Morgunblaðið - 18.03.2006, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ALDREI hafa fleiri byggingar verið
jafnaðar við jörðu í Reykjavík en ár-
ið 2005. Niðurrif bygginga í borginni
hefur aukist jafnt og þétt frá 2001.
Byggingaúrgangur og uppgröftur er
meiri en allt almennt sorp í Reykja-
vík. Þetta kemur fram í erindi sem
Erpur Snær Hansen hjá Mengunar-
vörnum Reykjavíkur mun flytja á
ráðstefnunni Verk og vit í dag.
Á vef umhverfissviðs Reykjavík-
urborgar kemur fram, að bygginga-
úrgangur er talsverður, meðaltalið
er 600 kg á hvern Reykvíking sam-
anborið við 480 kg í Evrópusam-
bandinu. Hér á landi er 97% úr-
gangsins fargað án gjaldtöku, mest á
Hólmsheiði og í Sundahöfn, en í Evr-
ópu er tekið gjald.
„Aukning niðurrifs hefur verið
stöðug frá nýliðnum aldamótum. Ár-
lega fjölgar niðurrifi um sjö og hálft
tilfelli,“ segir Erpur Snær, en hann
hefur flokkað niðurrif bygginga í
fjóra meginflokka:
1: Ný hverfi, þar sem eldri bygg-
ingar víkja fyrir nýrri.
2: Endurnýjun, þar sem stakar
byggingar í gömlum hverfum eru
rifnar og svo endurbyggt.
3: Þéttingu, þar sem gamalt hverfi
er rifið og endurbyggt eins og til
dæmis í Skuggahverfinu.
4: Úreldingu og annað, þar sem
bygging eða hlutar byggingar eru
fjarlægðir án endurnýjunar.
Mikið niðurrif að baki
Erpur segir borgaryfirvöld búast
við að á næstu árum dragi heldur úr
niðurrifi vegna þéttingar byggðar.
Ástæðan fyrir því sé sú að flest slík
fyrirhuguð niðurrif hafi þegar átt sér
stað. Nokkur viðamikil niðurrif eru
samt sem áður á dagskrá í ár. „Hrað-
frystistöðin hefur þegar verið rifin
og Daníelsslippur verður tekinn í
vor, hvort tveggja er forvinna fyrir
Mýrargötusvæðið. Svo má einnig
nefna að gamla lýsisverksmiðjan er
að hverfa um þessar mundir. Faxa-
skáli og nærliggjandi byggingar
hverfa svo í sumar til að rýma fyrir
tónlistarhúsinu. Hinsvegar er lítið
sem ekkert um mannvirki á Úlfars-
fellsvæðinu, öfugt við Elliðavatn,
þannig að niðurrifi vegna nýrra
svæða fækkar,“ segir Erpur Snær á
vef umhverfissviðs, og að úrelding
bygginga sé nokkuð stöðug milli ára,
en að óljóst verði um hlutfall end-
urnýjunar á byggingum.
Byggingaúrgangur er meðal ann-
ars samsettur af uppgreftri, grjóti,
möl, malbiki, steinsteypu, plasti,
dúkum, múrbroti, járni, asbesti og
menguðum jarðvegi. Mengunar-
varnir Umhverfissviðs eru með eft-
irlit með niðurrifi bygginga og
mannvirkja vegna mengunar og gefa
út, ásamt embætti byggingafulltrúa,
starfsleyfi fyrir niðurrifi. Gæta þarf
að förgun úrgangs og því að meng-
andi efni valdi fólki ekki skaða.
Asbest er dæmi um hættulegt efni
sem fylgjast þarf með við niðurrif
bygginga. Um leið og asbest er brot-
ið þyrlast glernálar út í andrúmsloft-
ið og festast í lungunum sem leiðir til
dauða 30-40 árum síðar. Asbest var
notað við byggingar alveg fram und-
ir 1970 á Íslandi og finnst víða, að því
er fram kemur á vef umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar.
Endurnýjun gamalla
hverfa í fullum gangi
Niðurrif hefur aukist gríðarlega í borginni
SÓLVEIG Pétursdóttir, forseti Al-
þingis, átti í gær fundi með László
Sólyom, forseta Ungverjalands,
Ferenc Somogyi, utanríkisráðherra
landsins, og Tihamér Wasvasoszky,
borgarstjóra Székesfehérvár-
borgar, í opinberri heimsókn sinni
til Ungverjalands. Einnig sat hún
hádegisverðarfund með þingmönn-
um úr vináttuhópi ungverska þings-
ins og Alþingis og félögum úr Vina-
félagi Íslands og Ungverjalands.
Að sögn Sólveigar bar mörg mál
á góma á fundum hennar og ung-
verskra ráðamanna en umhverf-
ismál stóðu þó upp úr. „Ungverjar
telja Ísland gott fordæmi í þeim
málaflokki,“ sagði Sólveig. „Mikið
var rætt um endurnýjanlega orku
og fögnuðu Ungverjar vaxandi
samstarfi við Íslendinga á þessu
sviði.“
Ungverjar létu í ljósi vonir um að
hægt væri að koma á frjálsum fólks-
flutningum innan EES sem allra
fyrst en Ísland hefur, eins og mörg
önnur EES-ríki, tekið sér aðlög-
unartíma á því sviði. Báðir aðilar
lýstu ánægju með samstarfið innan
EES og var lítillega rætt um þróun-
arsjóð EFTA, en úr honum runnu
um 60 milljónir evra í fyrra til verk-
efna í Ungverjalandi. Þá var rætt
um Schengen-samstarfið en Ung-
verjar ráðgera aðild að því á næsta
ári. Mikil hátíðahöld verða í Ung-
verjalandi í október nk. til að minn-
ast uppreisnarinnar 1956 og verður
bæði forseta og forsætisráðherra
Íslands boðið til Ungverjalands.
Á fundi með ungverska utanrík-
isráðherranum var jafnframt rætt
um málefni Balkanskaga og Úkr-
aínu. Ungverjar telja mikilvægt að
vinna að framgangi lýðræðis þar og
lýsti utanríkisráðherrann ánægju
sinni með heimsókn þingforseta
Norðurlandanna og Eystrasalts-
landanna til Úkraínu á liðnu hausti,
en þeir vildu leggja sitt af mörkum
við uppbyggingu lýðræðis þar.
Sólveig ræddi framboð Íslands til
öryggisráðs SÞ við utanríkis-
ráðherrann. Hann tók fram að
Austurríkismenn hefðu þegar ósk-
að eftir stuðningi og Ungverjar
veitt vilyrði fyrir því. Að öðru leyti
var hann jákvæður í garð íslenska
framboðsins.
Forseti Ungverjalands tók fram
að hann ætti inni boð til Íslands sem
hann hygðist þiggja við tækifæri.
Þá ræddi hann umhverfismál við
Sólveigu. Hún lagði áherslu á sjón-
armið Íslands varðandi sjálfbæra
þróun. Þá var farið til borgarinnar
Székesfehérvár sem stofnuð var ár-
ið 1.000. Borgin varð illa úti á
valdatíma kommúnista. Mikil um-
skipti og uppbygging urðu í kjölfar
breyttra stjórnarhátta og hefur
borginni tekist að laða til sín mikið
af alþjóðlegum fyrirtækjum. Þar
eru nú sex sérstök iðnaðarsvæði
með 190 fyrirtækjum.
Forseti Alþingis hitti forseta og utanríkisráðherra Ungverjalands í gær
Ungverjar telja Ís-
land gott fordæmi
í umhverfismálum
Ljósmynd/Belinda Theriault
László Sólyom, forseti Ungverjalands, ásamt Sólveigu Pétursdóttur.
Sólveig ræddi einnig við Ferenc
Somogyi utanríkisráðherra.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær tvo ísvélahönnuði af
kröfum fyrirtækisins Optimar Ís-
lands sem taldi að þeir hefðu nýtt sér
atvinnuleyndarmál þegar þeir hófu
eigin starfsemi á ísvélum. Þeir unnu
að þróun og hönnun á svokölluðum
ísstrokkum sem eru vélhlutar sem
tengjast kælikerfi.
Mennirnir störfuðu áður hjá Ís-
kerfum hf. en var vikið úr starfi þeg-
ar Optimar yfirtók rekstur Ískerfa.
Optimar höfðaði málið á þeim grund-
velli að samkvæmt ráðningarsamn-
ingi við Ískerfi hefðu mennirnir
skuldbundið sig til að nýta sér ekki
trúnaðarupplýsingar gamla félags-
ins sem og formúlur, lýsingar, upp-
skriftir og fleira sem þeim var trúað
fyrir í störfum sínum. Í ráðningar-
samningi hefði verið tekið fram að
ævarandi þagnarskylda og trúnaður
gilti um margt það sem mennirnir
hefðu komist yfir í starfi sínu og að
þeim væri óheimilt að nýta sér þær
upplýsingar. Opitmar fékk úrskurð-
að lögbann á starfsemi mannanna.
Stefndu kröfðust sýknu og byggðu
á því að málshöfðandi ætti engan
lögvarinn rétt til lögbanns, hvorki á
grundvelli ráðningarsambands né
samkeppnislaga.
Störfuðu aldrei hjá Optimar
Í dómi héraðsdóms segir að menn-
irnir hafi aldrei starfað hjá Optimar
og í ráðningarsamningi hefðu þeir
verið bundnir trúnaði við vinnuveit-
anda með sérstakri áherslu á það
orð. Vinnuveitandi gæti leyst þá
undan þeim skyldum með skriflegri
heimild. Í greinum ráðningarsamn-
inganna, sem fjalla um aukastörf
stefndu og samkeppnishömlur, komi
beinlínis fram að tilgangur með þeim
hömlum væri að fyrirbyggja að
starfsmennirnir gætu skaðað sam-
keppnisstöðu vinnuveitanda. Engin
ákvæði væru í samningi sem kvæðu
á um að vinnuveitanda væri heimilt
að framselja trúnaðarskyldur starfs-
mannanna. Ekki lægi annað fyrir en
að stefndu hefði hvorki vitað né mátt
vita af meintu framsali og hafi staðið
í þeirri trú að trúnaðarskyldur
þeirra væru við vinnuveitandann
fyrrverandi, Ískerfi hf. sem enn er til
sem fyrirtæki þótt það sé í allt öðr-
um rekstri nú.
Dómurinn féllst ekki á að Ískerfi
hefðu getað, án samþykkis og vit-
undar stefndu, framselt skyldur
þeirra samkvæmt ráðningarsamn-
ingi sem þegar hafði verið slitið með
uppsögn.
Sýknaðir
vegna skorts
á aðild hjá
yfirtöku-
fyrirtækinu
LJÓST er að eldsupptök í frystihúsi
Fossvíkur á Breiðdalsvík á þriðjudag
voru við vökvadælur sem voru á lofti
þess hluta frystihússins sem brann.
Yfirgnæfandi líkur eru á að bilun hafi
orðið í rafmagnsbúnaði tengdum dæl-
unum, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Eskifirði. Við rannsókn
málsins naut lögreglan aðstoðar sér-
fræðings frá rafmagnsöryggisdeild
Neytendastofu.
Eldurinn kviknaði kl. 18.50 á
þriðjudag og varð fljótlega ljóst að um
mikinn eld var að ræða. Slökkvilið frá
Breiðdalsvík, Djúpavogi, Austur-
byggð og Brunavörnum á Héraði fóru
á vettvang og luku slökkvistörfum
klukkan 9 morguninn eftir.
Rýma þurfti nokkur hús við Ásveg
og Sæberg vegna hættu á ammon-
íaksmengun.
Eldsvoðinn
rakinn til
vökvadælna
frystihússins
♦♦♦
LÖGREGLAN í Borgarnesi
lagði hald á fíkniefni, neyslu-
áhöld og skotvopn við húsleit á
sveitabæ í Borgarfirði síðdegis
í gær. Efnin fundust þegar lög-
reglan hugðist birta manni
ákæru vegna annars fíkniefna-
máls.
Einn maður var handtekinn
og færður á lögreglustöðina til
yfirheyrslu og sleppt að henni
lokinni. Viðurkenndi hann að
eiga fíkniefnin sem voru um 400
grömm af kannabisefnum og
lítilræði af amfetamíni, að því
að talið er.
Viðkomandi gat ekki gert
grein fyrir því hvernig hann
hefði komist yfir skotvopnið.
Hann hafði ekki leyfi fyrir því
en um var að ræða gamlan
margskota riffil.
Þegar birta átti manninum
ákæru vegna gamals máls
vöknuðu grunsemdir um að
maðurinn væri með fíkniefni.
Fíkniefnahundurinn Tíra fann
síðan efnin.
Fundu
fíkniefni
þegar birta
átti ákæru
MAGNÚS Kristinsson, eigandi Toyota á Íslandi, hefur fest
kaup á Sólningu hf. af Gunnsteini Skúlasyni og Halldóri
Skúlasyni.
Að sögn Magnúsar verður fyrirtækið rekið áfram sem sér-
stakt félag, óháð Toyota, en jafnframt hafi kaup hans á Sóln-
ingu verið hugsuð sem enn frekari stuðningur við þær fjár-
festingar sem hann hefur ráðist í á undanförnum mánuðum.
„Sólning er mjög áhugavert og vel rekið fyrirtæki, með
starfsemi víða um land. Starfsemi þess styður mjög vel við
þau félög sem ég hef eignast á síðustu misserum og er ég
fullviss þess að kaupin á Sólningu muni enn frekar efla það
þjónustustig sem við veitum viðskiptavinum Toyota og Lex-
us,“ segir Magnús.
Magnús Krist-
insson kaupir
Sólningu