Morgunblaðið - 25.02.2006, Side 55

Morgunblaðið - 25.02.2006, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 55 DAGBÓK Öldrunarfræðafélag Íslands í samstarfivið Endurmenntun Háskóla Íslandsstanda fyrir námstefnu 2. mars næst-komandi um öryggi eldri borgara: „Örugg efri ár – hvað telja eldri borgarar að auki öryggi þeirra?“ Auður Hafsteinsdóttir iðjuþjálfi er umsjónarmaður námskeiðsins ásamt Ingibjörgu Þórisdóttur hjúkrunarfræð- ingi: „Öldrunarfræðafélagið heldur árlega tvær námstefnur og fjallar þar á þverfaglegan hátt um málefni aldraðra, og eru mismunandi mála- flokkar teknir fyrir í hvert sinn,“ segir Auður. „Mikið hefur verið rætt í samfélaginu um erf- iðleika aldraðra og öryggi þeirra og athygli vöktu niðurstöður í skýrslu á vegum Slysa- varnafélagsins á síðasta ári um byltur aldraðra og brot. Það varð kveikjan að því að ákveðið var að helga þessa námstefnu öryggi aldraðra, bæði í heimahúsum og annars staðar, og margt í boði í samfélaginu sem snertir á þessu málefni og mikilvægt er að koma á framfæri.“ Námstefnan er ætluð fagfólki en er einnig opin öllum þeim sem láta sig varða málefnið, en fjallað er um forvarnir og öryggi eldri borgara jafnt með tilliti til líkamlegrar og andlegrar heilsu sem og félagslegra aðstæðna. Dagskráin hefst kl. 9 og varir til 16 en farið er yfir fjöldamörg atriði yfir daginn: „Meðal annars verður fjallað um það hvað þarf til, til að aldraðir geti búið heima, sem og verkefni sem unnið var í Keflavík. Rannsókn sem gerð var á Akureyri „Vald, efling og öldrun“ þar sem rætt var við aldraða sem búa í heima- húsum verða gerð skil, kynnt verður nýtt sam- þættingarverkefni nefndar í Hafnarfirði, um uppbyggingu á heildrænni öldrunarþjónustu og eins má nefna fyrirlestur um Aðstandendafélag aldraðra sem til stendur að setja á laggirnar. Fjallað verður um byltur og beinvernd, sjálf- boðastarf kirkjunnar, ábyrgðarhlutverk ætt- ingja, búsetu- og félagsmál aldraðra og ökumat sem hægt er að gera til að meta aksturshæfni aldraðra, svo nokkur atriði séu nefnd,“ segir Auður. Námskeið Öldrunarfræðafélags Íslands og Endurmenntunarstofnunar HÍ fer fram í hús- næði Endurmenntunar að Dunhaga 7. Nánari upplýsingar má finna á www.endurmenntun.is og í síma 525 4444, en eldri borgarar fá 15% af- slátt af þátttökugjaldi. Heilbrigðismál | Námstefna um ýmsa þá þætti sem varða öryggi aldraðra og velferð Öryggi aldraðra frá ýmsum hliðum  Auður Hafsteins- dóttir fæddist í Reykja- vík 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti 1988 og diplóma í iðjuþjálfun við Hålso Högskolan í Jönköping 1995. Auður lauk sérskipulögðu BS- námi fyrir iðjuþjálfa við HA 2005. Auður hefur starfað við Landspítala –há- skólasjúkrahús frá 1995, við endurhæfing- arsvið á ýmsum deildum og starfar nú í út- skriftar- og öldrunarteymi Landspítalans. Sambýlismaður Auðar er Haukur Franz Jónsson vaktformaður, og eiga þau tvö börn. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 80 ÁRA afmæli. Í dag, 25. febrúar,er áttræð Áslaug F. Guð- mundsdóttir frá Nesjavöllum í Grafn- ingi, til heimilis að Kleppsvegi 24, Reykjavík. Áslaug tekur á móti gest- um í dag eftir kl. 16 á heimili sonar síns að Háahvammi 12, Hafnarfirði. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 25. febrúar,er sextug Guðrún Hlíf Lúðvíks- dóttir, Fífuseli 32. Hún tekur á móti gestum á heimili sonar síns á Lang- holtsvegi 172 á milli kl. 14 og 17 á af- mælisdaginn. Enginn á þessa óvirðingu skilið ÞAKKIR til Sigurðar Hólm Gunn- arssonar fyrir grein hans í Morg- unblaðinu 20. febrúar sl. Ég vil þakka þessum unga manni fyrir að vekja máls á þeirri óvirðingu sem líðst gagnvart eldra fólki og fötluðum. Það er ótrúlegt að mannréttindi skuli vera fyrir borð borin þegar kemur að hinum þöglu hópum sem geta enga björg sér veitt lengur. Ég er sammála Sigurði um að ef VILJI væri fyrir hendi væri löngu búið að ráða bót á málefnum eldri borgara og fatlaðra. Að mönnum skuli leyfast að skýla sér á bak við það að „auka eigi þjón- ustu við þá sem vilja búa heima sem lengst“ er ótrúlega grunn. Fólk á rétt á að hafa valkosti. Þeir sem eru gamlir/fatlaðir eru oft einir, það er því nauðsynlegt að byggja upp „heimili“ þar sem þeir fá þá þjónustu sem nauðsynleg er og einnig fé- lagsskapinn hvert af öðru. Hvað er unnið með því að fólk hír- ist eitt í híbýlum sínum og fái heim- ilishjálp og böðun ef það er svo eitt og hjálparvana þess á milli? Það er stórt bil á milli þess að búa einn í íbúð eða í sambýlisherbergi með öðrum og þar að auki ókunnugum. Ég auglýsi hér með eftir þeim flokki sem VILL forgangsraða þannig því VILJI er allt sem þarf. Þar læt ég X-ið mitt og vona að fólk- ið í þessu landi átti sig á því að ÖLL gætum við þurft á þessari þjónustu að halda. Ekki er nóg með að 89 manns taka dýr sjúkrarúm – heldur hlýtur þessu fólki að líða illa. Um ömmuna og afann vil ég segja að það sem GUÐ hefur gefið saman má maðurinn ekki taka í sundur. Auðvitað eiga þau rétt á að vera ná- lægt hvort öðru „í blíðu og stríðu“ – eða hvað segir biblían? Ég skammast mín líka fyrir að búa í þessu samfélagi – foreldrar mínir voru heppin, þó létust meðan þau höfðu samfélagslega virðingu. (67 og 79 ára) Að verða gamall og meðhöndlaður einsog óvita barn hlýtur að taka mikið á þá og þeirra nánustu. Það er skýlaus krafa að þessum málum verði komið í lag, og það strax. Við eigum nóg af peningum, for- gangur er allt sem þarf. Emma K. Holm. Skattastefnan RÁÐHERRAR þessa lands mega skammast sín fyrir skattastefnuna þar sem þeir íþyngja láglaunafólki og heilla hátekjufólkið. Þeir ættu að taka minna mark á æðsta prestinum Hannesi Hólmsteini. Björn Indriðason. Fartölvutaska í óskilum FARTÖLVUTASKA fannst á Miklatúni í síðustu viku. Upplýs- ingar í síma 847 1507. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Bridshátíð. Norður ♠KG6 ♥KDG7 ♦K2 ♣Á543 Vestur Austur ♠932 ♠D10 ♥1093 ♥6542 ♦G73 ♦10954 ♣KG97 ♣D108 Suður ♠Á8754 ♥Á8 ♦ÁD86 ♣62 Suður spilar sex spaða og fær út lítið lauf. Þetta er einfalt á opnu borði með því að fella drottninguna aðra í trompi, en setjum okkur í spor sagnhafa, sem aðeins sér tvær hendur og þarf að taka afstöðu í trompinu eftir þetta eitraða útspil. Spilið er frá sveitakeppni Bridshátíðar á laugardag og yf- irleitt vannst slemman eftir mild- ara útspil. Það var því með nokkr- um trega sem félagi umsjónar- manns endursagði ófarir sínar eftir lauf út: Hann drap á laufás og lagði nið- ur spaðaás. Tromptían í austur var ógnvekjandi og okkar manni þótti hættan á 4–1-legu í spaða veruleg. Hann spilaði því hjarta þrisvar og henti laufi, fór svo heim á tígul og svínaði spaðagosa. En austur fékk á drottninguna, spilaði hjarta og vestur gat trompað með níunni! Einn niður. Daginn eftir kom lausnin (eftir andvökunótt): „Ég átti að leggja niður spaðakóng. Ef vestur reynist eiga D9xx í spaða má trompa lauf tvisvar og byggja upp þessa enda- stöðu:“ Norður ♠G ♥K ♦– ♣5 Vestur Austur ♠D9 ♠– ♥– ♥6 ♦– ♦109 ♣K ♣– Suður ♠8 ♥– ♦D8 ♣– „Tíguldrottningu er spilað og vestur getur ekkert gert.“ BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rd7 4. O-O a6 5. Be2 Rgf6 6. d3 g6 7. He1 Bg7 8. Bf1 0-0 9. a4 b6 10. c3 Bb7 11. Rbd2 e5 12. b4 He8 13. bxc5 bxc5 14. c4 Bh6 15. Rb1 Bxc1 16. Dxc1 Hb8 17. a5 Rf8 18. Rc3 Bc8 19. Rd5 Re6 20. Dd2 Rxd5 21. exd5 Rg7 22. Heb1 Bf5 23. Rg5 Dc7 24. g3 Hxb1 25. Hxb1 Hb8 26. Hb2 Re8 27. Hxb8 Dxb8 28. h4 Rf6 29. Be2 Db4 30. Rf3 e4 31. dxe4 Rxe4 32. De3 Dc3 33. Bd3 Staðan kom upp í C-flokki Cor- us-skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Kínverski stórmeistarinn Li Shilong (2.543) hafði svart gegn kollega sínum frá Hollandi, Harm- en Jonkman (2.470). 33. … Rxg3! svartur vinnur nú peð og nokkru síðar skákina. 34. De8+ Kg7 35. Rg5 Df6 36. fxg3 Bxd3 37. Dd7? Þetta leiðir til máts en taflið var eigi að síður gjörtapað. 37. … Df1+ 38. Kh2 Df2+ 39. Kh3 Bf1+ 40. Kg4 h5#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Einbýlishús í Þingholtunum óskast - Staðgreiðsla Traustur kaupandi óskar eftir 250-400 fm einbýlis- húsi í Þingholtunum. Gott einbýli á öðrum stað kemur til greina t.d. hús með sjávarútsýni. Húsið má kosta allt að 120 milljónir. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Óska eftir að kaupa olíumálverk eftir Jóhann Briem. Upplýsingar í síma 896 6170. Jóhann Briem óskast Skráning hefst mánudaginn 27. febrúar. Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð í Hafnarfjarðarkirkju 10 ára Upplýsingar og skráning á thorhallur.heimisson@kirkjan.is • Samskipti hjóna. • Aðferðir til að styrkja hjónabandið. • Orsakir sambúðarerfiðleika. • Leiðir út úr vítahring deilna og átaka. • Ástina, kynlífið, hamingjuna og börnin. Á námskeiðunum er m.a. fjallað um: Leiðbeinandi á námskeiðinu er sr. Þórhallur Heimisson. Nánari upplýsingar á heimasíðu Hafnarfjarðarkirkju www.hafnarfjardarkirkja.is - Aukanámskeið í mars -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.