ráðstafa fjármunum sínum. Á fyrrnefndu við- skiptaþingi hélt forsætisráðherra áhugaverða ræðu m.a. um mjög vel heppnaða einkavæðingu undanfar- inna ára. Þar kom fram að á þessum tíma hefði heildarsala á ríkisfyr- irtækjum skilað ríkissjóði rúmum 140 milljörðum. Líklegt er að heild- arkostnaður vegna orkuöflunar í tengslum við Kárahnjúka verði um 70% af þeirri fjárhæð eða a.m.k. 100 milljarðar. Síminn var t.d seldur fyr- ir nokkrum mánuðum fyrir um 75 milljarða, þannig að ef menn telja að virkjunin skili ásættanlegri arðsemi miðað við Símann, þá þarf hún að skila um 35% hærri arðsemi en Sím- inn. En það verður að öllum lík- indum Síminn sem mun skila mun meiri arðsemi þrátt fyrir skattfrelsi og ríkisábyrgðir virkjunarinnar. Önnur einföld leið til að meta arð- semina er að skoða árlegar tekjur (ekki hagnað) af raforkusölu frá Kárahnjúkavirkjun, sem verða lík- lega um 6–8 milljarðar. Ef það er sett í samhengi við 100 milljarða fjárfestingu þá þarf ekki flókna út- reikninga til að sýna að arðsemi framkvæmdanna er afar slök. Sértækar aðgerðir fyrir stóriðju Í álverinu verða til um 400 ný störf, stjórnvöld eru því tilbúin að fjárfesta um 250 milljónir í hverju starfi sem skapast án þess að gera eðlilegar kröfur til arðsemi fjár- magnsins. Í ofanálag við þessa slöku arðsemi raforkuframleiðslunnar og miklu fjárbindingu þá eru stjórnvöld og sveitarfélög einnig tilbúin að gera sértæka samninga við stóriðjufyr- irtækin. Þessir samningar eru nokk- uð breytilegir milli fyrirtækja, en sem dæmi má taka nokkur atriði úr samningnum við Fjarðaál. Fyr- irtækið fær 90% afslátt af stimp- ilgjöldum, það er undanskilið vöru- gjöldum, markaðs- og iðnaðarmálagjaldi og greiðir 5% tekjuskatt af arði í stað 10%. Þá fær fyrirtækið verulegan afslátt af leyf- isgjöldum vegna byggingarfram- kvæmda og umtalsverðan afslátt af fasteignagjöldum til frambúðar. Það þarf ekki að taka fram, að hátækni- fyrirtæki, þjónustufyrirtæki og önn- ur fyrirtæki í eigu Íslendinga fá eng- ar þessara ívilnana. Áhrif á starfsmenn og eigendur annarra fyrirtækja Þessi atvinnustefna með gríð- arlegum inngripum stjórnvalda hef- ur haft mikil áhrif á fyrirtæki í út- flutningsiðnaði og samkeppnisiðnaði. Skýrustu dæmin sem endurspegla lakari kjör og at- vinnuóöryggi starfsmanna þessara fyrirtækja eru launalækkanir sjó- manna um 20–30% og uppsagnir starfsmanna í fiskvinnslu. Í raun hafa starfsmenn allra annarra fyr- irtækja í útflutnings- og samkeppn- isiðnaði orðið fyrir sambærilegum áhrif- um. Hluthafar fyr- irtækjanna hafa einnig orðið fyrir mikilli eignaskerðingu og jafnvel hefur komið til gjaldþrota fyrirtækja vegna langvarandi erf- iðra rekstrarskilyrða. Frekari stóriðja Nú er mjög í um- ræðunni frekari upp- bygging stóriðju. Það er að mínu mati alger grundvall- arkrafa ef á að verða af frekari upp- byggingu virkjana fyrir stóriðju hér á landi, að það verði án beinna af- skipta ríkis og sveitarfélaga.  Ekki verði um að ræða rík- isábyrgðir og skattleysi fyrir virkjanirnar.  Virkjanafram- kvæmdir verði boðnar út sem einkafram- kvæmdir, þar sem framkvæmd- araðilinn greiðir fyrir aðgang að náttúru- auðlindum.  Stóriðjufyrirtæki búi við sömu starfsskilyrði og önnur fyrirtæki sem starfa hér á landi. Þá verður ekki deilt um arðsemi framkvæmdanna og önnur fyrirtæki geta ekki kvartað undan ruðn- ingsáhrifum þeirra. Ríkisrekin atvinnustefna Hörður Arnarson fjallar um arðsemi stóriðju ’Það er að mínu mati alger grundvallarkrafa ef á að verða af frekari uppbyggingu virkjana fyrir stóriðju hér á landi, að það verði án beinna afskipta ríkis og sveitarfélaga.‘ Hörður Arnarson Höfundur er forstjóri Marel hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.