Morgunblaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 32
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Ef þú bókar bílaleigubílinn heima á Íslandi
bíður hann þín á áfangastað. Hver leiga færir
þér 500 Vildarpunkta að auki. Bókaðu
bílinn núna í 50 50 600 og tryggðu þér meira
öryggi og betri þjónustu á ferðum þínum
erlendis hvert sem leið þín liggur.
50 50 600 • www.hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
16
24
03
/2
00
6
Tilboð
Bókaðu fyrir
1. apríl
og fáðu
1.000
Vildarpunkta
fyrir leigu hvar
sem er í heiminum
V
I L
D
A R
P U N K T
A
R
Ég held að ég hafi baraekki upplifað neittskemmtilegra,“ segirSigfríð Þormar, starfs-
mannastjóri hjá Nóa Siríus, um
brúðkaup dóttur sinnar sem haldið
var á herragarði rétt fyrir utan
Stokkhólm. Sigfríð fór af því tilefni
til Stokkhólms og dvaldist þar í
fimm daga. Í ferðinni sjálfri var
gist í borginni en brúðkaupsgestir
streymdu út fyrir borgina á laug-
ardagsmorgni. „Við gistum á
herragarði rétt fyrir utan borgina
og fjörið byrjaði á hádegi á laug-
ardegi. Fyrst var boðið í hádegis-
verð, gúllassúpu, í indíánatjaldi þar
sem var varðeldur. Eftir það var
farið í leirdúfuskotkeppni og við
vorum einstaklega heppin með veð-
ur. Brúðkaupsgestirnir vissu nátt-
úrlega ekkert hvað var í vændum
þannig að þetta var allt saman
skemmtilega óvænt.“ Eftir skot-
keppnina var gott að slappa aðeins
af fyrir sjálfa veisluna. „Við fórum
í gufubað og það var afskaplega
ljúft.“
Eftir það var vígslan fram-
kvæmd í litlu hliðarhúsi við herra-
garðinn. „Í veislunni var boðið upp
á fjórréttaðan matseðil og tilfinn-
ingin var eins og að vera í kon-
ungsveislu. Ég hugsaði bara með
mér; svona hefur Silvía [Svía-
drottning] það,“ segir Sigfríð og
hlær léttilega.
Eftir öll herlegheitin var dansað
og sungið fram undir morgun.
„Veislan var í sama húsi og vígslan
og þar var sungið karókí og dans-
að,“ segir hún ánægð yfir minning-
unum.
Brúðkaupsgestirnir gistu allir á
herragarðinum. „Við sváfum í
litlum sætum herbergjum, mjög
huggulegt og flott.“
Sigfríð er í skýjunum eftir að
hafa dvalið í Stokkhólmi. „Ég var
bara svo yfir mig hrifin eftir þessa
ferð,“ segir hún. „Tilefni ferð-
arinnar var auðvitað brúðkaupið,“
heldur hún áfram „en ferðin sjálf
stóð í fimm daga. Stokkhólmur er
stórkostleg borg, það kom mér svo
á óvart hvað allt er ódýrt þarna og
hversu margt er að sjá og gera,“
segir Sigfríð og nefnir sérstaklega
veitingahúsið Libanen þar sem þau
fengu miklar trakteringar. „Það er
líbanskur staður og áður en við
fórum velti ég fyrir mér hvað ég
gæti eiginlega pantað mér að
borða. Svo fengum við af matseðli
sýnishorn af öllum réttum. Þetta
voru 23 réttir og alveg æðislegt,“
segir hún með mikilli áherslu.
„Þarna var sýndur magadans og
okkur var boðið að prófa vatnspípu
ef við vildum og ég veit ekki hvað
og hvað.“ Hún segir að það sem
skemmtilegast er við Stokkhólm sé
hve gaman er að ganga um borg-
ina, af því að svo margt er að sjá.
„Það er einhvern veginn allt svo
stórt í sniðum. Ef fólk fer t.d. til að
versla er það mjög þægilegt. Það
halda allir að það sé svo dýrt en sú
er alls ekki raunin og hægt að fá
allt milli himins og jarðar. Oft er
álitið að Svíar séu frekar leiðinlegir
en þeir eru mjög skemmtilegir
þegar maður er búinn að kynnast
þeim.“
Vinnustaðarferð eftir páska
Sigfríð er ekki búin að fá nóg af
Stokkhólmi því að hún ætlar að
fara aftur með stelpunum af vinnu-
staðnum strax eftir páska. „Þá ætl-
um við að fara í ferð á vegum
Gestamóttökunnar.“ Sigfríð finnst
að Íslendingar eigi að kynnast
Stokkhólmi betur því að hún held-
ur að kannski sé meiri áhugi hjá
fólki á að fara t.d. til Kaup-
mannahafnar. „Stelpurnar í
vinnunni hváðu þegar farið var að
tala um Stokkhólm og sögðu bara:
Stokkhólm, hvað eigum við að gera
þar? og skildu ekkert í þessu,“ seg-
ir Sigfríð og hnykkir að lokum á
því hve verðlagið er hagstætt með
því að segja frá því að máltíðin á
líbanska staðnum hafi kostað 360
sænskar kr. með öllu inniföldu.
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA? | Stokkhólmur
kemur skemmtilega á óvart
Leirdúfu-
skotkeppni í
brúðkaupi Sigfríð segir skemmtilegt að ganga um Stokkhólm því
þar sé margt að sjá og verðlagið hagstætt.
Sigfríð Þormar fór til að vera við brúðkaup dóttur
sinnar, Evu Sigríðar Jónsdóttur, og Niclas Anderberg.
http://kragga.se/
http:/lebanonml.lunchinfo.com
http://alltomstockholm.se/
mars
Daglegtlíf