Morgunblaðið - 25.02.2006, Page 38

Morgunblaðið - 25.02.2006, Page 38
38 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HÁSKÓLINN á Akureyri hefur gegnt lykilhlutverki fyrir Akureyri á undanförnum árum. Staðsetning skólans hér hefur orðið til þess að auðvelda aðgengi fjölda fólks að menntun um leið og uppbygging hans og rekstur hefur skapað mörgum atvinnu sem ella hefðu þurft að leita hennar á suðvest- urhorninu. Mikilvægi skólans liggur þó fyrst og fremst í því að með starfsemi sinni leggur hann grunn að nýsköp- un atvinnulífs á lands- byggðinni almennt og Akureyri og Eyjafjarð- arsvæðinu sérstaklega. Allir sem kynnt hafa sér starfsemi skólans eru meðvitaðir um þetta, gera sér grein fyrir því að hann er stóriðja á Akureyri og skiptir öllu máli fyrir framtíð þessa svæðis. Það er þess vegna afar áríðandi að starfsemi há- skólans verði tryggð til framtíðar og að hann fái áfram að vaxa og þróast í takt við þarfir samfélagsins. En það eru blikur á lofti. Á undanförnum mánuðum hafa borist fréttir af við- varandi hallarekstri skólans og stjórnendur hans hafa þurft að breyta áætlunum sínum og draga saman seglin vegna ónógra fjárveit- inga. Vandinn á sannarlega ekki rætur að rekja til sóunar og óráðsíu heldur einfaldlega til þess að fjár- veitingar ríkisvaldsins eru ekki í samræmi við þarfir skólans. Annars vegar vegna þess að ríkið er ekki tilbúið til þess að greiða þann kostnað sem skólinn þarf að greiða í leigu fyrir aðstöðu í rann- sóknarhúsi háskólans, hins vegar vegna þess að framlög til skólans vegna nemenda og rannsókna eru lægri en til annarra íslenskra háskóla og duga því ekki fyrir rekstr- arkostnaði. Þessi staða er óvið- unandi. Allir þeir sem gæta vilja hagsmuna íbúa á Akureyri, hvar í flokki sem þeir standa, hljóta að vera tilbúnir til þess að sameinast í baráttu fyrir augljósu sanngirn- ismáli. Vandinn er þekktur og stafar af því að skólanum er skammtað minna fé en eðlilegt og sanngjarnt er. Lausnin er einföld og felst í því að fjárveitingar til skólans verði leið- réttar þannig að nemendaframlög verði sambærileg við framlög til skólanna á suðvesturhorninu og að ríkið taki á sig leigukostnað vegna rannsóknarhússins. Krafa allra þeirra sem átta sig á mikilvægi Há- skólans á Akureyri hlýtur þess vegna að vera að stjórnvöld bregðist þegar í stað við og fjárveitingar verði leiðréttar þannig að skólinn geti áfram sinnt því mikilvæga hlut- verki sem hann hefur fyrir íslenskt samfélag. Þeir sem skipa bæj- arstjórn Akureyrar hafa á hverjum tíma þá skyldu að beita áhrifum sín- um á framgang framfaramála í bæj- arfélaginu. Háskólinn á Akureyri er slíkt mál og þess vegna þarf skólinn að eiga sér málsvara í bæjarstjórn þegar hann þarf á að halda. Við sem skipum lista Samfylkingarinnar fyr- ir komandi bæjarstjórnarkosningar erum svo sannarlega tilbúin til þess að gegna þessu hlutverki. Til varnar Háskól- anum á Akureyri Hermann Jón Tómasson fjallar um mikilvægi Háskólans á Akureyri ’Þeir sem skipa bæj-arstjórn Akureyrar hafa á hverjum tíma þá skyldu að beita áhrifum sínum á framgang framfaramála í bæjarfélaginu.‘ Hermann Jón Tómasson Höfundur skipar 1. sæti á lista Samfylkingar fyrir komandi bæjar- stjórnarkosningar á Akureyri. HIN frjálsu fé- lagasamtök, Lands- byggðarvinir í Reykjavík og ná- grenni, hafa, í sam- starfi við nokkra grunnskóla, ýtt úr vör verkefni er varð- ar ungt fólk, 13–17 ára, heimabyggð þeirra og lýðræði. Verkefnið miðar að því að unglingarnir gaumgæfi málefni byggðar sinnar, velti fyrir sér framtíð- armöguleikum hennar og geri sér grein fyr- ir hvað þeir geti lagt af mörkum í því efni. Allt í von um að það efli bjartsýni og styrki sjálfsmynd fólksins og þar með framgang atvinnu- og menningarlífs á hverjum stað og sam- félagsins í heild. Unglingunum gefst þarna tækifæri á að koma fram með hugmyndir sínar og fylgja þeim eftir á sínum for- sendum. Reynt verður að stuðla að sýni- leika heimabyggðanna, greina það, sem gott er, halda því á lofti og vera stoltur af! Verkefnið hefur hlotið nafnið: Unglingalýðræði í sveit og bæ. En gæti allt eins vel heitið: Ég og heimabyggðin mín. Hvað get ég gert fyrir heimabyggð mína? Verkefnið er tvískipt. Fyrri hluti þess er einstaklingsbundin ritgerð- arvinna. Honum er nýlokið. Fyrstu verðlaun, sem er flugferð innan- lands fyrir tvo fyrir bestu ritgerð, verða veitt á aðalfundi samtak- anna, sem haldinn verður í Nor- ræna húsinu þann 9. mars nk. og hefst kl. 17:00. Síðari hlutinn er hópverkefni (tveir eða fleiri) og felst í einhvers konar framkvæmd eða uppákomu, svo sem leikriti, söng, dansi, myndbandi, hljómlist, ljóðagerð eða öðru eftir efnum og aðstæðum. Þar gefst krökkunum tækifæri til að draga fram eða myndgera eitt- hvað af þeim hugmyndum sem komu fram í fyrri hlutanum og þeir vilja leggja áherslu á eða um það sem betur má fara í byggð- arlaginu, gjarnan útfært á smellinn hátt! Verkefnið er unnið í góðu sam- bandi við norrænu samtökin, Hela Norden ska leva, HNSL. Þau sam- tök hafa staðið að mörgum vel heppnuðum verkefnum. Undirrituð hefur frá árinu 1996 tekið virkan þátt í mörgum þessara verkefna og stundum haft með sér ungmenni frá Íslandi. Reynslan af þessu starfi var mér hvati til að ráðast í þetta verkefni. Verðlaun fyrir bestu lausn í síðari hlutanum verð- ur ferð til Norðurlanda í samráði við HNSL. Nú vill svo vel til að danska rík- ið hefur nýlega veitt myndarlegan styrk í verkefni, sem einmitt fjallar um ungt fólk og lýðræði. Í kjölfarið hefur verið ákveðið að Danir fari með formennsku í HNSL 2006. Verkefnið, Unglingalýðræði í sveit og bæ, er tilraunaverkefni, þar sem aðeins ákveðnir skólar áttu kost á að taka þar þátt: Suð- urland – Grunnskólinn í Hvera- gerði; Vesturland – Varmalands- skóli í Borgarfirði; Norðurland – Grenivíkurskóli; Austurland – Grunnskólinn í Breiðdalshreppi. Vestfirðir koma inn sérstaklega með þátttöku Grunnskóla Vest- urbyggðar. Til að gefa verkefninu meiri breidd var ákveðið að hafa þar með einn skóla í útjaðri Reykjavíkur, Víkurskóla í Graf- arvogi. Ábyrgðarmaður verkefnisins er hönnuður þess og stjórnandi, Fríða Vala Ásbjörnsdóttir, kennari við Rétt- arholtsskólann í Reykjavík. Sérstakir samstarfsaðilar hennar eru: Sigurlína Davíðs- dóttir, dósent við Há- skóla Íslands, Sigurbjörn Mar- inósson, yfirmaður skólamála Austur- lands, Stjórn Lands- byggðarvina í Reykja- vík og nágrenni. Verndari verkefnisins er Unnur Birna Vil- hjálmsdóttir, fegurð- ardrottning. Metur Unnur Birna verkefnið það mikils að hún kýs að leggja hönd á plóg- inn við framkvæmd þess, t.d. með því að heimsækja skólana með mér og hvetja krakkana til góðra verka. Mun Unnur Birna afhenda verð- launin á aðalfundinum með aðstoð ráðherra byggðamála, Valgerðar Sverr- isdóttur. Aðkoma Unnar Birnu gefur verkefninu ákveðinn meðbyr og kraft. Hlutverk Sigurlínu Dav- íðsdóttur er að meta, hvað kemur út úr verkefninu. Vaknar þá spurningin: Eftir hverju erum við að leita? Til að halda utan um það og ekki síður til að stuðla að betri árangri verkefnisins hefur Sigurlína samið spurningalista og sent út til allra þátttökuskólanna. Við Sigurlína höfum núna heim- sótt alla skólana, sem ætla sér að vinna verkefnið, tekið „púlsinn“ og farið yfir ferlið. Hafa þessar heim- sóknir verið gagnlegar, og mörgum spurningum svarað, ekki síst frá krökkunum. Nú er það svo, að 16 ára ung- lingar, sem hætta skólagöngu í bili eftir að skyldunámi lýkur, eru dá- lítið afskiptir af kerfinu. Ætlun okkar er að láta verkefnið ná til þessa hóps líka og þá í gegnum hin svonefndu Ungmennahús eða fé- lagsmiðstöðvar á Íslandi. En þeim fer sífellt fjölgandi. Í upphafi var einungis gert ráð fyrir að eitt Ungmennahús tæki þátt í verkefninu, en nú lítur út fyrir að þau verði fleiri frá sama landssvæði. Ætlunin þar er að gera lýðræðishlutanum sérstök skil. Oft er það fjárhagurinn sem set- ur góðum verkefnum stólinn fyrir dyrnar. Þegar hafa félags-, sam- göngu- og landbúnaðarráðuneytin veitt verkefninu nokkurn fjár- stuðning, svo og Reykjavíkurborg. Einnig hafa nokkur stærstu fyr- irtæki landsins stutt það. Má þar nefna: Flugfélag Íslands, Osta- og smjörsöluna, Alcoa Fjarðaál, Norð- urál á Grundartanga, MS/MBF, Landsvirkjun, Fiskiðjuver í Ólafs- vík og Eddu útgáfu. Enn vantar þó töluvert á að endar nái saman. Þýðing fyrir aðra Við vitum öll að staða lands- byggðarinnar er víða alvarleg og því brýnt að nota fjölbreyttar að- ferðir við að örva hana og efla. Ætla má að styrkur samtak- anna, Landsbyggðarvinir í Reykja- vík og nágrenni, liggi einkum og sérílagi í getu þeirra til að leiða ólíkar stofnanir og aðila saman og fá þá til að vinna með í verkefnum til bóta fyrir landsbyggðina. Það er okkar markmið. Ný aðferðafræði í byggðaþróun Fríða Vala Ásbjörnsdóttir skrifar f.h. Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni um samstarfsverkefni borgar og landsbyggðar Fríða Vala Ásbjörnsdóttir ’Unglingunumgefst þarna tæki- færi á að koma fram með hug- myndir sínar og fylgja þeim eftir á sínum for- sendum. ‘ Höfundur er formaður og verkefnisstjóri. landlif@simnet.is ÞAÐ VILL svo til að ég get þakkað núverandi staðsetningu flugvallar í Vatnsmýrinni að eiga eiginmann minn Ævar Hjartarson á lífi ennþá. Þess vegna langar mig til að segja þá sögu í von um að einhver muni átta sig á því hve völlurinn er mikilvægur hlekkur í því að bjarga mannslífum. Við erum búsett á Akureyri. Mánudaginn 28. október hringir Æv- arr í mig úr vinnu, biður mig að koma því hann sé með mjög slæman höfuðverk og ógleði. Ég fer strax af stað (3–4 mín. akstur), átta mig á því á leiðinni að þetta muni vera heilablóðfall og bið strax um sjúkra- bíl. Ævarr er fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Rannsóknir á FSA stað- festu hinn illa grun minn. Haft var samband við lækna á LSH í Fossvogi og í samráði við þá var hafinn und- irbúningur að flutningi suður. Í hjarta mínu og barna okkar bjó ótti um að eins gæti farið og 10 árum áður en þá lést tengdamóðir mín í sjúkra- flugi suður af sömu ástæðu. Tveimur árum þar á undan var 42 ára systir mín flutt suður í sjúkraflugi með heilablæðingu. Hún náði að fara í að- gerð en varð ekki lífs auðið. Alltaf tekur einhvern tíma að und- irbúa flug og flutning sjúklings, en sem betur fer var þokkalegt veður þegar allt var tilbúið til þess að fljúga af stað með eiginmann minn. Þegar lagt var af stað var Ævarr um það bil að missa meðvitund. Það var ótrúlega mikils virði hve margir starfsmenn FSA kvöddu mig með hlýju faðmlagi. Meira að segja sjúkraflutningamað- urinn gaf mér þétt faðmlag; ég veit ekki hver hann er en er honum þakk- lát fyrir umhyggjuna. Þegar lent var í Reykjavík beið sjúkrabíll sem fór strax með Ævar á LSH í Fossvogi þar sem hann fór beint í aðgerð, starfsfólk á skurðstofu beið eftir hon- um. Ég og dóttir mín, sem flaug með okkur suður, fórum í leigubíl af flug- vellinum, en Ævarr var kominn í að- gerð þegar við komum á sjúkrahúsið. Þá tók við bið. Þeir sem hafa lent í álíka kannast örugglega við þær til- finningar sem brjótast um í brjóstinu við þessar aðstæður. Fótunum er al- gjörlega kippt undan manni, maður hefur enga stjórn á aðstæðum og eig- inlega ekki á hugsunum sínum held- ur. Að lokinni aðgerð kom Garðar Guðmundsson heilaskurðlæknir og sagði að aðgerðin hefði gengið eftir atvikum vel en ekki hefði mátt tæp- ara standa, þeir hefðu náð honum á síðustu metrunum. Hálf til ein klukkustund í viðbót og allt hefði verið búið. Blæðing var í litla heila sem stjórnar jafnvæg- isskyni og öndun. Garð- ar gaf okkur vonir um bata, en Ævarr væri enn í lífshættu og ekki hægt á þessu stigi að segja til um skaða. Tím- inn yrði að leiða það í ljós. Tók nú við tími vonar og ótta. Ævarr var í og úr öndunarvél og það var ekki fyrr en hálfum mánuði seinna að ég fékk langþráð faðmlag og í raun fyrstu vonina um lengri samleið. Þremur vikum eftir aðgerð var hann sendur aftur með sjúkraflugi norður á FSA. Þangað var gott að koma aftur. Þá tók við langt og erfitt endurhæfingarferli, fyrst á FSA í sjö til átta vikur og síðan á Kristnesi í sex mánuði. Að átta mánuðum liðnum kom Ævarr heim með göngugrind. Síðan hefur hann stundað æfingar á endurhæfingarstöðinni Bjargi alla virka daga og er nú svo komið að hann gengur einn úti með einn eða tvo stafi eftir aðstæðum, og enn, eftir þrjú ár, finnum við örlitlar framfarir. Í dag er hann búinn að ná upp krafti og styrk, vantar töluvert mikið jafn- vægi ennþá og vinstri handleggur er skertur. Sjónin var slæm eftir veik- indin, hann sá allt tvöfalt lengi vel. Nú í nóvember fékk hann ný gler- augu sem nýtast honum vel við lestur, og getur hann unnið smávegis á tölvu. Hugsun og minni eru í góðu lagi. Hann er búinn að sýna ótrúlega þolinmæði og geðprýðin er til fyr- irmyndar, enda sýnir árangurinn það. Sjá má af þessari sögu að ótrúlega langt er hægt að ná með hjálp heil- brigðisstéttanna – ef aðstæður leyfa að maður nái á sjúkrahús í tæka tíð. Mér hefur oft orðið hugsað til þess hversu heppin við vorum að vera stödd á Akureyri, þegar þetta gerð- ist. Sólarhring áður vorum við stödd í sumarbústað, klukkutíma akstur í burtu. Hvað ef þetta hefði gerst þá? Hvað ef flugvöllurinn hefði verið í Keflavík? Þarna skiptir tíminn ein- faldlega öllu máli. Það sem kemur mér til að segja þessa sögu er yfirlýsing frá svoköll- uðum Höfuðborgarsamtökum í Morgunblaðinu 29. október sl. Óskap- leg reiði gagntók mig þegar ég las hana. Mér finnst ótrúlegt að allir í þessum samtökum hafi verið sam- mála um að setja þetta á prent. Það er skelfilegt að hugsa til þess að fólk telji eftir sér að þola einhver óþægindi vegna flugvallar í Vatns- mýrinni ef það gæti orðið til að bjarga mannslífum, sem ég veit að gerist oft á ári. Og að tala um fórn og fórn- arkostnað borgarbúa er fáránlegt. Eru þeir eitthvað meira virði en við sem búum úti á landi? Ef við snúum dæminu við og hugs- um okkur hátæknisjúkrahús á Dal- vík, vildu þá ekki þessi samtök hafa flugvöll þar en ekki á Akureyri? Það er álíka langur vegur þar á milli og á milli Keflavíkur og Reykjavíkur og sennilega bara fljótlegra vegna minni umferðar. En það er sjaldnast fyrr en brennur á eigin skinni að fólk skilur hlutina. Kannski skipta þessar línur engu máli upp á framtíðarstaðsetningu vallarins en mér fannst að einhver ætti að láta í sér heyra sem hefði per- sónulega reynslu hversu dýrmætar þær mínútur urðu sem spöruðust við það að lenda í Reykjavík en ekki í Keflavík. Ef til vill er enginn feginn hversu vel fór nema við og litla fjöl- skyldan okkar. En við erum allavega þakklát fyrir þann tíma sem okkur hefur verið gefinn í viðbót. Þökk sé öllum er að komu. Ég vona að hagsmunasamtökin „Áfram“ í Dalvíkurbyggð haldi áfram að stuðla að betri byggð í landinu öllu. Reynsla af sjúkraflugi Freydís Laxdal segir frá því hvernig beint flug milli Akur- eyrar og Reykjavíkur bjargaði lífi eiginmanns hennar ’Það er skelfilegt aðhugsa til þess að fólk telji eftir sér að þola einhver óþægindi vegna flug- vallar í Vatnsmýrinni ef það gæti orðið til að bjarga mannslífum…‘ Freydís Laxdal Höfundur er fyrrverandi ljósmóðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.