Morgunblaðið - 25.02.2006, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 59
MENNING
www.performer.is
Þegar hljóðfæraleikari flyturinn í hverfið þá eru góðarlíkur á að einhver nágrann-
inn dæsi og hugsi: „Jæja, þá er
þetta hverfi ónýtt“. Því fyrr en
varir er hljóðfæraleikarinn farinn
að raska áður kyrrlátum stundum
með tónstigum og háværum mel-
ódíum. En einhvers staðar verða
„vondir“ að vera og það væri af-
skaplega eðlilegt að ætla að þar til
gert æfingahúsnæði væri svarið
við þessu vandamáli. Raunin er
aftur á móti sú að tónlistarfólk á
alltaf í basli með að verða sér úti
um aðstöðu til að sinna tónlistinni
sinni. Það er nefnilega eins með
tónlistina og flesta aðra fram-
leiðslu; við þiggjum afurðina en
verksmiðjan þyrfti helst að vera
sem lengst í burtu.
Ýmislegt hefur verið gert til aðbregðast við þessari vöntun á
æfingahúsnæði. Þannig spratt upp
Tónlistarþróunarmiðstöðin (TÞM)
úti á Granda sem ætluð er bæði
fyrir faglistamenn og upprennandi
áhugafólk. Listamiðstöðin Klink
og Bank tók auk þess að sér að
hýsa ófáa tónlistarmenn. Nú er
aftur á móti búið að rýma húsnæði
Klink og Bank vegna fyrirhugaðra
framkvæmda og biðlistinn eftir
plássi í TÞM lengist stöðugt. Eft-
irspurnin hefur nefnilega sjaldan
verið meiri þar sem fjöldi fram-
bærilegra tónlistarmanna hefur
aukist svo um munar á und-
anförnum árum hér á landi eins
og síðasta Airwaves-hátíðin bar
glöggt vitni um og kemur sömu-
leiðis fram í kvikmynd Ara Alex-
anders, Gargandi snilld.
Venjan hefur verið sú að hleypatónlistarfólki inn í yfirgefin
atvinnuhúsnæði eins fyrrnefndar
miðstöðvar, Klink og Bank og
TÞM. Þar geta listamennirnir unn-
ið frjálst og óáreittir að sinni list-
sköpun án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af kvörtunum. Á móti
kemur að þegar atvinnuhúsnæði
stendur yfirgefið er það í flestum
tilvikum millibilsástand þar sem
húsnæðið bíður annað hvort eftir
nýrri arðbærri starfsemi eða að
verða rifið niður. Tónlistarþróun
hefur því miður ekki ennþá verið
talin arðbær starfsemi eða þannig
virðist það allavega vera.
Á síðustu árum hafa Íslendingareinkum státað sig af öflugu
tónlistarlífi og ekki af tilefn-
islausu. Vaxandi erlendur áhugi á
íslensku tónlistarfólki hefur ekki
farið framhjá neinum. Íslenski
gæðastimpillinn hefur aldrei verið
öflugri. Ef við viljum efla þessa
þróun og halda áfram að „búa til
fræga Íslendinga“, eða einfaldlega
að tryggja stöðu innlendu tónlist-
arflórunnar, þá þarf vissulega að
hlúa að undirstöðunni. Góð tónlist
sprettur ekki af engu. Að skapa
og flytja frambærilega tónlist
krefst mikillar vinnu og mikil
vinna krefst augljóslega að vinnu-
aðstaðan sé fyrir hendi. Miðað við
hvað íslensk tónlist hefur verið að
gera fyrir ímynd landsins þá hefði
maður haldið yfirvöld myndu sjá
hag sinn í því að bregðast betur
við þessu vandamáli. Slíkar að-
gerðir virðast aftur á móti ekki
vera ofarlega í forgangsröðinni og
skilaboðin sem það sendir tónlist-
arfólki geta varla verið mjög já-
kvæð.
Spyrjum hvaðan gott kemur
’Það er nefnilega einsmeð tónlistina og flesta
aðra framleiðslu; við
þiggjum afurðina en verk-
smiðjan þyrfti helst að
vera sem lengst í burtu.‘
Morgunblaðið/Þorkell
Listaverksmiðjan Klink og Bank hýsti marga tónlistarmenn.
thorri@mbl.is
AF LISTUM
Þormóður Dagsson
Í DAG kl. 15 opnar
Sveinbjörg Hall-
grímsdóttir sýningu
á handþrykktum
tréristum í baksaln-
um í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg.
Sýninguna nefnir
hún Dögun. Verkin
eru öll unnin á þessu
ári og því síðasta.
Myndefnið er sótt í
íslenska náttúru,
veðurfar og birtu.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir stundaði nám við kennaradeild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1974–1978, Myndlistaskóla Reykjavíkur 1986–1990
og málaradeild Myndlista- og handíðaskólans 1990–1992. Hún hefur verið
með eigin vinnustofu frá 1992 og starfrækt Gallerí Svartfugl á Akureyri
frá 1997 til 2005, ýmist ein eða í samstarfi við aðra listamenn. Vorið 2005
flutti hún starfsemina í miðbæ Akureyrar. Hún er félagi í Grafíkfélaginu
Íslenskri grafík, SÍM og Fyns Grafiske Værksted í Óðinsvéum. Sveinbjörg
starfaði sem myndlistarkennari í mörg ár. Lengst af hefur hún unnið graf-
íkverk sín í koparplötur, en undanfarin ár hefur hún einnig unnið trérist-
ur.
Þetta er tíunda einkasýning Sveinbjargar en að auki hefur hún tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis og erlendis. Sýningin stendur til
12. mars.
Eitt verka Sveinbjargar Hallgrímsdóttur í Galleríi
Fold, en sýningin hefst í dag kl. 15.
Dögun í Fold
VÍS hefur gengið til samstarfs
við Borgarleikhúsið um sýn-
ingar á Belgíska Kongó og var
samstarfssamningur undirrit-
aður í forsal Borgarleikhúss-
ins fyrir skömmu að við-
stöddum gestum VÍS.
Guðjón Pedersen leik-
hússtjóri lýsti yfir ánægju
sinni með aðkomu VÍS að
þessu verkefni. „Vonandi
verður þetta aðeins upphafið
að farsælu samstarfi sem allir
geta verið stoltir af,“ sagði
Guðjón jafnframt við þetta
tækifæri.
„Það er stefna VÍS að
styðja vel við málefni er varða land og
þjóð og er starfsemi Leikfélags
Reykjavíkur svo sannarlega vel til
þess fallin að auðga mannlífið,“ sagði
Ásgeir Baldurs, framkvæmdastjóri
VÍS, við undirritun samningsins.
Belgíska Kongó eftir Braga Ólafs-
son gekk fyrir fullu húsi í Borgarleik-
húsinu þau tvö leikár sem það var
sýnt. Vegna fjölda áskorana var
ákveðið að hefja sýningar að nýju,
þriðja leikárið í röð. Eggert Þorleifs-
son hlaut Grímuverðlaunin fyrir best-
an leik í aðalhlutverki karla vorið
2004 fyrir túlkun sína á hinni fjör-
gömlu Rósalind.
Ásgeir Baldurs, framkvæmdastjóri VÍS, og
Guðjón Pedersen leikhússtjóri við undir-
ritun samstarfssamningsins.
Belgíska Kongó sýnt á ný
Í DAG, laugardag, er opnuð í Gall-
eríi Dverg sýning Hönnu Christel.
Sýningarrýmið hefur verið starf-
rækt frá árinu 2002, í nokkra mán-
uði á ári í senn, og vaknar Dverg-
urinn af góðum dvala með þessari
sýningu.
Óregluleg starfsemi gallerísins
ræðst af því að um einskonar heima-
gallerí er að ræða: „Mánuðina sem
ég hef þurft að loka Dvergnum hef
ég verið erlendis vegna eigin náms
og starfa í myndlist,“ útskýrir Birta
Guðjónsdóttir, sýningar- og safn-
stjóri gallerísins.
Birta hefur boðið um tug lista-
manna að vinna í sýningarrýminu í
vetur og er Hanna Christel sú
fyrsta, en áhersla verður lögð á
tímatengda list og allt sem rúmast
innan þess hugtaks í Dvergnum í
vetur, að sögn Birtu.
Gallerí Dvergur er allsérstakt
rými, bakhús með litlum kjallara við
Grundarstíg 21 í Þingholtunum.
Lofthæðin er aðeins 165 cm og gólf-
flötur sömuleiðis lítill: „Vegna
smæðarinnar og lofthæðar myndast
ákveðin stemning í rýminu og rýmið
býður upp á að þessi andi sé nýttur í
verkunum. Upplifunin hefst strax
og áhorfandi kemur inn í rýmið, og
er um leið hálfboginn,“ segir Birta
og bætir við kímin að vegna smæð-
arinnar megi segja að alltaf sé fullt
út úr dyrum á opnunum í galleríinu.
Sýning Hönnu Christel er sér-
staklega unnin fyrir rýmið og bygg-
ist meðal annars á gjörningi sem
framinn er alla sýningardaga.
Hanna er fædd 1977 og útskrif-
aðist með BA-gráðu frá myndlist-
ardeild LHÍ 2002. Hún stundar nú
framhaldsnám í myndlist við Weiss-
ensee-listaakademíuna í Berlín.
Sýningin í Gallerí Dverg er opin
næstu þrjár helgar, laugardagana
og sunnudagana 25. og 26. febrúar,
4. og 5. mars og 11. og 12. mars, frá
kl. 18 til 20 alla dagana. Aðgangur
að Gallerí Dverg er ókeypis og allir
velkomnir.
Myndlist | Hanna Christel sýnir í Dvergi
Dvergurinn
vaknar af dvala
Ljósmyndaverk eftir Hönnu Christel.
ÁRLEGIR tónleikar strengjasveitar Listaháskóla Íslands verða í Neskirkju
á morgun, sunnudag, kl. 17. Á efnisskránni verða verk eftir Jóhann Sebast-
ian Bach, Jón Nordal og Samuel Barber. Tónleikarnir eru hluti af Vetrar-
hátíð í Reykjavík. Meðal verkanna eru hinn frægi konsert í d-moll fyrir
tvær fiðlur, strengi og sembal eftir Bach. Einleikarar eru Gróa Margrét
Valdimarsdóttir og Gunnhildur Daðadóttir, nemar í tónlistardeild Listahá-
skólans. Þá verður fluttur Concerto Lirico fyrir hörpu og strengi eftir Jón
Nordal en þar er Elísabet Waage í einleikshlutverki. Auk þessara verka
verður flutt Adagio eftir Samuel Barber. Það fræga verk er upphaflega
þáttur úr strengjakvartett Barbers, en er nú oftast leikið af strengjasveit.
Stjórnandi Strengjasveitar Listaháskóla Íslands er Gunnar Kvaran.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Strengjasveitin á æfingu undir stjórn Gunnars Kvaran, en tveir einleikarar munu koma fram.
Bach, Barber
og Jón Nordal
Vetrarhátíð | Strengjasveit Listaháskól-
ans leikur í Neskirkju á morgun