Morgunblaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 53
VW Golf 1.6 árg. 6/2004, ek. 45
þ. km. Nýja lagið, 5 dyra, bsk.
Ásett verð 1.590 þ. Áhvílandi lán
1.230 þ., afb. 17 þ. Upplýsingar í
síma 699 5880.
VW Bora 1600 árg. 2002, ekinn
49 þ. km, 16" heilsársdekk. Bein-
skiptur. 100% viðhald hjá umboði.
Fallegur reyklaus bíll í toppstandi.
Verð kr. 1.100 þús. Uppl. í síma
820 5289.
VW árg. '95, ek. 129 þús. km. Út-
sala! VW Golf 3 dyra, skoðaður
og í topp standi. Skv. listav. á
hann að kosta 210 þ. Verð nú
100.000 þ. kr. Kominn er tími á að
skipta um tímareim. S. 821 6383.
Volvo árg. '95, ek. 142 þús. km.
Beinskiptur. ABS. Einn eigandi,
góð umgengni. Sumardekk á felg-
um fylgja. Verð 250 þús. Sími 554
2697.
Toyota Yaris, sjálfskiptur, 1300,
5 dyra, skr. 04.05.2005. Ekinn
4.500 km, ljósgrár, negld vetrar-
dekk. Verð 1.380 þús. Möguleiki
að bílalán fylgi, 1.0 m. Upplýsing-
ar í síma 892 7852.
Toyota RAV 4 VVTI 11/2000, ek.
aðeins 113 þ. km. Sjálfskiptur.
Toppeintak. V. 1.690 þ. Tilboð
1.390 þús. Uppl. í síma 567 4000.
Getum aftur bætt við bílum á
planið og á söluskrá. Af hverju
ekki að prófa?
Toyota Land Cruiser '88 bensín.
Ekinn 235 þús. Verð 200 þús. stgr.
Vel með farinn bíll í topplagi.
Hlaðinn aukahlutum. Uppl. 553
2233 eða 893 1090 Birgir.
Toyota Corolla W/G sol 1,6 árg.
'03, ek. 18 þús. km. Nýsk. 10/2003,
sjálfsk., ek. 18 þ., á vetrard. en
sumard. á álfelgum fylgja. Drátt-
ark., farangursnet o.fl. Verð 1.590
þ. S. 564 4341/868 1052.
Tilboð. Nissan Almera Visia 1.5
árg. 6/2004, ekinn 60 þús. Góður
bíll á aðeins 990 þús. stgr., lista-
verð 1.200 þús. Uppl. 899 5522.
Suzuki XL-7Ö árg. '04. Gullmoli.
Ekinn 35.000 km. 6-cyl., krókur,
sjálfsk., leður, sóllúga, cd-maga-
sín o.fl. Einn með öllu. Upp-
hækkaður. Verð 2.880.000. Loft-
bóludekk Uppl. í síma 699 3393.
Passat '97. Til sölu VW Passat
1997, 5 g., ek. 155 þ. Nýlega
skoðaður, góð dekk, krókur. Verð
500 þ. stgr. S. 860 9243.
Nýr bíll - frábært verð - Chrysl-
er PT Cruiser 2005.
Ekinn 4 þús. 2,4 vél, sjálfskiptur,
fram- hjóladrif, 17" krómfelgur og
breið dekk + aukadekk. Verð 2,1
millj. Upplýsingar í síma 899
2005.
Nissan Sunny 4X4 1600, árg. '92,
ek. 166 þ. Sk. 10/06. Beinsk. Uppl.
í síma 868 8116.
MMC Mirage (Lancer) DE
Coupe. Nýskr. 09/01. Ek. 36 þ. km.
2ja dyra, sjsk., 1.6, álfel. Ný dekk.
Ásett v. 1.090 þ. Tilboð kr. 800
þús. Áhvílandi 0. kr. Skipti á ódýr-
ari. S. 661 9660.
Jeppar
Suzuki Sidek 1600. Upphækk.,
er á 30". Ekinn 175 þ., aðeins 65
þ. á vél, ný tímareim, ný skoðað-
ur, nýl. dekk, toppgr. Verð 350 þ.
Tek bíl á allt að 100 þ. uppí. Uppl.
í síma 690 7242.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, bifhjól,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Kerrur
Kerra til sölu - topp kerra!
Verksmiðjuframleidd, lítið notuð,
galvaniseruð, einnig máluð m.a.
með sterku Epoxy í botninn,
uppsk. hjól að framan. Uppl. í s.
821 2900 (Einar). Ath. sk. á bíl.
Þjónustuauglýsingar 5691100
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK spilaði tvímenn-
ing á átta borðum mánudaginn 13.
marz. Meðalskor 126. Beztum ár-
angri náðu í NS
Dagný Gunnarsd. – Steindór Árnason 152
Bragi Bjarnason – Magnús Ingólfsson 142
Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörnss. 140
Ernst Backmann – Ari Þórðarson 133
AV
Einar Kristjánsson – Elís Kristjánss. 157
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbjs. 144
Guðjón Ottósson – Guðm.Guðveigsson 142
Kristín Óskarsd. – Gróa Guðnadóttir 129
FEBK Gjábakka
Það var góðmennt sl. föstudag, að-
eins 11 pör, og spilað á 6 borðum.
Miðlungurinn var 100 og í N/S urðu
Rafn Kristjánsson og Oliver
Kristófersson efstir með 112. Júlíus
Guðmundsson og Óskar Karlsson
urðu í öðru sæti með 107. Í A/V skor-
uðu Jón Hallgrímsson og Bjarni Þór-
arinsson langmest eða 135 og Lilja
Kristjánsdóttir og Oddur Halldórs-
son urðu í öðru sæti með 109. Spilað
er alla föstudaga í Gjábakkanum.
Sveinn á Vatnshömrum og
Magnús í Birkihlíð með 75% skor
Mánudaginn 13. mars spiluðu
Borgfirðingar tvímenning með þátt-
töku 18 para. Það fer nú að verða hálf-
þreytandi að skrifa þessar fréttir því
það er sama hvert spilaformið er og
hverjir mæta, alltaf skulu þeir félagar
Sveinn á Vatnshömrum og Magnús í
Birkihlíð skjóta öðrum ref fyrir rass.
Nú sigruðu þeir með áður óþekktum
yfirburðum og hlutu 75% skor, geri
aðrir betur. Nú er það rætt í fullri al-
vöru að leggja félagið niður og taka
upp lomber að gömlum góðum sið. Af
öðrum spilurum er helst að geta
frammistöðu Önnu Borgnesings og
Kristjáns í Bakkakoti en þau eru óð-
um að ná að spila sama kerfið, sem
getur verið kostur í bridds eins og
spilarar þekkja. Úrslit urðu annars
sem hér segir í N-S:
Sveinn Hallgrss. – Magnús Magnússon 252
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Pétursson 197
Ingólfur Helgas. – Jóhannes Jóhanness. 178
Eyjólfur Sigurjónss. – Jóhann Oddsson 171
A-V
Anna Einarsd. – Kristján Axelsson 206
Guðm. Pétursson – Þorsteinn Pétursson 185
Guðm. Þorsteinss. – Flemming Jessen 182
Egill Kristinsson – Stefán Jónsson 173
Jón H. Einarss. – Stefán Kalmanss. 173
Næsta mánudag verður enn spil-
aður tvímenningur og eru allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 10. mars var spilað á
11 borðum. Meðalskor var 216.
Úrslit urðu þessi í N/S
Gísli Kristinsson – Helgi Sigurðsson 236
Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannsson 235
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 231
Bjarnar Ingimars. – Friðrik Hermanns. 226
A/V
Þorvarðus S. Guðmss. – Jón Sævaldsson 259
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 248
Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 234
Anton Jónsson – Einar Sveinsson 218
Bridsfélag Kópavogs
Björn og Þórður skoruðu grimmt
sl. fimmtudag og blanda sér þar með í
toppbaráttuna þriðja og síðasta
kvöldið í Butler–tvímenningnum.
Hæstu skor:
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 70
Ragnar Björnsson – Sigurður Sigurjónss. 49
Freyja Sveinsd. – Sigríður Möller 34
Heimir Tryggvason – Leifur Kristjánss. 28
Staða efstu para:
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 98
Heimir Tryggvason – Leifur Kristjánss. 69
Freyja Sveinsd. – Sigríður Möller 45
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 43
Jóhannes og Karl Grétar unnu
meistaramótið á Suðurnesjum
Snubbóttu meistaramóti Brids-
félaganna á Suðurnesjum lauk sl.
miðvikudagskvöld með öruggum sigri
Karls G. Karlssonar og Jóhannesar
Sigurðssonar sem hlutu samtals 542
stig. Næstu pör
Arnór Ragnarss. – Guðjón Jensen 528
Ingvar Guðjónss. – Guðjón Einarss. 483
Garðar V. Garðarss. – Þorgeir Ver 457
Vignir Sigursveinss – Úlfar Kristinss. 452
Sigríður Eyjólfsd. – Hulda Hjálmarsd. 436
Hæsta skor sl. miðvikudag:
Karl Grétar – Jóhannes 219
Arnór – Guðjón Svavar 195
Garðar Garðars. – Kristján Kristjáns. 173
Ingvar – Guðjón 166
Garðar V. – Þorgeir Ver Halldórss. 166
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
HEKLA frumsýnir um helgina nýjan Audi Q7 – fyrsta
jeppann úr smiðju Audi-verksmiðjunnar. Audi Q7 sam-
einar sportleg einkenni og fjölhæfni, háþróaðan tækni-
búnað og önnur þau gæði sem einkenna bíla í lúxus-
flokki. Í fréttatilkynningu segir að á vegum úti sýni
hann allar bestu hliðar sportbíls, bæði hvað varðar af-
köst og aksturseiginleika.
Hægt er að velja um tvær vélarstærðir í Audi Q7.
Nýja 4,2 lítra V8 vélin er með beinni FSI®-innspýtingu,
skilar 350 hestöflum og togar að hámarki 440 Newton-
metra. 3.0 TDI® sex strokka dísilvélin býður það nýj-
asta í einbunuinnspýtingu sem nýtir sér línutengda
piezo-innspýtingu og skilar þar af leiðandi alls 233
hestöflum. Báðar vélarstærðir eru búnar sex gíra
tiptronic®-sjálfskiptingu.
Í Audi Q7 er mikið innra rými og er hægt að raða
sætum og hleðslurými upp á 28 mismunandi vegu. Af
staðalbúnaði má nefna quattro®drifrás með sídrifi og
aldrifi, ABS bremsukerfi, aksturstölvu, Bi-Xenon aðal-
ljós, Bluetooth handfrjálsan símabúnað, ESP stöðug-
leikastýringu og fjarlægðarskynjara.
Sýningin verður í húsakynnum Heklu, Laugavegi
174, og stendur frá kl. 10 til 17 á laugardag.
Hekla frumsýnir Audi-jeppa
ANNAÐ mótið í Tívolísyrpu Glitnis
og Skákfélagsins Hróksins hefst
sunnudaginn 19. mars, í höf-
uðstöðvum Glitnis, Kirkjusandi.
Mótaröðin stendur fram á vor og er
fyrir alla krakka á grunnskólaaldri.
Teflt er í einum opnum flokki en
verðlaunað verður í eftirtöldum
þremur flokkum: 1.–3. bekkur,
4.–6. bekkur og 7.–10. bekkur.
Fyrirkomulagið er með þeim
hætti að fyrst fara fram þrjú stiga-
mót, eitt í mánuði, og munu 6
krakkar úr hverjum flokki tryggja
sér rétt til að tefla á úrslitamóti, í
maí. Fyrstu verðlaun á úr-
slitamótinu er ferð fyrir tvo til
Kaupmannahafnar. Einnig verður
verðlaunað fyrir 1., 2. og 3. sæti á
öllum stigamótum.
Mótið hefst kl. 13 og er mæting
kl. 12–12.30. Skráning á staðnum.
Boðið verður upp á ókeypis veit-
ingar fyrir keppendur og foreldra.
Tívolísyrpa
Glitnis og
Hróksins FÉLAGINU Ísland-Palestína hefur
borist hjálparbeiðni frá Lúterska
heimssambandinu í Jerúsalem
vegna neyðarsöfnunar sem efnt er
til fyrir sjúkrahúsrekstur þess, en
hann er nú í uppnámi. Óvissa er um
áframhald á þjónustu sem engir aðr-
ir veita, meðal annars er þetta eina
sjúkrahúsið á Vesturbakkanum, sem
hefur gervinýru fyrir börn. Palest-
ínska heimastjórnin hefur greitt
200.000 bandaríkjadali mánaðarlega
til Augusta Victoria Hospital fyrir
þjónustu þess, en alger óvissa er um
áframhald þessara greiðslna og án
þeirra verður sjúkrahúsið ekki rek-
ið.
Félagið Ísland-Palestína hefur
sent 2.000 bandaríkjadali til spítal-
ans. Það er hins vegar ljóst að það
framlag, sem þegið var með þakk-
læti, dugir skammt og hefur félagið
leitað til biskups Íslands, Hjálpar-
starfs kirkjunnar og heilbrigðisráð-
herra með erindið.
Augusta Victoria Hospital,
sjúkrahúsið sem rekið er af Lút-
erska heimssambandinu (LWF) á
Olíufjalli í Austur-Jerúsalem, mætir
miklum erfiðleikum um þessar
mundir, eins og fleiri þarlendir,
vegna viðbragða Ísraelsstjórnar,
Bandaríkjanna og Vesturlanda við
kosningaúrslitunum í hertekinni
Palestínu. Ísraelsstjórn neitar að
láta af hendi skattfé Palestínumanna
og Bandaríkjastjórn fer mikinn í að
hindra hvers kyns fjárstuðning við
palestínsku yfirvöldin eftir að
Hamas-samtökin unnu sigur í kosn-
ingum. Hernámið bannar allar
bjargir, veldur atvinnuleysi og slíkri
fátækt að íbúarnir lifa meira og
minna á bónbjörgum. Grundvallar-
stofnanir samfélagsins verða ekki
reknar án utanaðkomandi stuðnings.
Félagið Ísland-Palestína skorar á
einstaklinga, fyrirtæki og félaga-
samtök að láta af hendi rakna í neyð-
arsöfnunina. Reikningsnúmer er
542-26-6990, kennitala 520188-1349,
framlag merkist „AVH-Jerúsalem“.
Safna fyrir sjúkrahús
á Vesturbakkanum
FRÉTTIR