Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 51 Tilboð/Útboð Tilboð óskast Tilboð óskast í Merzedes Benz Actros ár- gerð 2003 vörubíl, ekinn 160.000 km, skemmda eftir umferðaróhapp. Tilboð skilist inná heimasíðu Trygginga- miðstöðvarinnar hf. (útboð tjónabíla) í síðasta lagi kl. 8.00 að morgni 28. feb. 2006. Bifreiðin er til sýnis á Hamars- höfða 2, 110 Reykjavík, á opnunartíma. Tilboð óskast Tilboð óskast í Case 695 traktorsgröfu, árgerð 2004, skemmda eftir óhapp. Tilboð skilist inná heimasíðu Trygginga- miðstöðvarinnar hf. (útboð tjónabíla) í síðasta lagi kl. 8.00 að morgni 28. feb. 2006. Traktorsgrafan er til sýnis á Ham- arshöfða 2, 110 Reykjavík, á opnunar- tíma. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, fimmtudaginn 2. mars 2006 kl. 10:00 á eftirfar- andi eignum: Kiðárbotnar 34, fnr. 210-8381, Borgarfjarðarsveit, þingl. eig. Sumar- rós Kristín Jóhannsdóttir og Þorleifur Hannes Sigurbjörnsson, gerð- arbeiðandi Kaupþing hf. Helgugata 4, fnr. 211-1381, Borgarnesi, þingl. eig. Guðni Haraldsson, gerðarbeiðendur Sparisjóður Mýrasýslu og Söfnunarsjóður lífeyris- réttinda. Helluskógur II no. 1, 226-3711, Borgarbyggð, þingl. eig. Lárus Kristinn Viggósson, gerðarbeiðandi Tollstjóraskrifstofa. Hvammskógur 40, Skorradal, þingl. eig.Toppurinn, innflutningur ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá Almennar hf. Kollslækur, Borgarfjarðarsveit, 134-505, þingl. eig. Guðmundur Orri McKinstry og Þórður Andri McKinstry, gerðarbeiðendur Borgar- fjarðarsveit, Íbúðalánasjóður og Tollstjóraskrifstofa. Lundur 2, Borgarfjarðarsveit, fnr. 210-7154, þingl.eig. Brynjólfur O. Einarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn í Borgarnesi. Sumarbústaðalandið Bjarkarás 6, fnr. 194-442, Leirár og Melahreppi, þingl. eig. Guðjón J. Kristjánsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Vest- mannaeyja Sýslumaðurinn í Borgarnesi, 24. febrúar 2006. Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður. Styrkir Styrkir Auglýsing um tilhögun styrkveitinga til ýmissa lista- og menningarmála Menntamálaráðuneyti veitir styrki sem það ráðstafar á grundvelli umsókna til ýmissa verk- efna á sviði menningarmála, þ.m.t. íþrótta-og æskulýðsmála. Um er að ræða fé á fjárlagalið- um 02-919 1.98 Söfn, ýmis framlög mennta- málaráðuneytis, 02-983 1.10 Fræðistörf, 02-984 1.10 Norræn samvinna og 02-999 1.98 Ýmis framlög menntamálaráðuneytis. Umsóknir verði afgreiddar í apríl, júní, ágúst, október og desember og er þá miðað við þær sem fyrir- liggjandi eru við upphaf þessara mánaða. Styrkir eru veittir til verkefna á sviði menning- armála sem falla ekki undir aðra sjóði eða fjár- veitingar á vegum ríkisins. Í þeim tilvikum verður umsækjendum gerð grein fyrir því og umsókn vísað til viðkomandi aðila. Umsóknir skulu gerðar á umsóknareyðublöð- um sem fást á vef menntamálaráðuneytis eða í afgreiðslu þess á Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja- vík. Umsókn skal m.a. innihalda upplýsingar um umsækjanda og aðra er að verkefninu koma, lýsingu á verkefninu og markmiðum þess, verk- og tímaáætlun, fjárhagsáætlun og upplýsingar um aðra styrki sem verkefnið hefur hlotið eða sótt hefur verið um. Ekki verða veittir styrkir til viðburða eða verkefna sem þegar hafa átt sér stað. Hafi umsækjandi áður hlotið styrk frá menntamálaráðuneyti er ný umsókn hans að jafnaði einungis tekin til umfjöllunar hafi hann skilað fullnægjandi greinargerð vegna eldri verkefna. Eyðublöð fyrir greinar- gerðir er að finna á vef ráðuneytisins. Menntamálaráðuneyti, 20. febrúar 2006. menntamalaraduneyti.is Félagslíf Sálarrannsókna- félag Suðurnesja Þórhallur Guðmundsson mið- ill verður með skyggnilýsingar- fund sunnudagskvöldið 26. febr- úar kl. 20.30 í húsi félagsins á Víkurbraut 13, Keflavík. Húsið verður opnað kl. 20. Aðgangseyrir við innganginn. Allir velkomnir. Stjórnin. 26.2. Rosmhvalanes, 3. áfangi - Stafnes - Hafnir. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Far- arstj. Ragnar Jóhannesson. V. 2.300/2.700 kr. 3.—5.3. Landmannalaugar, skíða- og jeppaferð. Fararstj. Sylvía Kristjánsdóttir og Mar- teinn Hreiðarsson. V. 5.800/ 7.100 kr. 6.3. Myndakvöld í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 20. Kristinn Dul- aney sýnir myndir sem hann og félagar hans tóku í ferð sinni til Grænlands. Kaffinefnd Útivistar mun að venju töfra fram köku- hlaðborð í lok sýningar og er að- gangseyrir 700 kr. Sjá nánar á www.utivist.is Raðauglýsingar 569 1100 Atvinnuauglýsingar sími 569 1100 Raðauglýsingar sími 569 1100 FJÖLNIR Guðmannsson, oddviti Háskólalistans, fagnar því að tvær stærstu fylkingar stúdentaráðs, Vaka og Röskva, skuli hafa náð samkomulagi sín á milli um að starfa saman. „Fulltrúar Háskólalistans fagna því að þessar tvær stærstu fylk- ingar stúdentaráðs hafi náð sam- komulagi sín á milli um að starfa saman. Háskólalistinn vill óska Sigurði Erni, nýkjörnum formanni Stúd- entaráðs, velfarnaðar í starfi sínu. Fulltrúum Háskólalistans þykir vænt um að Vaka skuli hafa kynnt hann sem formannsefni sitt fyrir kosningar eins og Háskólalistinn hefur lagt til frá upphafi að fylk- ingar gerðu. Efst í huga okkar er þó þakk- læti til handa Elíasi Jóni Guðjóns- syni sem setið hefur í formanns- stóli Stúdentaráðs undanfarið ár. Líklega hefur enginn formaður ráðsins starfað við jafn erfiðar að- stæður. Af andstæðingum sínum var hann kallaður friðarhöfðingi og verður það að teljast ágætis einkunn. Við óskum Elíasi velfarn- aðar í framtíðinni og þökkum hon- um fyrir frábær störf í þágu há- skólastúdenta allra.“ Fagna samkomu- lagi í stúdentaráði FRÉTTIR RÆTUR, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni, hefur ákveð- ið að halda „Rótahátíð“ í samstarfi við Fjölmenningarsetur og Rauða krossinn. Hátíðin verður haldin sunnudaginn 26. mars nk. í tengslum við dag Sameinuðu þjóð- anna, gegn fordómum, sem er 21. mars. Yfirskriftin er: Fögnum fjöl- breytileika í samfélaginu. Menning barna, trúfélaga og hvers kyns menningarfjölbreytni, allt frá vest- firskri sérvisku til alþjóðlegrar keppni í fótbolta. Rótahátíð MAGNÚS Skúlason, arkitekt og forstöðumaður Húsafriðunar- nefndar ríkisins, verður með leið- sögn um Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg í dag kl. 14. Húsið þykir meðal merk- ustu húsa í Reykjavík og var ný- lega selt til nýrra eigenda. Magnús verður síðan með leið- sögn um Sundhöll Reykjavíkur, á horni Barónsstígs og Berg- þórugötu, kl. 16 sama dag. Þessar leiðsagnir eru hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Leiðsögn um Heilsuverndar- stöðina MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Símanum vegna um- mæla forsvarsmanna Dagsbrúnar í Viðskiptablaðinu í gær. „Vegna ummæla stjórnarfor- manns Dagsbrúnar á aðalfundi fyrirtækisins og forstjóra fyr- irtækisins í Viðskiptablaðinu í dag vill Síminn taka eftirfarandi fram: Síminn afgreiðir tæplega 80% beiðna um flutning á símanúm- erum sem koma frá Og Vodafone á um tveimur til fjórum dögum. Þetta kemur fram í úttekt sem Póst- og fjarskiptastofnun gerði á því hversu fljótt Síminn tengir ný símanúmer, flytur talsímanúmer milli símafyrirtækja og tengir ADSL við símanúmer við- skiptavina sinna og annarra fjar- skiptafyrirtækja á árinu 2005. Könnunin var gerð í lok síðasta árs. Þetta er skilvirkasta þjónusta sem þekkist í Evrópu. Ástæður þess að hluti beiðna er ekki af- greiddur jafn hratt er sá að oft eru þær ófullnægjandi og því fer tími í það á milli félaganna að leiðrétta rangar beiðnir. Forsvars- mönnum Dagsbrúnar er því bent á að taka til í eigin ranni. Síminn frábiður sér ásakanir af þessu tagi.“ 80% beiðna afgreiddar á 2–4 dögum ÁLFATÚN 12 - KÓPAVOGI OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16 Um er að ræða mjög fallega 97,2 fm íbúð með sérinngangi í góðu þríbýlishúsi neðst í Fossvoginum. Í íbúðinni eru tvö góð svefnherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús og sérgeymsla í íbúð. Björt stofa. Sér upphitað bílastæði og garður. Fallegt útsýni og örstutt í frábærar gönguleiðir. Eignin getur losnað við kaupsamning. Verð 21,3 millj. Ingi Þór og Katrín taka vel á móti gestum. Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Fréttasíminn 904 1100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.