Morgunblaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ María KristjanaAngantýsdóttir fæddist á Sauðár- króki 8. nóvember 1948. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri þriðjudaginn 7. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Angantýr Elinór Jónsson, f. 16. ágúst 1910, d. 23. september 1982, og Björg Dagmar Bára Jónsdóttir, f. 19. nóvember 1919, d. 16. ágúst 1987. Systkini Maríu eru Lára, f. 25. janúar 1938, Sigurgeir, f. 12. apríl 1939, Anton, f. 25. júní 1940, Sigrún, f. 18. júlí 1943, Birkir, f. 5. ágúst 1945, Matthías, f. 1. júní 1952, óskírður drengur, f. 26. október 1953, d. í nóvember 1953, og Sigurlaug, f. 14. maí 1958. María giftist hinn 16. ágúst 1970 Benedikt Agnarssyni frá Heiði í Gönguskörðum, f. 8. febr- úar 1940. Börn þeirra eru: 1) Agnes Bára, f. 29. október 1970, sam- býlismaður Helgi Einarsson, f. 9. des- ember 1963 í Vest- mannaeyjum. Börn þeirra eru Aron Hugi, f. 17. septem- ber 1992, og Arney Lind, f. 27. ágúst 1994. 2) Ásta Mar- grét, f. 26. febrúar 1976, sambýlismað- ur Rúnar Már Grét- arsson, frá Melstað í Óslandshlíð, f. 23. desember 1972. Börn þeirra eru Benedikt Loftur, f. 18. mars 1997, og Dagmar Björg, f. 28. ágúst 1999. 3) Jónhallur Björg- vin, f. 5. júlí 1977, sambýliskona Guðrún Astrid Elvarsdóttir, f. 28. júlí 1978. 4) Sigrún Elva, f. 20. apríl 1983. 5) Sigfús Arnar, f. 18. nóvember 1989. Þau María og Benedikt voru lengst af búsett á Sauðárkróki. Útför Maríu verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku mamma, það er svo erfitt að hugsa til þess að þú sért farin frá okk- ur. Það eru svo margar minningar sem koma upp í huga mér. Þú varst alltaf svo elskuleg, hlý og góð. Þú gafst svo mikið af þér og sagðir oft að aðeins bros gæti gefið manni svo mikið, enda varst þú ætíð brosandi. Ég sakna þín svo sárt og tilhugsunin að þú komir ekki aftur heim er erfið. Ég átti eftir að segja þér svo margt og gera svo margt með þér. Við gátum spjallað saman heillengi um daginn og veginn og töluðum við oft um lífið sjálft. Hvað lífið hefur mikið upp á að bjóða. Hversu mik- ilvægt er að njóta lífsins á meðan maður getur og hafa enga eftirsjá. Þú minntir mig líka á það að lífið væri ekki alltaf auðvelt, lífið fæli í sér stór- ar og erfiðar brekkur sem maður þyrfti að takast á við. Erfiðleikarnir væru til að styrkja mann og þroska. Þú talaðir alltaf um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag því þá yrði garðurinn manns hjá Guði svo fallegur. Ég veit að þú munt eignast fallegasta garð sem hægt er að fá. Þú varst ótrúlega næm og sást um leið ef eitthvað amaði að hjá mér og vildir því um leið ræða málin. Það endaði alltaf þannig að mér leið miklu betur eftir að hafa talað við þig. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og get ég ekki óskað mér að hafa átt betri mömmu en þig. Þú greindist með erfiðan sjúkdóm sem ekki er hægt að lækna. Þú hélst samt áfram að lifa lífinu eins og ekk- ert hefði í skorist. Það sýnir hvernig karekter þú varst. þú varst svo dug- leg og sterk í öllum þínum veikindum. Þú barðist af fullum krafti fyrir lífi þínu, fram á síðasta dag. En mamma ég veit þú ert á góðum stað núna og þér líður vel. Ég elska þig svo mikið og ég vil þakka þér fyrir þau 22 ár sem við átt- um saman, þetta var stórkostlegur tími sem ég mun aldrei gleyma. Þú ert sannkölluð hetja í mínum augum. Takk fyrir að vera svona góð og yndisleg mamma. Ég elska þig svo mikið. Guð verði með þér og allir englarn- ir. Þín dóttir, Sigrún Elva. Elsku mamma, Það eru erfiðir tímar framundan án þín og það er stórt skarð að fylla í eftir svona dug- lega, ástríka og yndislega manneskju eins og þig. Það var erfitt að horfa upp á mömmu sína deyja á besta aldri úr veikindum sem enginn lækning er við og þurfa að horfa í augun á mann- eskju sem maður elskar og geta ekk- ert gert henni til hjálpar. En það eina sem ég get gert núna er það að þakka Guði á himnum fyrir að fá að upplifa þessi skemmtilegu ár með þér og fyr- ir það að fá að eiga bestu mömmu í heimi. Ég veit það í hjarta mínu að það verða góðar móttökur sem þú færð uppi hjá Guði og ef það er eins og þú sagðir alltaf við okkur að það sem þú sáir í lifandi lífi munt þú upp- skera þegar þú ferð, og þá mun garð- urinn og húsið sem þú færð verða það stærsta sem úthlutað hefur verið fyrr eða síðar og verða með svo mörgum herbergjum svo að allir sem þig elska munu fá þann heiður að vera í návist þinni alla daga. Það verða engir dagar eins án þín og þín verður sárt saknað. Guð einn á himnum veit hvaða hug ég ber til þín. Þökk sé þér, hversu fallegt lífið er þökk sé þér, hversu heill minn hugur er þökk sé þér, að ég standi hér hug minn, Guð einn á himnum sér. Til þín ég hugsun sendi fallega og hlýja svo svífir þú með mér upp til sólu og skýja þar við leikum okkur með hugsun nýja sem kallar fram skil milli skýja Elsku mamma, ég þakka þér fyrir allt og bið Guð á himnum um að geyma þig og vernda. Minningu mína um þig, mun ég um ókomna tíð í hjarta mínu geyma. Þinn sonur, Björgvin Benediktsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Þegar við hittumst sl. sumar hvarfl- aði það ekki að mér að þetta yrði í síð- asta skiptið sem við gætum rætt mál- in. Sú harmafregn sem mér barst útá sjó að þú værir orðin svona veik gerði mig orðlausan. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hversu mikið veik þú værir. Þú barst þig alltaf svo vel og faldir þetta fyrir mér og öðrum. Minningarnar hrönnuðust upp um þær stundir sem ég og fjölskyldan áttum með þér. Hversu gott var að koma og hvað þú varst alltaf glöð að sjá okkur. Móttökurnar ólýsanlegar. Í litlu íbúðinni lést þú okkur líða sem við værum komin heim. Okkur fannst oft þröngt á þingi en þú gerðir bara gott úr þessu öllu. Heimilið var þitt skjól. Natni þín við það var aðdáunarverð. Einföld- ustu hlutir urðu að listaverkum í þín- um höndum. Hugmyndaflugið átti sér engin takmörk. Árin og sá tími sem við áttum sam- an var alltof stuttur. Það var svo mik- ið framundan sem þú varst svo spennt fyrir. Ferming fyrsta barnabarnsins. Hvað þú hlakkaðir mikið til þessa. Elsku Maja mín, núna veit ég að þér líður betur og munt fylgjast með okkur í framtíðinni einsog þú sagðir svo oft. Þín verður sárt saknað af öll- um sem kynntust þér. Stórt skarð sem aldrei verður fyllt er höggvið í fjölskylduna. Elsku Benni, Agnes, Ásta, Bjöggi, Sigrún og Fúsi, megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Helgi Einarsson. Ó, ljóssins faðir, lof sé þér, að líf og heilsu gafstu mér og föður minn og móður. Nú sezt ég upp, því sólin skín, þú sendir ljós þitt inn til mín. Ó, hvað þú, Guð, ert góður! (Matthías Jochumsson.) Amma er dáin. Við trúum því ekki ennþá að hún sé farin. Hún er farin í ferðalag eins og svo oft áður en kemur aldrei aftur til baka. Það er svo skrítið því hún var alltaf til staðar þegar við komum norður. Hún sem var svo góð við okkur, knúsaði og kjassaði þegar við komum. Leyfði okkur að sofa á milli ef okkur leið illa. Hún gaf okkur svo mikið af sér. Ferðirnar með henni í sveitina til afa voru yndislegar. Hún tók með nesti og gaf okkur að borða þegar við vorum orðin þreytt á að leika okkur. Það var alveg sama hversu drullug við vorum. Hvort sem við vorum blaut eftir að hafa farið í ána eða með hrossaskít upp á mitt læri, alltaf gerði hún gott úr þessu. Það eina sem hún sagði var: Úr fötunum, það þarf að þvo þetta. Við söknum þín svo mikið, elsku amma. Við vildum að þú gætir komið aftur, það er svo margt sem okkur langar að segja þér. Við elskum þig og munum alltaf minnast þín sem ömmu á Króknum. Elsku afi okkar, okkur þykir svo mikið vænt um þig og viljum allt fyrir þig gera. Vonandi getur Guð hjálpað þér í sorginni. Afi, Agnes (mamma), Ásta, Bjöggi, Sigrún og Fúsi, megi Guð hjálpa ykkur gegnum alla erfið- leikana sem fram undan eru. Aron og Arney. Hugur minn leitar til fyrstu minn- inganna um Mæju, hún var að leika sér og ég vappandi í kringum hana. Ég hændist mjög mikið að henni og var það ekkert undarlegt því hún var afar ástúðleg við mig og veitti mér þá umhyggju og hlýju sem einkenndi hana alla tíð síðar. Seinna, þegar hún giftist Benna og þau eignuðust sitt fyrsta barn reyndi ég að sýna henni hvers virði vænt- umþykja hennar var mér með því að gæta litlu prinsessunnar þeirra, Agnesar Báru. Mæja og Benni voru mér alltaf eins og foreldrar, til þeirra gat ég ætíð leit- að og var ég tíður gestur á heimili þeirra. Er ég mjög þakklát algóðum Guði að hafa fengið að njóta svo mik- illa samvista við elskulega systur mína og mág og börnin þeirra. Eftir um þrjátíu ára nær daglegar samverustundir kom sá tími að ég flutti mig um set og settist að á Suður- landi og þá hagaði því þannig til að við hittumst mun sjaldnar en áður. Því var það ætíð tilhlökkunarefni að fara á „Krókinn“ og hitta stórfjölskylduna og það brást ekki að Mæja væri meðal þeirra fyrstu til að fagna komu okkar. Ég minnist síðustu samverustunda sem við áttum, um áramótin. Þrátt fyrir veikindin sem hrjáðu hana, var Mæja búin að útbúa dýrindis veislu eins og hún gerði svo oft og við áttum yndislegar stundir saman. Minningin um ástríka systur lifir í hjarta mér. Elsku Mæja mín, ég þakka þér fyrir allan tímann sem við áttum saman, allan kærleikann sem þú veittir mér og með breytni þinni kenndir mér að veita öðrum. Guð blessi þig, Mæja mín, og láti sitt eilífa ljós lýsa þér. MARÍA KRISTJANA ANGANTÝSDÓTTIR Þökkum innilega öllum þeim sem veitt hafa okkur stuðning og hluttekningu við fráfall og útför unnusta, sonar, bróður, tengdasonar, barnabarns og mágs, TÓMASAR ÝMIS ÓSKARSSONAR sem lést af slysförum laugardaginn 25. febrúar. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem unnu við eða komu að björgunarstörfum þann dag. Ásdís Hanna Bergvinsdóttir, Lene Zacharíassen, Óskar Snæberg Gunnarsson, Jóhanna Kristín Arnþórsdóttir, Íris Björk Óskarsdóttir, Eyþór Freyr Óskarsson, Bergvin Jóhannsson, Sigurlaug Anna Eggertsdóttir, Gunnar Rögnvaldsson, Kristín Óskarsdóttir, Björg Zacharíassen, Sigríður Valdís, Anna Bára og Berglind Bergvinsdætur og fjölskyldur þeirra. Okkar elskulega frænka og mágkona, JÓNA I HANSEN dönskukennari, Hraunbæ 90, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 21. mars kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjálparstarf kirkjunnar. Þ. Magnús Nielsson Hansen, Sigurbjörg Nielsdóttir Hansen, Guðbjörg Nielsdóttir Hansen, Þórður G. Hansen, Guðlaug Kristófersdóttir. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGA ÞURÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR, áður til heimilis á Lindargötu 61, andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum fimmtudaginn 16. mars. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju mánu- daginn 27. mars kl. 15.00. Jón Ó. Hjörleifsson, Þuríður Ingibjörg Jónsdóttir, Guðfinnur G. Johnsen, Guðbrandur Jónsson, María Maríusdóttir, Hjörleifur M. Jónsson, Sigríður Óskarsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Magnús Lúðvíksson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást- kærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, BALDVINS SKÆRINGSSONAR frá Steinholti, Vestmannaeyjum. Baldur Þór Baldvinsson, Kristinn Skæringur Baldvinsson, Sigríður Mínerva Jensdóttir, Ragnar Þór Baldvinsson, Anna Jóhannsdóttir, Birgir Þór Baldvinsson, Halldóra N. Björnsdóttir, Hrefna Baldvinsdóttir, Snorri Þ. Rútsson, Baldvin Gústaf Baldvinsson, Anna Gunnlaugsdóttir, Hörður Baldvinsson, Bjarney Magnúsdóttir, Hörður Runólfsson, Halla Guðmundsdóttir, barnabörn og aðrir afkomendur. Elskulegur unnusti minn, faðir, sonur, fóstursonur og bróðir, JÓN HALLDÓR HARÐARSON, lést á heimili sínu fimmtudaginn 16. mars. Minningarathöfn verður haldin í Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. mars kl. 13.00 og útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. mars kl. 13.30 Auður Ólafsdóttir, Hörður Sverrisson, Sigríður Jónsdóttir, Magnús Stefánsson, börn hins látna, systkini, tengdafjölskylda og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.