Morgunblaðið - 18.03.2006, Side 1

Morgunblaðið - 18.03.2006, Side 1
ÍSLANDSBANKI OG 7 DÓTTURFYRIRTÆKI OG STARFSSTÖÐVAR SAMEINAST UNDIR EINU NAFNI 1+7=1 Lúxus í dós er franskt lostæti Hildur leitar uppi matreiðslunám- skeið út um allan heim | Daglegt líf Lesbók | Græni maðurinn  Íslendingar í Færeyjum  Ný kvikmyndahús Börn | Börnin yrkja Verðlaunaleikur Íþróttir | Sveitir Ægis settu Íslandsmet  Gravesen í Fylki Lesbók, Börn og Íþróttir í dag STOFNAÐ 1913 76. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ÞAÐ hefur verið óvenjuleg stemning í Borgaskóla í Reykjavík síðustu daga en þar hafa staðið yfir fiskidag- ar. Í gær buðu nemendur foreldrum í fiskisúpu og heimabakað brauð „að hætti nemenda Borgaskóla“. Ekki var annað að heyra en súpan hefði bragðast vel. Nemendur í skólanum hafa einnig síðustu daga fræðst um hafið og sjómennsku. Meðal annars gátu nemendur og foreldrar skoðað um 50 tegundir fiska í sal skólans. Morgunblaðið/Ásdís Buðu foreldrum í fiskisúpu UMSÓKNUM um pólitískt hæli í iðnríkjum Evrópu og Norður-Amer- íku fækkaði enn um 15% í fyrra mið- að við 2004 og hafa þær ekki verið færri í nær tvo áratugi, að sögn Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR. Alls sóttu 336.000 manns um hæli í iðnríkjun- um. Flestir sóttu um hæli í Frakk- landi, um 50.000, en ívið færri í Bandaríkjunum, um 48.000. Fækkunin í 25 löndum Evrópu- sambandsins var að jafnaði um 16% í fyrra, mest í nýju aðildarríkjunum í austanverðri álfunni. Ron Redmond, talsmaður UNHCR, sagði margt valda fækkuninni. Árásirnar 11. september 2001 hefðu valdið því að margar auðugar þjóðir hefðu hert öryggiseftirlit og sett skorður við innflutningi. En ekki mætti gleyma að átökum væri nú lokið á Balkan- skaga, í Afganistan og víða í Afríku sem merkir „að fólk getur farið heim til sín og þarf ekki að flýja land“. Flestar umsóknir um hæli í auð- ugum löndum komu í fyrra frá Serb- íu-Svartfjallalandi og Kosovo, alls um 21.600, þá Rússlandi og Kína. Umsóknum frá Írökum og Haíti- mönnum hefur fjölgað. Antonio Guterres, yfirmaður UNHCR, sagði að tölurnar sýndu að enginn fótur væri fyrir tali um ört vaxandi vanda vegna flóttamanna sem reyndu að fá hæli í iðnríkjunum. Stöðugt færri fá nú hæli Orsakir hertar reglur og endalok átaka Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is STÖÐUGT fleiri háskólamenntaðir Afríkumenn setjast nú að í auðugum iðnríkjum og grefur þessi þróun und- an æðri menntun í Afríkuríkjum sunnan Sahara, að því er samtök breskra háskólakennara (AUT) segja. At- gervisflóttinn veldur því meðal annars að seint gengur víða að byggja upp háskóla í Afríkulöndum. Fram kemur á vefsíðu dagblaðsins Guardian að AUT og samtök fyrirlesara, Natfhe, vilja huga að aðferðum til að bæta Afríkuríkjum tapið. Til greina kemur að stuðla að því að vestrænir háskólakennarar setjist að í Afríkulöndum, að tengsl milli háskóla í Afríkulöndum og iðnríkjunum verði efld, svo og stuðningur við að bæta samfélagsinnviði á borð við menntastofnanir í löndunum sem missa háskólamenntaða borgara úr landi. Samtökin benda á að takist að ná svonefndum Þús- aldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um að öll afrísk börn fái almennt notið grunnskólamenntunar muni í kjölfarið vaxa mjög þörf fyrir framhalds- og háskóla- menntun í löndunum. Háskólamenntun í hættu ÞÚSUNDIR manna efndu í gær til göngu í Mexíkóborg og kröfðust að- gangs að öruggu drykkjarvatni. Til átaka kom milli nokkurra ung- menna og lögreglu. Á alþjóðlegri ráðstefnu um vatnsbúskap heimsins í borginni var lögð fram tillaga um alþjóðlegt friðargæslulið til að fást við átök um vatn. Reuters Átök um vatn DJÚPSTÆÐ vinátta þriggja tón- snillinga er undirliggjandi þráður í tónleikum í Salnum í Kópavogi í dag. Snillingarnir þrír eru hjónin Clara og Róbert Schumann og fjölskyldu- vinur þeirra Jóhannes Brahms. Flutt verður tónlist þeirra þriggja auk þess sem sendibréf og dag- bækur fá sitt hlutverk. Heit og rómantísk ást ríkti á milli Clöru og Róberts sem áttu saman 8 börn. Geðræn veikindi Róberts vörpuðu þó skugga á líf þeirra. En þá kom að því að Jóhannes Brahms „hringdi dyrabjöllunni í Hollywood- handritinu“, eins og Auður Haf- steinsdóttir, einn skipuleggjenda tónleikanna, orðar það „Þá var Brahms ungt tónskáld. Róbert Schumann heillaðist af honum. Brahms hjálpaði Clöru í veikindum Schumanns. Hún mátti ekki heim- sækja manninn sinn í tvö ár meðan hann var á geðsjúkrahúsi. Þá var hún nýbúin að eignast sitt áttunda barn.“ Þegar hún gat ekki lengur talað við Róbert vegna geðveiki hans átti hún Brahms að sem trún- aðarvin. Meðan Róbert var á sjúkra- húsinu spilaði hún á tónleikum til að framfleyta fjölskyldunni og þá þurfti hún stuðning. Þann stuðning sótti hún til Brahms, sem hvatti hana og lét hana hafa verk til að spila.“ Vinátta þriggja snillinga  Djúpstæð vinátta | 30 STÖÐUGUR vöxtur Kaupþings á er- lendum mörkuðum hefur orðið til þess að sumir keppinauta bankans hafa reynt að draga úr trúverðug- leika hans. Eina raunverulega hætt- an sem bankinn stendur frammi fyrir eru þrálátar rangfærslur um eða misskilningur á starfsemi hans. Þetta sagði Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka á aðalfundi hans í gær. „Við vitum,“ sagði Sigurður, „að sumir keppinauta okkar stóðu á bak við þessi harkalegu viðbrögð við fréttum sem eru gamlar. Auk þess vitum við af því að nokkrir fjárfestar skortseldu til þess að koma af stað áhyggjum á meðal greinenda eða til þess að vekja athygli þeirra. Þetta er til marks um harða samkeppni og viðleitni til þess að draga úr trúverð- ugleika okkar. En það má líka líta á þetta sem merki um vaxandi árangur okkar,“ sagði Sigurður. Hann sagði bankann verða að mæta slíkri umfjöllun af fullum þunga svo takast mætti að eyða ill- mælgi sem annars gæti orðið að sannleika ef henni yrði haldið enda- laust áfram á lofti. Sigurður sagði ótrúlegt að lesa suma þá umfjöllun sem birst hefði um Kaupþing banka og komast að því að sumir greinendur, svo ekki væri minnst á blaðamenn, hefðu alls ekki haft fyrir því að vinna lágmarks- heimavinnu, eins og t.d. að lesa árs- skýrslu bankans, áður þeir semdu illa ígrundaðar eða alls óígrundaðar skýrslur eða mat á Kaupþingi banka. „Þetta fær mig næstum til að halda að annarleg sjónarmið gætu hafa legið að baki sumum skrifun- um.“ Sigurður sagði nauðsynlegt að koma því vel til skila að undirstöður vaxtarins á Íslandi væru traustar. Þetta ætlaði Kaupþing banki sér að gera þannig að erlendir aðilar gætu byggt umfjöllun sína á tölum og stað- reyndum en ekki á vangaveltum og slúðri. Þrálátar rangfærslur hættulegar bankanum „Við vitum að sumir keppinauta okkar stóðu á bak við þessi harkalegu viðbrögð við fréttum sem eru gamlar“ Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is  Framtíðarskipulag | 18 Stjórnarformaður Kaupþings banka harðorður á aðalfundi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.